Fréttablaðið - 27.11.2017, Qupperneq 46
Jólatertur
Gríptu eina!
eða allar 4
Strax í dag
Smakkaðu
NÝJA með
rabbarbara
-
sultu
MYLLU
cw170109_ISAM_Myllan_Jólaterta_blá_dagbl_5x10_20171113_END.indd 1 24.11.2017 10:04:08
Rithöfundurinn Birna Anna Björnsdóttir hóf sinn höfundarferil með allsérstæðum hætti sem einn af höfundum skáldsögunnar Dís, árið 2000.
Fjórum árum síðar kom svo skáldsaga
hennar Klisjukenndir og svo nýjasta
skáldsagan Perlan: Meint skinkuvæð
ing íslensku kvenþjóðarinnar í kjölfar
efnahagshrunsins, sem kom út fyrir
skömmu. Í öllum þessum verkum er
að finna sameiginlegan streng sem er
fólginn í skoðun á stöðu ungra kvenna
og Birna Anna segir að í sinni nýjustu
bók sé stóra hugmyndin með aðalper
sónunni að skoða hvernig konur eru
hlutgerðar í nútímamenningu.
„Aðalpersónan Perla er kona sem
hefur alltaf verið hlutgerð af umhverf
inu og því finnst mér áhugavert að
skoða manneskjuna á bak við ímynd
ina og hvað það getur verið rosalega
langt á milli ímyndarinnar og hinnar
eiginlegu manneskju. Ég skoða líka
hvernig það fer með manneskju að
hafa alltaf verið sett á ákveðinn stall.
En svo er líka hluti af þessari
frægðardýrkun að við höfum oft svo
lítið úthald fyrir einstaklingum og
það þarf því alltaf að koma einhver
ný týpa, hvort sem það er í listum eða
öðru í menningunni, sem tekur við
þessu hlutverki að vera aðal. Þá vakn
ar spurningin hvað verði um mann
eskjuna eftir að henni hefur verið ýtt
til hliðar og hún er ekki lengur í tísku.
Við þekkjum þessar týpur í umhverf
inu, þessar manneskjur sem birtast
og verða frægar, stundum bara fyrir
að vera frægar, en hvað svo? Það er
soldið það sem þessi bók snýst um.
Hvað verður um svona konu?“
Ráfar um í reiðileysi
Birna Anna fer þá leið með sína per
sónu að hún lætur hana hverfa af
sjónarsviðinu um langa hríð en dúkka
svo upp aftur í nýju samhengi. „Í upp
hafi bókar er Perla komin á vitnalista
í réttarhöldum um stríðsglæpi og
þá vaknar aftur áhugi allra á Íslandi
á henni. Þá vilja allir vita hvað varð
um þessa konu og hvað hefur orðið
til þess að hún er komin á þennan
óvænta stað í þessu samhengi. Við
sem lesendur fáum svo að fylgja henni
náið í gegnum hennar sögu og komast
að því hvað gerðist.“
Birna Anna er á því að konur séu
líklegri til að lenda í þessari hverfulu
athygli umhverfisins en karlar enda
staða þeirra í menningunni önnur.
„Það er miklu meira horft á útlit og
yfirborð kvenna og útlitsdýrkun nær
miklu frekar til kvenna. Hún á sér að
einhverju leyti stað hjá körlunum líka
en hún er sterkari hjá konum og hefur
meiri áhrif á konur almennt. Þessar
ímyndir hafa áhrif út fyrir sjálfa sig og
snerta flestar konur með einhverjum
hætti í gegnum menninguna.“
En að hversu miklum hluta erum við
sjálf að framleiða okkar eigin ímynd?
„Ég held að fólki geri það í síauknum
mæli með tilkomu samfélagsmiðla.
Hér áður fyrr voru það aðeins þeir
sem voru áberandi og mikið í fjöl
miðlum sem skópu sér ímynd en með
tilkomu samfélagsmiðla getur hver og
einn ákveðið að búa sér til slíka ímynd
út á við.
Mér fannst áhugavert að skapa
sögupersónu sem er í þessari stöðu,
að hafa sterka ímynd í hugum fólks
en svo er innra lífið, sjálft sálarlífið,
allt annað en ímyndin segir til um.
Það myndast ákveðin togstreita þegar
langt bil er þarna á milli. Þá myndast
tómleiki, tengslaleysi við annað fólk
og einmanaleiki og það er meðal
annars það sem ég er að skoða. Perla
á mjög erfitt með að mynda tengsl við
aðra. Hún ráfar um í ákveðnu reiði
leysi á sínum fullorðinsárum út af
þessu tengslaleysi og það hefur með
hennar bakgrunn og umhverfi að gera
auk þess hvernig samfélagið hefur alla
tíð skilgreint hana og metið.“
Hver kynslóð gerir betur
Aðspurð um áhrifavalda segist Birna
Anna mikið lesa kvenrithöfunda og
gjarnan femíníska höfunda, meðal
höfunda sem eru í uppáhaldi eru
Chimamanda Ngozi Adichie, Zadie
Smith, Jennifer Egan og Claire Mess
ud. „Það er líka stór persóna í bókinni
minni sem er femínískur fræðimaður
og það koma vissulega ákveðnar
femínískar pælingar við sögu.
Mér finnst þetta áhugavert að skoða
því að femínismi er stórt og dýna
mískt fyrirbæri þar sem alls konar
straumar og hugmyndir eru í mótun
eftir því sem samfélagið þróast. Mér
finnst ekki síst áhugavert að skoða
hvernig manneskja sem sækir sér
athygli fyrir yfirborð getur líka verið
skoðuð með femínískum gleraugum.
Og þegar við förum í gegnum þessa
sögu með henni þá vonandi sjáum
við að það býr annað og meira að baki
en bara það sem við sjáum á yfirborð
inu.“
En hefur íslenskur femínismi þá
einsleita mynd af því sem konur ættu
að vera? „Nei, mér finnst vera mikil
gerjun í íslenskum femínisma og að
þetta sé rosalega frjótt samfélag. Það
er mikið af ferskum hugmyndum í
gangi og spennandi og mikilvægir
hlutir að gerast. Eins og við sjáum
núna til dæmis, þá getur femínismi
verið gríðarlega sterkt hreyfiafl til
framfara í samfélaginu. Mér finnst
ungu íslensku femínistarnir alveg
magnaðir og finnst þeirra barátta og
starf svo flott. Hver kynslóð byggir
auðvitað á þeim sem á undan fóru og
gerir svo vonandi ennþá betur.“
Það er stutt í húmorinn í skáld
sögunni Perlan og Birna Anna segir
að það sé henni mikilvægt. „Í fyrsta
lagi þá er einfaldlega gaman að lesa
fyndnar bækur og ég elska sjálf bækur
með góðum húmor. Húmor getur líka
verið eitt besta og beittasta greining
artækið þegar við erum að skoða sam
tímann og getur hjálpað okkur að sjá
og skilja hlutina í nýju ljósi.“
Femínismi getur verið sterkt hreyfiafl í samfélaginu
Birna Anna Björnsdóttir segir að það sé mikil gerjun í íslenskum femínisma og að það sé frjótt samfélag. FRéttABlAðið/EyþóR
Perlan: Meint
skinkuvæðing ís-
lensku kvenþjóðar-
innar í kjölfar efna-
hagshrunsins, er
titill nýjustu skáld-
sögu Birnu Önnu
Björnsdóttur sem
skoðar m.a. bilið á
milli manneskju og
ímyndar.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
2 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D A G U r26 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
menning
2
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
4
-1
4
3
4
1
E
5
4
-1
2
F
8
1
E
5
4
-1
1
B
C
1
E
5
4
-1
0
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K