Fréttablaðið - 27.11.2017, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
FYRIR FLESTAR
GERÐIR BÍLA...
GORMAR
HÖGGDEYFAR
VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ!
STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS
Þó svo þessir
karlar hafi
kannski
upplifað
daðurslega til-
burði sína í
gegnum
tíðina sem
heillandi
samskipti þá
er hætt við að
þessar sögur
væru ekki
þarna ef það
hefði verið
gagnkvæmt.
Meðal stóru áherslumálanna í síðustu alþingiskosningum voru heilbrigðis- og vel-ferðarmál. Íslendingar eru ung þjóð, yngri
en nágrannaþjóðirnar, og stærstur hluti aldraðra er
hraustur og heilbrigður og býr á eigin heimili mestan
hluta ævinnar. Samt vistast hlutfallslega mun fleiri
á hjúkrunarheimilum á Íslandi en annars staðar
á Norðurlöndum. Önnur, hagkvæmari og betri
úrræði eru fábreyttari. Vissulega þarf bráðaaðgerðir
í hjúkrunarþjónustu við aldraða. Það sem þó skiptir
höfuðmáli er að heilbrigðis- og velferðarþjónustan
verði endurskilgreind.
Vinna þarf að því í verki að gera öldruðum mögu-
legt að búa við öryggi og lífsgæði á eigin heimili mun
lengur en tíðkast hefur. Hinn mikli vandi á íbúðamark-
aði tröllríður umræðunni, snertir hag aldraðra með
beinum hætti og aðkoma stjórnvalda að þeim þætti
er nauðsynleg. Hagkvæmt húsnæði þar sem félagslegt
samneyti er tryggt, eftirlit sömuleiðis með heilsufari og
öryggi getur ráðið úrslitum um velsæld og heilbrigði,
dregið úr einangrun og slysahættu og tafið stofnana-
vistun um marga mánuði eða jafnvel gert slíkt úrræði
óþarft. Rannsóknir sýna að aldraðir almennt kjósa að
vera virkir þátttakendur í samfélaginu.
Nokkur hluti aldraðra býr við sæmileg lífeyriskjör
en stór hluti þeirra við afar þröngan kost. Lamandi
skerðingar þeirra sem enn vilja leggja sitt af mörkum
á vinnumarkaði eru líka fráleitar. Þetta er fjölbreyti-
legur þjóðfélagshópur sem á margt sameiginlegt.
Þannig hafa t.d. flestir gengið að því sem vísu að lífeyr-
issjóðsgreiðslur á starfsævinni yrðu þeim verulegur
búhnykkur á efri árum en orðið fyrir vonbrigðum.
Hið gamalkunna kjörorð „búum öldruðum
áhyggjulaust ævikvöld“ er glapsýn. Áhyggjur fylgja
mannfólkinu auðvitað alla tíð og aldraðir hafa því
áhyggjur eins og annað venjulegt fólk. Það er hins
vegar hryggilegt að þjóðin sé svo skammt komin á
braut velferðar að hluti eldri borgara skuli enn hafa
áhyggjur af framfærslu sinni, hvort þeir eigi til hnífs
og skeiðar. Það er ljótur blettur á samfélagi sem vill
kenna sig við velferð.
Áhyggjur á ævikvöldi
Guðjón S.
Brjánsson
alþingismaður
Það er hins
vegar hryggi-
legt að þjóðin
sé svo
skammt
komin á
braut vel-
ferðar að
hluti eldri
borgara skuli
enn hafa
áhyggjur af
framfærslu
sinni.
Allar byltingar í átt til frelsis og framfara í þágu undirokaðra samfélagshópa eru og hafa ávallt verið í eðli sínu fjöldahreyfing-ar. Tilefni byltinganna eða það sem verður til þess að koma þeim af stað miðar oftar
en ekki við þá hópa sem þurftu að þola verstu tilfellin
af kúgun og undirokun. Það dregur þó engan veginn
úr mikilvægi byltingarinnar að allir sem tilheyra
hinum undirokaða samfélagshópi skuli leggja sitt lóð
á vogarskálarnar, heldur þvert á móti, þar sem það er
styrkur í fjöldanum. Fórnarlömb hætta að vera fórnar-
lömb en verða þess í stað leiðarljós í fjöldahreyfingu
til frelsis og framfara.
Kvennabyltingin sem nú stendur yfir er einmitt gott
dæmi um slíka byltingu sem finnur styrk sinn í fjöld-
anum og samstöðunni. Þetta skildu vel þau hundruð
íslenskra stjórnmálakvenna sem fyrir skömmu sendu
frá sér yfirlýsingu og settu fram kröfu um bætta stjórn-
málamenningu með yfir hundrað dæmum um það
sem konur hafa mátt þola á þessum vettvangi. Eðli
málsins samkvæmt eru sögur kvennanna jafn ólíkar
og þær eru margar enda eru hér eru á ferðinni ein-
staklingar sem eiga þann sjálfsagða rétt að setja sín
eigin mörk í samskiptum frá degi til dags.
Fljótlega fóru þó að heyrast þær raddir, oftar en
ekki frá karlmönnum af eldri kynslóðinni, að hinar
eða þessar smásögurnar af neikvæðri og jafnvel niður-
lægjandi reynslu ættu nú tæpast rétt á sér. Að það að
kona sem kvartaði undan smá daðri, klappi eða glápi
gerði nú bara lítið úr þeim sem þyrftu að þola eitthvað
á borð við káf eða nauðgun. Að slíkar umkvartanir
væru að auki einhvers konar aðför gegn eðlilegum og
daðurskenndum samskiptum kynjanna sem væru nú
þrátt fyrir allt svo óskaplega skemmtilegur hluti af
lífinu.
Þetta er bæði bull og vitleysa. Þó svo þessir karlar
hafi kannski upplifað daðurslega tilburði sína í
gegnum tíðina sem heillandi samskipti þá er hætt
við að þessar sögur væru ekki þarna ef það hefði
verið gagnkvæmt. En það sem verra er þá eru þessar
úrtöluraddir líka að reyna að verja menningu sem á
alls ekki rétt á sér. Menningu sem undirokar helming-
inn af mannkyni í krafti kynferðis og lætur sér það í
léttu rúmi liggja hvað það er sem konur upplifa sem
átroðning, niðurlægingu og virðingarleysi.
Þessar sögur sem sumir hafa þannig viljað afskrifa
sem léttvægar og ómerkilegar frásagnir af sam-
skiptum kynjanna eru því mikilvægar í margþættum
skilningi. Þær eru órjúfanlegur hluti af þeim veru-
leika sem konur búa við og þær veita þeim sem hafa
þurft að þola verstu tilfellin styrk fjöldans. Þær sýna
okkur svo ekki verður um villst að hér er um að ræða
heildstætt menningarlegt fyrirbæri en ekki einangruð
dæmi yfirgangs og ofbeldis. Það þarf nefnilega ekki
að hafa káfað á konu eða nauðgað henni til þess að
hafa gengið of langt. Þar af leiðir að þessar sögur eru
ómetanlegur lærdómur fyrir alla karlmenn sem vilja
með auknum skilningi breyta eigin hegðun og sam-
skiptum við konur til betri vegar og báðum kynjum
til góðs.
Smá daður
Er gosið hafið?
Undanfarna daga og vikur hafa
verið sagðar fréttir af því að
ný ríkisstjórn sé í pípunum.
Þá hefur einnig verið sagt
frá því að Öræfajökull sé að
fylla sínar pípur af kviku.
Æviskeið beggja fregna hefur
verið svipað, allir hlaupa upp
til handa og fóta við fyrstu
fregnir en eftir því sem á líður
hafa æ minni tíðindi borist.
Síðustu daga hafa fregnir
flestar hljóðað á þann veg að
fólk bíði átekta og þetta muni
nú skýrast allt á næstunni. Nú
stefnir í að ríkisstjórn verði
mynduð fyrir vikulok og er
aðeins spurning hvort jök-
ullinn muni fara að fordæmi
stjórnmálafólksins.
Kampavínskommar?
Þó að tappinn sé ekki farinn
úr jöklinum, þá var einn
slíkur dreginn úr freyðivíns-
flösku í ráðherrabústaðnum
í gær. Fulltrúar líklegra
ríkisstjórnarflokka, Sjálf-
stæðis- og Framsóknarmenn
auk Vinstri grænna, skáluðu
þá fyrir árangri helgarinnar.
Það fylgdi sögunni að for-
menn flokkanna þriggja hefðu
ekki vökvað lífsblómið af því
tilefni heldur voru það næst-
innstu koppar í búri sem lyftu
glösum og vættu kverkarnar.
Einhvers staðar í þessu sam-
hengi er grín um kampavíns-
komma. Það bara hlýtur að
vera. joli@365.is
2 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D A G U r12 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
2
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
5
4
-0
F
4
4
1
E
5
4
-0
E
0
8
1
E
5
4
-0
C
C
C
1
E
5
4
-0
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K