Fréttablaðið - 27.11.2017, Síða 8

Fréttablaðið - 27.11.2017, Síða 8
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Sendibíll ársins 2017. Nýr Crafter. Við látum framtíðina rætast. Alþjóðlegur sendibíll ársins 2017. Nýr Volkswagen Crafter er hannaður með þarfir iðnaðarmanna að leiðarljósi. Fyrsti sendibíllinn með 8 þrepa sjálfskiptingu fyrir allar útgáfur. Crafter er betri en nokkurn tímann áður en hægt að velja um fjölda útfærslna á hleðslurými, farþegarými og aðstoðarkerfi. Sendibíll verð frá 5.970.000 kr. m/vsk Pallbíll verð frá 5.610.000 kr. m/vsk Viðskipti Skattlagning á áfengis- framleiðendur er eitt helsta vandamálið sem litlir bjórfram- leiðendur standa frammi fyrir. Þetta segir Björg Ásta Þórðardótt- ir, lögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins. Töluverð aukning hefur verið í neyslu bjórs á undanförnum árum, en sala í Vínbúðunum jókst um rúm 13 prósent á árunum 2012 til 2016. Fór úr 14,5 milljónum lítra í 16,4 milljónir lítra. Um 70 prósent af sölunni er íslensk framleiðsla. Á sama tíma hafa tekjur íslenskra bjórverksmiðja aukist. Eitt besta dæmið er kannski bruggverk- smiðjan á Árskógssandi þar sem bjórinn Kaldi er framleiddur. Sölu- tekjur verksmiðjunnar voru 436 milljónir króna á árinu 2016 og jukust um 44,6 milljónir króna eða 11,4 prósent. Ölvisholt brugghús seldi vörur fyrir 74 milljónir króna í fyrra og Einstök ölgerð seldi bjór fyrir tæpar 46 milljónir, svo dæmi séu tekin. Bjórframleiðsla stærri fyrirtækja á borð við Vífilfell og Ölgerðina er síðan mun umfangs- meiri. „Tækifærin eru náttúrlega fólgin í því að það er aukin ferða- mennska og við erum með mjög flotta aðila sem eru að spretta upp í þessu umhverfi þó að það sé svona erfitt umfangs,“ segir Björg. Samtök iðnaðarins boðuðu til fundar um íslenska bjórfram- leiðslu í vikunni. „Þessir minni bjórframleiðendur hafa viljað fá einhvern svona vettvang til að berjast fyrir sínum hagsmuna- málum, sem eru reyndar sam- eiginleg stærri framleiðendum líka. Við höfum sagt að við viljum styðja við það,“ segir Björg Ásta um tilefni fundarins. Opinber gjöld sem lögð eru á bjór eru misjafnlega há eftir því hve há áfengisprósentan er, en að minnsta kosti helmingurinn af söluverðinu. „Svo eftir því sem áfengisprósentan hækkar þá hækkar hlutfallið,“ útskýrir hún. Björg Ásta segir íþyngjandi fyrir bjórframleiðandann að þurfa að standa skil á opinberum greiðsl- um til ríkisins áður en varan er seld. „Áfengisframleiðandinn þarf að standa skil á skattinum til ríkisins. Hann selur síðan vöruna til birgja, vínveitingahúsa eða ÁTVR sem fær þá 30 daga greiðslu- frest,“ segir Björg Ásta. Það geti því liðið 30 dagar frá því að framleið- andinn er búinn að greiða opin- ber gjöld og þangað til hann fær sölutekjur af vörunni. „Þannig að þetta er mög þungur rekstur. Svo er markaðssetningin takmörkuð út af áfengissölubanni og fleira,“ bætir hún við. Björg Ásta telur að Íslendingar hafi sett heimsmet í skattlagningu á áfengi. „Þessi staða er erfið fyrir litlu aðilana sem eru að reyna að starta fyrirtæki með allt sem því fylgir og reyna að markaðssetja sig,“ segir hún. jonhakon@frettabladid.is Háir skattar íþyngja brugghúsunum Opinber gjöld eru eitt helsta vandamálið sem bjórframleiðendur á Íslandi standa frammi fyrir. Þurfa að standa skil á skattinum áður en varan er seld. Gerir fyrirtækjum erfiðara að fjármagna sig. Samanlagðar tekjur brugghúsanna námu hundruðum milljóna á síðasta ári. Innlendum brugghúsum hefur fjölgað síðustu ár og vöruúrval aukist þar af leiðandi í ÁTVR. FRéTTablaðIð/ERnIR björg Ásta Þórðardóttir 2 7 . n ó V e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð 2 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 5 4 -2 7 F 4 1 E 5 4 -2 6 B 8 1 E 5 4 -2 5 7 C 1 E 5 4 -2 4 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.