Fréttablaðið - 09.11.2017, Page 54
Ég málaði þessar myndir hér heima síðasta vetur áður en ég flutti til Strassborgar í Frakk-landi. Þar deili ég nú vinnustofu með öðrum
og reyni að lifa af listinni,“ segir
Úlfur Karlsson myndlistarmaður
sem opnar sýninguna Úlfur við
girðinguna á laugardaginn klukkan
14 í Listasafni Reykjanesbæjar. Það
er 22. sýning hans og heitið vísar til
staðsetningarinnar, nærri gömlu
flugvallargirðingunni þar sem
fyrrum mættust íslensk og banda-
rísk menning, Íslendingasögur og
teiknimyndasögur, rímnastemmur
og rokktónlist, sviðakjammar og
Hershey’s-súkkulaði.
Myndir Úlfs eru margslungnar og
hafa sitthvað að segja, þær stærstu
eru 3,20 m á breidd. „Ég er meðal
annars að deila á það þegar menn
etja öðrum saman eða út í ein-
hverjar hættur en græða sjálfir á til-
tækinu. Ég get nefnt umboðsmenn
boxara og líka hershöfðingja sem
láta aðra slást en standa sjálfir til
hliðar. Svo geri ég hljóðverk og mála
yfirleitt einn vegg svartan á bak við
svo fólk upplifi að það sé í bíói. Ég
vil að fólk hugsi um boðskap verk-
anna þegar það fer heim, stígur upp
í bílinn eða röltir í burtu.“
Úlfur kveðst hafa teiknað frá
því hann man eftir sér. „Ég var líka
mikið í kvikmyndagerð þegar ég
var yngri. Gerði stuttmynd sem hét
Piroat þegar ég var krakki, hún fór á
stuttmyndahátíð í Bandaríkjunum
2003, ég held að það hafi birst við-
tal við mig í Fréttablaðinu þá. Á
Akureyri byrjaði ég í myndlist en
langaði að prófa eitthvað nýtt og
dreif mig í skóla til Gautaborgar.
Það var gaman. Þar gat ég búið í
vinnustofunni og þá gat ég unnið
nótt sem dag. Tók gömul málverk
sem aðrir höfðu hent í ruslagáma
og spreyjaði þau eins og ég vildi.
Nú er ég kominn í meiri fínvinnu. Er
reyndar enn með hráan stíl en það
eru komin meiri smáatriði.“
Sýningin hans Úlfs stendur til
14. janúar og safnið er opið alla daga
frá klukkan 13 til 17. Sýningarstjór-
inn, Aðalsteinn Ingólfsson, og Úlfur
sjálfur verða með leiðsögn á sunnu-
daginn 12. nóvember klukkan 16.
Vill að fólk hugsi um boðskap
verkanna þegar það fer heim
Litríkar myndir Úlfs Karlssonar myndlistarmanns eru að rað-
ast á veggi Listasafns Reykjanesbæjar við Duusgötu. Sýningin
Úlfur við girðinguna verður opnuð þar nú á laugardaginn.
„Ég lærði í Gautaborg en fór í skiptinám til Vilnius í Litháen, svo var ég heima í fjögur ár, vann í skóla og vaskaði upp á
Argentínu með myndlistinni,“ segir Úlfur sem flutti til Strassborgar í vor en er í heimsókn á landinu. FrÉttAbLAðið/Eyþór
Ein myndanna sem Úlfur sýnir í reykjanesbæ.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K371 sófi
Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir
3ja sæta 2ja sæta og stólar
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Dreifing:
Ýmus ehf. - Sími 5331700
Dalbrekku 2, 200 Kópavogur
ymus@ymus.is - www.ymus.is
Fyrirbyggjandi vörn gegn eyrnabólgu
og nauðsynlegt fyrir þá sem eru með
rör í eyrum eða viðkvæm eyru.
Til í þremur stærðum.
Njóttu þess að fara
í sund / sjósund
Verndaðu eyrun með Ear Band-It Ultra
eyrnaböndum og eyrnatöppum
Mundir þú eftir að
bursta og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
tannlæk
nar
mæla m
eð
GUM
tannvör
um
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
allar upplýsingar
á www.icecare.is
9 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r42 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
E
-5
0
9
4
1
E
2
E
-4
F
5
8
1
E
2
E
-4
E
1
C
1
E
2
E
-4
C
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K