Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 Heildarlausnir fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús, veisluþjónustur, heilsugæslustofnanir o.fl Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is . LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 Pilot síðan 1937 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Æ tlarðu að halda partí eða fá vini í kvöldmat? Silla’s Kitchen bjargar málunum. Þjón- ustan sem Sigurlaug Jóhannesdóttir kynnir á vefsíðu sinni er býsna freistandi – ekki síður en uppskrift- irnar. Að minnsta kosti fyrir þá sem ekki eru með allt á hreinu þegar góða veislu gjöra skal. Áður en fagn- aðarlætin brjótast út hjá lesendum er þó rétt að halda til haga að þjón- ustan er alla jafna bara í boði í Mus- well Hill-hverfinu í norðurhluta Lundúnaborgar. Uppskriftirnar geta allir nálgast á sillakitchen.com eða samnefndri Facebook-síðu. Sigurlaug hefur í eitt og hálft ár búið í London ásamt eiginmanni sín- um, Daða Hrafni Sveinbjarnarsyni crossfitþjálfara og börnunum Lilju Bríeti, 11 ára, og Kristófer, 7 ára. „Ég vann hjá Te og Kaffi í meira en áratug, fyrst sem kaffibarþjónn en síðan og lengst af í rekstrardeild fyr- irtækisins. Mér fannst kominn tími til að breyta til og hafði skráð mig í viðskiptafræði í Háskólanum á Bif- röst þegar við ákváðum að flytjast til London. Okkur langaði að búa og starfa einhvers staðar í útlöndum, ekkert frekar í London, sem þó á endanum varð ofan á. Það spilaði inn í að fjölskylda Daða; móðir, stjúpi og systkini, hafa búið hér í áratugi og við þekktum borgina ágætlega síðan við bjuggum hér árið 2000, bæði rétt um tvítugt,“ segir Sigurlaug um ákvörðun þeirra hjóna að flytjast frá Fróni. Alveg óvart Þau fóru svolítið út í óvissuna. Daði hafði reyndar vilyrði fyrir starfi á crossfit-stöð, en Sigurlaug ætlaði að taka það rólega svona fyrst í stað á meðan börnin væru að aðlag- ast nýjum skóla og umhverfi. „Ég hafði stundum tekið að mér að sjá um matarveislur fyrir vini og kunn- ingja á Íslandi, en lítið sem ekkert starfað við matreiðslu, enda ekki lærður kokkur. Hins vegar hef ég mikla ástríðu fyrir matargerð og finnst óskaplega gaman að elda góð- an mat, bæði heima hjá mér og ann- ars staðar, og er ein þeirra sem lesa matreiðslubækur í rúminu á kvöldin. Mig óraði samt ekki fyrir að innan skamms yrði ég sjálfstætt starfandi við að kenna Lundúnabúum að mat- reiða, elda fyrir þá og að halda fyrir þá matarboð. Þetta gerðist eiginlega alveg óvart.“ Kannski ekki alveg óvart. Þeg- ar fjölskyldan hafði komið sér fyrir í stórborginni, Daði orðinn yfirþjálf- ari á crossfit-stöðinni og sjálfstætt starfandi einkaþjálfari, stofnaði Sig- urlaug nefnilega fyrrnefnda vefsíðu. „Áhugafólk um matargerð er alltaf að leita að nýjum uppskriftum og deila sín á milli. Mig langaði að hafa mínar á einum stað og kanna um leið möguleikana á að starfa sjálfstætt við það sem mér finnst skemmtilegast að gera; elda fyrir fólk og kenna fólki að elda.“ Tónninn á sillakitchen.com er svo glaðlegur að væntanlegir kúnnar þurfa ekki að fara í grafgötur um að með Sillu, eins og hún er oftast köll- uð, getur matartilbúningurinn varla orðið annað en skemmtilegur. Leik- ur einn, eins og hún segir. „Þátttak- endur ráða hvort þeir koma heim í eldhús til mín eða fá mig heim til sín. Ég mæli með að fólk læri að elda í Hús úr húsi með veislu í farángrinum Matgæðingar kannast margir hverjir við vefsíðuna Silla’s Kitchen eða Eldhús Sillu. Þar ræður Sigurlaug Jóhannesdóttir ríkjum og er óspör á uppskriftir að góðum og hollum réttum. Hún er fólki líka innan handar þegar góða veislu gjöra skal og heldur námskeið sem hún sérsníður að þörfum hvers og eins eða hópa. Og er nánast til í hvað sem er þegar matur og veitingar eru annars vegar. Fjölskyldan Sigurlaug og Daði Hrafn ásamt Lilju Bríeti og Kristófer. Leikminjasafnið hefur sett saman dagskrá um sögu listdans á Ís- landi, sem flutt verður í Iðnó við Vonarstræti á Safnanótt, í kvöld, föstudag 3. febrúar. Iðnó verður fyllt af dansi frá kl. 18 til 23. Kynningarefni um Helga Tómasson verður uppi á veggjum, dansarar deila minningum úr dansheiminum með gestum og dansgagna- grunnur Leikminjasafnsins verður kynntur. Ingibjörg Björnsdóttir og Katrín Gunnarsdóttir kynna listdanssög- una með lifandi hætti á efri hæð- inni og inni á sal. Undirliggjandi spurning viðburðarins er: Hvernig getum við haldið í þessar sögur? Kl. 22.30 eiga gestirnir gólfið og geta dansað af hjartans lyst. Saga listdans á Íslandi Listdans Katrín og Ingibjörg segja frá listdönsurum á Íslandi fyrr og síðar. Iðnó verður fyllt af dansi Ferð til sýslumanns. Þang-að þurftum við spúsan aðfara saman til þess aðsækja um vegabréf fyrir fimm mánaða son okkar. Hann var því með í för enda á leið í myndatöku fyrir passann. Ákveðið var að fara árla morguns og undirritaður var illa sofinn og seinn til svars. Þó náði ég að tauta um það hversu asnalegt það væri að við þyrftum að fara með hann bæði og bíða í röð bara til þess að geta sýnt fram á að við værum foreldrar barnsins. Væri ekki nær lagi að staðfesta tilvist sína og sam- þykki við vegabréfsumsókn barns- ins í gegnum hið svokallaða int- ernet? Menn hafa nú náð með nokkurri færni að staðfesta tilvist sína með þeim hætti, t.a.m. í gegn- um hinn rafræna íslykil. En að sjálfsögðu er það ekki svo, þar sem ríki og stofnanir hafa ein- stakt lag á því að vera lengi að kom- ast í takt við tímann. Líkt og við var að búast gleymdi spúsan opinberum skilríkjum og bankakortið dugði ekki til að stað- festa að hún var hún. Ég gat hins vegar staðfest tilvist mína með öku- skírteini. Okkur var vísað frá. Voru nú góð ráð dýr. Ég var orð- inn of seinn í vinnuna og við á lokadegi til að sækja um vega- bréf fyrir pabbalingakút þar sem nú styttist í hans fyrstu ferð til útlanda. Úrilli pabbinn hreytti ein- hverju í grey afgreiðslukonuna um að það væri furðulegt að ekki væri hægt að gera þetta með rafrænum hætti. Benti hún kurteislega á það að ekki væri við hana að sakast. Ég þyrfti að biðla til Alþingis um að breyta lögum þannig að hægt væri að gera þetta rafrænt. Benti hún okkur á að við gætum fengið einhvern til að votta fyrir tilvist okkar. Gripum við því nærliggjandi ókunningja sem voru boðnir og búnir að votta. Þeir spurðu ekki um skilríki. Það var látið gott heita og vegabréfið á leiðinni. Að þessu tilefni langar mig fyrir hönd ís- lensku þjóðarinnar, starfsfólk sýslu- mannsemb- ættis og kynslóð barna minna að gera líkt og af- greiðslukonan hjá sýsla bað um. Herra og frú Alþingi. Viltu kippa þessu í liðinn? Kveðja, úrilli pabbinn. »Gripum við því nær-liggjandi ókunningja, sem voru boðnir og búnir að votta. Þeir spurðu ekki um skilríki. Heimur Viðars Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Í tilefni Vetrarhátíðar efnir Borgar- bókasafnið til hátíðardagskrár í Gerðubergi og Grófinni. Dagskráin hefst á Safnanótt kl. 18 í dag, föstu- dag 3. febrúar, í Grófinni þar sem ljósin verða slökkt í barnadeildinni og sagðar krassandi draugasögur. Austurrísk/argentínski ljósasirk- usinn Circus Lumineszenz verður einnig á ferðinni í Grófinni á Safna- nótt. Gestum býðst að taka þátt í skapandi tónlistarupplifun og búa til hljóðheim með hreyfingum sínum í gegnum leysihörpu, hreyfiskynjara og hátalara. Leysiharpan er af- sprengi meðlima ljóssirkussins og samsett úr leysigeislum, skynjurum og tölvu. Leysiharpan verður alla helgina í Grófinni. Hátíðardagskrá í Borgarbókasafnin Ljósasirkus, leysiharpa og draugasögur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.