Fréttablaðið - 24.10.2017, Qupperneq 26
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
6 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . o K tó B e R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U RBetRA Líf
Anna Voltaire, læknir í Svíþjóð og sex barna móðir, hefur gefið út bók sem hún
nefnir „Innan väggen“ og vakið
hefur mikla athygli í Svíþjóð. Þar
lýsir hún því hvernig líkaminn
sagði stopp þegar hún var 45 ára.
Anna hafði starfað sem læknir
ásamt því að sinna börnum sínum
og heimilisstörfum. Í bókinni lýsir
hún streitu og álagi í daglegu lífi og
hvernig hún áttaði sig á því að hún
væri að brenna út.
„Ég er læknir og starf mitt er að
hjálpa öðrum í veikindum. Starfið
hefur verið líf mitt og yndi. Ég
hefði átt að kannast við viðvör
unarbjöllurnar hjá sjálfri mér.
Álagssjúkdómar eins og síþreyta
eru algengir,“ segir Anna, sem gekk
á vegg í lífi sínu og hefur tekist á
við sjúkdóminn, í viðtali við net
útgáfu sænska blaðsins Expressen.
Núna tveimur og hálfu ári síðar
hefur hún náð sér þokkalega og
sendir frá sér bók um þessa reynslu
og hvernig fólk getur tekist á við
streituna í lífinu. Í bókinni gefur
hún upp viðvörunarmerki sem
líkaminn gæti sent frá sér þegar
hann er um það bil að brenna út.
„Við erum öll ólík og það getur
verið mismunandi hvernig sjúk
dómurinn læðist að okkur,“ segir
hún.
Mörg einkenni
Anna var með líkamlega verki
og taldi þá vera vegna þess að
hún hafði gengið með sex börn.
Staðreyndin var sú að hún var of
stressuð. Vöðvabólga í öxlum og
hnakka eru merki um of mikið
álag. Höfuðverkur kemur af
spennu sem jafnframt er afleiðing
af stressi. Algengt er að finna fyrir
slíkum höfuðverk á föstudögum
eftir annasama vinnuviku. „Ef fólk
er ekki vant að fá höfuðverk en
hann byrjar allt í einu að gera vart
við sig ætti að leita til heimilis
læknisins,“ segir Anna. „Vont skap
og pirringur getur sömuleiðis verið
merki um síþreytu.“
Í bókinni deilir Anna með
lesendum eigin reynslu af síþreytu
á áreiðanlegan og persónulegan
hátt. Einnig bendir hún á hvaða
meðferðir eru í boði og hvernig
fólk getur sjálft brugðist við. „Ég
var orðin hálfgert skrímsli heima
fyrir,“ segir Anna og bætir við að
unglingsbörn hennar hafi spurt
hvort hún væri að snappa. „Ég var
alltaf á fullu. Mér fannst ekkert mál
að elda fjóra rétti til að gera öllum
til hæfis í kvöldmatnum. Einn
daginn fann ég að allt var einhvern
veginn orðið of mikið. Ég æpti á
krakkana að það væru bara sam
lokur í matinn. Pirringurinn kom
mest fram heima í garð fjölskyld
unnar. Hugsanlega fengu starfs
félagar mínir líka sinn skammt
af skapillskunni,“ útskýrir Anna.
„Ég reyndar þekki eina súperdug
lega manneskju sem einn daginn
öskraði í vinnunni: „Nei, nú get ég
ekki meira.“ Hún fann að streitan
var farin að taka völdin. Pirr
ingur og streita fara mjög oft vel
Að brenna út og rekast á vegg
Venjulega er rætt af mikilli aðdáun um ofurkonur. Það getur hins vegar farið illa með fólk að vera stöð-
ugt undir miklu álagi. Streita getur verið mjög hættuleg, eftir því sem fram kemur í nýrri sænskri bók.
saman. Þegar þannig er komið er
kannski rétt að skoða á hvaða stað
maður er kominn. Börn hafa engan
skilning á ofurstressaðri móður,
þau sjá bara ömurlega fúla og skap
vonda manneskju. Það getur samt
verið ansi erfitt að sjá sjálfan sig í
réttu ljósi, svo var einnig með mig
sjálfa,“ segir hún.
Að týna sjálfri sér
„Eitt af því sem skeður í öllu þessu
álagi er að minnið versnar. Maður
gleymir hvar maður setti bíllykl
ana, setur þá jafnvel í ísskápinn,
gleymir fundum í vinnunni og
man ekki hvað maður ætlaði að
segja. Einu sinni ætlaði ég að segja
mótorhjól en sagði reiðhjólahjálm
ur í staðinn. Maður fattar þetta
ekki sjálfur fyrr en fólk horfir for
viða á mann. Svona bull var mjög
ólíkt mér og passaði heldur ekki
við sjálfsmynd mína. Ég er mjög
skipulögð manneskja og alltaf með
allt á hreinu. Ég gaf barninu mínu
brjóst á meðan ég þreif húsið og
var vön að gera marga hluti í einu.
Þegar álagið var orðið of mikið
gat ég ekki einu sinni sett kaffi
pokann á réttan stað í kaffivélina.
Engar pillur geta læknað þetta, því
miður,“ segir Anna.
Einn af fylgifiskum síþreytu er
verra ónæmiskerfi. „Maður fær
oftar kvef og óútskýrðan hita sem
kemur og fer. Ég fékk veirusýkingu,
ristil, sem venjulega kemur ekki
hjá ungu og frísku fólki. Ég leitaði
læknis vegna þessa því ég átt
aði mig ekki á hvað þetta væri.
Læknirinn benti mér á að ég þyrfti
að hvílast, ég væri greinilega undir
of miklu álagi. Ekki einu sinni
það kveikti á viðvörunarbjöllum
hjá mér,“ segir Anna sem nokkru
seinna fór í sjúkrabíl á sjúkrahús
gjörsamlega búin á sál og líkama.
Hún mælir ekki með því að fólk
brenni svo svakalega út að það
þurfi með sjúkrabíl á spítala. „Best
er að heimsækja heimilislækninn
ef maður finnur fyrir einkennum
síþreytu. Hann getur leiðbeint um
hvíld og meðferð,“ segir hún. „Og
það er best að fara eftir fyrirmæl
unum.“
Pirrandi hávaði
Viðkvæmni vegna hávaða er ein
af viðvörunarbjöllum ofþreytu.
Ef þér finnst vera stöðugt suð
í eyrunum er það væntanlega
stress, þó ekki þegar um er að ræða
tinnitus. „Ég varð ofurviðkvæm
fyrir öllum hávaða. Meira að segja
glamrið í diskum í eldhúsinu fór
fyrir brjóstið á mér. Ég gekk um og
bað börnin að hafa hægara um sig
en þau störðu bara og sögðu að það
hefði ekki verið neinn hávaði.
Svefninn getur líka sagt heil
mikið um streitu. Ef þú sefur meira
en venjulega án þess að vakna
úthvíld getur það verið merki um
of mikið álag. Eða ef þú vaknar upp
við minnsta þrusk og átt erfitt með
að sofna aftur. Ef svefnmynstrið
breytist allt í einu þarf að taka
það alvarlega. Svefninn er afar
mikilvægur og ef hann er ekki í lagi
getur maður orðið mjög veikur.
Maður vaknar kannski um miðja
nótt í stresskasti yfir hinu og þessu
sem maður á ógert.“
Algengur sjúkdómur
Álagssjúkdómar eru algengir í
Svíþjóð. Um 32 þúsund manns
greinast með síþreytu þar í landi
árlega. Ástæðan gæti verið of
mikið álag í starfi, atvinnumissir,
vandamál í hjónabandi eða undir
liggjandi sjúkdómar. Síþreyta er
alvarlegur sjúkdómur sem getur
lagst þungt á fólk. Sumir ná sér
aldrei fullkomlega og eiga erfitt
með að höndla álag þótt þeir hafi
náð sér af veikindunum. „Sjúkl
ingar hafa komið til mín eftir að
hafa rekist á vegg og sagt að þeir
sofi bara og sofi. Það er mjög gott.
Svefn og rólegheit er það sem við
þurfum á að halda.“
Það er ekkert mjög sniðugt að vera ofurkona. Ég er mjög skipulögð manneskja og alltaf með allt á hreinu. Ég gaf barninu mínu brjóst á meðan ég þreif húsið og
var vön að gera marga hluti í einu.
Anna Voltaire, læknir í Svíþjóð og sex barna móðir.
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Heilsu Qigong
5 helstu ástæður þess að iðka qigong
Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt
æfingakerfi í heilsurækt þarsem saman fer qi, sem merkir
“lífskraftur”, og gong, sem merkir “nákvæmar æfingar”. Skráning
í síma
553 8282
1. Aukin vellíðan og lífsþróttur
Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi,
jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról.
2. Dregur úr þrálátum sársauka
Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur
þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt.
3. Betra blóðstreymi
Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið
súrefnisflæði í líkamanum.
4. Dregur úr spennu
Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi.
Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi
og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð.
5. Byggir upp sjálfsvirðingu
Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega.
Þú finnur okkur
á Facebook
2
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
A
-A
0
F
8
1
E
0
A
-9
F
B
C
1
E
0
A
-9
E
8
0
1
E
0
A
-9
D
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K