Fréttablaðið - 15.11.2017, Síða 39
AVA
FYLGIR
FRÍTT
Síðumúla 17 | Lágmúla 7, í 10-11 | Austurstræti 17, í 10-11 | Fitjum, Reykjanesbæ | Leifsstöð | ginger.is
MEÐ ÖLLUM RÉTTUM
Á GINGER Í NÓVEMBER
Bækur
Ekki vera sár
HHHHH
kristín Steinsdóttir
Útgefandi: Vaka-Helgafell
Prentun: Bookwell, Finnlandi
Síðufjöldi: 212
Kápuhönnun: Alexandra Buhl
A ð a l s ö g u
hetja nýj
ustu bókar
K r i s t í n a r
Steinsdótt
u r , E k k i
vera sár, er
k e n n s l u
konan fyrr
verandi og
eftirlauna
þ e g i n n
Imba sem
þ a r f a ð
horfast í augu við það að
lífið hefur ekki farið eins og hún
hefði kosið. Hér kveður við nýjan
tón samanborið við síðustu skáld
sögur Kristínar en Ekki vera sár
minnir hins vegar um margt á hina
stórgóðu Á eigin vegum frá árinu
2006 og einnig fleiri nýlegar bækur
um konur sem komnar eru af allra,
allra léttasta skeiði. Hér hef ég ekki
síst í huga bækur sem falla í flokk
maddömubóka (e. matron liter
ature) en þá er um að ræða bækur
um konur á aldrinum 4565 ára
sem standa á krossgötum, og finna
sig knúnar til að endurmeta líf sitt.
Feminísk þemu eru ekki óalgeng í
maddömubókum og boðskapurinn
oft sá að konur eiga ekki að bíta á
jaxlinn og þegja heldur láta í sér
heyra – og það er aldrei of seint að
gera það. Um þetta fjallar Ekki vera
sár því hvað verður um konu þegar
hún er komin á eftirlaun, börnin
flogin úr hreiðrinu og eiginmaður
inn – með þúsundaþjalaheilkennið
– neitar að koma heim úr sumar
bústaðnum? Hvað gerist þegar þessi
sama kona hefur, að því er virðist,
óendanlegan tíma til að gera upp
fortíðina, spá í framtíðina og efast
um daginn í dag?
Ekki vera sár er lágstemmd bók
og ljúft að lesa hana. Textinn líður
áfram og lesandinn kynnist Imbu
og hennar fólki smám saman, bæði
í nútíð og fortíð og skilur betur frá
kafla til kafla hvers vegna hún er
gripin óþoli yfir lífi sínu og tilveru.
Einkum var ég hrifin af því að lesa
um barnið og unglinginn Imbu en
sú frásögn eykur ekki aðeins skiln
ing lesenda á tilfinningum Imbu
heldur spegla fortíð og nútíð hvor
aðra á fallegan hátt og varpa ljósi á
fleiri persónur. Þess utan er Kristín
lagin við að setja sig í spor yngri
persóna eins og allir vita sem lesið
hafa barnabækur hennar. Bernsku
minningarnar eru án efa besti hluti
bókarinnar.
Persónur bókarinnar afmarkast
við ættingja og nánustu vini Imbu.
Áhugaverðastir eru faðir aðalsögu
hetju og eiginmaður hennar. Faðir
inn er sjómaður, ansi blautur, og
ræður ekki við ábyrgðina sem því
fylgir að vera heimilisfaðir. Imba,
sem og aðrir fjölskyldumeðlimir,
líður fyrir það og hún ásetur sér að
hennar eigin fjölskylda skuli ekki
liðast í sundur líka. Þetta er meðal
annars ástæða þess að hún hefur
lengi setið í óhamingjusömu hjóna
bandi. Samskipti hjónanna, þeirra
Imbu og Jónasar, eru ansi stirð en
Jónas er sú persóna sem ég átti hvað
erfiðast með að ná tengslum við,
fannst hann ekki dreginn nógu skýr
um línur. Á hið sama við um börn
Imbu en á móti kom að gamlir kær
astar og sénsar mynduðu skemmti
legt mótvægi við eiginmanninn og
eru jafnframt táknrænir fyrir það
hvernig lífið hefði getað orðið.
Helga Birgisdóttir
NiðurStaða: Ljúfasta saga og
vel þess virði að lesa um konu sem
loksins, loksins fer að hugsa um
sjálfa sig.
Ein í kotinu
Hljómsveitin Syntagma rembetiko
heldur tónleika í Mengi við Óðins
götu í kvöld klukkan 21. Hún sér
hæfir sig í þjóðlagatónlist Grikkja,
svokallaðri rembetiko tónlist sem
Íslendingar þekkja best úr mynd
inni um Grikkjann Zorba. Slík tón
list hljómar frá kaffihúsum og sólar
ströndum Grikklands og er samofin
grískri þjóðarsál.
Hljómsveitin var stofnuð í júní
síðastliðnum og þetta eru tónleikar
hennar númer tvö. Hana skipa þau
Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir fiðla,
Alexandra Kjeld kontrabassi, Mar
grét Arnardóttir harmóníka og
Ásgeir Ásgeirsson bouzouki.
Ásgeir hefur nýverið gefið út disk
með íslenskum þjóðlögum sem
nefnist Two Sides of Europe, þar
semur hann nýja kafla við íslensku
þjóðlögin og útsetur á alveg nýjan
hátt fyrir íslensk/tyrkneskan hljóð
heim og hljómsveit. Leikið verður
lag af diskinum í kvöld.
Tónleikarnir byrja klukkan 21.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur og
gestir fá óvæntan glaðning með
miðanum.
– gun
Grísk þjóðlagatónlist sem margir þekkja
Alexandra, Sigrún Kristbjörg, Margrét og Ásgeir skipa hljómsveitina.
m E N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 23m i ð V i k u D a g u r 1 5 . N ó V E m B E r 2 0 1 7
1
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
7
-3
C
2
C
1
E
3
7
-3
A
F
0
1
E
3
7
-3
9
B
4
1
E
3
7
-3
8
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K