Fréttablaðið - 23.10.2017, Síða 44
Er bíllinn tilbúinn fyrir kuldann í vetur?
Áhuginn hefur verið til staðar frá því ég var lítil, mamma var alltaf dugleg að baka og ég fékk að vera með,“ segir Lena
Rut Guðmundsdóttir sem elskar að
baka og þá sérstaklega að skreyta
kökur.
„Mér finnst gott að vera með eina
svona klassíska uppskrift eins og
þessa og geta þá breytt skreyting-
um, bragði á kremi eða fyllingu.“
„Kakan er einföld í bakstri en svo
getur hver og einn skreytt eins og
hann vill. Það ráð sem hefur gagnast
mér best þegar ég skreyti með
smjörkremi er að frysta botnana og
skreyta þá hálffrosna, þá er auðveld-
ara að eiga við kremið og fá slétta og
fallega áferð,“ útskýrir Lena.
KlassísK súKKulaði-
KaKa með piparsmjör-
Kremi
3 ½ dl sykur
2 egg
4 dl hveiti
1 dl olía
(bragðdauf)
¾ dl kakó
2 dl súrmjólk
1 dl uppáhellt
kaffi
1 tsk. vanillu-
dropar
1 ½ tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
Egg og sykur eru þeytt saman,
svo er restinni bætt saman við og
hrært.
Deigið er sett í tvö 20-22 cm hring-
form og kakan bökuð við 180°C í
ca. 25-30 mínútur eða þar til hægt
er að stinga gaffli í hana án þess að
eitthvað festist á honum.
Krem
250 g smjör, mjúkt
ca. 600 g flórsykur
3 msk. lakkrísduft
(ég notaði Dracula)
½ dl rjómi
Smjör og flórsykur er hrært vel,
lakkrísdufti er bætt við og í lokin
er rjóminn settur út í og hrært vel.
Þeir sem ekki vilja lakkrísduft geta
skipt því út fyrir kakó.
Kakan er látin kólna og síðan er
hún skreytt með piparperlum.
skreytt með
piparsmjörkremi
og piparperlum
Lena Rut Guðmundsdóttir deilir með lesendum uppskrift að klass-
ískri súkkulaðiköku sem auðvelt er að breyta og bæta eftir smekk.
Að þessi sinni fullkomnaði hún hana með piparsmjörkremi.
Flottir samfestingar detta seint
úr tísku en þeir hafa sjaldan
verið eins vinsælir og núna,
ekki síst á rauða dreglinum. Til
að mynda mættu allir í sínu
fínasta pússi á ELLE Women in
Hollywood-verðlaunahátíðina
fyrir viku og þar voru samfest-
ingar áberandi. Til að mynda
klæddist fyrirsætan Alessandra
Ambrosio glæsilegum sam-
festing úr blúndu frá Zuhair
Murad. Sömuleiðis klæddist
ritstjórinn Nina Garcia smart
samfestingi með 70’s-legu
sniði en hún veit svo sannar-
lega hvað hún syngur þegar
kemur að tísku.
Þessi kaka mun slá í gegn hjá þeim sem elska piparsælgæti.
Trendið
Samfest-
ingar
Save the Children á Íslandi
2 3 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r28 l í f i ð ∙ f r É t t A b l A ð i ð
Lífið
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
8
-3
4
1
4
1
E
0
8
-3
2
D
8
1
E
0
8
-3
1
9
C
1
E
0
8
-3
0
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K