Fréttablaðið - 23.10.2017, Page 34
Blæðandi sár í Bítlaborginni
Liverpool-liðin tvö eru í vandræðum í ensku úrvalsdeildinni. Þau töpuðu bæði stórleikjum í gær. Starf Ronalds Koeman, knattspyrnustjóra Everton, hangir á bláþræði.
fótbolti Sjötíu og þrír titlar sitja í
verðlaunaskápum liðanna tveggja
frá Liverpool-borg, Liverpool og
Everton. Rauðklæddir Liverpool-
menn voru lengi vel sigursælasta
félag Englands og Everton er það lið
sem oftast hefur verið í efstu deild
á Englandi, eða í 114 tímabil. Íbúar
Liverpool-borgar hugsa eflaust hlýtt
til fortíðarinnar eftir frammistöðu
helgarinnar.
Vonlaus varnarleikur
Liverpool fór til Lundúna og sótti
Tottenham heim á Wembley í loka-
leik níundu umferðar ensku úrvals-
deildarinnar í gær. Liðið hafði ekki
tapað gegn þeim hvítklæddu í fimm
ár, eða síðan í nóvember 2012.
Totten ham hefur hins vegar farið
afskaplega vel af stað í deildinni og
átti eftir að reynast verðugur and-
stæðingur.
Hinn sjóðheiti Harry Kane kom
Tottenham yfir eftir aðeins fjórar
míntútur og Son Heung-min bætti
öðru marki við á 12. mínútu. Þegar
Mohamad Salah skoraði fyrir Liver-
pool hefði leikurinn geta orðið eitt-
hvað, en Dele Alli og Kane áttu eftir
að skora tvö mörk til viðbótar fyrir
Tottenham og varnarlína Liverpool
var í molum.
Sóknarmenn Tottenham léku á
als oddi og höfðu nægt pláss til að
athafna sig fyrir aftan vörn Liverpool.
Frammistaða Dejans Lovren var
það slæm að Jürgen Klopp tók hann
af velli eftir hálftíma leik. Simon
Mignolet gerði nokkur dýrkeypt
mistök í leiknum og hefur nú gert 13
mistök sem hafa leitt til marks and-
Leikmaður helgarinnar
Ágúst er löngu liðinn og þá blómstrar Harry Kane.
Þessi magnaði framherji hefur verið óstöðvandi
undanfarnar vikur og það varð engin breyting þar
á þegar Tottenham fékk Liverpool í heimsókn á
Wembley í gær. Kane skoraði tvö mörk og lagði
upp eitt í 4-1 sigri Spurs.
Í síðustu níu leikjum Tottenham í öllum
keppnum hefur Kane skorað 13 mörk.
Hann hefur einu sinni gert þrennu og
fimm sinnum tvö mörk í leik. Kane mis-
tókst að skora í fyrstu þremur leikjum
Tottenham í ensku úrvalsdeildinni en í
síðustu fimm leikjum hefur hann gert átta
mörk. Enginn leikmaður í ensku úrvals-
deildinni hefur skorað meira á tímabilinu.
Kane vantar aðeins 14 mörk til að
komast í 100 marka klúbbinn í ensku úr-
valsdeildinni. Og haldi hann svona áfram
þarf Alan Shearer að hafa áhyggjur af
markametinu sínu (260 mörk). – iþs
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Tottenham tók Liverpool
í bakaríið á Wembley og
vann 4-1 sigur. Spurs
sýndi styrk sinn í leiknum
og var hættulegt í nánast
hvert skipti sem liðið fór fram
yfir miðju. Með sigrinum jafnaði
Tottenham Manchester United að
stigum í 2. sæti deildarinnar.
Hvað kom á óvart?
Huddersfield gerði sér
lítið fyrir og vann 2-1
sigur á Manchester Un-
ited á heimavelli. Þetta
var fyrsta tap United
fyrir Huddersfield í 65
ár. Eftir frábæra byrjun á tíma-
bilinu fjaraði aðeins undan nýlið-
unum. Sigurinn á laugardaginn var
langþráður og kom þeim upp í 12.
sæti deildarinnar.
Mestu vonbrigðin
Manchester United
lék sinn versta leik
á tímabilinu þegar
liðið laut í lægra haldi
fyrir nýliðum Hudd-
ersfield, 2-1, á útivelli. Flestir
leikmanna United spiluðu illa, þó
enginn verr en sænski miðvörður-
inn Victor Lindelöf. José Mour-
inho var afar ósáttur við hugarfar
manna sinna og lét þá óánægju í
ljós í viðtölum eftir leikinn.
stæðingsins, fleiri en nokkur annar
markvörður í deildinni.
„Allt okkur að kenna“
„Úrslitin voru okkur að kenna.
Totten ham spilaði vel, en við
gerðum þetta of auðvelt fyrir þá,“
sagði Jürgen Klopp, stjóri Liver-
pool, eftir leikinn. „Fyrsta markið
kom úr innkasti og við vorum bara
slæmir, slæmir, slæmir varnarlega.
Annað markið, skyndisókn og þegar
boltinn er kominn fram hjá Lovren
er það orðið of seint.“
Þarf Jürgen Klopp að gera manna-
breytingar, eða er það hugmynda-
fræði hans sem er rót vandans? Hjá
Dortmund var sigurhlutfall hans 56
prósent, en það er aðeins 49 pró-
sent hjá Liverpool. Þar munar ekki
miklu, en Liverpool undir Brendan
Rodgers vann helming leikja sinna
og hann var samt látinn taka pok-
ann sinn.
Koeman ráðalaus
Það er kannski of brátt að tala um
brottrekstur Klopps, en Ronald
Koeman mun alveg örugglega
verða rekinn úr starfi sínu hjá Ever-
ton á næstu dögum, ef það gerðist
ekki í gærkvöldi eftir að blaðið fór
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 9. umferðar 2017-18
Chelsea - Watford 4-2
1-0 Pedro (12.), 1-1 Doucouré (45+2.), 1-2
Pereyra (49.), 2-2 Batshuayi (71.), 3-2 Azpil-
icueta (87.), 4-2 Batshuayi (90+5.).
Huddersfield - Man. Utd. 2-1
1-0 Aaron Mooy (28.), 2-0 Laurent Depoitre
(33.), 2-1 Marcus Rashford (78.).
Man. City - Burnley 3-0
1-0 Sergio Agüero, víti (30.), 2-0 Nicolás
Otamendi (73.), 3-0 Leroy Sané (75.).
Newcastle - C. Palace 1-0
1-0 Mikel Merino (86.).
Stoke - Bournemouth 1-2
0-1 Andrew Surman (16.), 0-2 Junior Stanis-
las, víti (18.), 1-2 Mame Biram Diouf (63.).
Swansea - Leicester 1-2
0-1 Sjálfsmark (24.), 0-2 Shinji Okazaki (49.),
1-2 Alfie Mawson (56.).
Southampton - WBA 1-0
1-0 Sofiane Boufal (85.).
Everton - Arsenal 2-5
1-0 Rooney (12.), 1-1 Monreal (40.), 1-2 Özil
(53.), 1-3 Lacazette (74.), 1-4 Ramsey (90.),
2-4 Niasse (90+3.), 2-5 Sánchez (90+5.).
Tottenham - Liverpool 4-1
1-0 Kane (4.), 2-0 Son (12.), 2-1 Salah (24.),
3-1 Alli (45+3.), 4-1 Kane (56.).
FÉLAG L U J T MÖRK S
Man. City 9 8 1 0 32-4 25
Man. Utd. 9 6 2 1 22-4 20
Tottenham 9 6 2 1 19-6 20
Chelsea 9 5 1 3 17-10 16
Arsenal 9 5 1 3 17-12 16
Watford 9 4 3 2 15-17 15
Newcastle 9 4 2 3 10-8 14
Burnley 9 3 4 2 8-9 13
Liverpool 9 3 4 2 14-16 13
S’ton 9 3 3 3 8-9 12
Huddersf. 9 3 3 3 7-10 12
Brighton 9 3 2 4 9-10 11
WBA 9 2 4 3 7-10 10
Leicester 9 2 3 4 12-14 9
Swansea 9 2 2 5 6-10 8
West Ham 9 2 2 5 8-17 8
Stoke 9 2 2 5 10-20 8
Everton 9 2 2 5 7-18 8
B’mouth 9 2 1 6 6-13 7
C. Palace 9 1 0 8 2-19 3
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Swansea City
Gylfi Þór Sigurðsson
Lék allan leikinn þegar
Everton steinlá fyrir Ars-
enal, 2-5, á heimavelli. Liðið er
aðeins með átta stig eftir níu leiki.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Lék ekki með Cardiff í 0-1
útisigri á Middlesbrough
vegna meiðsla.
Reading
Jón Daði Böðvarsson
Er meiddur og gat ekki
leikið með Reading í 2-1
tapi fyrir Sheffield United.
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Kom inn á undir lokin
þegar Aston Villa bar
sigurorð af Fulham, 2-1.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Fékk langþráðar mínútur
í 0-3 tapi Bristol City fyrir
Leeds United á heimavelli.
Gylfi Þór Sigurðsson gat ekki leynt vonbrigðum sínum í leik Everton og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Everton tapaði 2-5 og situr í fallsæti. Gylfi náði sér ekki á strik í leiknum í gær, ekki frekar en aðrir leikmenn Everton. NoRDiCPHoToS/GETTy
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Kom inn á sem vara-
maður og lék síðustu 19
mínúturnar þegar Burnley
tapaði fyrir Manchester City, 3-0.
2 3 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r18 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
8
-2
A
3
4
1
E
0
8
-2
8
F
8
1
E
0
8
-2
7
B
C
1
E
0
8
-2
6
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K