Fréttablaðið - 09.11.2017, Page 10

Fréttablaðið - 09.11.2017, Page 10
Það er greinilega betra að vera hryðjuverkamaður sem kemur aftur heim frá Sýr- landi en þingmaður sem fordæmir að- gerðir Ísl- amska ríkisins. Marine Le Pen 699 kr.pk. Klementínur 2,3 kg, Spánn Ódýrt Hreyfing er lífsgæði Frelsið til að hreyfa sig er uppspretta orku og lífsgleði. Njóttu þess alla ævi. Verndar liði, bein og brjósk Inniheldur aðeins náttúruleg efni Kollagenrík blanda úr sæbjúgnaskráp Bætt með D3- og C-vítamíni Túrmerik og mangan fyrir aukna virkni LIÐIR - liðkandi fiskprótínblanda frá PROTIS Mengun Úrgangslosun í sjó af völdum sjókvíaeldis á Íslandi sam­ svarar því ef skólp Reykvíkinga færi óhreinsað í sjóinn. Framkvæmda­ stjóri Landssambands fiskeldis­ stöðva segir það ekki mikið miðað við það magn sem Færeyingar og Norðmenn framleiða. Fram kemur í tölulegum upplýs­ ingum um umhverfisáhrif laxeldis að: „úrgangsefni við framleiðslu á einu tonni af laxi samsvarar klóak­ rennsli frá átta manns.“ Samkvæmt Kristjáni Davíðssyni, framkvæmda­ stjóra landssambandsins, segir hann að allt að 14.000 tonn verði fram­ leidd af fiski í ár og að þessi iðnaður sé í stöðugri framþróun og sókn. Því er mjög líklegt að magn framleidds fiskjar úr sjókvíum aukist mjög á næstu árum. 14.000 tonn af framleiddum laxi og urriða í sjó þýðir því að  skólp 112.000 manna rynni óhreinsað í sjóinn. Til samanburðar bjuggu í höfuðborginni í byrjun árs rétt um 123 þúsund manns. Þorsteinn Másson er svæðisstjóri Arnarlax á Bíldudal. Hann segir fyrirtækið leggja gríðarlega áherslu á að framleiðsla þess sé í sátt og samlyndi við náttúruna og valdi engum spjöllum. Mikil verðmæti verði til í sjókvíum fyrirtækisins. „Ef við lítum til þess hversu mikið af mat við framleiðum og hversu góð nýtingin er þá er þetta ekki mikið. Okkur er mikið í mun að lágmarka umhverfisáhrif okkar eins mikið og hægt er með aðstoð Hafrannsókna­ stofnunar, Umhverfisstofnunar og Skipulagsstofnunar,“ segir Þor­ steinn. Björt Ólafsdóttir umhverfis­ ráðherra telur að óhreinsaður úrgangur frá sjókvíaeldi sé nokkuð mikill séu tölurnar réttar um að þær samsvari óhreinsuðu klóakrennsli Reykjavíkur. „Það er mjög mikið að mínu mati og er ástæða þess að ég og minn flokkur vildum fara leið Norðmanna og skoða lokað sjókvía­ eldi sem lágmarkar úrgang frá fiski og lágmarkar hættu á erfðablönd­ un,“ segir Björt. „Hér hefur umræða um erfðablöndun verið mikil en lítið talað um umhverfisáhrif eins og losun úrgangs í hafið af þessum iðnaði. Því ættum við að fara okkur hægt og taka upp bætta tækni með lokuðum kerfum.“ Kristján Davíðsson, fram­ kvæmdastjóri LF, segir þetta ekki mikið. „Þú getur borið það saman við Færeyjar sem framleiða fjórum sinnum meira og Noreg sem fram­ leiðir 1,3 milljónir tonna árlega. Svo er úrgangur úr fiski eins og úrgang­ ur frá húsdýrum á landi. Þetta er áburður og lífrænt efni. Við þurfum bara að sjá til þess að hann dreifi sér vel með straumum,“ segir Kristján. sveinn@frettabladid.is Sjókvíar á Íslandi menga á við óhreinsað skólp Reykvíkinga Samkvæmt tölum Landssambands fiskeldisstöðva er mengun frá sjókvíum líkt og óhreinsað skólp Reykja- víkur rynni í sjó fram. Umhverfisráðherra segir þetta mikið en fiskeldismenn eru ekki á sama máli. Svæðis- stjóri Arnarlax á Bíldudal segir sér mikið í mun að lágmarka umhverfisáhrif framleiðslunnar eins og hægt er. Fiskeldi er svo sannarlega stækkandi atvinnugrein og skapar hundruð starfa á Vest- og Austfjörðum. FréttAblAðið/Pjetur björt Ólafsdóttir Kristján Þ. Davíðsson, framkvæmda- stjóri Granda hf DóMsMál Dómur Mannréttinda­ dómstóls Evrópu (MDE) í máli Egils Einarssonar gegn íslenska ríkinu sendir misvísandi skilaboð til lands­ dómstóla, segir í grein Davíðs Þórs Björgvinssonar, prófessors í lög­ fræði. Rökstyður hann mál sitt með því að MDE hafi hafnað miskabóta­ kröfu Egils þrátt fyrir að hafa sakfellt íslenska ríkið. Það heyri til undan­ tekninga og sé ekki sérstaklega rök­ stutt í dómnum. Davíð segir málið snúast um hvort ummæli Inga Kristjáns Sigurmars­ sonar, sem Egill kærði fyrir meiðyrði og var sýknaður, „Fuck you rapist bastard“ fælu í sér gildisdóm eða staðhæfingu um staðreynd. Hæsti­ réttur taldi þau gildisdóm en MDE staðhæfingu um staðreynd. Þá segir í greininni að tveir dómar­ ar MDE hafi lýst sig ósammála niður­ stöðu meirihlutans og sögðu að virða bæri svigrúm Hæstaréttar til mats á ummælunum og var áhersla lögð á „fyrri framkomu Egils í opinberri umræðu sem hefði lotið mjög að kynfrelsi kvenna og með henni hefði hann kallað yfir sig hvöss ummæli í sinn garð“. – þea Prófessor segir skilaboðin frá MDE misvísandi MDE hafi hafnað miska- bótakröfu Egils þrátt fyrir að hafa sakfellt íslenska ríkið. Það heyri til undantekninga og sé ekki sérstaklega rök- stutt í dómnum. FrakklanD Franska þingið svipti Marine Le Pen, sem laut í lægra haldi fyrir Emmanuel Macron í for­ setakosningum fyrr á árinu, þing­ helgi í gær. Þverpólitísk þingnefnd tók þá ákvörðun í gær. Franskir saksóknarar rannsaka um þessar mundir birtingu Le Pen á grófum myndum af athöfnum skæruliða hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki. Le Pen birti myndirnar árið 2015 og sýndi ein myndanna hauslausan líkama bandaríska blaðamannsins James Foley. Önnur mynd sýndi skriðdreka keyra yfir fanga sam­ takanna og sú þriðja sýndi fanga sem kveikt hafði verið í. Slík mynd­ birting er ólögleg í Frakklandi en vegna þinghelgi hefur ekki verið hægt að ákæra hana hingað til. „Það er greinilega betra að vera hryðjuverkamaður sem kemur aftur heim frá Sýrlandi en þingmaður sem fordæmir aðgerðir Íslamska ríkisins,“ sagði Le Pen á Twitter í gær. – þea Þingnefnd sviptir Le Pen þinghelginni 9 . n ó v e M b e r 2 0 1 7 F I M M T u D a g u r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a b l a ð I ð 0 9 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 E -9 A A 4 1 E 2 E -9 9 6 8 1 E 2 E -9 8 2 C 1 E 2 E -9 6 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.