Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 42
Golfklúbbur seltjarnarness 62,5 pkm 172 milljónir króna Pylsukílómetrar Ein með öllu nema hráum er trúlega fyrsti skyndibiti Íslendinga enda algjörlega óskiljanlegt að fólk fái sér hráan lauk á þennan þjóðarrétt. Það er hægt að hafa vel upp úr því að selja pylsur eins og Pylsuvagninn á Sel- fossi sannar. Í nýbirtum ársreikn- eins og að selja þúsund pylsur á hverjum einasta degi Velta Pylsuvagnsins á Selfossi var 172 milljónir í fyrra og skil- aði vagninn eigendum sínum tugmilljóna arði. Eigandi Pylsu- vagnsins vill þó ekkert gorta sig af afrekinu en kunnugir segja að biðin eftir einni með öllu á Selfossi, sé þess virði. selfoss ingi vagnsins kemur fram að veltan var 172 milljónir króna á síðasta ári. Það gerir þúsund pylsur á dag en ein með öllu kostar 450 krónur. Vagninn hefur verið rekinn á sömu kennitölunni í þau 33 ár sem hann hefur verið til og segir Ingunn Guðmundsdóttir, eigandi Pylsu- vagnsins, að tölurnar sýni hversu mikilvægt starfsfólkið sé. Að öðru leyti vildi hún ekkert tjá sig um þessa gífurlegu sölu. Ársverkin voru 11 á síðasta ári hjá vagninum og hagnaður félags- ins nam um 19,5 milljónum króna. Félagið greiddi 13,78 milljónir í arð á síðasta ári. Vörusala nam 172 milljónum króna og jókst um 22 milljónir á milli ára. Það eru ekki aðeins seldar pylsur í pylsuvagninum því matseð- illinn er kraumandi af kræsingum. Þar má finna margt sem leikur um bragðlaukana. Laun á síðasta ári hjá vagninum voru 64 milljónir og handbært fé í árslok tæpar 20 milljónir. Ingunn eyddi tæpum 300 þúsund krónum á síðasta ári í vinnuföt enda samdóma álit þeirra sem kíkja við hjá vagnin- um að starfsfólkið þar sé snyrtilegt og vel til fara. Ingunn gerði líka vel við starfsfólk sitt utan vinnu því hún eyddi yfir milljón í árshátíð, óvissu- ferðir og fleira. Það kostar sitt að kynda undir pylsupottinum og hafa grillið nán- ast alltaf í gangi en rafmagnsreikn- ingurinn nam rúmri milljón. Þá fóru 770 þúsund í sorplosun enda mikið rusl sem fylgir þjóðarréttinum. benediktboas@365.is Pylsuvagninn malar gullpylsur þessi misserin. Fréttablaðið/SteFán ingunn Guðmundsdóttir eigandi á góðri stund. Fréttablaðið/MaGnúS Pylsan er 18 sentimetrar samkvæmt svörum ss. veltan var 172 milljónir á síðasta ári. 365 þúsund Pylsur Gera því 64,5 kílómetra. þá er hæGt að leGGja Gómsætan PylsuveG frá PylsuvaGninum á selfossi oG alla leið að Golfskálanum á seltjarnarnesi oG samt eiGa fjöldann allan af Pylsum til að Gefa svönGum Golfurum. 365.000.000 - lægra verð Kæri nágranni! Við bjóðum 20–25% afslátt af barnavörum og barnavítamínum í Apótekaranum til 7. nóvember. Hlökkum til að sjá þig. afsláttur af öllum barnavörum og barnavítamínum 2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r26 l í f I Ð ∙ f r É t t A b l A Ð I Ð Lífið 2 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 A -B E 9 8 1 E 0 A -B D 5 C 1 E 0 A -B C 2 0 1 E 0 A -B A E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.