Fréttablaðið - 23.10.2017, Síða 36
Elskulegur sambýlismaður minn,
Gunnar Egill Sigurðsson
Norðurgötu 39a, Akureyri,
lést 10. október.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Ólöf Eir Guðmundsdóttir
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Guðmundsson
er látinn.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju,
í dag, mánudaginn 23. október, kl. 15.
Einar Már Guðmundsson Þórunn Jónsdóttir
Guðmundur Hrafn Guðmundsson
Auður Hrönn Guðmundsdóttir Eberhard Jungmann
Skúli Ragnar Guðmundsson Sigríður Gústafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Stella Lange Sveinsson
Fléttuvöllum 49,
áður Bláhömrum 4,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann
13. október. Jarðarförin fer fram frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn 25. október kl. 13.00.
Reynir Haraldsson Esther Halldórsdóttir
Gunnar Haraldsson Unnur Einarsdóttir
Einar Haraldsson Rosemarie Hermilla
Sonja Haraldsdóttir Þorlákur Guðbrandsson
Stefán Örn Haraldsson Xin Liu
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Mæðginin Svanhildur Kr. Sverrisdóttir og Sverrir Þorgeirsson standa í stórræðum þessa dagana og leggja nú lokahönd
á smáforrit sem ætlað er að auðvelda
ungum innflytjendum að ná valdi á
íslenskri tungu. Þetta er ekki fyrsta
atrenna þeirra að útgáfu á kennsluefni
í íslensku fyrir snjallsíma en þau höfðu
áður gefið út appið Snjallfinn.
Þetta nýja smáforrit ber vinnuheitið
Ísborg. Rannís styrkti þróun forritsins
en í grunninn einblína Svanhildur og
Sverrir á fjóra mismunandi þætti, það
er málfræði, orðanotkun, framburð og
svo stuttar og einfaldar æfingar í ritun.
„Það er ætlast til að nemendur vinni
verkefnin í samráði við kennara, en
það verður líka hægt að nota appið
heima fyrir auðvitað,“ segir Sverrir en
þessa dagana er hann í doktorsnámi í
fræðilegum taugavísindum í Kanada.
Þar gerir hann tölvumódel af heil
anum og freistar þess ásamt kollegum
sínum að skilja betur hvernig heilinn
virkar. Svanhildur er með doktorsgráðu
í kennsluvísindum og er sérfræðingur
við menntavísindastofnun.
Eins og áður segir höfðu mæðginin
áður gefið úr appið Snjallfinn en það
var ókeypis smáforrit gefið út í kjölfar
útgáfu málfræðibókarinnar Málfinns.
Í appinu var að finna 500 fjölvalsverk
efni tengd málfræði og málnotkun. Að
útgáfunni stóð fyrirtækið Málborg sem
Svanhildur stofnaði árið 2013. Snjall
finnur var hannaður sem leikur fyrir
grunnskólanemendur.
Sverrir er nú staddur hér á landi til að
taka þátt á skákmóti. Sverrir og Svan
hildur fá því tækifæri til að bera saman
bækur sínar, enda hafa þau unnið að
þróun Ísborgar hvort í sínum heims
hlutanum. Svanhildur sér um að móta
kennsluefnið en Sverrir sér um að for
rita smáforritið.
„Þetta hefur gengið ljómandi vel,“
segir Sverrir spurður um hvernig sam
starfið hafi gengið. „Það er hægt að
nálgast appið nú þegar, það eina sem
þarf að gera er að hafa samband við
mig. Þetta er nokkurn veginn komið
og ég vonast til að appið verði formlega
gefið út á næstu mánuðum. Það verður
spennandi að sjá hvernig viðbrögð
smáforritið fær í kennslustofunum.“
Sverrir á ekki von á því að hann geri
þróun smáforrita að ævistarfi sínu.
„Það getur verið að það verði öðru
vísi fyrir mömmu. Við eigum eftir að
sjá hvað gerist í framtíðinni, hvernig
notkunin verður en ég vonast til að
sem flestir fái tækifæri til að prófa, enda
held ég að forritið sé það eina sinnar
tegundar á Íslandi, eða að minnsta
kosti það eina sem er komið á þetta
stig.“ kjartanh@frettabladid.is
Mæta nemum á heimavelli
með nýja appinu Ísborg
Sverrir Þorgeirsson og Svanhildur Kr. Sverrisdóttir vonast til að gefa út nýtt app á næst-
unni sem miðar að því að hjálpa ungum innflytjendum að læra Íslensku. Samstarf mæðg-
inanna í sitthvorum heimshlutanum hefur að þeirra sögn gengið með eindæmum vel.
Sprotarnir og mæðginin Svanhildur Kr. Sverrisdóttir og Sverrir Þorgeirsson.
Fréttablaðið/EyÞór
1707 Breska þingið kemur saman í fyrsta skipti.
1728 Eldur í Kaupinhafn kulnar. Um þriðjungur borgarinnar
brann svo og stór hluti bókasafns Árna Magnússonar.
1850 Fyrsta kvenréttindaráðstefna Bandaríkjanna fer fram í
Worcester í Massachusetts-ríki.
1911 Flugvél notuð í fyrsta skipti í hernaðarskyni. Ítölsk
vél tekur á loft í Líbýu og flýgur yfir herdeildir Tyrkja til að
kanna stöðu þeirra.
1915 Í New York koma um 30 þúsund konur saman til að
krefjast þess að fá kosningarétt.
1917 Lenín kallar eftir októberbyltingunni.
1929 Hlutabréfaverð í kauphöllinni í New York hrynur eftir
að hafa verið á stöðugri niðurleið síðan í september.
1938 Samband íslenskra berklasjúklinga (SÍBS) stofnað. Það
rekur meðal annars Reykjalund og Múlalund.
1956 Bylting háskólanema í Búdapest, höfuðborg Ung-
verjalands, hefst. Hún var barin niður í upphafi nóvember-
mánaðar.
1958 Bandalag háskólamanna (BHM) stofnað.
1973 Richard Nixon, forseti Bandaríkjanna, felst á að af-
henda Watergate-upptökurnar.
1989 Lýðveldið Ungverjaland stofnað eftir að kommúnismi
leið undir lok þar í landi. Matyás Szurös verður forseti.
2002 Téténskir vígamenn ráðast inn í leikhús í Moskvu og
halda 700 manns í gíslingu. 133 gíslar týndu lífi og allir víga-
mennirnir fjörutíu.
2004 Öflugur jarðskjálfti ríður yfir Japan. 35 fórust, yfir
2.000 særðust og hátt í 100 þúsund misstu heimili sín.
2011 Jarðskjálfti, 7,2, að styrk, dynur yfir Tyrkland. 582
fórust og þúsundir særðust.
Merkisatburðir
Fyrir 77 árum fæddist Edson Arantes do
Nascimento, betur þekktur sem Pelé,
í héraðinu Minas Gerais í Brasilíu. Pelé
er einn allra besti knattspyrnumaður
sögunnar.
Á ferli sínum lék Pelé með Santos í
heimalandinu og New York Cosmos.
Séu allir leikir meðtaldir, vináttu- og
sýningarleikir jafnt sem aðrir, lék hann í
heildina 1.363 leiki. Í þeim skoraði hann
1.281 mark. Er hann skráður í Heims-
metabók Guinness sem sá knattspyrnu-
maður sem skorað hefur flest mörk.
Pelé lék á fjórum heimsmeistara-
mótum með þjóð sinni. Er hann einn
þriggja leikmanna, ásamt Þjóðverjunum
Uwe Seeler og Miroslav Klose, sem hafa
skorað mark á fjórum mismunandi
heimsmeistaramótum. Alls skoraði
hann tólf mörk á HM auk þess að lyfta
Jules Rimet-styttunni, verðlaunagrip
keppninnar, í þrígang. Það var árin 1958,
1962 og 1970.
„Ég sagði við sjálfan mig fyrir leikinn
að hann væri bara gerður af holdi og
blóði eins og allir aðrir. Ég hafði rangt
fyrir mér,“ lét ítalski varnarmaðurinn
Tarcisio Burgnich, sem dekkaði Péle í
úrslitaleik HM 1970, hafa eftir sér að
leik loknum. Pelé skoraði eitt mark í
leiknum og lagði upp tvö í 4-1 sigri.
Svarta perlan, en það var Pelé oft
kallaður, lék sinn síðasta knattspyrnu-
leik 1. október árið 1977.
Þ EttA g E R ð i St 2 3 . o Któ b E R 1 9 4 0
Svarta perlan kom í heiminn
Pelé ásamt German „botafogo“ Collado,
nuddara Santos-liðsins.
2 3 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r20 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
8
-1
6
7
4
1
E
0
8
-1
5
3
8
1
E
0
8
-1
3
F
C
1
E
0
8
-1
2
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K