Fréttablaðið - 09.11.2017, Page 64
Kemur í staðinn
fyrir mengandi krem
Nýtt íslenskt andlitssprey, Sea Breaze, kemur út á laugardag. Þetta
er fyrsta vara Ásgeirs Hjartarsonar hárgreiðslumeistara, sem hefur
tekið sér góðan tíma í að þróa spreyið. Íslenskur hrossaþari úr
Breiðafirði er í aðalhlutverki en þarinn er mjög ríkur af steinefnum.
Nú á tímum beinist umræðan að mestu að hollu mataræði og hreyfingu sem lykill
að góðri heilsu. Einn mikilvægur
þáttur sem einnig stuðlar að góðri
heilsu en minna hefur verið talað
um eru góð félagsleg tengsl.
Það er í raun fátt dýrmætara í
lífinu en náin sambönd og rann
sóknir sýna að þegar við upplifum
að vera elskuð, að hugað sé vel að
okkur og á okkur hlustað þá eflist
Heilsan
okkar
Edda Björk
Þórðardóttir,
doktor í
lýðheilsuvís-
indum, svarar
spurningum
lesenda.
og styrkist andleg og líkamleg heilsa.
Góð sambönd hafa áhrif á heilsu
okkar á margvíslegan hátt. Að eiga
traustan og skilningsríkan aðila til að
eiga samskipti við og ræða um líðan
okkar eykur sjálfsöryggi og dregur
úr streitu. Þegar streita minnkar
þá minnkar framleiðsla kortisóls
sem í miklu magni eykur áhættu á
háum blóðþrýstingi og hjarta og
æðasjúkdómum. Þá getur snerting
haft jákvæð áhrif á heilsuna, inni
legt faðmlag styrkir tengsl með því
að auka flæði hormónsins oxýtós
íns sem er spennulosandi og hefur
jákvæð áhrif á hjartað og æðakerfið.
Rannsókn sem var gerð á vegum
Harvardháskóla, þar sem karl
mönnum var fylgt eftir frá unglings
aldri til efri ára, leiddi í ljós að það
sem spáir helst fyrir um góða heilsu
á efri árum eru góð og náin sambönd.
Þeir sem voru í sterkum félagslegum
tengslum voru hamingjusamari,
líkamlega hraustari og lifðu lengur.
Gæði sambanda vega þar þyngra en
fjöldi þeirra.
Í hraða og amstri hversdagsins eru
heilsuátök og skyndilausnir meira
áberandi í umræðunni um bætta
heilsu. Góð sambönd myndast ekki
fyrirhafnarlaust. Að rækta þau er
langtímaverkefni sem krefst tíma,
þolinmæði og skilnings. En upp
skeran og minningarnar sem þú
skapar verða líklega það dýrmætasta
og eftirminnilegasta í lífinu.
Niðurstaða: Samspil
margra þátta ýtir undir góða
heilsu en einna mikilvægast
er góð sambönd við aðra.
Sambönd þar sem við upp-
lifum að við séum elskuð,
að hugað sé vel að okkur og
hlustað sé á okkur hafa bæði
jákvæð áhrif á andlega og
líkamlega heilsu okkar.
Lesendum er bent á að senda
sérfræðingum okkar spurningar
tengdar heilsu og lífsstíl á
heilsanokkar@frettabladid.is.
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
CFORCE 52o
Kr. 1.199.000,-
✓ Fjórgengis eins cylindra
✓ 495cc, 25,5 kW/6200rpm
✓ Bein innspýting
✓ Rafmagnsstýri
✓ Spil og dráttarkrókur
✓ Sjálfstæð A-armafjöðrum
✓ Hátt og lágt drif
✓ 15 lítra bensíntankur
✓ Vökvabremsur
✓ Tveggja manna
✓ 12 tommu álfelgur
✓ Gasdemparar
FYRIR FLESTAR
GERÐIR BÍLA...
GORMAR
HÖGGDEYFAR
VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ!
STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS
Full búð af
nýjum vörum!
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
Innihaldsefnin eru sérvalin og kom ekkert annað til greina en að nota íslenska vatnið okkar sem er tekið frá Kaldbak, jöklinum við Grenivík, og aðalefnið er íslenskur
hrossaþari úr Breiðafirði sem er
einstaklega ríkur af steinefnum,
vítamínum og ver einnig húðina,
ásamt því að gefa raka,“ segir Ásgeir
Hjartarson, hárgreiðslumeistari og
frumkvöðull, en hann mun setja á
markað á laugardag rakaspreyið Sea
Breaze, sem er fyrsta varan hjá Dark
– Force of pure nature.
Ásgeir er í ágætis aðstöðu til að
prófa spreyið í snyrtiskóla sínum
Mask Academy. „Við prófuðum
vöruna sérstaklega á fólki sem er við
kvæmt í góðan tíma, eða um árabil
og árangurinn fór fram úr vonum.
Við erum einnig búin að prófa að
setja spreyið á undan förðun og á
eftir og hefur Bergþóra mín verið
duglega að nota það á förðunar
kúnna sem hefur slegið í gegn. Varan
er fyrir bæði kyn og ég nota það eftir
sturtu til dæmis. Það kemur það í
staðinn fyrir krem sem eru full af
parabenum og alkóhóli. En spreyið
er laust við allt aukadrasl.“
Fyrir utan hrossaþara og íslenska
vatnið er ilmkjarnaolía sem heitir
geranium sem hefur róandi áhrif,
ásamt öðrum efnum sem gefa raka
og viðhalda ljóma húðarinnar.
Ástæðan fyrir litnum er út af nafn
inu á vörunni sem er Dark – Force of
pure nature, og að hluta til út af því
að það er myrkur hér níu mánuði á
ári. Einnig að Ásgeir og félagar eru að
taka þessi efni frá myrkum stöðum
og draga þau fram í ljósið. „Einnig
ef þú ert með svartar umbúðir þá
ver flaskan innihaldið betur plús að
okkur finnst svarti liturinn mega
töff,“ segir hann og brosir.
Þessi hugmynd er búin að vera á
teikniborðinu í um sjö ár og hefur
nokkrum sinnum farið ofan í skúff
una. „Við ákváðum að byrja á einni
vöru og viljum hafa vaðið fyrir
neðan okkur. Það er ekki planið að
gera stóra línu, heldur fáar en yfir
burða vörur,“ segir hann, en eins og
gefur að skilja er Ásgeir með formúlu
að sjampói og hárnæringu.
„Þessi heimur breytist fljótt og
við þurfum að þróa það betur. Það
er líka á teikniborðinu að gera línu
fyrir herra, en það verður allt annar
handleggur. Þar kemur pönkarinn í
okkur við sögu sem verður spenn
andi.“ Draumurinn er að láta flug
félögin selja þetta og komast þann
ig með vöruna upp í hæstu hæðir
– í bókstaflegri merkingu. Annars
verður varan til sölu á heimasíðunni.
benediktboas@365.is
ég nota Það Ein-
göngu Eftir sturtu
til dæmis og KEmur Það
algjörlEga í staðinn fyrir
KrEm sEm Eru full af para-
BEnum og alKóHóli.
Íslenskur hrossaþari úr Breiðafirði er uppistaðan í spreyinu.
9 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r52 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
0
9
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
2
E
-9
5
B
4
1
E
2
E
-9
4
7
8
1
E
2
E
-9
3
3
C
1
E
2
E
-9
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K