Fréttablaðið - 24.10.2017, Page 34
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, afa og langafa,
Egils Jónssonar
fyrrverandi brunavarðar,
Barmahlíð 3, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til brunavarða Slökkviliðsstöðvar
höfuðborgarsvæðisins og Hörpu útfararstofu fyrir
góða þjónustu.
Auður Ingvarsdóttir
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð, hlýhug og stuðning vegna
andláts og útfarar ástkærrar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Pernille G. Bremnes
Lilja Matthíasdóttir
Jón Matthíasson Heiðdís Sigurðardóttir
Ingvar Matthíasson Helena Bergstrøm
Björn Matthíasson Þuríður Jóhannsdóttir
Brandur Matthíasson Sigríður Laufey
Gunnarsdóttir
Svanborg Matthíasdóttir Kjartan Örn Sigurðsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
Hjördís Erla Pétursdóttir
áður Löngubrekku 2,
Rjúpnasölum 10,
lést þriðjudaginn 17. október.
Hún verður jarðsungin frá Lindakirkju
föstudaginn 27. október klukkan 13.
Hörður Oddgeirsson Kristín Líndal Hafsteinsdóttir
Guðný R. Reynisdóttir
Haukur Reynisson Erna Gísladóttir
Kristín Magnúsdóttir
Kjartan Magnússon
Erla Stefanía Magnúsdóttir
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
Ástkær eiginmaður,
faðir, tengdafaðir og afi,
Ágúst Jóhannsson
húsgagnasmiður,
Smárarima 26,
lést á líknardeild Landspítalans
19. október síðastliðinn. Útför auglýst síðar.
María Haraldsdóttir
Ólafía Ágústsdóttir
María Ágústsdóttir Guðjón Hauksson
Anna Ágústsdóttir Andrés Magnússon
og afabörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir,
Guðrún Kristjana
Ólafsdóttir
Grænlandsleið 47,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi
17. október sl. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík fimmtudaginn 26. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á styrktarreikning fyrir son hennar
Gunnar Friðrik, reikn. 0528-14-400263, kt. 220572-4209.
Björn Helgason
Gunnar Friðrik Björnsson
og fjölskylda.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haukur Sveinsson
frá Baldurshaga í Bolungarvík,
lengst af til heimilis að
Hólabraut 5 í Hafnarfirði,
lést laugardaginn 14. október á
Hrafnistu í Hafnarfirði. Hann verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn 27. október, kl. 15.
Sveinn Rúnar Hauksson Björk Vilhelmsdóttir
Óttar Felix Hauksson Guðný Þöll Aðalsteinsdóttir
Sigríður G. Hauksdóttir Evald E. Sæmundsen
barnabörn og barnabarnabörn.
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Guðmundur Baldvinsson,
umsjón útfara
2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r18 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Það sem ég ætla að tala um er einkum hvers konar fyrirbæri siðbótin var, hverjir siðbótar-mennirnir voru sem kenndu sig við Lúther og hver mark-
mið þeirra voru,“ segir séra Gunnar
Kristjánsson um fyrirlestur sem hann
flytur í Snorrastofu í Reykholti í kvöld
og hefst klukkan 20.30. Tilefnið er að nú
í októberlok eru 500 ár frá því Marteinn
Lúther birti gagnrýni sína á Rómar-
kirkjuna og festi á kirkjuhurð fursta-
hallarinnar í Wittenberg í Þýskalandi
auk þess sem hann bauð til almennrar
umræðu um efnið.
„Ég hef lengi stúderað Lúther og meðal
annars unnið að þýðingum nokkuð
margra rita eftir hann sem munu koma
út á næstunni,“ segir séra Gunnar
sem telur siðbótina eina áhrifamestu
umbótahreyfingu sögunnar og rekur
hugmyndir um almenna menntun,
vestræna samfélagshugsun, rætur vel-
ferðarkerfisins og hugsjónir frönsku
byltingarinnar til hennar.
„Siðbótin kristallast einkum í tvennu,“
segir hann. „Í fyrsta lagi gagnrýni á
Rómarkirkjuna sem var glæsileg hið ytra
á 16. öld en aldrei í sögunni jafn spillt
hið innra, einkum á það við um páfana.
Í öðru lagi er siðbótin að vissu leyti
undanfari upplýsingastefnunnar. Lúth-
er þýddi Biblíuna á þýsku, móðurmál
sitt, svo að almenningur gæti lesið hana,
myndað sér skoðun og tekið afstöðu.
Fólk þyrfti ekki að lúta túlkunarvaldi
vígðra manna heldur væri hver og einn
frjáls til að lesa og hugsa og móta eigin
skoðanir. Þetta er ein af grundvallarfor-
sendum siðbótarinnar. Þótt Lúther hafi
barist gegn klausturlifnaði vildi hann að
klaustrunum yrði breytt í menningar-
stofnanir. Eitt rita hans fjallar um að
skynsamlegt væri að breyta þeim í skóla
þar sem börn alþýðufólks, bæði drengir
og stúlkur, lærðu að lesa og skrifa þannig
að þau gætu verið virkir þátttakendur í
samfélaginu.“ gun@frettabladid.is
Siðbótin í ljósi sögunnar
Séra Gunnar Kristjánsson ræðir þær kristnu hugsjónir sem Marteinn Lúther boðaði
í Wittenberg í Þýskalandi fyrir 500 árum, í Snorrastofu í Reykholti í kvöld.
„Við Íslendingar höfum haft þröngt sjónarhorn á siðbótarhreyfinguna til þessa og þau tímamót í menningarsögu Vesturlanda sem
hún markaði,“ segir séra Gunnar. Fréttablaðið/anton brink
Þótt Lúther hafi barist
gegn klausturlifnaði
vildi hann að klaustrunum yrði
breytt í menningarstofnanir.
2
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
A
-A
F
C
8
1
E
0
A
-A
E
8
C
1
E
0
A
-A
D
5
0
1
E
0
A
-A
C
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K