Fréttablaðið - 24.10.2017, Síða 23

Fréttablaðið - 24.10.2017, Síða 23
Hlutverk okkar sem leiðbeinenda er að styðja þátttak- endur sjálfa til að finna lausnir til að bæta matar æðið, auka hreyf- ingu eða draga úr streitu. Kristín Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur og Íris Björk Ásgeirsdóttir íþróttafræðingur hjá Heilsuborg eru að fara af stað með nýtt námskeið. MYND/EYÞÓR Góð aðstaða er fyrir gesti í Heilsuborg. MYND/EYÞÓRNýlega flutti Heilsuborg að Bíldshöfða 9. Það er nú bara mannlegt að ætla að leysa vandamálin með sem minnstri fyrirhöfn,“ segir Íris Björk Ásgeirsdóttir, íþróttafræðingur hjá Heilsuborg. Íris, ásamt Kristínu Friðriksdóttur, hjúkrunarfræðingi hjá Heilsuborg, er að fara af stað með nýtt nám- skeið í vikulokin. Námskeiðið nefnist Úr rugli í reglu og þar er tekið á þeim þáttum sem hafa verið skilgreindir sem nauðsynlegar undirstöður góðrar heilsu. „En skyndilausnir eru hins vegar ekki líklegar til árangurs, fólk vill sækja í sama farið aftur ef ekki er hugað að undirstöðunum,“ segir Íris. Fólk er ólíkt Námskeiðið Úr rugli í reglu er fyrir karla og konur sem vilja bæta heilsuna, hvort sem undirliggjandi heilsufarsleg vandamál eru til staðar eða fólk vill einfaldlega láta sér líða betur. „Við leggjum áherslu á að líta heildrænt á heilsuna,“ segir Kristín. „Svo er fólk líka ólíkt og það sem hentar einum hentar ekki endilega öðrum. Í upphafi námskeiðs setja þátttakendur sér markmið um bætta heilsu, við sjáum þátttakendum síðan fyrir verkfærunum og hver og einn velur þau sem honum henta best.“ Margar leiðir til að laga lífsstílinn Oft vantar fólk hreinlega hug- myndir, er fast í sama farinu. Fólk hefur líka margt á sinni könnu og vill gjarnan fá ráð um hvernig það geti bætt heilsuna án þess að það taki of mikinn tíma eða kosti of mikla fyrirhöfn. „Hlutverk okkar sem leiðbeinenda er að styðja þátt- takendur sjálfa til að finna lausnir til að bæta mataræðið, auka hreyfingu eða draga úr streitu,“ segir Kristín. „Við förum yfir alla þessa þætti á námskeiðinu. Það eykur líkur á góðum árangri að hver og einn finni sína eigin leið. „Þetta hljómar kannski dálítið flókið en er það ekki í raun,“ segir Íris. „Það eru þessir litlu hlutir í daglega lífinu, sem við hugsum ekki svo mikið um, sem skipta á endanum svo miklu máli. Með því að gera breytingarnar skref fyrir skref verða þær yfirstíganlegri.“ Skemmtileg og lifandi fræðsla „Sem dæmi um það sem unnið er með er mataræðið, hvaða leiðir eru hjálplegar til að standast freistingar, hvernig hægt er að borða hollt á mannamótum, innkaupin eru skoðuð, sömuleiðis eldamennskan og margt fleira, segir Kristín. „Við förum yfir hreyfinguna, skoðum leiðir til að auka hana í daglegu lífi og hvernig við getum náð auknu jafnvægi og fundið leiðir til slökunar. Að breyta daglegum venjum er lang- tímaverkefni ef fólk vill ná varan- legum árangri.“ „Þess vegna stendur námskeiðið yfir í sex mánuði og eftir þann tíma er hægt að fara á fram- haldsnámskeið, sem við mælum að sjálfsögðu með,“ segir Íris. Við hvetjum fólk til að gefa sér góðan tíma til að ná markmiðum sínum.“ „Já, og svo leggjum við mikla áherslu á að hafa fræðsluna lifandi og skemmtilega,“ bætir Íris við. „Hóparnir vinna saman að því að finna lausnir og réttar leiðir í átt að betra lífi. Við gerum jákvæðar breytingar skref fyrir skref til að ná árangri sem endist. Fólk gerir þetta á sínum hraða og sinni getu.“ Á námskeiðið koma ýmsir gesta- fyrirlesarar, hver með sína sérþekk- ingu, til dæmis sálfræðingur, læknir og ástríðukokkur. Úr rugli í reglu hefst 26. október. Heilsuborg á nýjum stað Nýlega flutti Heilsuborg í stærra og betra húsnæði í Höfðanum, Bílds- höfða 9. Starfsemin var búin að sprengja utan af sér gamla húsnæðið í Faxafeni. Á nýja staðnum var starfsemin aukin um helming og nú starfa hjá Heilsuborg 90 manns. Áhersla á fagmennsku Hjá Heilsuborg starfar eingöngu fag- fólk sem aðstoðar fólk við að öðlast aukna vellíðan og koma í veg fyrir heilsubrest. Sérfræðingar Heilsu- borgar leggja áherslu á heildræna nálgun og að koma til móts við þarfir mismunandi einstaklinga til að ná langvarandi árangri. Allir þjálf- arar og sérfræðingar Heilsuborgar eru með háskólamenntun í sínu fagi og starfsemin styðst eingöngu við viðurkenndar aðferðir. Einkunnar- orð Heilsuborgar eru „Árangur sem endist“. Stöðugt er unnið að því að breyta og bæta þjónustuna í takt við nýjustu þekkingu á áhrifum ýmissa þátta á heilsu og líðan. Frí ráðgjöf Margir eru óvissir um fyrstu skrefin í átt til betri heilsu og þess vegna býður Heilsuborg upp á fría almenna ráðgjöf og stoðkerfis- móttöku þar sem orsakir verkja eru greindar og mælt með næstu skrefum undir handleiðslu sér- fræðinga. Til að fá frekari upplýsingar um Heilsuborg og námskeiðin sem eru í boði er hægt að skoða heimasíðuna www.heilsuborg.is eða hringja í síma 560 1010. Úr rugli í reglu hjá Heilsuborg Allir sækjast eftir góðri heilsu og vellíðan. Ósköp venjulegt fólk þarf oftar en ekki að kljást við áskoranir tengdar heilsunni á lífsleiðinni. Áskoranir sem tengjast gjarnan lífsstíl nútímafólks. KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 4 . o k TÓ b e r 2 0 1 7 BEtRA LÍF 2 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 A -A 0 F 8 1 E 0 A -9 F B C 1 E 0 A -9 E 8 0 1 E 0 A -9 D 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.