Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 36
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Það er ekki mikið um að fólk klæði sig upp á í vinnunni minni eða í skólanum en ég fer oft á tónleika og aðrar uppákomur og þá nýt ég þess að punta mig,“ segir Ester Auður Elíasdóttir, sem er í skrifstofuvinnu í ferðabransanum og í leiðsögunámi. „Ég hef líka öðru hverju tekið skvísuviku þar sem ég vanda mig sérstaklega við fata-, skó- og skartval og set svo myndir á Facebook. Ég hafði unun af því að punta mig þegar ég var yngri. Ég klæddi mig í notuð föt strax og ég varð unglingur, reif út úr fataskápum mömmu, pabba og ömmu. Svo þegar ég byrjaði að vinna mér inn peninga fór stór hluti launanna í föt og skart. Fyrir allra, allra fyrstu launin mín keypti ég sjö hringlandi armbönd í indversku búðinni Jasmin. Ég var ellefu ára,“ rifjar Ester upp og bætir við að núna tími hún ekki að eyða eins miklu í föt og áður. „En leitin að vandaðri, óvenjulegri flík á góðu verði er alltaf jafn spennandi. Þegar ég fer til útlanda er ég alltaf búin að finna allar „second hand“ búðir á svæðinu áður en ég kem þangað. Svo er farið á stjá. Ég kaupi ekki nærri alltaf eitthvað en þetta er eins og að fara í veiði, stundum veiðir maður vel og stundum ekki neitt.“ Spáir þú mikið í tískustrauma? Ég kaupi oft tískublaðið In Style og skoða hvað er í tísku. Þaðan fæ ég oft hugmyndir. Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Hann er fjölbreyttur og litríkur. Hvar kaupir þú helst fötin þín? Á flóamörkuðum og í búðum sem selja notuð föt. Mest spennandi eru fínni „second hand“ búðir erlendis. Áttu þér uppáhaldsfataverslun? Flóamarkað Konukots. Hvaða föt eru í mestu uppáhaldi hjá þér? Það er mjög erfitt að gera upp á milli, það fer alveg eftir því í hvaða skapi ég er og hvert til- efnið er. Ég er auðvitað alltaf eins og drottning í minkapelsinum sem ég erfði frá ömmu minni. Uppáhaldshönnuður? Úff, nei, eiginlega ekki. Ef ég ætti nóga peninga, myndi ég sennilega kaupa fullt hjá Dolce & Gabbana. Notar þú fylgihluti sem eiga sér sögu? Já, ég á heilmikið af skart- gripum með sögu. Það sem ég nota mest eru tvö kóralhálsmen frá ömmu minni. Annað er úr slípuðum kóral og hitt óslípuðum og ég set þau saman. Ég er líka mjög hrifin af kok- teilhring frá ömmu minni þótt ég hafi fá tækifæri til að bera hann. Áttu þér tískufyrirmynd? Iris Apfel, Dita von Teese, Miroslava Duma, Ulyana Sergeenko, konurnar í blogg- inu Advanced Style. Bestu og verstu fatakaupin? Með bestu kaupum sem ég hef gert er fjólublár silkikjóll frá GuST sem ég er búin að nota mörg jól í röð. Ég man ekki eftir neinum „verstu kaupum“ en það kemur þó fyrir að ég kaupi eitthvað sem ég nota svo aldrei, einhverra hluta vegna. Ég reyni yfirleitt að gefa slík föt fljótlega. Finnst þér gaman að klæða þig upp á? Já, og ég hef einsett mér að gera það oftar. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Það er nú ekki tískuflík, en nýjustu Nike-skórnir mínir eru algert æði og ég er mjög oft í þeim. Færðu þér nýja flík fyrir veturinn? Nei, ekki gagngert. Klæðir þú þig öðruvísi á sumrin en á veturna? Já, að sjálfsögðu. Ég er mikið berfætt á sumrin, í fallegum sandölum, léttum toppum og pilsi eða kjól. Tekur skvísuviku öðru hverju Ester Auður Elíasdóttir hefur fjölbreyttan og litríkan fatastíl. Hún keypti sér armbönd fyrir fyrstu launin sem hún vann sér inn á sínum tíma, aðeins ellefu ára að aldri. Toppinn keypti Ester í Goodwill í Halifax en pilsið í Kaup- mannahöfn. Skóna fékk hún í Zöru. MYND/ERNIR „Með bestu kaupum sem ég hef gert er fjólublár silkikjóll frá GuST sem ég er búin að nota mörg jól í röð.“ MYND/ERNIR Pelsinn erfði Ester eftir ömmu sína. „Þegar ég fékk pelsinn voru sápu- stykki í vösunum á honum til að halda frá möl.“ MYND/ERNIR „Ég er mjög hrifin af kokteilhring frá ömmu minni þótt ég hafi fá tækifæri til að bera hann.“ MYND/ERNIR Fa rv i.i s // 1 11 7 KRINGLUNNI | 588 2300 Miðnæturopnun 9. nóvember afsláttur af 20% öllumvörum 365.is 1817 Á mánuði Veldu GSM hjá 365 og fáðu 11 GB af neti í símann ásamt endalausum símtölum og sms á 2.590 kr. LÁTTU EKKI SÍMANN PLATA ÞIG 365 er á sama farsímakerfi og Síminn en á mun lægra verði 2.590 KR. SMS+11GB 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 0 9 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 2 E -6 4 5 4 1 E 2 E -6 3 1 8 1 E 2 E -6 1 D C 1 E 2 E -6 0 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.