Fréttablaðið - 23.10.2017, Síða 8
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Á fjórhjóladrifnum KODIAQ
með val um sjö sæti og glerþak, getur þú sameinað þetta tvennt og notið þess að ferðast með ánægju.
Endurnýjaðu tengslin við það mikilvægasta í lífinu á nýjum ŠKODA KODIAQ.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
VIÐ ÞAÐ MIKILVÆGA Í LÍFINU
NÝR ŠKODA KODIAQ MEÐ MÖGULEIKA Á 7 SÆTUM.
ŠKODA KODIAQ frá:
5.590.000 kr.
SPÁNN Katalónskir aðskilnaðarsinnar
munu halda baráttu sinni fyrir sjálf
stæði héraðsins áfram þrátt fyrir hót
anir spænskra yfirvalda um fangelsis
vist. Spænska stjórnin mun líklega
virkja 155. grein stjórnarskrár lands
ins, sem kveður á um að svipta Kata
lóníu sjálfstjórn sinni, í þessari viku.
„Engin stjórn í lýðræðisríki getur
sætt sig við það að lög séu brotin,“
sagði Mariano Rajoy, forsætisráðherra
Spánar, í ávarpi á laugardag. Þar til
kynnti hann ákvörðun stjórnarinnar
um að héraðið skyldi svipt sjálfstjórn.
Að auki hafa spænsk stjórnvöld í
hyggju að taka yfir stjórn lögreglu
héraðsins og héraðsfjölmiðilsins TV3.
„Ég átta mig á því að þetta eru erf
iðir tímar en í sameiningu munum
við komast yfir þetta líkt og við höfum
áður gert,“ segir Rajoy.
Það hefur andað köldu milli Spánar
og Katalóníu frá því að sjálf stjórnar
héraðið tilkynnti að það hygðist halda
þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort lýsa
ætti yfir sjálfstæði eður ei. Lögbann
var lagt á kosningarnar en þær fóru
fram engu að síður. Rúmlega níutíu
prósent þeirra sem mættu á kjörstað
voru hlynnt sjálfstæði. Hótanir hafa
gengið milli manna síðan þá.
Stefnt er að því að spænska þingið
verði kallað saman á föstudag til að
afturkalla sjálfstjórn Katalóna. Carles
Puigdemont héraðsstjóri stefnir að
því að hafa þingfund í héraðsþing
inu á sama tíma. Talið er næsta víst
að Katalónía muni lýsa einhliða yfir
sjálfstæði á næstu vikum, mögulega
strax á föstudag.
Saksóknari í Madríd varaði Puigde
mont og aðra sjálfstæðissinna við
frekara brölti af því tagi. Sagði hann
að til greina kæmi að saksækja hér
aðsstjórann fyrir byltingu en allt að
þrjátíu ára fangelsisrefsing liggur við
slíku broti.
Forseti katalónska þingsins, Carme
Forcadell, hefur kallað fyrirætlan
spænsku stjórnarinnar „de facto coup
d’état“ (byltingu í reynd). Því hafnar
Alfonso Dastis, utanríkisráðherra
Spánar, alfarið.
„Ef einhver er að gera tilraun til
byltingar, þá er það héraðsstjórn
Katalóníu,“ sagði hann við BBC. „Við
ætlum okkur að fylgja alfarið þeim
ramma sem stjórnarskrá landsins
setur.“
Það eru ekki aðeins Katalónar sem
eru óánægðir með framgöngu stjórn
ar Rajoy í málinu. Formaður Bask
nesku þjóðarhreyfingarinnar hefur
fordæmt framgöngu forsætisráð
herrans í málinu. Sem stendur situr
minnihlutastjórn í landinu. Baskar
hafa varið hana falli en spurning er
hvort slíkt haldi áfram.
„Viðbrögð ríkisstjórnarinnar eru
öfgafull og úr hófi,“ tísti Inigo Urkullu,
héraðsstjóri Baska. „Hér er verið að
sprengja brýr í loft upp. Héraðsstjórn
Katalóníu hefur stuðning okkar til
uppbyggilegrar framtíðar.“
johannoli@frettabladid.is
Halda áfram þrátt fyrir hótun
stjórnarinnar um fangelsisvist
Stjórnvöld í Madríd á Spáni ætla að afturkalla sjálfstjórn Katalóníu. Katalónar stefna ótrauðir áfram að því
að lýsa yfir sjálfstæði. Utanríkisráðherra landsins segir héraðsstjórnina vera að gera tilraun til byltingar.
Mariano Rajoy tilkynnti um helgina að stjórn hans ætlaði að virkja 155. grein
spænsku stjórnarskrárinnar um að svipta Katalóna sjálfstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Ef einhver er að gera
tilraun til byltingar,
þá er það héraðsstjórn
Katalóníu.
Alfonso Dastis,
utanríkisráðherra
Spánar
JAPAN Útgönguspár benda til þess
að Shinzo Abe, forsætisráðherra Jap
ans, sé sigurvegari þingkosninganna
sem fram fóru þar í landi í gær.
Þing var rofið í Japan og boðað til
kosninga á síðustu dögum septem
bermánaðar. Abe, sem er flæktur í
tvö spillingarmál, sagði að það væri
gert nú til að styrkja umboð hans
í kjarnorkudeilunni við Norður
Kóreu.
Fyrstu tölur benda til þess að
flokkur Abe og samstarfsflokkur
hans í ríkisstjórninni hafi hlotið
ríflega 300 þingsæti. Fyrir kosningar
höfðu þeir um 321 þingsæti. – jóe
Flokkur Abe
sigraði í Japan
KENíA Raila Odinga, leiðtogi ken
ísku stjórnarandstöðunnar, hefur
lýst því yfir að hann muni ekki
viðurkenna sigur Uhuru Kenyatta,
forseta landsins, í kosningum sem
fyrirhugaðar eru komandi fimmtu
dag.
Kosið var í landinu 8. ágúst og
hafði Kenyatta betur. Hæstiréttur
landsins ógilti síðar kosningarnar.
Kosið verður á ný í vikunni. – jóe
Viðurkennir
ekki sigur
forseta Kenía
Shinzo Abe,
forsætisráðherra
Japans.
2 3 . o K t ó b E r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
8
-3
4
1
4
1
E
0
8
-3
2
D
8
1
E
0
8
-3
1
9
C
1
E
0
8
-3
0
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K