Fréttablaðið - 15.11.2017, Page 32
Markaðurinn
Miðvikudagur 15. nóvember 2017fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is
Stjórnar-
maðurinn
@stjornarmadur
13.11.2017
Það er eins og það eigi að
þagga niður í gagn rýni
minni á Hæstarétt.
Ég á ekki von á að
það beri mik inn
ár ang ur.
Jón Steinar Gunnlaugs-
son, fyrrv. hæsta-
réttardómari
Eignarhaldsfélagið Ramses, sem er í eigu Eyþórs
Arnalds fjárfestis, hagnaðist um rúmlega 60
milljónir króna í fyrra borið saman við hagnað
upp á 492 milljónir á árinu 2015. Eyþór er meðal
annars stærsti einstaki hluthafi Árvakurs, útgáfu-
félags Morgunblaðsins, með tæplega 23 pró-
senta hlut en hann kom inn í hluthafahóp
félagsins í apríl á þessu ári.
Samkvæmt nýbirtum ársreikningi
Ramses er hagnaður félagsins að mestu
tilkominn vegna tekna af hlutabréfum.
Heildareignir í árslok 2016 námu
tæplega 706 milljónum, en þar af voru lán til
tengdra aðila um 280 milljónir. Eigið fé félags-
ins var liðlega 707 milljónir og lagði stjórn þess
til að greiddur yrði arður til hluthafa að fjárhæð
50 milljónir.
Á meðal fjárfestinga sem Eyþór hefur
komið að á undanförnum árum er
kísilver Thorsil í Helguvík og þá
keypti hann ferðaþjónustufyrirtækið
Special Tours í Reykjavík, sem gerir
út báta til hvalaskoðunar í Faxaflóa,
vorið 2016. – hae
Eyþór arnalds hagnast um 60 milljónir
Eyþór Arnalds.
Á myndina vantar
Kjartan Óla Eiríksson
1970–2015
Um 200 Íslendingar látast árlega úr ótímabærum hjarta- og
æðaáföllum. Um 12 þúsund manns á aldrinum 50–70 ára glíma
við afleiðingar slíkra áfalla og lifa við skert lífsgæði vegna þeirra.
Með markvissri leit er hægt að finna þessa einstaklinga áður en
það er um seinan og koma í veg fyrir áföllin.
Við söfnum fyrir fyrirbyggjandi leit og innleiðingu á öllum
heilsugæslum landsins.
907 1502
2.000 KR.
907 1505
5.000 KR.
907 1508
8.000 KR.
Pi
pa
r\
TB
W
A
\
S
ÍA
Þýski stórmarkaðsrisinn Lidl hefur
náð eftirtektarverðum árangri
undanfarin ár, og hefur í auknum
mæli beint sjónum sínum út fyrir
heimalandið. Lidl hefur á einungis
fimm árum náð því að vera fimmti
stærsti stórmarkaðurinn á Bretlandi
að því er varðar veltu, og er aukin-
heldur sá sem verið hefur að bæta
við sig mestri markaðshlutdeild.
Söluaukning félagsins milli ára nam
þannig 18% á þriðja fjórðungi þessa
árs samanborið við sama tímabil í
fyrra. Ljóst er því að markaðsdeild
Lidl er að gera eitthvað rétt.
Því var eftirtektarvert að heyra
markaðsstjóra félagsins láta hafa
eftir sér að Lidl legði langmesta
áherslu á auglýsingar í því sem kalla
má hefðbundnum miðlum, það er
sjónvarpi, útvarpi og prentmiðlum.
Þar telur markaðsstjórinn að mestur
árangur náist, og að mest fáist
fyrir þá peninga sem lagðir eru til
markaðsmála. Hvað nýmiðla varðar,
og þá á hann fyrst og fremst við vél-
rænar auglýsingar á netinu sem birst
geta bæði á vefmiðlum eða á sam-
félagsmiðlum, þá telur hann þá dýra
og að erfitt sé að mæla árangur.
Athyglisvert er að bera þessa reynslu
markaðsstjórans og Lidl saman við
nýlegar tölur um auglýsingatekjur
íslenskra fjölmiðla, en þar kemur
fram að auglýsingatekjurnar voru
helmingi minni að raunvirði árið
2015 en árið 2007 þegar þær náðu
sögulegu hámarki. Nú er ljóst, þótt
ekki liggi fyrir opinberar tölur, að
auglýsingakaup hafa ekki dregist
saman á Íslandi sem þessu nemur.
Því má gera ráð fyrir því að það sem
upp á vantar, og mögulega meira til,
hafi runnið í auglýsingar á netinu
ýmiss konar, t.d. til samfélagsmiðla
á borð við Facebook, Instagram,
Snapchat eða YouTube. Kaka inn-
lendra vefmiðla er hins vegar enn
mjög smá.
Í þessu samhengi er sú nálgun Sam-
keppniseftirlitsins að skilgreina
erlenda samfélagsmiðla ekki sem
keppinauta hefðbundinna fjölmiðla
í besta falli hlægileg. Auðvitað starfa
þessir aðilar á sama markaði og
keppa um sömu auglýsendur. Þessar
nýju tölur um auglýsingar eru lifandi
vitnisburður um það.
Hitt er annað mál að orð markaðs-
stjóra Lidl benda til þess að þróunin
sé mögulega ekki óafturkræf. Ef það
er reynsla þess fyrirtækis á Bret-
landseyjum sem hefur verið í mestri
markaðssókn að hefðbundnir
miðlar virki best, þá hljóta aðrir að
upplifa það sama eða að minnsta
kosti að veita ummælunum eftirtekt.
Er hitt ekki líklegra að sannleikurinn
liggi einhvers staðar á miðri leið?
Hefðbundnir fjölmiðlar lifa vissu-
lega í breyttum heimi, en þeir eru
langt í frá dauðir úr öllum æðum.
Lífseigir miðlar
1
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
7
-5
9
C
C
1
E
3
7
-5
8
9
0
1
E
3
7
-5
7
5
4
1
E
3
7
-5
6
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K