Fréttablaðið - 23.10.2017, Page 6
www.olafsson.is Endursöluaðilar um land allt
Snjöll lýsing!
OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið
að þínum þörfum með Appi
LED lausnir frá
Lýsing fyrir götur,
göngustíga og bílastæði.
Ráðgjöf og nánari upplýsingar
má fá hjá sölumönnum.
Smart City
lausnir
Jóhann Ólafsson & Co.
Krókháls 3, 110 Reykjavík
533 1900
sala@olafsson.is
01 Smærri
viðgerðir
Hraðþjónusta HEKLU.
Hringdu í 590 50 30 eða renndu við.
Hekla.is
K2 kuldajakki
Vatteraður kuldajakki með hettu
sem hægt er að smella af.
8.385 kr.
Verð áður: 12.900 kr.
8.385 kr.
Verð áður: 12.900 kr.
Alltaf til staðar
N1 Klettagörðum 13
og verslanir N1 um land allt
440 1000 www.n1.is
Tilboð gildir út október 2017
www.n1.is facebook.com/enneinn
35% afsláttur
Októbertilboð
K2 kuldabuxur
Vatteraðar kuldabuxur með
smekk og axlaböndum.
Samfélag Hægt er að kaupa bjór og
léttvín í nýrri kjörbúð Þrastalundar í
Þrastaskógi við Sogið þrátt fyrir full-
yrðingar eiganda hennar um að við-
skiptavinir fái ekki að fara með vör-
urnar nema inn á veitingastað sem
þar er. Þetta sannreyndi blaðamaður
Fréttablaðsins á laugardag þegar
hann keypti bjór og hvarf á braut.
Bjór og léttvíni er haganlega raðað
í hillur kjörbúðarinnar ásamt öðrum
drykkjarvörum og ostum. Hægt er
að kaupa þar helstu nauðsynjar en
fjölmargir fara framhjá Þrastalundi á
leið í sumarbústaði og á áningarstaði
í uppsveitum Árnessýslu.
Sverrir Eiríksson, eigandi Þrasta-
lundar, segir engin lög brotin með
þessu og að sami háttur sé viðhafður
á fleiri stöðum. Hér sé ekki um það að
ræða að áfengi sé selt í matvörubúð
en að allar hinar vörurnar séu þó til
þess ætlaðar að þær séu keyptar og
teknar með.
„Þetta er svona á nánast öllu Suður-
landinu,“ segir Sverrir. „Ef þú ferð í
þjóðgarðinn á Þingvöllum þá sérðu
sama fyrirkomulag. Einnig er þetta
fyrirkomulag haft á Geysi í Haukadal
og víðar. Á veitingastöðum með vín-
veitingaleyfi sérðu áfengi í kælum út
um allar trissur. Þetta er bara hluti af
veitingastaðnum.“
Eftir ábendingar viðskiptavina um
að kaupa mætti áfengi í kjörbúðinni
ákvað blaðamaður Fréttablaðsins að
sannreyna fullyrðingu Sverris. Keypti
hann á laugardag áfenga vöru og
ýmislegt annað og var vörunum
raðað í poka af afgreiðslumanni á
staðnum. Áfengi er því selt í matvöru-
versluninni en um er að ræða brot
á áfengislögum enda ÁTVR með
einkaleyfi á smásölu áfengis. Hávær
umræða hefur verið um það síðustu
ár hér á landi að afnema eigi einokun
ríkisins á sölu bjórs og léttvíns.
„Ég hef oft tekið dæmi um upp-
sveitir Árnessýslu til að sýna fram á
tvískinnunginn í þessu,“ segir Vil-
hjálmur Árnason, þingmaður og
flutningsmaður frumvarps um að
leyfa sölu áfengis í matvöruversl-
unum. „Þetta er einhvers konar krafa
frá ferðamönnum en við verðum líka
að hugsa þetta fyrir smákaupmenn
um allt land. Að þeir geti selt þessar
vörur og það hjálpi þeim að halda úti
litlum verslunum hér og þar um allt
land. Þetta snýst ekkert um aðgengi
heldur að hjálpa litlum verslunum,“
segir Vilhjálmur. sveinn@frettabladid.is
Bjór og léttvín seld
í kjörbúð Þrastalundar
Áfengi er selt innan um matvöru í Þrastalundi við Sogið. Eigandi fyrirtækisins
þvertekur fyrir að hægt sé að ganga út með bjór eða léttvín en dæmi eru um
slíkt. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir þetta sýna að breyta þurfi lögum.
Úr sveit í stórborg
Hundruð kinda voru rekin af fjárhirðum um götur Madríd í gær. Þá fór hátíðin Fiesta de la Transhumanica
fram í 24. sinn. Hátíðin er haldin árlega í því skyni að halda í hefðir miðalda þegar fé var rekið úr sumar-
högum á markaði. Þá minnast menn sess fjárhirða í sögu Spánar í gegnum tíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Eins og sjá má er áfengi í Þrastalundi stillt upp með annarri matvöru við hlið
osta og eggja. Slíkt tíðkast víða á landsbyggðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SvEInn
2 3 . o k t ó b e r 2 0 1 7 m Á N U D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
8
-3
9
0
4
1
E
0
8
-3
7
C
8
1
E
0
8
-3
6
8
C
1
E
0
8
-3
5
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K