Fréttablaðið - 09.11.2017, Qupperneq 36
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Það er ekki mikið um að fólk klæði sig upp á í vinnunni minni eða í skólanum en ég fer
oft á tónleika og aðrar uppákomur
og þá nýt ég þess að punta mig,“
segir Ester Auður Elíasdóttir, sem er
í skrifstofuvinnu í ferðabransanum
og í leiðsögunámi. „Ég hef líka öðru
hverju tekið skvísuviku þar sem
ég vanda mig sérstaklega við fata-,
skó- og skartval og set svo myndir
á Facebook. Ég hafði unun af því
að punta mig þegar ég var yngri. Ég
klæddi mig í notuð föt strax og ég
varð unglingur, reif út úr fataskápum
mömmu, pabba og ömmu. Svo þegar
ég byrjaði að vinna mér inn peninga
fór stór hluti launanna í föt og skart.
Fyrir allra, allra fyrstu launin mín
keypti ég sjö hringlandi armbönd
í indversku búðinni Jasmin. Ég var
ellefu ára,“ rifjar Ester upp og bætir
við að núna tími hún ekki að eyða
eins miklu í föt og áður. „En leitin
að vandaðri, óvenjulegri flík á góðu
verði er alltaf jafn spennandi. Þegar
ég fer til útlanda er ég alltaf búin að
finna allar „second hand“ búðir á
svæðinu áður en ég kem þangað.
Svo er farið á stjá. Ég kaupi ekki
nærri alltaf eitthvað en þetta er
eins og að fara í veiði, stundum
veiðir maður vel og stundum
ekki neitt.“
Spáir þú mikið í tískustrauma?
Ég kaupi oft tískublaðið In Style
og skoða hvað er í tísku. Þaðan fæ
ég oft hugmyndir.
Hvernig myndir þú lýsa þínum
fatastíl? Hann er fjölbreyttur og
litríkur.
Hvar kaupir þú helst fötin þín? Á
flóamörkuðum og í búðum sem selja
notuð föt. Mest spennandi eru fínni
„second hand“ búðir erlendis.
Áttu þér uppáhaldsfataverslun?
Flóamarkað Konukots.
Hvaða föt eru í mestu uppáhaldi
hjá þér? Það er mjög erfitt að gera
upp á milli, það fer alveg eftir því
í hvaða skapi ég er og hvert til-
efnið er. Ég er auðvitað alltaf eins og
drottning í minkapelsinum sem ég
erfði frá ömmu minni.
Uppáhaldshönnuður? Úff, nei,
eiginlega ekki. Ef ég ætti nóga
peninga, myndi ég sennilega kaupa
fullt hjá Dolce & Gabbana.
Notar þú fylgihluti sem eiga sér
sögu? Já, ég á heilmikið af skart-
gripum með sögu. Það sem ég nota
mest eru tvö kóralhálsmen frá
ömmu minni. Annað er úr slípuðum
kóral og hitt óslípuðum og ég set þau
saman. Ég er líka mjög hrifin af kok-
teilhring frá ömmu minni þótt ég
hafi fá tækifæri til að bera hann.
Áttu þér tískufyrirmynd? Iris Apfel,
Dita von Teese, Miroslava Duma,
Ulyana Sergeenko, konurnar í blogg-
inu Advanced Style.
Bestu og verstu fatakaupin? Með
bestu kaupum sem ég hef gert er
fjólublár silkikjóll frá GuST sem ég er
búin að nota mörg jól í röð. Ég man
ekki eftir neinum „verstu kaupum“
en það kemur þó fyrir að ég kaupi
eitthvað sem ég nota svo aldrei,
einhverra hluta vegna. Ég reyni
yfirleitt að gefa slík föt fljótlega.
Finnst þér gaman að klæða þig
upp á? Já, og ég hef einsett mér að
gera það oftar.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið
án? Það er nú ekki tískuflík, en
nýjustu Nike-skórnir mínir eru
algert æði og ég er mjög oft í þeim.
Færðu þér nýja flík fyrir veturinn?
Nei, ekki gagngert.
Klæðir þú þig öðruvísi á sumrin
en á veturna? Já, að sjálfsögðu. Ég er
mikið berfætt á sumrin, í fallegum
sandölum, léttum toppum og pilsi
eða kjól.
Tekur skvísuviku
öðru hverju
Ester Auður Elíasdóttir hefur fjölbreyttan og litríkan
fatastíl. Hún keypti sér armbönd fyrir fyrstu launin sem
hún vann sér inn á sínum tíma, aðeins ellefu ára að aldri.
Toppinn keypti Ester í Goodwill í Halifax en pilsið í Kaup-
mannahöfn. Skóna fékk hún í Zöru. MYND/ERNIR
„Með bestu kaupum sem ég hef gert er fjólublár silkikjóll
frá GuST sem ég er búin að nota mörg jól í röð.“ MYND/ERNIR
Pelsinn erfði Ester eftir ömmu sína.
„Þegar ég fékk pelsinn voru sápu-
stykki í vösunum á honum til að
halda frá möl.“ MYND/ERNIR
„Ég er mjög hrifin af kokteilhring frá
ömmu minni þótt ég hafi fá tækifæri
til að bera hann.“ MYND/ERNIR
Fa
rv
i.i
s
//
1
11
7
KRINGLUNNI | 588 2300
Miðnæturopnun
9. nóvember
afsláttur af
20%
öllumvörum
365.is 1817
Á mánuði
Veldu GSM hjá 365 og fáðu
11 GB af neti í símann ásamt
endalausum símtölum og
sms á 2.590 kr.
LÁTTU EKKI
SÍMANN
PLATA ÞIG
365 er á sama farsímakerfi
og Síminn en á mun lægra verði
2.590 KR.
SMS+11GB
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
E
-6
4
5
4
1
E
2
E
-6
3
1
8
1
E
2
E
-6
1
D
C
1
E
2
E
-6
0
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K