Fréttablaðið - 23.10.2017, Blaðsíða 18
og láta drauma sína rætast. Það
þarf ekki að vera svo flókið,“ segir
Friðrik Agni brosandi.
Menningarheimar mætast
Spurður hvernig það hafi verið að
búa í Dúbaí segir hann það hafa
verið merkilega reynslu því þar sé
menningin í mikilli mótun. „Borgin
er mjög sérstök. Hún er eins og
annar heimur, miðað við það sem
við þekkjum í Evrópu. Í Dúbaí
mætast ólíkir menningarheimar en
landið er um leið mjög alþjóðlegt.
Tæpur fjórðungur íbúa er inn-
lendur en aðrir hafa flutt þangað
frá öðrum löndum, þar af margir
frá Evrópu og flestir tala ensku. Það
er mikið um andstæður í Dúbaí og
mikið af fjármagni í gangi. Þar eru
tækifæri á hverju strái fyrir ungt
fólk í skapandi geiranum og auð-
velt að öðlast mikla vinnureynslu.
Dúbaí er mikil vinnuborg og hægt
að þéna mikinn pening og einnig
spara mikið fé því það er enginn
tekjuskattur í landinu. Margir
eiga erfitt með að snúa til baka til
Evrópu eftir að hafa vanist því að
lifa hátt og lifa því lúxuslífi sem þar
er í boði.“
Fjöllin heima kölluðu
Friðrik Agni ákvað hins vegar að
snúa heim aftur. „Fjöllin hér heima
kölluðu á mig. Ég var reyndar á leið-
inni til New York en ég fékk skóla-
styrk til að læra grafíska hönnun.
Ég var þó tvístígandi yfir því vegna
þess að ég var búinn að vera á svo
miklu flakki. Mér fannst ég hafa
uppfyllt þessa ævintýraþrá og
langaði líka að vera í kringum fjöl-
skylduna mína. Ég flutti því heim og
settist á skólabekk á Bifröst.“
Líf Friðriks Agna hefur einn-
ig snúist um dans og hann hefur
níu sinnum orðið Íslandsmeistari
í samkvæmisdönsum. Dansinn
leiddi hann til Ástralíu þegar hann
var aðeins nítján ára gamall, en þar
kenndi hann samkvæmisdansa,
æfði dans og tók þátt í danskeppn-
um. „Mér bauðst að koma út að
kenna og dansa og ég ákvað að slá
til. Það var góð reynsla en ég ákvað
að snúa mér heldur að tísku og fór
þaðan í námið í Mílanó. Það var
heldur langt í burtu að vera hinum
megin á hnettinum en ég áttaði mig
í raun ekki á fjarlægðinni fyrr en ég
var kominn þangað.“
Kennir og kynnir dans
Friðrik Agni hefur alls ekki sagt
skilið við dansinn þótt hann hafi
ráðið sig til Listahátíðar í Reykja-
vík. Hann kennir bæði zumba og
jallabina og er með vefsíðuna,
www.dansogkultur.is ásamt Önnu
Claessen, bestu vinkonu sinni.
„Jallabina er nýjung en um er að
ræða miðausturlenskt dansfitness
sem mér finnst ótrúlega skemmti-
legt. Dans og kúltúr snýst svo um
að miðla því sem er að gerast í
dansheiminum á Íslandi en þar
er ótrúlega margt í boði. Hægt er
að dansa á hverjum degi á fleiri en
einum stað í Reykjavík. Við erum
í góðu samstarfi við dansskóla og
-félög og þau eru stundum með
snappið okkar. Við höfum einnig
verið í samstarfi við ferðaskrifstofu
og fórum út til Spánar með tuttugu
manna hóp þar sem við dönsuðum
á ströndinni á hverjum degi. Við
erum þegar farin að skipuleggja
næstu ferðir og þær munu örugg-
lega koma á óvart,“ segir Friðrik
Agni að lokum.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
„Dúbaí er mikil vinnuborg. Margir eiga erfitt með að snúa til baka til Evrópu
og venjast því að lifa hátt og lifa því lúxuslífi sem þar er í boði.“
Friðrik Agni fór til Spánar með bestu vinkonu sinni, Önnu Claessen, ásamt
hópi fólks að dansa.
Undanfarin ár hef ég verið verkefnisstjóri hjá Hinu húsinu en er hægt og
rólega að færa mig yfir til Listahá-
tíðar í Reykjavík. Þetta er þvílíkt
spennandi verkefni, fjölbreytt og
víðfeðmt og ég mun vinna náið
með listrænum stjórnanda, kynn-
ingarstjóra og framkvæmdastjóra,“
segir Friðrik Agni Árnason glaður í
bragði. „Ég hlakka til að vinna með
listamönnum, koma listinni á fram-
færi og setja listina inn í samfélagið.
Það er ótrúlega dýrmætt og gefandi
að fá að vinna með skapandi og
virtum listamönnum og skipuleggja
mismunandi viðburði.“
Vildi ekki fórna öllu fyrir
tískuna
Friðrik Agni lærði listræna stjórnun
við Instituto Europeo di Design í
Mílanó á Ítalíu með áherslu á tísku
og starfaði innan þess geira um
tíma. „Ég vann við listræna stjórn-
un, stíliseringu og tískuljósmyndun
í Stokkhólmi, á Ítalíu og í Dúbaí, þar
sem ég bjó í hálft ár. Ég hef mikinn
áhuga á tísku og fylgist vel með
nýjustu tískustraumum og stefnum
en á einhverjum tímapunkti fann ég
að ég var ekki tilbúinn til að fórna
öllu fyrir tískuna en það er næstum
því skilyrði vilji maður ná langt
innan tískuheimsins. Mig langaði
að gera eitthvað meira. Þegar leiðin
lá heim á ný tók ég mastersgráðu
í menningarstjórnun frá Háskól-
anum á Bifröst,“ segir Friðrik Agni
og samþykkir að hann hafi vissulega
mikla reynslu og prófað margt
miðað við aldur en hann verður þrí-
tugur í lok ársins.
„Ég hef alltaf lifað ótrúlega
hratt. Þegar ég fæ hugmyndir sem
mig langar að verði að raunveru-
leika hika ég oftast ekki við að
framkvæmda þær. Margir eiga sér
drauma en finnst of flókið eða erfitt
að hrinda þeim í framkvæmd en
ég hvet alla til að grípa tækifærið
Friðrik Agni hefur níu sinnum orðið Íslandsmeistari í samkvæmisdönsum. Dansinn leiddi hann til Ástralíu þegar hann var aðeins nítján ára gamall. MYND/ANTON BRINK
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
VILTU
HALDA
VEISLU?
JÓLAHLAÐBORÐ
FERMINGAR
BRÚÐKAUP
ÁRSHÁTÍÐIR
ERFIDRYKKJUR
FUNDIR
RÁÐSTEFNUR
AFMÆLI
EFRI SALURINN ER LAUS FYRIR ÞIG ...
BANKASTRÆTI 7A - 101 REYKJAVÍK - S. 562 3232
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
8
-4
2
E
4
1
E
0
8
-4
1
A
8
1
E
0
8
-4
0
6
C
1
E
0
8
-3
F
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K