Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017
anum í markinu, af sinni alkunnu
kurteisi. Þetta er nú engan veg-
inn alveg satt, en kannski þó
„pínulítið“.
Mæður okkar Júlíusar, Anna
og Sigurlaug Jónsdóttir, voru
góðar vinkonur á yngri árum.
Þær sungu saman í kór, fóru á
skauta í tunglsljósinu og
skemmtu sér saman að hætti
þeirra tíma. Leiðir skildi svo í
áratugi. Er ég kom að Húsa-
bakka 7́2-́81, hittust þær í fáein
skipti. Þær rifjuðu upp æskuárin
án þess við fylgdumst náið með
því. Þessar öldnu konur voru
rúnum ristar í andlitinu, hrukk-
óttar en hnarreistar. Svo voru
það augun. Þau leiftruðu við
minningarnar, minningar ungra
stúlkna í Dalnum fagra. Þær
voru svo fallegar.
Söngur var þeim
Syðra-Garðshornssystkinum í
blóð borinn. Alltaf sungið er
komið var saman. Þeir sem til
þekkja kannast t.d. við „Söltun-
arfélagið“ þar sem vinir úr sveit-
inni komu saman að hausti og
söltuðu ket í tunnur. Þá var mik-
ið sungið í a.m.k. fjórum röddum
og einnig ortar vísur um hin
ýmsu mál. Gleðin í algleymingi.
Merkur félagsskapur sem að
litlu leyti er til sýnishorn af
vegna framsýni Gísla Más Jó-
hannssonar er tók upp sýnishorn
af þessum svarfdælsku „súper“-
röddum. Þar voru gleðimenn á
ferðinni. Flestir þeirra syngja
nú sinn svarfdælska kvart-
ettsöng í hæstu hæðum. Göngur
voru þessum mönnum líklega
aðalhátíð ársins, enda unnu þeir
sínum Dal hugástum.
Við Gunnur og börnin mín
sendum fjölskyldur Júlíusar
hluttekningu okkar með þessum
minningabrotum um góðan og
eftirminnilegan vin. Blessuð sé
hans minning og þeirra hjóna.
Heimir Kristinsson.
Nú er fallinn frá Júlíus Jón
Daníelsson, mestur sjentilmaður
í Svarfaðardal. Hann keppti þar
helst við Jóhann bróður sinn,
þeir voru í sérflokki. Þeir voru
miklir gleðimenn en háttvísin
brást þeim aldrei, sama á hverju
gekk. Allt varð þeim að söng,
fjölradda. Þá bættist bróðir
Björn við, Ytra-Garðshorns-
bræður líka og Dóri mágur, og
var þá fullkomnað því þeir voru
söngmenn í gegn, lýrískir og
rómantískir. Það var mikill vin-
skapur með foreldrum mínum á
Tjörn og Syðra-Garðshorns
hjónum. Júlíus kenndi okkur
systkinum almennan skólalær-
dóm en Þuríður leikfimi og dans.
Seinna vann ég með honum við
túnamælingar, sumarið sæla
1968. Þegar við komum á bæi
heilsaði hann öllum með handa-
bandi, börnum sem fullorðnum.
Júlíus kom fram við mig, ung-
linginn, eins og jafningja og leit
alls ekki á sig sem yfirmann
minn. Ef ég bullaði við hann
svaraði hann bara með bulli á
móti, því það var svo mikill leik-
ur í honum. Þegar við mældum
túnin í Öxnadal sváfum við
gjarnan í tjaldi. Útvarp var í
bláa Moskvitsnum og við sung-
um saman. Höfðum reyndar ekki
sama tónlistarsmekk en samein-
uðumst í mikilli hrifningu á nýju
lagi með Tom Jones, Delilah.
Eins og fleiri fluttist Júlíus
suður á mölina, og fluttist þó
ekki. Hann símtalaði títt og ótt
við systkini og kunningja fyrir
norðan og gladdist „heiftarlega“
yfir heimsóknum úr Svarfaðar-
dal. Hann var sérstakur hollvin-
ur byggðarblaðins Norðurslóð-
ar, dyggur lesandi, skrifaði
greinar og lagði til myndir og
efni. Og þegar hann var ánægð-
ur með efni í blaðinu, sem var
oft, mátti höfundur búast við að
Júlíus hringdi til að lýsa gleði
sinni og þakklæti. Háttvísin,
ljúfmennskan og örvandi já-
kvæðni runnu honum í merg og
blóð. Takk fyrir samfylgdina,
kæri Júlíus.
Þórarinn Hjartarson.
✝ Halldóra Ár-mannsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 8. des-
ember 1934. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Ási í
Hveragerði 25. jan-
úar 2017.
Foreldar Hall-
dóru voru Ármann
Bjarnason, f. 10.11.
1911, d. 23.9. 1999,
og Guðmunda Margrét Jóns-
dóttir, f. 16.3. 1911, d. 23.9. 1998.
Systkini Halldóru eru Her-
bert, f. 1.3. 1939, og Jónína, f.
3.2. 1949, d. 24.11. 1984, lætur
eftir sig þrjú börn. María, gift
Grími Magnússyni, þau eiga
fjögur börn.
Halldóra giftist 31.12. 1954
Hauki Þór Guðmundssyni frá
Halldóra giftist 26. júní 1976
Snorra Snorrasyni frá Eskifirði,
f. 10.9. 1928, d. 17.2. 2014. Hann
átti sex börn með fyrri konu
sinni, Ragnhildi Kristínu Páls-
dóttur.
Halldóra ólst upp í Vest-
mannaeyjum. Hún lauk gagn-
fræðaprófi og lærði einnig fata-
saum, sem hún stundaði með
heimilisstörfum. Hún flutti með
fjölskyldu sinni upp á land í gos-
inu, 1973. Um haustið 1973 flutti
hún ásamt börnum sínum í við-
lagasjóðshús á Selfossi. Hún
vann við ýmis störf, var ganga-
vörður í skóla en lengst af vann
hún við Sundhöll Selfoss. Hall-
dóra átti sæti í stjórn Kvenfélags
Selfosskirkju, var í stjórn Félags
eldri borgara og starfaði lengi
sem leiðbeinandi í handavinnu.
Halldóra sótti Dale Carnegie-
námskeið 1980 og var einn stofn-
enda Selju I.T.C. á Selfossi og
starfaði með þeim frá 1984-1990.
Útför Halldóru fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 3. febrúar
2017, og hefst athöfnin klukkan
13.
Ísafirði, f. 5.6. 1926,
d. 25.8. 1988. Þau
eignuðust fimm
börn: Guðmar Þór,
f. 22.6. 1955, Ár-
mann, f. 3.9. 1956,
Elínu, f. 2.6. 1958,
gift Guðlaugi A.
Stefánssyni, þeirra
dóttir er Eydís Eva,
f. 29.8. 1995,
Draupni, f. 4.9.
1963, d. 23.10. 2010.
Hann var kvæntur Fanneyju
Friðriksdóttur frá Sandgerði,
þau skildu. Dætur þeirra eru:
Hildur Mekkín, f. 10.4. 1987, og
Dagný Lind, f. 9.7. 1993. Magni
Freyr, f. 12.8. 1964. Dóttir hans
er: Helga Dóra, f. 8.5. 1984.
Barnsmóðir Jakobína Ó. Fann-
arsdóttir.
Haukur og Halldóra skildu.
Til þín, mamma mín.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgrímur Pétursson)
Þinn sonur,
Guðmar Þór.
Elsku mamma mín.
Þegar ég fékk símhringingu
þriðjudaginn 23. janúar frá Ási,
að þér væri farið að hraka,
dreif ég mig til þín og sat hjá
þér. Hvíslaði að þér að ég væri
komin til þín og myndi vera hjá
þér. Að eiga þá stund, að halla
höfði mínu að þér, elsku
mamma mín, og halda í höndina
á þér þegar þú kvaddir þetta
líf, það var sárt en friðsæl
stund.
Nú ertu laus við allar kvalir
og ég veit að það hefur verið
tekið vel á móti þér. Með þess-
um orðum, kveð ég þig með
þessu fallega ljóði:
Nú ertu horfin héðan, kæra
hjartans vina, burt mér frá
þér ég nú vil þakkir færa,
þögul tárin leika um brá.
Lengi götu ganga máttum,
grýtt og hörð var stundum braut
en við marga einnig áttum
yndisstundir gegnum þraut.
Því ég stilli harm í hljóði,
horfi yfir forna slóð,
kveð þig nú með litlu ljóði,
ljúfa mamma, kona góð.
Fyrir handan hafið kalda
hygg ég að þú bíðir mín.
Minning þín um aldir alda
eflaust verður sólin mín.
Elsku mamma, einnig viljum
eiga stund við beðinn þinn.
Núna er hljótt er hér við skiljum,
hjörtun klökkna nú um sinn.
Muna blíða bernsku kæra
börnin þín og þakkir nú
fyrir ást og allt það kæra
okkur sem að veittir þú.
Barnabörnin bljúg nú senda
blíða hinstu kveðju þér.
Tengdabörn og tryggir vinir
til þín allir beinast hér,
koma nú að kistu þinni,
krjúpa þar svo undurhljótt.
Allir hafa sama sinni
segja þökk – og góða nótt.
(Borgfjörð)
Þín dóttir,
Elín.
Þér góðir englar lýsi leið,
er liðið hefur dapra neyð,
og flytji þig í hásal hans,
sem huggun best er sálu manns.
Þó mæða væri um margt þitt líf,
þér mildan dóminn færi, og hlíf
sé ljósið skæra lausnarans,
sem lýsir best upp hugskot manns.
Friðarkærleiks góður Guð,
sem gefur allan lífsfögnuð,
verndi þig og veiti frið.
Vel ég þess af hjarta bið.
(Gísli á Uppsölum)
Þinn tengdasonur,
Guðlaugur A. Stefánsson.
Nú ertu horfin, mín amma
Ég bið að þú sofir rótt
Ekki skal þér bregða
Þótt allt sé orðið hljótt
Nú opnast himna heiðir
Allar fyrir þér
Nú skiljast jarðneskar leiðir
Þú vakir yfir mér
Góða nótt, amma mín.
Þín
Eydís Eva Guðlaugsdóttir.
Ég heyrði í útvarpinu dán-
artilkynningu hennar Dóru
minnar, mér brá, er það virki-
legt, Dóra mín, að þú sért far-
in? Ég hef hugsað sterkt til þín
frá áramótum og ætlaði að drífa
mig til þín út að Ási í Hvera-
gerði.
En svona líður tíminn.
Ég hef þekkt Halldóru síðan
1974, kynntist henni er við vor-
um nágrannar í Úthaga á Sel-
fossi, en Dóra, eins og hún var
alltaf kölluð, vissi um mig og ég
um hana því við vorum tengdar
og við urðum strax kunningja-
konur, báðar nýkomnar til Sel-
foss, ég frá Danmörku en hún
frá Vestmannaeyjum þegar
gosið skall þar á. Það var
hræðilegt áfall. Þannig var að
Ísak, móðurbróður minn í Vest-
mannaeyjum, kvæntist ömmu
Halldóru og eignuðust þau einn
son, Jón hét hann en hann er
látinn og við útför hans hitti ég
Dóru, hún var svo fín og hress
eins og hún var ávallt. Síðustu
ár hefur hún búið á Ási í Hvera-
gerði og skrapp ég allt of sjald-
an til hennar, en svona líður
tíminn frá manni.
Þegar við Dóra vorum ná-
grannar í Úthaganum á Selfossi
til nokkurra ára brölluðum við
margt saman yfir kaffibolla,
hún bjó þarna með börnin sín,
ég tók hana stundum með mér í
bíltúr. Ég man ekki hvenær
hún hitti seinni manninn sinn,
hann Snorra heitinn, það fór vel
á með þeim, en hann lést fyrir
nokkru. Við vorum báðar dug-
legar að sauma föt hér á árum
áður, eða bara allt milli himins
og jarðar svo okkur datt í hug
að stofna saumastofu saman
heima hjá okkur og auglýstum
við á búðarhurð hjá Geira í
Múla, saumastofan hét Sólídó,
þar með myndaðist heilmikið
fjör, við unnum báðar úti á dag-
inn, höfðum bara kvöldin og
helgar til saumaskapar, allt
gekk þetta vel hjá okkur og
mikið að gera. Svo kom að því
að við fluttum í sína áttina hvor,
ég í Miðengi á Selfossi en Dóra
í Löngumýri á Selfossi. Hún
varð fyrir því óhappi þar að
detta og handleggsbrjóta sig og
varð ekki jafngóð í handleggn-
um eftir það. Upp úr því fór að
síga á seinnihlutann og fór hún
að Ási í Hveragerði og lést þar
25. janúar sl.
Ég þakka henni fyrir sam-
fylgdina í Úthaganum og síðari
tíma, hún var dugleg að koma í
heimsókn, og ég til hennar í
Löngumýri, sendi mínar bestu
samúðarkveðjur til barna henn-
ar og fjölskyldna.
Hvíl í friði.
Ég mun geyma þig í minn-
ingunni.
Hörpu þinnar, ljúfa lag
lengi finn í muna.
Því ég minnist þín í dag,
þökk fyrir kynninguna.
(Á.K.)
Sólrún Guðjónsdóttir.
Sérstakar minningar vakna
er Halldóra er kvödd hinstu
kveðju. Hún er sú félagslega og
fórnfúsa manneskja sem stóð í
fremstu röð meðal sinna jafn-
ingja í störfum fyrir eldri borg-
ara á Selfossi. Félag eldri borg-
ara var stofnað á Selfossi 1980.
Þá gerðist hún stofnfélagi og
var stjórnarmaður í tæp 30 ár
og leiðbeinandi í fjölbreyttum
hannyrðum hátt á þriðja tug
ára. Þar komu fram listrænir
hæfileikar hennar, sem aðrir
gátu nýtt sér og haft til fyr-
irmyndar.
Á 30 ára afmæli félagsins
2010 var Halldóra kjörin heið-
ursfélagi um leið og henni voru
þökkuð hin miklu störf í þágu
félagsins.
Í forystu með fórnarhuga
í félaginu var þitt svið.
Allt að þriggja áratuga
óspart veittir mörgum lið.
Það var notalegt að koma á
heimili þeirra hjóna að Löngu-
mýri 38. Þar voru listmunir inn-
an dyra og utan. Listmunir sem
einkenndust af smekkvísi og
hugkvæmni. En hæverska og
alúð húsfreyju skein alls staðar
og vakti hlýjar tilfinningar hjá
gestum þeirra. Ítrekuð er þökk
til þessarar heiðurskonu fyrir
störf hennar í þágu eldri borg-
ara á Selfossi.
Blessuð sé minning hennar.
Einlæg samúð er flutt til henn-
ar nánustu.
Hjörtur Þórarinsson,
fv. form. FEB Selfossi.
Halldóra
Ármannsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Innstu-Tungu,
Tálknafirði,
lést á Landspítalanum Hringbraut
26. janúar.
Útförin fer fram frá Tálknafjarðarkirkju laugardaginn 4. febrúar
klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarkort Styrktar-
og gjafasjóðs Landspítala.
Ársæll Egilsson
Kristín G. Ársælsdóttir Njáll Torfason
Hrefna Ársælsdóttir Steindór Andersen
Níels A. Ársælsson Sigurlaug Guðmundsdóttir
Tryggvi Ársælsson Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
Hlynur Ársælsson Hallveig Guðný Guðnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
SÓLVEIG AXELSDÓTTIR,
Víðilundi 23, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
17. febrúar klukkan 13.30.
Axel Gíslason Hallfríður Konráðsdóttir
Hólmfríður Gísladóttir Guðmundur Pétursson
Þórhalla Gísladóttir Samúel Jón Samúelsson
Sólveig Gísladóttir Hörður Blöndal
Katrín Gísladóttir Björn Ingi Sveinsson
Hildur Gísladóttir Sigurður Albertsson
Björg Gísladóttir Páll Kristjánsson
Kjartan Þorbjörnsson Júlía Þorvaldsdóttir
og fjölskyldur
Okkar ástkæra
INGUNN HALLDÓRSDÓTTIR,
Stórhóli 19,
Húsavík,
lést mánudaginn 30. janúar.
Einar Halldór Einarsson
Guðrún Einarsdóttir Benóný Valur Jakobsson
Halldór Ingólfsson
Einar Þorbergsson
Þuríður Halldórsdóttir Ólafur Benediktsson
Þorbergur Einarsson
Óli Björn Einarsson Kristbjörg Sigurðardóttir
Laufey Marta Einarsdóttir Ólafur Einar Samúelsson
og fjölskyldur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
FANNÝ GUÐBJÖRG
GUÐMANNSDÓTTIR,
Skógarbæ, Árskógum 2,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ föstudaginn 27. janúar.
Við þökkum fyrir góða umönnun hlýju í hennar garð
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 6. febrúar
klukkan 13.
Jón Guðmann Jónsson Dorian Obando Gomez
Vaida Masson
Halldóra Elín Magnúsdóttir Guðmundur A. Sæmundsson
Valdís Magnúsdóttir Unnsteinn Hermannsson
Sólveig Fanný Magnúsdóttir Hallgrímur H. Gröndal
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
INGIMUNDUR ÁRNASON,
fyrrverandi bóndi og bílstjóri,
frá Ketu í Hegranesi,
andaðist á Dvalarheimili aldraðra á
Sauðárkróki föstudaginn 27. janúar.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 4. febrúar
klukkan 11.
Brynja Ingimundardóttir Símon Skarphéðinsson
Árni Ingimundarson Jóhanna Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn