Morgunblaðið - 03.02.2017, Síða 16

Morgunblaðið - 03.02.2017, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 Trjáklippingar Trjáfellingar Stubbatæting Vandvirk og snögg þjónusta Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á að óverðtryggð lán hafi numið um 22% af öllum nýjum útlánum sjóð- anna og 78% því verið verðtryggð. Um nýliðin áramót voru heildar- eignir sjóðanna metnar á 3.514 millj- arða króna og höfðu þær vaxið um 7% að nafnvirði frá fyrra ári. Sé tillit tekið til iðgjaldagreiðslna inn í sjóð- ina umfram útgreiðslur og verðbólgu yfir tímabilið reynist arðsemi af eignum sjóðanna þó mun minni. Lægstu vextir á markaðnum eru í boði hjá Söfnunarsjóði lífeyrisrétt- inda, sem er sjöundi stærsti sjóður landsins. Hann býður óverðtryggð sjóðfélagalán með 5,84% vöxtum, þá býður sjóðurinn fasta verðtryggða vexti á 3,55% og breytilega á 3,15%. Til samanburðar eru lægstu óverð- tryggðu vextir bankanna til íbúðar- kaupa 6,35% hjá Arion banka og 3,65% verðtryggðir vextir sem Landsbankinn og Arion banki bjóða upp á. Lífeyrissjóðir veittu ný sjóð- félagalán fyrir 89 milljarða  Metár í útlánum hjá sjóðunum  Rúmur fimmtungur lánanna óverðtryggður Stækkandi útlánabækur » Heildareignir lífeyrissjóð- anna námu 3.514 milljörðum um nýliðin áramót. » Sjóðfélagalán voru bókfærð á 236 milljarða um áramótin en þau voru færð á 172 millj- arða á sama tíma ári fyrr. Ný útlán lífeyrissjóðanna 2010-2016 100 80 60 40 20 0 2010 Verðtryggð Óverðtryggð 2011 2012 2013 2014 2015 2016 Heimild: Hagtölur Seðlabanka Íslands BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Hrein og klár sprenging hefur orðið í útlánum íslenskra lífeyrissjóða á undanförnum mánuðum. Þannig námu ný útlán þeirra á síðasta ári 89 milljörðum króna. Til samanburðar námu útlánin á árinu 2015 tæpum 22 milljörðum króna og rúmlega fjór- földuðust því milli ára. Sé litið lengra aftur í tímann kemur í ljós að ný út- lán sjóðanna í fyrra reyndust 33% meiri en öll ný útlán þeirra á sex ára tímabili þar á undan, þ.e. á árabilinu 2010-2015 þegar þau námu tæpum 67 milljörðum króna. Þetta má lesa út úr hagtölum sem Seðlabanki Ís- lands birti á vef sínum í gær. Á ótrúlega skömmum tíma hafa sjóðirnir stækkað mjög hlutdeild sína á lánamarkaði, en fram til ársins 2016 komu þeir í meiri mæli að fjár- mögnun húsnæðislána einstaklinga í gegnum lánveitingar viðskiptabank- anna og Íbúðalánasjóðs. Þannig bendir margt til að á komandi miss- erum muni sjóðirnir lána meira fé gegn veði í fasteign en viðskipta- bankarnir. Þegar rýnt er í hlutfall verð- tryggðra og óverðtryggðra lána sjóðanna kemur í ljós að af milljörð- unum 89 voru um 20 milljarðar veitt- ir í óverðtryggðu. Jafngildir það því unni […] Þrátt fyrir rólega byrjun á árinu var tekjuvöxtur vel viðunandi eða um 11% og var hann mestur í hugbúnaðartengdri starfsemi,“ segir Finnur. Tekjur Tempo jukust um 40% Sem dæmi um árangurinn á árinu nefnir Finnur að tekjur dóttur- félagsins Tempo hafi aukist um 40% á milli ára. „Svipaða sögu má segja af Applicon AB, TM Software og hugbúnaðarsviði Nýherja þar sem tekjuaukning er á bilinu 20- 45%.“ Ennfremur segir Finnur að rekstur félagsins hafi verið í ágætu jafnvægi þrjú síðustu ár, en á þeim tíma hafi eiginfjárstaða styrkst til muna. „Þrátt fyrir ögrandi rekstr- arumhverfi framundan, m.a. vegna samningsbundinna launahækkana, þá gerum við ráð fyrir að grunn- rekstur samstæðunnar verði áfram stöðugur. Við erum því í sóknarhug og teljum horfur almennt góðar.“ Verð hlutabréfa í upplýsingatækni- fyrirtækinu Nýherja hækkaði um 13% í gær og hefur hækkað um tæp 20% síðan félagið birti á þriðjudag- inn uppgjör sitt fyrir 2016. Frá ára- mótum hefur gengi bréfanna hækk- að um 39%. Finnur Oddsson, forstjóri félags- ins, segir í tilkynningu um afkomu síðasta árs að árið hafi verið með þeim betri í sögu Nýherja. „Við erum ánægð með nýliðið rekstrarár hjá Nýherjasamstæð- Hlutabréfaverð Nýherja tekur kipp  39% hækkun frá áramótum  Mestur vöxtur í hugbúnaði Hugbúnaður Tekjuvöxtur Nýherja var 16% á síðasta fjórðungi 2016. 3. febrúar 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 115.85 116.41 116.13 Sterlingspund 144.06 144.76 144.41 Kanadadalur 88.31 88.83 88.57 Dönsk króna 16.671 16.769 16.72 Norsk króna 13.936 14.018 13.977 Sænsk króna 13.126 13.202 13.164 Svissn. franki 116.37 117.03 116.7 Japanskt jen 1.018 1.024 1.021 SDR 156.99 157.93 157.46 Evra 124.0 124.7 124.35 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 156.15 Hrávöruverð Gull 1224.05 ($/únsa) Ál 1816.5 ($/tonn) LME Hráolía 55.55 ($/fatið) Brent Kaupmáttur með- allauna hækkaði um 9,5% árið 2016 miðað við árið á undan. Kaup- máttaraukningin var rúmlega fimm sinnum meiri en meðaltal síðasta aldarfjórðungs, sem er 1,8% hækkun á ári. Þetta kemur fram í Hagsjá hag- fræðideildar Landsbankans. Laun í landinu hækkuðu að meðaltali um 11,4% milli áranna 2015 og 2016 og hefur launavísitalan ekki hækkað meira síðastliðinn aldarfjórðung. Meðalhækkun launavísitölu á tíma- bilinu 1990-2016 var 6,5% sem er verulega meira en gerist í nálægum löndum, segir Landsbankinn. Metár í launaþróun Laun Hækkuðu um 11,4% að meðaltali.  Laun ekki hækkað meira í aldarfjórðung ● Alcoa Fjarðaál var í gær valið mennta- fyrirtæki ársins 2017, en verðlaunin voru veitt á menntadegi atvinnulífsins sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica. Í umsögn SA segir að hjá Fjarðaáli sé metnaður lagður í menntun, þjálfun og fræðslu starfsfólks á hverjum degi. Fyrir- tækið reki stóriðjuskóla sem er sam- starfsverkefni Fjarðaáls, Austurbrúar og Verkmenntaskóla Austurlands en um 50 nemendur stunda nám við skólann á hverjum tíma. Keilir var svo valinn menntasproti árs- ins 2017 en Keilir er alhliða mennta- fyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og al- mannasamtaka. Í umsögn SA segir að á aðeins tíu árum hafi tekist að breyta yfir- gefinni herstöð í þekkingarþorp. Keilir hafi lyft grettistaki, innleitt nýjar hug- myndir og kennsluhætti og lagt sig fram um að hlusta á þarfir atvinnulífsins og mennta starfsfólk sem eftirspurn er eftir. Alcoa Fjarðaál valið menntafyrirtæki ársins Mennt Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, ásamt forseta Íslands og mennta- og menningarmálaráðherra. STUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.