Fréttablaðið - 24.10.2017, Page 28
Íslenska ætihvönn-
in er uppistaðan í
vörum SagaMedica og
hefur mikla sögulega
þýðingu fyrir íslensku
þjóðina, því hún hefur
verið talin afar mikilvirk
lækningajurt allt frá
landnámstíð.
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Þekkingarfyrirtækið Saga-Medica er leiðandi afl í íslenskum náttúruvöruiðnaði.
Fyrirtækið var stofnað árið 2000,
en upphafið má rekja til rannsókna
dr. Sigmundar Guðbjarnasonar, líf-
efnafræðings og fyrrverandi rektors
Háskóla Íslands. SagaMedica sér-
hæfir sig í rannsóknum á íslenskum
lækningajurtum og framleiðslu á
hágæða náttúruvörum úr þeim.
Fyrirtækið selur vörur sínar bæði
innanlands og á erlendum mörk-
uðum.
,,Íslenska ætihvönnin er uppi-
staðan í vörum SagaMedica, en
mismunandi hlutar plöntunnar
innihalda efni með ólíka lífvirkni,“
segir Ingibjörg Ásta Halldórs-
dóttir, sölu- og markaðsstjóri hjá
SagaMedica. „Hvönnin hefur mikla
sögulega þýðingu fyrir íslensku
þjóðina, því hún hefur verið talin
afar mikilvirk lækningajurt allt frá
landnámstíð.“
Fælir flensuna burt
„Sérfræðingar fyrirtækisins eru
stöðugt að rannsaka og þróa nýjar
afurðir sem stuðla að bættum lífs-
gæðum. Það er okkar markmið að
létta fólki lífið,“ segir Ingibjörg.
SagaVita (áður Angelica) jurta-
veigin er fyrsta varan sem sett var
á markað hjá SagaMedica. „Saga-
Vita er unnið úr hvannarfræjum
og afurðin inniheldur fjölmörg
lífvirk efni,“ segir Ingibjörg. „Saga-
Vita er talin hafa styrkjandi áhrif
á ónæmiskerfið. Margir taka því
SagaVita á haustin til að verjast
kvefi og flensu. Einnig hefur Saga-
Vita þótt gagnast þeim sem eru
að jafna sig eftir veikindi og gefa
aukinn kraft og framtakssemi.“
SagaVita er bæði fáanlegt í töflu-
og vökvaformi.
Íslenska röddin sívinsæl
„Í gegnum árin hefur SagaMedica
útvíkkað vörulínuna jafnt og þétt
og höfum við nýlega tekið í gegn
og sett á markað nýjar umbúðir
og tegundir fyrir Voxis háls-
töflurnar,“ segir Ingibjörg. „Þessar
umbúðabreytingar eru í takt við
þær breytingar sem gerðar voru á
umbúðum annarra vörutegunda á
síðasta ári. Voxis hálstöflurnar eru
nú jafnframt fáanlegur sykurlausar
og sykurlausar með engifer.“
„Voxis hálstöflurnar eru vin-
sælustu hálstöflur landsins sam-
kvæmt síðustu mælingum (Nielsen
tölur, september, Gallup á Íslandi).
Töflurnar gagnast vel við kvefi og
særindum í hálsi og mýkja röddina.
Fyrir utan það eru þær einstaklega
bragðgóðar og henta öllum aldurs-
hópum,“ segir Ingibjörg. „Eins og
aðrar vörur SagaMedica eru Voxis
töflurnar framleiddar úr hvönn en
auk þess innihalda þær mentól og
eucalyptus. Til gamans má geta að
nafnið Voxis þýðir íslensk rödd, en
„vox“ þýðir rödd á latínu og „is“ er
svo landskóði Íslands.“
Aðrar vörur frá SagaMedica eru
SagaPro og SagaMemo og eru allar
vörur fáanlegar í helstu apótekum,
heilsubúðum, matvöruverslunum
og á vef þeirra, SagaMedica.is
Bætt lífsgæði með
aðstoð íslensku hvannarinnar
Fyrirtækið SagaMedica rannsakar íslenskar lækningajurtir og framleiðir hágæða náttúruvörur úr
íslenskri hvönn sem geta meðal annars unnið gegn kvefpestum og bætt lífsgæði og þrótt.
Ingibjörg segir að markmið SagaMedica sé að bæta lífsgæði fólks. MYND/BALDUR KRISTJÁNSSON
8 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . O K Tó B e R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U RBeTRA LÍF
l Slökum á. Það þarf ekki að gera
allt í snarhasti. Stresslaust líf
eykur hamingju og árvekni.
l Hlúum að fólkinu sem er okkur
kærast, njótum samvista við
það sem oftast og komum fram
við það eins og við viljum að sé
komið fram við okkur.
l Einbeitum okkur að því sem
við höfum frekar en því sem við
höfum ekki, þegar kemur að
eigin velgengni.
l Víkkum út sjóndeildarhringinn og
reynum okkur við ný verkefni. Sér-
hver dagur felur í sér ný tækifæri
til að kynnast sjálfum sér betur og
læra eitthvað nýtt um lífið.
l Kynnumst fólki sem er svipað
og við sjálf erum, en líka fólki
sem er ólíkt okkur. Það eykur
þekkingu okkar á misjöfnu hlut-
skipti og skilning okkar á ólíkri
lífsreynslu fólks.
l Verum opin fyrir lystisemdum
lífsins sem kosta ekki krónu, eins
og dýrlegu sólarlagi eða því að
geta kúrt undir sæng þegar vont
veður geisar úti.
l Njótum þess að vera með okkur
sjálfum. Enginn annar skynjar
betur hvað maður vill eða
þarfnast sjálfur.
l Jörðin er undurfagur staður.
Förum sem oftast út í náttúruna
og ferðumst til að opna hugann,
kynnast ólíku fólki, menningu og
landslagi.
l Hjálpum náunganum. Það fáum
við margfalt til baka og upplifum
sanna vellíðan á eftir.
l Notum skilningarvitin til að
njóta þess besta úr jarðlífinu.
Hlustum á fegurstu hljóðin,
kjömsum á sælkeramat, snertum
það sem freistar okkar að snerta,
horfum á fagurt sköpunarverkið
og nusum af margvíslegri angan
tilverunnar.
l Hugsum meira og tölum minna.
Með því lærum við meira og
missum af minna.
l Sofum vel. Þreyttur hugur er van-
sæll og afkastalítill.
l Stöndum við orð okkar. Það
sýnir úr hverju við erum gerð og
hvernig okkar verður minnst.
l Hættum fullkomnunaráráttu til
þess eins að ganga í augu ann-
arra. Reynum frekar að fullnægja
eigin þörfum og löngunum.
l Látum fortíðina lönd og leið og
höfum ekki áhyggjur af fram-
tíðinni. Lifum í núinu því ellegar
missum við af lífinu hér og nú.
Verum vakandi fyrir öllum litlu,
dýrmætu augnablikunum og
njótum þeirrar andagiftar og
hamingju sem í þeim felast.
l Hlæjum og hættum að taka lífið
of alvarlega. Hláturinn lengir
lífið.
l Stígum út fyrir þægindaramm-
ann og tökum óvæntum tæki-
færum með opnum huga.
l Hættum að sóa tíma okkar og
lærum tímastjórnun til að ná
markmiðum. Ellegar ráfum við
stefnulaust áfram og eigum á
hættu að missa sjónar á þeim.
Uppskrift að betra lífi
Tíminn er af skornum skammti. Allt of margir sitja fastir í fortíðinni eða bíða eftir framtíðinni og gleyma
að njóta líðandi stundar með öllum sínum dýrmætu andartökum sem skapa góðar minningar. Lifum af
ástríðu og í tilhlökkun fyrir verkefnum dagsins því hamingjan hefur lítið með veraldleg auðæfi að gera.
Sköpunarverkið í sinni fegurstu
mynd veldur vellíðan og hamingju
þeirra sem njóta og kostar ekkert.
Hláturinn lengir lífið og því ættum
við að hlæja sem oftast og hætta að
taka lífið of alvarlega.
Súkkulaði er sælubiti, eins og svo
margt annað sem við getum upplifað
og nært með skilningarvitunum.
2
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
A
-B
4
B
8
1
E
0
A
-B
3
7
C
1
E
0
A
-B
2
4
0
1
E
0
A
-B
1
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K