Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 23
Hlutverk okkar
sem leiðbeinenda
er að styðja þátttak-
endur sjálfa til að finna
lausnir til að bæta
matar æðið, auka hreyf-
ingu eða draga úr streitu.
Kristín Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur og Íris Björk Ásgeirsdóttir íþróttafræðingur hjá Heilsuborg eru að fara af stað með nýtt námskeið. MYND/EYÞÓR
Góð aðstaða er fyrir gesti í Heilsuborg. MYND/EYÞÓRNýlega flutti Heilsuborg að Bíldshöfða 9.
Það er nú bara mannlegt að ætla að leysa vandamálin með sem minnstri fyrirhöfn,“
segir Íris Björk Ásgeirsdóttir,
íþróttafræðingur hjá Heilsuborg.
Íris, ásamt Kristínu Friðriksdóttur,
hjúkrunarfræðingi hjá Heilsuborg,
er að fara af stað með nýtt nám-
skeið í vikulokin.
Námskeiðið nefnist Úr rugli í
reglu og þar er tekið á þeim þáttum
sem hafa verið skilgreindir sem
nauðsynlegar undirstöður góðrar
heilsu. „En skyndilausnir eru hins
vegar ekki líklegar til árangurs,
fólk vill sækja í sama farið aftur ef
ekki er hugað að undirstöðunum,“
segir Íris.
Fólk er ólíkt
Námskeiðið Úr rugli í reglu er
fyrir karla og konur sem vilja bæta
heilsuna, hvort sem undirliggjandi
heilsufarsleg vandamál eru til
staðar eða fólk vill einfaldlega láta
sér líða betur. „Við leggjum áherslu
á að líta heildrænt á heilsuna,“
segir Kristín. „Svo er fólk líka ólíkt
og það sem hentar einum hentar
ekki endilega öðrum. Í upphafi
námskeiðs setja þátttakendur sér
markmið um bætta heilsu, við
sjáum þátttakendum síðan fyrir
verkfærunum og hver og einn
velur þau sem honum henta best.“
Margar leiðir til að
laga lífsstílinn
Oft vantar fólk hreinlega hug-
myndir, er fast í sama farinu. Fólk
hefur líka margt á sinni könnu og
vill gjarnan fá ráð um hvernig það
geti bætt heilsuna án þess að það
taki of mikinn tíma eða kosti of
mikla fyrirhöfn. „Hlutverk okkar
sem leiðbeinenda er að styðja þátt-
takendur sjálfa til að finna lausnir
til að bæta mataræðið, auka
hreyfingu eða draga úr streitu,“
segir Kristín. „Við förum yfir alla
þessa þætti á námskeiðinu. Það
eykur líkur á góðum árangri að
hver og einn finni sína eigin leið.
„Þetta hljómar kannski dálítið
flókið en er það ekki í raun,“ segir
Íris. „Það eru þessir litlu hlutir í
daglega lífinu, sem við hugsum
ekki svo mikið um, sem skipta á
endanum svo miklu máli. Með því
að gera breytingarnar skref fyrir
skref verða þær yfirstíganlegri.“
Skemmtileg og lifandi fræðsla
„Sem dæmi um það sem unnið er
með er mataræðið, hvaða leiðir eru
hjálplegar til að standast freistingar,
hvernig hægt er að borða hollt
á mannamótum, innkaupin eru
skoðuð, sömuleiðis eldamennskan
og margt fleira, segir Kristín. „Við
förum yfir hreyfinguna, skoðum
leiðir til að auka hana í daglegu lífi
og hvernig við getum náð auknu
jafnvægi og fundið leiðir til slökunar.
Að breyta daglegum venjum er lang-
tímaverkefni ef fólk vill ná varan-
legum árangri.“ „Þess vegna stendur
námskeiðið yfir í sex mánuði og eftir
þann tíma er hægt að fara á fram-
haldsnámskeið, sem við mælum
að sjálfsögðu með,“ segir Íris. Við
hvetjum fólk til að gefa sér góðan
tíma til að ná markmiðum sínum.“
„Já, og svo leggjum við mikla
áherslu á að hafa fræðsluna lifandi
og skemmtilega,“ bætir Íris við.
„Hóparnir vinna saman að því að
finna lausnir og réttar leiðir í átt
að betra lífi. Við gerum jákvæðar
breytingar skref fyrir skref til að ná
árangri sem endist. Fólk gerir þetta á
sínum hraða og sinni getu.“
Á námskeiðið koma ýmsir gesta-
fyrirlesarar, hver með sína sérþekk-
ingu, til dæmis sálfræðingur, læknir
og ástríðukokkur. Úr rugli í reglu
hefst 26. október.
Heilsuborg á nýjum stað
Nýlega flutti Heilsuborg í stærra og
betra húsnæði í Höfðanum, Bílds-
höfða 9. Starfsemin var búin að
sprengja utan af sér gamla húsnæðið
í Faxafeni. Á nýja staðnum var
starfsemin aukin um helming og nú
starfa hjá Heilsuborg 90 manns.
Áhersla á fagmennsku
Hjá Heilsuborg starfar eingöngu fag-
fólk sem aðstoðar fólk við að öðlast
aukna vellíðan og koma í veg fyrir
heilsubrest. Sérfræðingar Heilsu-
borgar leggja áherslu á heildræna
nálgun og að koma til móts við
þarfir mismunandi einstaklinga til
að ná langvarandi árangri. Allir þjálf-
arar og sérfræðingar Heilsuborgar
eru með háskólamenntun í sínu fagi
og starfsemin styðst eingöngu við
viðurkenndar aðferðir. Einkunnar-
orð Heilsuborgar eru „Árangur sem
endist“.
Stöðugt er unnið að því að breyta
og bæta þjónustuna í takt við
nýjustu þekkingu á áhrifum ýmissa
þátta á heilsu og líðan.
Frí ráðgjöf
Margir eru óvissir um fyrstu
skrefin í átt til betri heilsu og þess
vegna býður Heilsuborg upp á fría
almenna ráðgjöf og stoðkerfis-
móttöku þar sem orsakir verkja
eru greindar og mælt með næstu
skrefum undir handleiðslu sér-
fræðinga.
Til að fá frekari upplýsingar um
Heilsuborg og námskeiðin sem eru í
boði er hægt að skoða heimasíðuna
www.heilsuborg.is eða hringja í síma
560 1010.
Úr rugli í reglu hjá Heilsuborg
Allir sækjast eftir góðri heilsu og vellíðan. Ósköp venjulegt fólk þarf oftar en ekki að kljást við
áskoranir tengdar heilsunni á lífsleiðinni. Áskoranir sem tengjast gjarnan lífsstíl nútímafólks.
KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 4 . o k TÓ b e r 2 0 1 7 BEtRA LÍF
2
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
A
-A
0
F
8
1
E
0
A
-9
F
B
C
1
E
0
A
-9
E
8
0
1
E
0
A
-9
D
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K