Fréttablaðið - 24.10.2017, Page 22
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Ottó var 230 kíló í byrjun árs 2012.
Hann var kominn með sykursýki á
háu stigi og var þyngdin farin að há
honum í starfi.
Yfirmaður Ottós hjá Orkuveitunni
kom honum að hjá VIRK sem vísaði
honum til Estherar Helgu. Hann
hefur notið leiðsagnar hennar síðan.
Ég byrjaði að þyngjast ungur að árum og eins og flestallir í þeim sporum hef ég margoft
farið í megrun. Þannig náði ég oft
af mér tugum kílóa en þau komu
alltaf jafnharðan aftur og oftar en
ekki bættist annað eins við, enda
vantaði mig alla eftirfylgni og hlut-
irnir fóru fljótt í sama farið,“ lýsir
Ottó sem ráðleggur fólki frekar að
gera ekki neitt heldur en að fara í
megrun þegar það er ekki til-
búið til að fylgja henni eftir. „Mín
reynsla er sú að þá verður maður
bara þyngri en áður.“
Ottó hefur starfað hjá Orku-
veitunni í 45 ár og var svo komið að
hann var farinn að missa úr vinnu
vegna þyngdarinnar, enda kominn
með sykursýki á háu stigi. „Yfir-
maður minn kom mér þá að hjá
VIRK – Starfsendurhæfingarsjóði
sem kom mér til Estherar Helgu
Guðmundsdóttur, sérfræðings í
matar- og fíkniráðgjöf hjá Matar-
fíknimiðstöðinni. Þetta var í byrjun
árs 2012 og náði ég í fyrstu góðum
árangri. Það fór hins vegar svo að
ég féll og þyngdist um þrjátíu kíló.
Ég náði mér svo aftur á strik og hef
nú lést um 100 kíló frá því að ég var
sem þyngstur,“ upplýsir Ottó.
Hann segir það ekki hafa gerst
af sjálfu sér. „Eftir að hafa klárað
grunnnámskeið fór ég að sækja
framhaldsmeðferð sem felst í
vikulegum fundum hjá MFM mið-
stöðinni og því að heyra í Esther
Helgu daglega og lista upp fyrir
hana það sem ég hyggst borða
næsta sólarhringinn,“ útskýrir
Ottó. Auk þess sækir hann 12 spora
fundi fyrir þá sem glíma við ofát og
matarfíkn. Tvenn slík samtök eru
virk hér á landi, OA og GSA, en þau
eru félagsskapur fólks sem hefur
fengið lausn á vandamálum sínum
tengdum mat. Samtökin byggja á
12 spora kerfi AA-samtakanna og
ganga út á að viðhalda svokölluðu
fráhaldi frá vandanum. Því til við-
bótar sækir hann vikulega fundi
hjá EA samtökum eða Emotions
Anonymous enda mikilvægt að
vinna með tilfinningahliðina jafn-
hliða hinu.
Ottó á nú auðveldara með að hreyfa sig og er farinn að stunda sund.
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
Aðspurður segist Ottó hafa
látið hvað sem er ofan í sig en að
hann hafi verið einna veikastur
fyrir sykri. Meðferðin hjá MFM
miðstöðinni gengur út á að halda
sig frá sykri og sterkju sem hvort
tveggja ýtir undir ofát og vigta allt
sem er borðað. „Þar er jafnframt
tekið á sálrænum þáttum og reynt
að finna út hvað það er sem veldur
því að þú ert alltaf að borða. Mark-
miðið er að sættast við sjálfan sig
því í raun ertu þinn versti óvinur
þegar ofátið nær yfirhöndinni og
ákveðin sjálfseyðingarhvöt tekur
völdin,“ segir Ottó.
Ottó hringir daglega í Esther
Helgu og fer yfir það sem er á mat-
seðlinum. Ef einhverjar breytingar
verða eða ef eitthvað fer úrskeiðis
þarf hann sömuleiðis að tilkynna
það. Þá er alltaf hægt að hringja
í neyðarnúmer. Dæmigerður
sólarhringur hljómar svona: 140
grömm af svínakjöti, 600 grömm
af grænmeti og 20 grömm af sósu
í kvöldmat, 120 grömm egg, tíu
grömm fetaostur og epli í morgun-
mat og 130 grömm af beikoni, 480
grömm af grænmeti og 20 grömm
af sósu í hádegismat. Fyrir þetta
greiðir Ottó 4.000 krónur á viku.
„Ég lít svo á að þetta hefði að
öðrum kosti farið í enn eina
pitsuna og líklega hefðu vængir
og franskar bæst við. Þetta eru því
ekki peningar sem ég sé eftir.“
Ottó segir hægt að hætta í
meðferðinni hvenær sem er en að
hann telji sig þurfa á aðhaldinu að
halda. „Ef ég þyrfti ekki að skrifa
allt niður og láta vita myndi ég
fljótlega fara að borða það sem
mér sýnist.“ Hann segir matarfíkn
ekkert öðruvísi en fíkn í áfengi
eða annað. „Alkóhólistar ákveða á
hverjum degi að þeir ætli ekki að
drekka þann dag. Það sama gildir
um sykurinn hjá mér.“
Ottó líður mun betur í dag og
segir mestu muna að hann eigi
auðveldara með að standa upp
og hreyfa sig. Þá er hann ekki
sífellt að hugsa um mat eða hvað
eigi að vera í matinn enda er það
fyrirfram ákveðið. „Ég hef aldrei
stundað líkamsrækt en náði sex
mánuðum í Heilsuborg á dög-
unum sem er það lengsta sem ég
hef nokkurn tímann haldið út. Nú
er ég auk þess byrjaður að synda
og finn hvað það gerir mér gott.“
Ottó segir þó ekki nauðsynlegt
að stunda hreyfingu til að léttast
heldur þurfi fyrst og fremst að
breyta mataræðinu.
Þegar Ottó var sem þyngstur
þurfti hann að sprauta sig með
hæsta skammti af sykursýkilyfjum
tvisvar á dag. Hann hefur nú náð
að minnka lyfin svo um munar.
Er laus við sprauturnar en tekur
sykursýkilyf í töfluformi. Ottó segir
marga sem komnir eru yfir 200
kíló, eins og raunin var með hann,
fara á örorku. „Það var alltaf verið
að spyrja mig hvort ég væri enn að
vinna og ég skildi það í raun ekki.
Það hvarflaði aldrei annað að mér
en auðvitað hefði líklega komið
að því að ég hefði þurft að játa mig
sigraðan.“
Fráhald lausnin
Matarfíkn er heilasjúkdómur, að
sögn Estherar Helgu Guðmunds-
dóttur hjá MFM Miðstöðinni. Hún
segir ákveðin matvæli svo sem
sykur og sterkju breyta heilastarf-
seminni efnafræðilega, á sama hátt
og áfengi og vímuefni, og valda
ánetjun. Lausnin felst í því að halda
sig frá þeim matvælum sem valda
þessum breytingum á heila.
Helgarnámskeið 10.-12. nóvember 2017 með
Rósu Richter sálfræðingi og listmeðferðarfræðingi.
Aukið frelsi
– aukin hamingja
Námskeiðið hentar þér: ef þú hefur endurtekið reynt að breyta
óæskilegri hegðun eða mynstri en hefur svo dottið í sama farið aftur
og aftur. Með hjálp listarinnar og EMDR meðferð munum við hefja
mikilvæga úrvinnslu á því sem liggur á bak við vandann og byggja
upp nýja von og framtíðarsýn. EMDR (Eye Movement Desensitization
and Reprocessing) er viðurkennd sem hraðvirkasta leið til að vinna
úr erfiðum atburðum eða upplifunum sem hafa sett mark sitt á líf
okkar. Þú munt læra einfalda en mjög virka aðferð sem þú getur
notað eftir námskeiðið til að fást við erfiðar tilfinningar. Rósa mun
einnig kenna grunn í hugleiðslu og núvitund.
Hafa gaman, leika þér og sleppa tökunum. Það þarf ekki að vera leiðinlegt að vinna
í sjálfum sér, og langt í frá. Á námskeiðinu verður sungið, dansað, leirað, málað, hlegið
og sköpunarkraftinum gefinn laus taumur. Listin kallar fram allan tilfinningaskalann og
endurvekur barnið og skapandann sem býr innra með okkur.
Einnig er innifalið: ljúffengur og hollur matur, gisting í tvær nætur, aðgangur að baðhúsi
og sundlaugum. Verð pr. einstakling er 59.000 kr.
Rósa Richter sálfræðingur og listmeðferðarfræðingur
Ljósmyndari: Helena Stefánsdóttir
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags
Íslands
Nánari upplýsingar og skráning á heilsustofnun.is
eða í síma 483 0300.
Námskeið
10.-12.
nóvember 2017
2 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . O K tÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U RBEtRA Líf
2
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
A
-A
F
C
8
1
E
0
A
-A
E
8
C
1
E
0
A
-A
D
5
0
1
E
0
A
-A
C
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K