Fréttablaðið - 09.11.2017, Síða 20
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Þá mega
menn ekki
velkjast í
neinum vafa
um að rætur
plastbarka-
málsins liggja
fyrst og
fremst í
óheiðarleika
og blekk-
ingum Paolos
Macchiarinis.
Umræða um menntamál var ekki í forgangi í liðinni kosningabaráttu þó fullyrða megi að málefnið sé vissulega forgangsmál í samfélag-
inu. Allir flokkar voru þó sammála um að efla þyrfti
menntakerfið og því verður áhugavert að sjá hvað
tilvonandi ríkisstjórn muni setja í forgang í þeim mála-
flokki.
Skólar gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu en
í Aðalnámskrá framhaldsskóla segir: „Skólarnir skulu
leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi
við stöður og þarfir barna og unglinga. Skólastarfið
miðar að virkri þátttöku þeirra í lýðræðissamfélagi
innan skólans sem utan.“ Þetta er göfugt hlutverk sem
framhaldsskólunum ber að uppfylla.
Undanfarin ár hafa fjölmargir skólar þurft að skera
niður í stoðþjónustu og tækjakaupum og glíma sam-
hliða við viðvarandi hallarekstur. Nú hefur tilvonandi
ríkisstjórn tækifæri til að snúa þessari þróun við og
auka fjárframlög til framhaldsskólanna þannig að þeir
geti rækt hlutverk sitt með sóma. Einnig er mikilvægt
að stjórnvöld haldi því fjármagni inni í framhaldsskól-
unum sem átti að sparast vegna styttingar námstíma til
stúdentsprófs. Fjármagnið þarf að nota í þágu nem-
enda, sér í lagi að auka við stoðþjónustu og vinna gegn
brotthvarfi.
Því miður hefur brotthvarf framhaldsskólanemenda
á Íslandi verið hátt í samanburði við önnur OECD-
lönd. Til þess að styðja betur við nemendur í fram-
haldsskólum og vinna gegn brotthvarfi þarf nauðsyn-
lega að greiða fyrir aðgengi að sálfræðiþjónustu inni
í skólunum og efla samstarf á milli heilsugæslustöðva
og skóla. Einnig þarf að fjölga náms- og starfsráð-
gjöfum en víða hefur álag verið mikið á þeim síðustu
ár. Einnig mætti athuga að koma á námsstyrkjum sem
þekkjast annars staðar á Norðurlöndunum og geta haft
jákvæð áhrif á skólastarfið og um leið minnkað vinnu
nemenda með námi.
Það er ljóst að tækifærin eru til staðar fyrir tilvonandi
ríkisstjórn og forvitnilegt að fylgjast með hvort staðið
verði við stóru orðin, þ.e. að bæta menntakerfið og búa
þannig nemendum betri framtíð í skólum landsins.
Menntamál í forgang
Undanfarin
ár hafa fjöl-
margir skólar
þurft að skera
niður í stoð-
þjónustu og
tækjakaupum
og glíma
samhliða við
viðvarandi
hallarekstur.
Steinn
Jóhannsson
konrektor MH
Hæfileikar, velgengni, frægð og vinsældir ýta undir öfund og lítið samfélag eins og hið íslenska virðist hafa ríka tilhneig-ingu til að brjóta menn niður jafn hratt og það byggir þá upp.Viðbrögð sumra samstarfsmanna
Tómasar Guðbjartssonar, þegar niðurstöður skýrslu
rannsóknarnefndar um plastbarkamálið voru kynntar í
Norræna húsinu á mánudag, voru brjóstumkennanleg.
Sumir þeirra áttu erfitt með að leyna þórðargleði sinni.
Eftir útgáfu skýrslunnar virðist eiga að gera Tómas að
blóraböggli í plastbarkamálinu. Núna á að setja hann í
gapastokkinn eins og gert var við útrásarvíkingana eftir
bankahrunið. Við ítarlega yfirferð skýrslunnar kemur
hins vegar í ljós að Tómas hagaði sér í langflestum
tilvikum eins og góður og ábyrgur læknir í málinu. Þá
mega menn ekki velkjast í neinum vafa um að rætur
plastbarkamálsins liggja fyrst og fremst í óheiðarleika
og blekkingum Paolos Macchiarinis.
Það kemur fram í skýrslunni að formleg tilvísun sem
Tómas ritaði vegna meðferðar Andemariam Beyene í
Stokkhólmi var eðlileg og í samræmi við skyldur hans
sem læknis. Það eru viðbótarskjöl við tilvísun vegna
læknisfræðilegrar meðferðar, lýsing og sjúkrasaga
sjúklingsins, sem eru gagnrýniverð að mati rann-
sóknarnefndarinnar. Tómas gerði breytingar á þessum
skjölum í góðri trú að beiðni Macchiarinis. Nefndin
telur að Macchiarini hafi blekkt Tómas til að gera
þessar breytingar á skjölunum undir því yfirskini að
fá samþykki siðanefndar í Svíþjóð. Gögnin fóru hins
vegar aldrei fyrir siðanefnd en voru notuð til að hraða
Andemariam í hina umdeildu plastbarkaígræðslu.
Tómas vissi ekki á þeim tíma að Macchiarini hafði snið-
gengið sænsk lög og reglur í því skyni að framkvæma
aðgerðina.
Ef marka má skýrsluna felast mistök Tómasar meðal
annars í því að hafa ekki aflað sér leyfa fyrir vísinda-
rannsóknum á Andemariam vegna ritunar greinar-
innar í The Lancet og í því að fegra eigin hlut í viðtölum
við fjölmiðla þegar útlit var fyrir að aðgerðin hefði
verið mikið afrek á sviði læknavísindanna. Í fyrrnefnda
tilvikinu felast alvarleg mistök en Tómas virðist ekki
hafa vitað betur. Í því síðarnefnda var hann fórnarlamb
eigin hégóma eins og kemur fyrir mörg okkar einhvern
tímann á lífsleiðinni.
Það er engum vafa undirorpið að Tómas Guðbjarts-
son er í hópi færustu skurðlækna þjóðarinnar. Hann
hefur bakað sér öfund kollega sinna með því að ræða
opinberlega um afrek sín í læknisfræði og bakað sér
óvild stjórnenda Landspítalans með því að minna
reglulega á vondar aðstæður á spítalanum í fjölmiðlum.
Þeir lærdómar sem draga má af plastbarkamálinu snúa
ekki eingöngu að Landspítalanum og Háskóla Íslands.
Íslenskt samfélag getur dregið lærdóm af málinu og
eftirmálum þess um það hvernig við nálgumst afrek og
ósigra fólks. Við eigum að fjalla um velgengni hæfileika-
fólks af sömu hófstillingu og yfirvegun og við nálgumst
mistök þeirra. Tómas Guðbjartsson er algjör aukaleik-
ari í plastbarkamálinu og hann á að njóta sannmælis
um aðild sína að því eins og aðrir.
Blóraböggull
Zion og Mia
Enn og aftur gerir sá sem hér
heldur um penna Mannanafna-
nefnd að umfjöllunarefni sínu en
greint var frá því í gær að nefndin
hefði hafnað karlmannsnafninu
Zion og kvenmannsnafninu Mia.
Þótti ritháttur nafnanna ekki
samræmast almennum ritreglum
íslensks máls. Að sjálfsögðu er
ekki við nefndarmenn að sakast
enda starfa þeir eftir lögum og
reglum. Það hlýtur hins vegar
að vera kominn tími á að ein-
staklingar fái að velja nöfn barna
sinna óháð gildismati löggjafans.
Engin er verri þótt hún heiti Mia
og ólíklegt verður að teljast að
Zion litli muni tortíma íslensk-
unni með nafn sitt að vopni.
Forsætisbaráttan
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að forystumenn Vinstri
grænna, Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar flokks ræddu nú
saman um hver formanna flokk-
anna eigi að leiða viðræður
þeirra og hver sé þar af leiðandi
ákjósanlegasta forsætisráð-
herraefnið. Allir formennirnir
þrír geta gert tilkall til stólsins.
Bjarni Benediktsson er for-
maður stærsta flokks landsins,
Katrín Jakobsdóttir er sú eina af
formönnunum þremur hverrar
þingflokkur stækkaði í kosning-
unum og Sigurður Ingi Jóhanns-
son er maðurinn í miðjunni, sá
sem freistar þess að brúa bilið á
milli flokkanna.
thorgnyr@frettabladid.is
9 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r20 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð
SKOÐUN
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
E
-5
5
8
4
1
E
2
E
-5
4
4
8
1
E
2
E
-5
3
0
C
1
E
2
E
-5
1
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K