Fréttablaðið - 09.11.2017, Síða 48

Fréttablaðið - 09.11.2017, Síða 48
Á þessum kalda nóvembermorgni 1986 vöknuðu starfsmenn Hvals við vondan draum. Búið var að sökkva tveimur skipum og vinna mikil skemmdarverk á starfsstöð Hvals í Hvalfirði. Spjótin beindust fljótt að Sea Shepard og viðurkenndi Paul Watson, formaður samtakanna, að samtökin hefðu sent Breta og Bandaríkjamann til landsins til að gera sem mestan skaða. „Við höfum skaðað efnahag fyrirtækis- ins sem stendur að baki hvalveiðunum og náð heimsathygli,“ sagði Watson í samtali við Þjóðviljann sem kom út þriðjudaginn 11. nóvember. Hann sagði jafnframt við blaðið að mennirnir sem staðið hefðu að skemmdarverkunum væru komnir til lands sem myndi ekki framselja þá. Watson var harðorður í garð Ís- lendinga í viðtalinu. Hann sagði hval- veiðar þeirra glæpsamlegar og sagðist hæstánægður ef samtökin yrðu lögsótt fyrir athæfi sitt. Grænfriðungar fordæmdu þó að- gerðir Sea Shepard og töldu að sam- tökin hefðu skaðað málstað hvalfrið- unarsinna. Rannsóknarlögregla ríkisins og dóms- málaráðuneytið unnu að rannsókn málsins. Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra, sagði í sam- tali við Þjóðviljann að athugað yrði með kröfu um framsal mannanna en ekki hefur enn komið til þess. Steingrímur sagðist vera óánægður með hvernig brugðist hefði verið við af hálfu lögreglunnar og sagði: „Manni hlýtur að detta handvömm í hug.“ – bb Þ etta g e r ð i st 9 . n óv e m b e r 1 9 8 6 Sökktu hvalveiðibátunum í Reykjavíkurhöfn erik Damgaard er stofnandi og aðalhönnuður Uniconta en ferill hans í hugbúnaðarþróun spann-ar rúm 30 ár, þar sem skipst hafa á skin og skúrir. Hann hannaði bókhaldskerfin Dynamics aX og Dyna- mics C5 og varð milljarðamæringur á nánast einni nóttu þegar microsoft keypti hugbúnaðarlausnir hans árið 2002. Í kjölfarið starfaði erik um stund í höfuðstöðvum microsoft í seattle, áður en hann sagði skilið við hugbúnaðar- bransann. Hann hellti sér í ýmiss konar fjárfestingar, með báða vasa fulla fjár, og var sérstaklega stórtækur í fasteignavið- skiptum. Hrunið fór illa með erik, eins og hann hefur oft talað opinberlega um, og tapaði hann gífurlegum fjármunum á stuttum tíma. Það má segja að frumkvöðullinn í erik hafi vaknað af dvala þegar hann stóð andspænis erfiðleikum, en reglulega var fjallað um fjármálaraunir hans og skraut- legt einkalíf í dönskum fjölmiðlum. Þann- ig fæddist nýjasta frumkvöðlaverkefni Danans, bókhaldskerfið Uniconta – bók- haldskerfi í skýinu sem byggt er á nýjustu fram- og bakendalausnum microsoft. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég kem til Íslands. Langt í frá. Þessi heimsókn er bara vinnutengd – síðast tók ég konuna mína með mér og við vorum heila viku að lifa og njóta. Það var frábær heim- sókn. en núna er kalt og dimmt þannig ég verð aðallega við vinnu,“ segir erik sem býr á spáni og því kannski eðlilegt að honum finnist vetrarkuldinn svolítið yfirþyrmandi. „Ég byrjaði að skrifa forrit um 1984 og sýndi mitt fyrsta forrit skömmu síðar. síðan var ég 18 ár í því fyrirtæki þangað til við seldum það til microsoft. Ég vann aðeins í seattle en kúplaði mig fljótt út úr forritageiranum og gerðist fjárfestir. Það gekk ekki svo vel því ég lenti illa í kreppunni og tapaði miklum peningum. Það er líka ekki jafn gaman að vera fjár- festir og að eiga sitt eigið fyrirtæki.“ eftir að hafa verið  á hliðarlínunni í nokkur ár skrifaði hann Uniconta sem sló í gegn. Þá var hann búinn að skoða póker á netinu og  hafði skrifað forrit fyrir banka. Hann segir margt jákvætt við að vera í skýinu með forritið og með alla þá reynslu sem hann hefur er það mjög lausnarmiðað. „engir vilja breyta því sem þeir eru vanir að gera heldur vill fólk breytingar því að það vill eitthvað meira með því sem það er vant að gera.“ ingvaldur thor einarsson, fram- kvæmdastjóri og stofnandi Uniconta á Íslandi, segir það mikinn feng fyrir Íslend- inga að fá erik Damgaard til landsins. „Hann er án efa einn fremsti sérfræð- ingur veraldar í viðskiptalausnum og bók- haldskerfum og það er mikill heiður að hann vilji sækja Ísland heim til að fræða okkur um þá fjölmörgu möguleika sem Uniconta býður upp á,” segir ingvaldur, sem hefur miklar mætur á erik. „Hann er ekki aðeins fagmaður fram í fingurgóma heldur einstaklega skemmti- legur maður sem er hokinn af reynslu. saga hans er mjög áhugaverð, svo vægt sé til orða tekið, og hægt að draga af henni ýmsan lærdóm. Það er einnig mjög gef- andi að vinna með frumkvöðli sem er að nálgast sextugt, en gefur sér yngra fólki ekkert eftir þegar kemur að orku, ástríðu og sköpunargáfu.” erik segir að það séu enn not fyrir gamla frumkvöðla. „Ég var með of mik- inn eldmóð til að sitja bara og fjárfesta. Ég var 48 ára gamall þegar ég byrjaði á ný. Ég elska enn að gera það sem ég geri. Það vinna margir ungir hjá mér og unga fólkið er ágætt en það vill gera eitthvað annað en það sem skiptir máli. gamla kynslóðin sér um það og það eru enn not fyrir okkur.“ benediktboas@365.is Tölvugúrúinn sem varð fjárfestir en tapaði öllu Danski hugbúnaðarverkfræðingurinn og frumkvöðullinn Erik Damgaard verður aðal- gestur á ráðstefnu um bókhaldskerfið Uniconta, sem haldin verður í dag. Erik er stofn- andi og aðalhönnuður Uniconta en ferill hans í hugbúnaðarþróun spannar rúm 30 ár. Lífið brosir svo sannarlega við Eric Damgaard þessa dagana. Hann átti eitt sinn fjölmarga milljarða eftir að Microsoft keypti af honum hugbúnað en tapaði þeim öllum í hruninu. Nú er hann kominn aftur og verður með fyrirlestur í dag. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Eggert Þorfinnsson skipstjóri, Kirkjusandi 1, lést af slysförum mánudaginn 6. nóvember. Kristín Ólafsdóttir Þorfinnur P. Eggertsson Sara Halldórsdóttir Sigurður J. Eggertsson Friðrika K. Stefánsdóttir barnabörn og aðrir aðstandendur. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Steinarr Guðjónsson bókaútgefandi, Hvassaleiti 56, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík laugardaginn 4. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 14. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á góðgerðarfélög. Elsa Pétursdóttir Björg Steinarsdóttir Gísli Viðar Guðlaugsson Rakel Steinarsdóttir Bryndís Steinarsdóttir Hermann Hermannsson Sigurbjörn Magnússon barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Bergur Jónsson rennismiður, Aflagranda 40, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 30. október. Útförin fer fram í Neskirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 13.00. Jón Bergsson Guðrún Sederholm Björn Bergsson Kristjana Bergsdóttir Atli Árnason Elín Bergsdóttir Sveinbjörn Jónsson Arndís Bergsdóttir Björn Þorláksson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Ingveldur Sigurðardóttir Gunnarsundi 7, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu 5. nóvember sl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 15. nóvember kl. 13.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ólína Anna Guðjónsdóttir frá Eiðhúsum, Miklaholtshreppi, síðast til heimilis að Björtuhlíð 33, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ föstudaginn 3. nóvember. Hún verður jarðsungin föstudaginn 10. nóvember 2017 frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ klukkan 13.00. Erling Jóhannesson Eva Erlingsdóttir Lárus Björnsson Una Erlingsdóttir Vagn Ingólfsson Jóhannes Erlingsson Valborg Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ég var með of mikinn eldmóð til að sitja bara og fjárfesta. Ég var 48 ára gam- all þegar ég byrjaði á ný. Ég elska enn að gera það sem ég geri. 9 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r36 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð I ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. 0 9 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 2 E -8 B D 4 1 E 2 E -8 A 9 8 1 E 2 E -8 9 5 C 1 E 2 E -8 8 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.