Morgunblaðið - 03.02.2017, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.02.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 FAI varahlutir Ódýrari kostur í varahlutum! stýrishlutir hafa verið leiðandi í yfir 10 ár. Framleiddir undir ströngu eftirliti til samræmis við OE gæði. Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Meirihlutinn í Reykjavík fylgirþeirri stefnu í nafni gagn- særrar og lýðræðislegrar stjórn- sýslu að leita álits íbúa eftirá og þá að sjálfsögðu að- eins til mála- mynda. Þetta skilar prýði- legum árangri í því að koma í veg fyrir að borgarbúar séu að þvælast fyrir ákvörðunum meirihlutans, enda hefur afstaða íbúanna lítil áhrif haft á þá stefnu sem rekin er, oft af mik- illi óbilgirni og offorsi.    Það er í þessum anda sem fulltrú-ar meirihluta borgarstjórnar í umhverfis- og skipulagsráði borg- arinnar felldu tillögu fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins um að leita umsagn- ar Vegargerðarinnar, lögreglunnar, Samgöngustofu og Samtaka sveitarfélaga, áður en skýrsla starfshóps um lækkun um- ferðarhraða á götum borgarinnar vestan Kringlumýrarbrautar yrði tekin til afgreiðslu.    Skýrslan var svo keyrð í gegnmeð atkvæðum meirihlutans gegn atkvæðum minnihlutans.    Í skýrslunni er m.a. gert ráð fyrirað lækka hámarkshraða á Hringbraut og Miklubraut vestan Kringlumýrarbrautar um 10 km/ klst, í 40 km/klst þar sem hann er 50 og 50 km/klst þar sem hann er 60.    Þessi stefna er til komin vegnafordóma meirihlutans um að bílar séu af hinu illa og að þess vegna sé rétt að gera allt til að reyna að stöðva umferð þeirra.    Þetta skref í þá átt þolir vitaskuldekki gagnrýna skoðun, sem skýrir hvers vegna ekki mátti leita álits á kreddunni. Kredda sem ekki þolir skoðun STAKSTEINAR Veður víða um heim 2.2., kl. 18.00 Reykjavík 1 skýjað Bolungarvík 4 léttskýjað Akureyri 1 heiðskírt Nuuk -6 skýjað Þórshöfn 7 skýjað Ósló -1 alskýjað Kaupmannahöfn 0 þoka Stokkhólmur 0 þoka Helsinki -2 skýjað Lúxemborg 8 heiðskírt Brussel 12 heiðskírt Dublin 10 súld Glasgow 11 rigning London 10 skýjað París 11 súld Amsterdam 11 heiðskírt Hamborg 2 þoka Berlín 0 skýjað Vín 0 þoka Moskva -10 heiðskírt Algarve 17 skýjað Madríd 11 súld Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 14 skýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -22 heiðskírt Montreal -10 snjókoma New York 1 alskýjað Chicago -7 léttskýjað Orlando 11 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:01 17:23 ÍSAFJÖRÐUR 10:21 17:13 SIGLUFJÖRÐUR 10:05 16:55 DJÚPIVOGUR 9:35 16:49 Vinna við 2. áfanga Norðurgarðs í Gömlu höfninni í Reykjavík mun hefjast í þessum mánuði. Verkið felst í því að byggja nýjan hafnarbakka fyrir framan frystihús HB Granda. Bakkinn kemur í stað trébryggju, sem var orðin lúin. Hún var byggð árið 1966 en hefur verið endurnýjuð að einhverju leyti. Verklok verða í haust. Fyrsti áfangi Norðurgarðs var byggður á árunum 2004-2005, þar sem ný frystigeymsla HB Granda stendur. Verkið var boðið út og átti Ístak hf. lægsta tilboðið, 311 milljónir króna. Að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra bætist við ýmis kostn- aður, m.a. vegna efnisskiptaskurðar sem Hagtag er að grafa – síðan lagn- ir og fleira. Þannig að heildarkostn- aður verður liðlega 600 milljónir króna þegar allt er saman tekið. Eins og fram kom í frétt í Morgun- blaðinu lagðist danskt flutningaskip, Dan Fighter, að Miðbakka í vikunni. Skipið var að koma með 450 tonn af stáli sem notað verður í hafnargerð- ina á Norðurbakka. Stálþilið verður geymt á Mið- bakka til að byrja með. Síðan verður því skipað um borð í pramma, sem er gömul ekjubrú, og flutt yfir að Norð- urgarði. Pramminn verður síðan not- aður við hafnargerðina sjálfa. Vinnu- svæðið við Norðurgarð er af skornum skammti vegna nálægðar við frystihúsið og því kemur pramm- inn að góðum notum. sisi@mbl.is Byggja nýjan hafnarbakka Norðurgarður Nýi bakkinn verður fyrir framan frystihús HB Granda.  Leysir af hólmi gamla trébryggju á Norðurgarði Mynd/Faxaflóahafnir Reykjavíkurborg hefur synjað Vals- mönnum hf. um leyfi til að reisa svefnskála á lóð nr. 14 við Hlíð- arenda. Á því svæði stendur fyrir dyrum mikil uppbygging. Valsmenn höfðu sótt um leyfi til að koma upp vinnubúðum með svefnskálum á tveimur hæðum fyrir 44 starfsmenn í sérhönnuðum svefngámum. Var það álit skipulagsfulltrúa borgar- innar að erindið samrýmdist ekki gildandi aðal- og deiliskipulagi. Fram kemur í álitinu að umrædd lóð sé samkvæmt aðalskipulagi á svæði sem tilgreint er sem íþrótta- svæði. Samkvæmt deiliskipulagi Hlíðarenda, síðast samþykkt 15. júní 2016, sé gert ráð fyrir fótboltavöllum á svæðinu þar sem skálarnir eru sýndir. Svefnskálar séu bygging- arleyfisskyldir og verði því að vera í samræmi við gildandi aðal- og deili- skipulag. „Hægt væri að skoða staðsetn- ingu fyrir gistiskála innan Hlíð- arendasvæðis þar sem fyrir er bygg- ingarreitur og notkun í samræmi við gildandi heimildir,“ segir m.a. í álit- inu. sisi@mbl.is Valsmenn fá ekki að reisa svefnskála Hlíðarendi Mikil uppbygging er áformuð á svæðinu næstu árin. Sr. Skírnir Garðarsson, héraðs- prestur og fyrrverandi sóknar- prestur í Lágafellssókn, segist hafa fengið það staðfest frá forstjóra Per- sónuverndar að þar verði fljótlega tekin til efnislegrar meðferðar kvörtun sín vegna meintra brota nokkurra embættismanna innan þjóðkirkjunnar á lögum um per- sónuvernd. „Kvörtunin hefur verið að velkjast í kerfinu í 11 mánuði og hefur valdið titringi í stjórnsýslunni því hún snýr að háttsettum embættismönnum þjóðkirkjunnar,“ segir Skírnir m.a. í yfirlýsingu. Hann segir rannsókn Persónuverndar kalla á spurningar um hvort embættismenn, sem kvört- unin snýr að, eigi að stíga til hliðar á meðan rannsókn standi yfir. Snýr kvörtunin að meintum ólög- legum áframsendingum og móttöku bréfa, tölvupósta og trúnaðargagna á milli þessara embættismanna á ár- unum 2014-2016. Kæra tekin til efnis- meðferðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.