Morgunblaðið - 03.02.2017, Síða 13

Morgunblaðið - 03.02.2017, Síða 13
Ljósmynd/Daði Hrafn Eldhús Sillu Sigurlaug heldur námskeiðin annaðhvort í eldhúsinu sínu eða heima hjá kúnnunum. sínu umhverfi, úr hráefnum sem til eru á heimilinu, með sínum áhöldum og tækjum, og þar sem kannski er kveikt á sjónvarpinu og krakkarnir og hundurinn hlaupandi allt í kring,“ segir Sigurlaug. Sjónræna minnið Sjálf kveðst hún stundum hafa sótt matreiðslunámskeið í fínum og þar til gerðum eldhúsum, en sjaldan eldað réttina sem hún lærði að mat- reiða þegar heim var komið. „Mín reynsla er sú að sjónræna minnið virki betur í kunnuglegu umhverfi,“ útskýrir hún. Þótt íbúar Muswell Hill séu upp til hópa fremur efnaðir, er hverfið að sögn Sigurlaugar að mörgu leyti eins og lítið þorp þar sem allir þekkja alla. Hún er orðin málkunnug nágrönnum sínum, foreldrum skóla- systkina barnanna og fleirum og hef- ur þjónustuna sem hún býður upp á stundum borið á góma. „Ég útbjó gamaldags auglýs- ingar með mynd af mér og símanúm- eri og hengdi upp hjá kaupmann- inum á horninu og víðar. Þótt ég sé ekki á þeytingi hús úr húsi frá morgni til miðnættis, hef ég smám saman fengið meira að gera í hverf- inu mínu. Hér er algengt að kon- urnar vinni ekki utan heimils, fjöl- skyldur hafi einkakokk, barnfóstru og aðkeypta húshjálp af ýmsu tagi. Einn kúnninn í einkaþjálfun hjá Daða hafði orð á að hann hefði þurft að reka kokkinn sinn. Daði benti honum á mig og úr varð að ég fer núna og elda hádegisverð þrisvar í viku fyrir börnin í fjölskyldunni. Þau sitja ekki til borðs með foreldrunum, annar kokkur eldar fyrir þá.“ Þegar Sigurlaug tekur að sér að matreiða fyrir boð í heimahúsum, býðst hún til að kaupa í matinn og ganga frá í eldhúsinu áður en hún hverfur á braut. Hún kappkostar að koma til móts við óskir kúnnanna, eldar annaðhvort allt sjálf eða með þeim og tekur meira að segja að sér að útbúa trakteringar með krökkum fyrir afmælisveislur. Námskeiðin sníður hún svo eftir þörfum hvers og eins eða hópa. „Yfirbragðið er frjáls- legt og afslappað. Í grunninn byggi ég þau þannig upp að við eldum aðal- rétt ásamt meðlæti sem og eftirrétt, fáum okkur kannski hvítvínsglas og setjumst að snæðingi í lokin,“ segir Sigurlaug og upplýsir að hún hafi fyrir margt löngu ætlað sér að verða kennari. Með námskeiðunum sam- eini hún sín helstu áhugamál; mat- reiðslu og kennslu. Áhuginn spratt af blankheitum Hugmyndirnar eru óþrjótandi og Sigurlaug er til í nánast hvað sem er þegar matur og veitingar eru ann- ars vegar. Á vefsíðunni er hún með ýmsar atvinnuskapandi uppástungur. Til dæmis býðst hún til að útbúa nokkra skammta af ungbarnamat, sem foreldrar geta gripið til í frystin- um, eða hollustu handa unglingunum þegar þeir eru einir heima. „Listinn er endalaus,“ segir hún. Kunnáttu hennar í matargerðar- listinni var þó ekki fyrir að fara um árið þegar þau Daði bjuggu í London þar sem hann hafði fengið starf í kvikmyndabransanum. „Ég elti bara og fékk reyndar vinnu við sömu sjón- varpsþætti. Við vorum mjög blönk og neyddumst til að gera mikið úr litlu. Ég kunni ekkert að elda enda hafði ég alist upp við fisk og soðnar kart- öflur í flest mál heima í Ólafsvík og síðar á Selfossi. Eina sem mamma hafði kennt mér var að flaka fisk. Ætli megi ekki segja að mataráhug- inn hafi sprottið af blankheitum okkar Daða,“ segir Sigurlaug bros- andi. Um áherslur sínar í matargerð segist hún einfaldlega hafa yndi af að búa til alls konar mat og þróa nýj- ar uppskriftir. „Þótt ég sé hrifin af ítalskri og taílenskri matreiðslu, reyni ég fyrst og fremst að elda ein- faldan og hollan fjölskyldumat. Markmiðið er að allir geti farið eftir uppskriftunum mínum. Ég trúi því að allir geti lært að elda góðan mat,“ segir Sigurlaug og lætur þess getið að hún væri alveg til í að koma til Ís- lands og halda námskeið. Að öðrum kosti getur landinn ekki notið tilsagnar hennar nema hann bregði sér til Muswell Hill þar sem fjölskyldan hefur hreiðrað um sig til frambúðar. Silla’s Kitchen á netinu verður að duga. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 Leðursófi á frábæru verði Italia Dado Model 2822 L214 cm leður ct.10 299.000,- L174 cm leður ct.10 259.000,- Italia Framleiðsla Natuzzi Italia fer fram í ítölskum verksmiðjum. Leður, viður og áklæði eru unnin af handverksmönnum sem eru sérfræðingar á sínu sviði á Ítalíu. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 Uppskrift fyrir 4 8-10 beinlaus kjúk- lingalæri eða 4-6 bringur 1 matskeið paprikuduft 1 matskeið karríduft 2 hvítlauksrif 2-3 sentimetra bútur af engifer safi og börkur af einni sítrónu 50 ml ólífuolía eða sólblómaolía handfylli ferskur kóríander salt og þurrkaðar chili-flögur Setjið öll þurrkuðu kryddin í skál. Bætið við krömdum eða rifnum hvítlauk og rifnum engifer. Rífið börkinn af sítrónu og bætið út í ásamt safanum og olíunni. Bætið út í salti, chili-flögum og gróft söxuðu fersku kóríander og hrærið þessu saman. Raðið kjúklingnum í ofnfast mót og hellið marineringunni yfir hann. Leyfið þessu að marinerast eins lengi og þið hafið tíma fyrir, hálf- tími til klukkutími er flottur tími. Hitið ofninn á 200° á blæstri og eldið kjúklinginn í 30-40 mínútur eftir því hversu stórir bitarnir eru. Kúskús 300 g kúskús kjúklingasoð (vatn+teningur) ½ teskeið túrmerik handfylli fersk minta og/eða kórí- anderfræ úr hálfu granatepli Eldið kúskús samkvæmt leið- beiningum á pakkanum en í staðinn fyrir að setja vatn þá notið þið kjúk- lingasoð og túrmerik. Þegar kús- kúsið er eldað er gott að hræra var- lega í því með gaffli og svo bætið þið við gróft söxuðum kryddjurt- unum og granateplafræjunum. Ber- ið fram kalt eða volgt. Einnig er gott að bera þetta fram með góðri kaldri sósu svo sem raítu eða ein- hverju slíku. KJÚKLINGUR MEÐ INDVERSKU ÍVAFI OG LITRÍKT KÚSKÚS Ljósmynd/Daði Hrafn Uppskrift fyrir 4 1 kg ýsa eða þorskur 2-3 matskeiðar hveiti 3 egg 50 g fínt rifinn par- mesan-ostur 100 g brauðraspur, mér finnst best að nota hvítan eins og t.d. Panko salt og pipar olía til steikingar Byrjið á því að skera fiskinn í hæfilega stóra bita og kryddið með salti og pipar. Brjótið eggin í skál og pískið létt. Setjið hveitið í aðra skál. Blandið svo saman í þriðju skálinni brauðraspi og parmesan. Veltið fiskinum fyrst upp úr hveitinu, svo eggi og síðast upp úr raspi og osti. Steikið á miðlungsheitri pönnu þar til fallega gullinn og stökkur. Með þessu er best að bera fram eitthvað einfalt eins og t.d. kartöflumús eða nýjar íslenskar kartöflur og sítrónubáta. PÖNNUSTEIKTUR FISKUR Í PARMESAN-RASPI Ljósmynd/Daði Hrafn Circus Lumineszenz mætir einnig í Gerðuberg 4. og 5. febrúar þar sem settur verður upp gagnvirkur ljós- leikvöllur, sem er sérstaklega hugs- aður fyrir yngri þátttakendur og fjöl- skyldur þeirra. Sirkusinn er verkefni þar sem list- ir og menntun eru höfð að leiðarljósi með notkun lita og nýsköpunar þannig að til verði margmiðlunar- umhverfi, innsetningar og gjörn- ingar. Nánari upplýsingar: www.cir- cuslumineszenz.com. Ókeypis aðgangur og allir vel- komnir. u Grófinni og Gerðubergi í tilefni Vetrarhátíðar Leikur með ljós Leysiharpan er samsett úr leysigeislum, skynjurum og tölvu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.