Fréttablaðið - 15.11.2017, Side 39

Fréttablaðið - 15.11.2017, Side 39
AVA FYLGIR FRÍTT Síðumúla 17 | Lágmúla 7, í 10-11 | Austurstræti 17, í 10-11 | Fitjum, Reykjanesbæ | Leifsstöð | ginger.is MEÐ ÖLLUM RÉTTUM Á GINGER Í NÓVEMBER Bækur Ekki vera sár HHHHH kristín Steinsdóttir Útgefandi: Vaka-Helgafell Prentun: Bookwell, Finnlandi Síðufjöldi: 212 Kápuhönnun: Alexandra Buhl A ð a l s ö g u ­ hetja nýj­ ustu bókar K r i s t í n a r Steinsdótt­ u r , E k k i vera sár, er k e n n s l u ­ konan fyrr­ verandi og eftirlauna­ þ e g i n n Imba sem þ a r f a ð horfast í augu við það að lífið hefur ekki farið eins og hún hefði kosið. Hér kveður við nýjan tón samanborið við síðustu skáld­ sögur Kristínar en Ekki vera sár minnir hins vegar um margt á hina stórgóðu Á eigin vegum frá árinu 2006 og einnig fleiri nýlegar bækur um konur sem komnar eru af allra, allra léttasta skeiði. Hér hef ég ekki síst í huga bækur sem falla í flokk maddömubóka (e. matron liter­ ature) en þá er um að ræða bækur um konur á aldrinum 45­65 ára sem standa á krossgötum, og finna sig knúnar til að endurmeta líf sitt. Feminísk þemu eru ekki óalgeng í maddömubókum og boðskapurinn oft sá að konur eiga ekki að bíta á jaxlinn og þegja heldur láta í sér heyra – og það er aldrei of seint að gera það. Um þetta fjallar Ekki vera sár því hvað verður um konu þegar hún er komin á eftirlaun, börnin flogin úr hreiðrinu og eiginmaður­ inn – með þúsundaþjalaheilkennið – neitar að koma heim úr sumar­ bústaðnum? Hvað gerist þegar þessi sama kona hefur, að því er virðist, óendanlegan tíma til að gera upp fortíðina, spá í framtíðina og efast um daginn í dag? Ekki vera sár er lágstemmd bók og ljúft að lesa hana. Textinn líður áfram og lesandinn kynnist Imbu og hennar fólki smám saman, bæði í nútíð og fortíð og skilur betur frá kafla til kafla hvers vegna hún er gripin óþoli yfir lífi sínu og tilveru. Einkum var ég hrifin af því að lesa um barnið og unglinginn Imbu en sú frásögn eykur ekki aðeins skiln­ ing lesenda á tilfinningum Imbu heldur spegla fortíð og nútíð hvor aðra á fallegan hátt og varpa ljósi á fleiri persónur. Þess utan er Kristín lagin við að setja sig í spor yngri persóna eins og allir vita sem lesið hafa barnabækur hennar. Bernsku­ minningarnar eru án efa besti hluti bókarinnar. Persónur bókarinnar afmarkast við ættingja og nánustu vini Imbu. Áhugaverðastir eru faðir aðalsögu­ hetju og eiginmaður hennar. Faðir­ inn er sjómaður, ansi blautur, og ræður ekki við ábyrgðina sem því fylgir að vera heimilisfaðir. Imba, sem og aðrir fjölskyldumeðlimir, líður fyrir það og hún ásetur sér að hennar eigin fjölskylda skuli ekki liðast í sundur líka. Þetta er meðal annars ástæða þess að hún hefur lengi setið í óhamingjusömu hjóna­ bandi. Samskipti hjónanna, þeirra Imbu og Jónasar, eru ansi stirð en Jónas er sú persóna sem ég átti hvað erfiðast með að ná tengslum við, fannst hann ekki dreginn nógu skýr­ um línur. Á hið sama við um börn Imbu en á móti kom að gamlir kær­ astar og sénsar mynduðu skemmti­ legt mótvægi við eiginmanninn og eru jafnframt táknrænir fyrir það hvernig lífið hefði getað orðið. Helga Birgisdóttir NiðurStaða: Ljúfasta saga og vel þess virði að lesa um konu sem loksins, loksins fer að hugsa um sjálfa sig. Ein í kotinu Hljómsveitin Syntagma rembetiko heldur tónleika í Mengi við Óðins­ götu í kvöld klukkan 21. Hún sér­ hæfir sig í þjóðlagatónlist Grikkja, svokallaðri rembetiko tónlist sem Íslendingar þekkja best úr mynd­ inni um Grikkjann Zorba. Slík tón­ list hljómar frá kaffihúsum og sólar­ ströndum Grikklands og er samofin grískri þjóðarsál. Hljómsveitin var stofnuð í júní síðastliðnum og þetta eru tónleikar hennar númer tvö. Hana skipa þau Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir fiðla, Alexandra Kjeld kontrabassi, Mar­ grét Arnardóttir harmóníka og Ásgeir Ásgeirsson bouzouki. Ásgeir hefur nýverið gefið út disk með íslenskum þjóðlögum sem nefnist Two Sides of Europe, þar semur hann nýja kafla við íslensku þjóðlögin og útsetur á alveg nýjan hátt fyrir íslensk/tyrkneskan hljóð­ heim og hljómsveit. Leikið verður lag af diskinum í kvöld. Tónleikarnir byrja klukkan 21. Aðgangseyrir er 2.000 krónur og gestir fá óvæntan glaðning með miðanum. – gun Grísk þjóðlagatónlist sem margir þekkja Alexandra, Sigrún Kristbjörg, Margrét og Ásgeir skipa hljómsveitina. m E N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 23m i ð V i k u D a g u r 1 5 . N ó V E m B E r 2 0 1 7 1 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 7 -3 C 2 C 1 E 3 7 -3 A F 0 1 E 3 7 -3 9 B 4 1 E 3 7 -3 8 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.