Morgunblaðið - 03.02.2017, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 03.02.2017, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 an af að ferðast. Þau ferðuðust ekkert út í bláinn, þau fóru í heim- sóknir. Þau heimsóttu okkur sem unnum á unglingsárum við garð- yrjustörf í Noregi og dvöldu þarna hjá okkur að mig minnir í tvær vikur, en Jón notaði ferðina til skrifta. Hanna réð sig, nema hvað, í vinnu með okkur. Það var einmitt á jarðarberjatímanum og vandvirkari tínari hafði ekki sést í Ulvik i Hardanger. Þau heimsóttu mig líka til Rómar. Mjög eftir- minnilegt í alla staði. Hanna var mikill vinur foreldra minna, hún var vinur okkar allra. Hún var ein af okkur. Helga I. Stefánsdóttir. Elsku Hanna frænka er fallin frá. Hanna var elst í sínum systk- inahóp. Árinu eldri en pabbi. Hanna var mikill fagurkeri og lék allt í höndum hennar hvort heldur var hannyrðir eða önnur listsköp- un. Þess nutum við systkinin. Það var ósjaldan sem ég sýndi Hönnu frænku flíkur og þá ekki síst út frá sniðum eða annarri hönnun. Þeg- ar ég saumaði mína fyrstu flík varð ég að fara með hana til Hönnu til að sýna henni og fá ráð. Mikið og gott samband var milli pabba, mömmu og Hönnu en auk þess unnu pabbi og Hanna lengst- um saman í Búnaðarbankanum. Hanna og Jón hennar voru ein- staklega samheldin hjón, stolt af sínum börnum, Önnu og Palla og ekki síður stolt þegar barnabörn og barnabarnabörn bættust við í hópinn. Minning um yndislega frænku lifir, fáguð og glæsileg með sinn dillandi hlátur. Auður Stefánsdóttir. Ég var svo heppinn að fá að vera í sveit þegar ég var lítill. Einn sumarpart fékk ég að vera hjá Hönnu og séra Jóni móður- bróður mínum í Laufási. Þetta var eins og draumur því þarna voru frændsystkini mín og jafnaldrar, þau Palli og Anna Pála. Ég var heillaður af gamla bænum og Hönnu treysti ég alltaf eins og mömmu. Hún var ekki bara falleg og góðleg heldur góð í gegn. Seinna þegar ég flutti að norð- an og til Reykjavíkur var Hanna útibússtjóri Búnaðarbankans á Hótel Sögu. Ég hikaði ekki við að heimsækja hana oft þangað og hún var alltaf reiðubúin að hjálpa mér. Hún kenndi mér á banka- kerfið og sendi mig til bankastjór- ans í Austurstræti þegar ég þurfti fyrirgreiðslu. Nú á síðari árum hittum við Sigga Hönnu nokkrum sinnum við heimili hennar í Lindasmára því hún bjó við hliðina á vinum okkar. Við fylgdist einnig eins og margir með listsköpun hennar og áhuga á myndlist og sóttum eina sýningu hjá henni. Við kveðjum stórglæsi- lega og góða konu með þakklæti og sendum fjölskyldunni samúð- arkveðjur. Ragnar Marteinsson. Á kveðjustundu reikar hugur- inn og til mín koma allar þær góðu og dýrmætu minningar sem ég á um einstaka konu sem gaf mér af vináttu sinni. Hanna var glæsileg, hæfileikarík, hlý og umhyggju- söm, listræn og skapandi, fé- lagslynd og alltaf tilbúin til að taka gott spjall og gera eitthvað skemmtilegt. Hún hlúði að okkur, samstarfsfólki Jóns í sálgæslu presta og djákna á Landspítala. Bauð okkur oftar en ekki heim þar sem dekrað var við okkur og við fengum öll okkar skammt af líkamlegri og andlegri næringu. Jón talaði alltaf um mig sem eftirkonu sína í embætti sjúkra- húsprests þjóðkirkjunnar – og þá brostum við í kampinn, Hanna, Jón og ég því okkur fannst þetta orðalag öllum jafn skondið. Eftir að ég tók við embætti sjúkrahús- prests þjóðkirkjunnar eignaðist ég vináttu hennar sem fékk að vaxa og dafna eftir því sem árin liðu. Ég minnist margra skemmti- legra og innihaldsríkra stunda og þegar Hanna sneri sér að mynd- listinni af fullum krafti naut ég þess að sjá sýningar hennar, heimsækja hana á vinnustofuna og í listasalinn Anarkíu. Trén hennar þrjú sem hún sýndi á sýn- ingu í Hallgrímskirkju heilluðu mig og þegar ég lauk doktorsnámi mínu fékk ég að nota myndir af þeim við vörnina. Trén hennar Hönnu voru á tjaldinu í hátíðasal Háskóla Íslands og nutu sín vel en umfjöllunarefnið var líknarmeð- ferð og guðfræði. Á þessari sömu sýningu í Hall- grímskirkju hreifst ég af mynd sem nú prýðir heimili okkar Lár- usar. Ég sagði við Hönnu að ég sæi bænahendur í myndinni og sýndi henni með miklu látbragði hvar þær birtust í bláu litunum sem hún hafði sett svo listilega á strig- ann. Hún brosti og hló, alveg tilbúin til þess að samþykkja túlk- un mína og hafði greinilega bara gaman af. Við ræddum allt á milli himins og jarðar þegar við hittumst, mál- efni samfélagsins, listina, guð- fræði og lífið og tilveruna. Ég kom aldrei að tómum kofunum hjá henni og ég fór jafnan ríkari af hennar fundi. Rétt fyrir jólin áttum við Lárus notalega stund á heimili hennar þar sem jólaundirbúningurinn stóð sem hæst. Við töluðum m.a. um alvarleg veikindi hennar og dauðann en þungamiðjan í sam- talinu var samt lífið þar sem Hanna lagði áherslu á mikilvægi þess að lifa því til fulls. Hún sendi okkur ófáar kærleikskveðjur í gegnum tíðina og nú vil ég fá að færa henni okkar kærleikskveðju með innilegri þökk fyrir ómetan- lega vináttu og hlýhug í okkar garð. Við hjónin færum fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Við minnumst hennar með söknuði, gleði og þakklæti og biðjum algóðan Guð að blessa minningu hennar. Við komum til með að sakna allra samverustund- anna. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir. Ég kynntist Hönnu Pálsdóttur fyrir nokkrum árum þegar ég hélt mína fyrstu myndlistarsýningu í Anarkíu-Listasal. Hún mætti brosandi í opnunina með fangið fullt af blómum. Hanna minnti mig á kvenpersónur Laxness sem líða um sögusviðið einsog álfkon- ur. Hún var hvorutveggja í senn alþýðustúlka og hefðarfrú, bóhem og prestsfrú. Þegar við kynnt- umst var Hanna orðin ekkja eftir mann sinn, sr. Jón Bjarman. Börnin voru vaxin úr grasi og áttu eigið líf. Margir kjósa á slíkum stundum í lífinu að setjast í helgan stein og virða fyrir sér farinn veg og bíða óumflýjanlegra endaloka. Hanna valdi á hinn bóginn að nota síðustu ár ævi sinnar til að kanna áður ókunna stigu og kynn- ast sjálfri sér betur. Hún fór að mála en myndir hennar voru full- ar af ungæðishætti og þrá eftir hinu óþekkta. Hanna gaf hugar- fluginu og litrófi tilfinninganna lausan tauminn á léreftinu. Hún hafði sérlega næmt litaskyn og sagði mér einhvern tíma að hún væri alltaf að mála blómin í Axar- firðinum, sem tóku á sig fjöl- breyttar og kynngimagnaðar myndir. Hanna var glæsileg kona, vel tilhöfð, brosmild og ungleg. Alltaf til í að vera með í fjörinu, hún mætti á opnanir og í öll partíin enda sérlega félagslynd. Ein sögupersóna Halldórs Laxness borðar aldrei en er aldrei svöng. Hún sefur aldrei en er aldrei þreytt. Með þessu er verið að leggja áherslu á innri styrk manneskj- unnar. Bóklestur og menntun skiptir ekki sköpum heldur eðlis- greind og innræti. Prestsdóttirin frá Skinnastað fór út í heiminn með menningu og sögu kynslóð- anna í farteskinu. Lífsverkið var drjúgt enda kom hún víða við. Myndirnar hennar túlka þennan arf og þessa sögu. Ég vil að að leiðarlokum þakka Hönnu Páls- dóttur fyrir samfylgdina þessi ár sem við þekktumst. Hún veitti mér innsýn í heim sem mér var hulinn. Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Hanna Pálsdóttir, góðvinur Skálholts, hefur stigið yfir frá jarðvist sinni til hins eilífa ljóss Guðs dýrðar á himnum. Trúin birtir okkur heim sem sýnir okkur efalaust hvernig henni munu mæta í faðmi Guðs þau öll sem hún með Guði hafði sjálf faðmað í lífi sínu meðal okkar. Ég man vel myndina í Degi á Akureyri sem sýndi litlu prestsfjölskylduna sem var að koma frá Ameríku til að setjast að í Laufási haustið 1961. Þar var presturinn Jón Bjarman, kona hans Hanna og sonur þeirra Páll. Ég man hvað ég var stoltur yfir því að þetta fallega fólk væri að koma til þjónustu á mínum heimaslóðum. Hanna var fljótt kölluð til kennslu við barnaskól- ann á Grenivík. Þótt leiðin sé ekki mjög löng milli Laufáss og Greni- víkur gat hún verið tafsöm á vetr- um. Ég man að mínar fyrstu frétt- ir af nýju prestsfrúnni í Laufási voru þessar: Hún er fantagóður bílstjóri. „Hún er betri en Jón!“ Ég hef alltaf litið svo á að þessi yf- irlýsing segi langa og merkilega sögu um menningu og störf í dreifðum byggðum landsins og viðurkenningu þess. Það sagði ég líka þegar kvikmyndatökulið frá fjarlægum löndum, sem var að gera kvikmynd um Hönnu, kom í Skálholt síðastliðið vor. Það var einhvern veginn svo táknrænt fyrir Hönnu, líf hennar og starf, að þegar hún var kominn á níræð- isaldur skyldi koma kvikmyndatö- kulið frá Suður-Ameríku til að gera kvikmynd um lífsferil henn- ar! Hver var hún, þessi kona sem fólk úr fjarlægum löndum vildi gera kvikmynd um? Hún var prestsdóttir frá týndri veröld for- tíðar sem varðveitti ævilangt sinn heimanmund þaðan. Hún var heimsborgari þeirrar veraldar sem skynjaði hlutverk kirkjunnar og ábyrgð hennar samtímis á trúarlegum og félagslegum for- sendum. Þess vegna gegndi hún lykilhlutverki í uppbyggingu sam- skipta ungs fólks frá framandi löndum við íslensk ungmenni. Sú þjónusta leiddi saman sögu henn- ar og sögu Skálholts fremur en nokkuð annað. Kannski rís þessi hluti starfsemi hennar hæst í heildarmynd hinnar kirkjulegu þjónustu. Þegar þau hjónin fluttu til höfuðstaðarins á sínum tíma tók Hanna við verkefnum í banka- geiranum og sinnti þeim, lengst af sem bankaútibússtjóri, til starfs- loka. En þá hófst nýtt tímabil sem blundað hafði lengi en fékk loks tíma og framgang. Listakonan Hanna Pálsdóttir steig fram og varpaði með því áður lítt þekktu ljósi á hæfileika sína, líf sitt og persónu. Hún hélt margar sýning- ar á myndlist sinni. Ein þeirra var í Skálholti. Síðan þá hangir ein af myndum hennar uppi í matsal Skálholtsskóla, eins og tákn og svipleiftur sögu hennar og sögu Skálholts í einni andrá. Skálholt stendur í þakkarskuld við Hönnu Pálsdóttur, ekki aðeins vegna þessarar myndlistarsýningar heldur vegna allra tengsla hennar fyrr og síðar við Skálholtsstað og alveg sérstaklega vegna starfa hennar meðal skiptinemanna. Fyrir það vil ég þakka fyrir hönd Skálholts á þessum vegamótum. En fyrst og síðast vil ég þakka fyrir að hafa mátt vera einn af vin- um Hönnu og þeirra hjóna beggja, í hálfa öld og mega um síð- ir fagna með þeim í þeirri eilífð sem stendur um aldir alda. Amen. Kristján Valur Ingólfsson. Hönnu kynntist ég fyrst þegar ég var að kenna málun við mynd- listarskóla Reykjavíkur haustið 2005. Síðan þá var vinskapur okk- ar óslitinn, þar sem hún hélt áfram að iðka málaralist og sækja hin ýmsu námskeið hjá mér á þeim vettvangi. Af því leiddi sam- starf okkar við rekstur Anarkíu listasalar og ekki síður djúp og fal- leg vinátta. Eins og þeir sem þekktu Hönnu vita þá fór þar mikil manneskja, kröftug og kærleiksrík. Við áttum margar góðar samverustundir og bauð hún okkur hjónum oft á sin- fóníutónleika og að þeim loknum settumst við stundum niður með hennar gömlu vinum og ræddum landsins gagn og nauðsynjar með- fram því að kryfja tónleikana. Einnig unnum við oft saman að sýningum, en þar bar hæst þegar hún setti upp sýningu í Hallgríms- kirkju í tilefni af áttræðisafmæli sínu. Hún hafði fengið pláss á vinnustofu okkar hjóna til að vinna að stórum verkum sem hún gerði sérstaklega fyrir sýninguna. Kom hún á hverjum degi og vann eins og sannur atvinnumaður í list sinni frá morgni til kvölds. Það var ein- stakt að sjá þennan fyrrverandi útibússtjóra taka myndlistina af svo mikilli alvöru. Hanna var ákveðin en sú ákveðni var merki um einskæra umhyggju. Hanna vissi upp á hár hvað hún vildi og vék ekki svo auð- veldlega frá skoðunum sínum. Við gátum tekist á um ýmislegt, bæði það er laut að rekstri sýningarsal- ar, sem og lífsins reglum en þrátt fyrir að þrjóskuhorn okkar rækjust stundum á þá skyggði það aldrei á vinskap okkar. Það voru mikil forréttindi að fá að kynnast Hönnu sem manneskju, mann- eskju sem sannarlega hafði kær- leikann að leiðarljósi í lífinu. Bjarni Sigurbjörnsson. Vinkona mín Hanna Páls er fallin frá. Hún og við vinir hennar og fjölskylda vissum hvert stefndi en tíminn leið of hratt. Það var ein- hvern veginn ekki tímabært að kveðja – ekki alveg strax. Hönnu kynntist ég fyrst í gegnum starf skiptinemasamtakanna AUS og ekki hvað síst á þeim árum þegar ég vann á skrifstofu samtakanna hér heima og gegndi síðar starfi stjórnarformanns alþjóðastjórnar. Ásamt manni sínum séra Jóni Bjarman var hún virkur þátttak- andi í starfinu bæði hér heima og erlendis. Ófáa skiptinemana hýsti hún um lengri og skemmri tíma og ósjaldan kom hún til aðstoðar þeg- ar við yngra fólkið vorum ráð- þrota. Skiptinemi þurfti í skurð- aðgerð og Hanna vissi hvað til bragðs skyldi taka, annar var lagður inn á geðdeild og Hanna kunni ráð, þriðji var ásakaður um kynferðisáreiti og Hanna var til staðar. Ég hef oft síðan velt vinnu- aðferðum Hönnu fyrir mér. Þess- ari hæglátu, blíðlegu en á sama tíma ákveðnu og afgerandi leið til að taka erfiðar ákvarðanir án þess að við hin yrðum þess eiginlega vör. Það var ekki fyrr en löngu seinna að ég gat þakkað Hönnu fyrir að vera til staðar fyrir AUS og fyrir umburðarlyndið sem hún sýndi okkur þessu óþolinmóða og óreynda unga fólki sem allt var að gera sitt besta en kunni vissulega ekki alltaf vel til verka. Reynslu sinni, þekkingu og innsæi deildi hún eins og Salvatore Romagna, framkvæmdastjóri á alþjóðaskrif- stofu samtakanna, sagði í pósti í vikunni: „Með blik í þessum fag- urbláu augum og bros á vor.“ Síðasta áratug hef ég endurnýj- að vinskap við Hönnu og notið þess að vera henni samferða í upp- götvunum á nýjum og annars kon- ar hæfileikum. Í myndlistinni náði Hanna að tjá hina litríku og margbrotnu sig sem hún hélt e.t.v. til hlés á banka- konutímabilinu. Á sinn yfirvegaða en um leið ákveðna hátt sleppti hún fram af sér beislinu og fegurðarskyn hennar og glæsileiki birtist með alveg nýjum hætti. Verk hennar bera þess vitni. Í sýningarskrá frá árinu 2014 segir hún: „Það að stunda mynd- list hefur gefið mér meira en mig gat grunað. Skynjun mín á um- hverfið hefur vaxið, ég tek eftir því sem ég sá ekki áður. […] Í mynd- listinni er maður stöðugt að keppa við sjálfan sig og þegar manni finnst það takast verður gleðin svo mikil.“ Við, samferðafólk Hönnu, sáum það gerast aftur og aftur og nutum þess með henni. Um leið og ég þakka Hönnu samferðina sendi ég Palla og Önnu, ásamt öðrum ættingjum og vinum, hugheilar samúðarkveðj- ur. Hólmfríður Garðarsdóttir. Kynni okkar af Hönnu hófust í útibúi Búnaðarbankans í Austur- stræti kringum 1990 þegar við vorum að tínast inn hvert af öðru sem nýir starfsmenn bankans, var hún yfirmaður okkar allra. Í seinni tíð kallaði hún hópinn okk- ar unga liðið. Okkur varð strax ljóst hversu mikið gæðablóð hún Hanna var. Hún fór aldrei í manngreinarálit, var með eindæmum umhyggju- söm, lausnamiðuð og jákvæð. Tók hún á ýmsum aðstæðum í starfi af víðsýni, brosi og hlýju, hvort sem það var starfsfólkið eða viðskipta- vinirnir sem áttu í hlut. Hanna átti langan og glæstan starfsferil í bankanum og virtist á stundum lifa fyrir vinnuna. Lauk hún starfsferli sínum á hlaupárinu 2000, sem þýddi að hún fékk að starfa einum degi lengur en hún hefði ella gert. Hafði hún oft orð á því hvað Guði hefði verið góður við sig, hann hefði gefið henni einn starfsdag í viðbót. Hanna og Jón heitinn voru af- skaplega samhent hjón þótt ólík væru og höfðingjar heim að sækja. Hanna var í gegnum tíðina mjög dugleg að sækja ýmsa menningarviðburði. Sem dæmi áttu hjónin ársmiða á Sinfóníu- hljómsveitina óslitið síðustu 50 ár og árskort í leikhús borgarinnar. Eftir andlát Jóns hélt Hanna áfram að endurnýja kortin og fór m.a. með hluta af hópnum á Vín- artónleika Sinfóníuhljómsveitar- innar í byrjun þessa árs. Á tón- leikunum hafði Hanna orð á því hvað henni þótti leitt að Jóni skyldi ekki hafa enst ævi til að upplifa tónleika í Hörpu, en hann lést áður en Harpa var opnuð. Hanna var afskaplega listfeng og handlaginn. Listfengni Hönnu átti eftir að koma enn betur í ljós eftir starfslok hennar. Nýr kafli hófst hjá henni þegar hún hætti störfum í bankanum. Við starfs- lok hennar höfðum við orð á því að við hefðum áhyggjur af því hvað tæki við hjá henni, því okkur fannst hún lifa fyrir vinnuna. En þær áhyggjur urðu strax að engu því við starfslokin hellti Hanna sér út í myndlistina af fullum krafti, hóf nám við myndlistar- skóla. Hanna hélt fjölda sýninga, bæði einka- og samsýningar. Hún var mjög afkastamikill listamaður og það gladdi hana mikið þegar Lindakirkja þáði að gjöf frá henni þrjár stórar myndir sem nú prýða veggi kirkjunnar. Eftir starfslok Hönnu myndaðist fallegur og hlýr vinskapur milli hennar og hópsins. Ekki hefðum við trúað því þegar við hófum störf í bank- anum, þá rétt liðlega tvítugir ný- græðingar í bankanum, að við ættum eftir að eiga svo góðan vin- skap með Hönnu eftir starfslok hennar. En það sýnir vel hversu ung í anda hún var. Höfum við hist við hin ýmsu tækifæri, sem dæmi farið saman út að borða, á tónleika, mælt okk- ur mót í matarboðum o.fl. Enn er í fersku minni þegar við buðum henni í svokallað High Tea í tilefni af áttræðisafmæli hennar. Okkur þótti slíkt dömuboð eiga vel við þegar Hanna átti í hlut. Ýmis teikn voru á lofti sem bentu til þess að tími Hönnu væri brátt á enda, heilsunni hafði hrakað mik- ið síðustu mánuði. Höfðum við hópurinn því rætt okkar á milli að endurtaka leikinn í kringum af- mæli hennar í febrúar og bjóða henni í High Tea en af því verður því miður ekki. Við munum þess í stað minnast hennar með hlýju og skála í henn- ar anda með eplasíder. Hönnu verður sárt saknað í hópnum en minning hennar lifir með okkur og öllu samferðarfólki hennar. Sendum fjölskyldu og að- standendum Hönnu okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Bentína, Ragnheiður, Jórunn, Bjarni, Erla og Inga Dóra. Fallin er frá kær vinkona, Hanna Pálsdóttir. Ég man fyrst eftir henni þegar ég var sjö ára og hún tæplega þrítug. Hún var gift móðurbróður mínum, Jóni Bjarman. Hanna var ein falleg- asta kona sem ég hafði séð. Hún var ekki aðeins falleg og glæsileg heldur ekki síður góð og skiln- ingsrík. Ég dvaldi á sumrin í Laufási er þau bjuggu þar og átta eða níu ára var ég farin að vinna mér inn laun við að sýna gamla bæinn þar. Hanna og Jón studdu móður mína er hún var orðin ein með sex börn. Aldrei heyrði ég þau kvarta undan okkur og alltaf vorum við eins og hluti af fjölskyldunni. Þrátt fyrir að sjö manna fjöl- skylda dveldi hjá þeim um jól og páska og hluta af sumri var það alltaf sjálfsagt. Ég man eftir atviki þar sem Hanna bað mig um að fara með rjóma niður í kjallara og setja hann í vatn þar sem ekki var ís- skápur á staðnum. Ég hellti dýr- mætum rjómanum í vatnsfatið og kom hróðug upp með flöskuna. Þegar hún áttaði sig á því hvað ég hefði gert var hún fremur von- svikin gagnvart sjálfri sér að hafa ekki útskýrt betur hvað ég átti að gera en að skamma mig kom ekki til greina. Í sannleika sagt man ég ekki eftir að þau hjónin hafi nokkru sinn skammað okkur börnin. Ég minnist líka þegar stein- hleðslan í kringum Laufáskirkju sem var endurnýjuð fyrir eitt hundrað ára afmæli kirkjunnar og við börnin horfðum á með and- akt. Vinnumennirnir voru farnir í mat og Lappi, hundurinn á bæn- um, stakk sér í gröfina og kom upp með bein. Ég fór heim, náði í brúnan poka og setti nokkur bein í pokann. Við krakkarnir sungum „mannabein í pokanum“ og létum Hönnu fá fundinn. Hanna varð agndofa en ekki reið heldur sagði að Jón myndi tala við okkur sem hann gerði. Gestkvæmt var í Laufási og á sumrin var eins og hótel hjá þeim, fullt af skemmtilegum vinum og ættingjum og nóg að gera. Anna litla systir mín varð eftir hjá þeim fyrsta veturinn þeirra í Laufási og varð svo hluti af þeirra fjöl- skyldu og varð það blessun fyrir þau og hana og ekki síst fyrir Palla son þeirra sem eignaðist systur og var hann einn af okkur í leik. Eftir að ég varð fullorðin kom persónuleiki hennar betur í ljós fyrir mér. Hún var full af fróðleik og þeg- ar við ræddum gamla tíma og erfiðleika æsku minnar kunni hún að leiða mig áfram á þá braut að sætta mig við lífið og njóta þess betur. Hanna varð aldrei gömul, skoðanir hennar voru alltaf nýjar og ferskar og hún naut þess að vera með okkur stórfjölskyldunni í „graut“ og fylgjast þannig með ættingjum sínum. Það var hægt að deila flestu með henni, hún hafði skoðanir og við nutum þess að eiga með henni tíma. Þegar Hanna vissi að hún væri með sjúkdóm sem myndi að lok- um hafa yfirhöndina ákvað hún að gera það besta, mála, fara í leik- hús, njóta tónleika, sinna vinum og fjölskyldunni. Hún var góður málari og liggja mörg góð verk eftir hana. Henni fannst að nýtt líf hefði byrjað er hún fór að mála eftir áratuga starf í banka. Við sem þekktum Hönnu urðum ríkari og minnist ég hennar með virðingu og hlýju. Takk, Hanna. Þín Guðrún (Gunna).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.