Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 30

Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 ✝ GuðlaugBjörnsdóttir fæddist í Hafn- arfirði 28. desem- ber 1925. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Hrafnistu, Hafnarfirði, 25. janúar 2017. Foreldrar henn- ar voru Guðfinna Sigurðardóttir frá Ási í Garðahreppi, f. 2.11. 1892, d. 28.1. 1978, og Björn Árnason bifreiðastjóri, Hafnarfirði, f. 2.5. 1889, d. 14.7. 1979. Guðlaug var þriðja í röð fimm systkina. Elst var Sig- urlaug Sigríður, f. 19.1. 1920, d. 13.12. 1922, önnur var ósk- unn, f. 1947, Ólöf Guðríður, f. 1950, Sveinbjörn Egill, f. 1951, Helga Lilja, f. 1953, og Guðrún Þorbjörg, f. 1957. Björn vann fyrst sem verkfræðingur hjá Ofnasmiðjunni og Einangrun hf., síðan varð hann fram- kvæmdastjóri Vefarans og að lokum starfaði hann hjá Rann- sóknarstofnun iðnaðarins. Guð- laug og Björn bjuggu lengst af á Háteigsvegi 14 og síðar í Garðabæ. Guðlaug stundaði nám við Húsmæðraskólann á Staðarfelli á Fellsströnd. Síðan starfaði hún í Reykjavíkurapóteki og á Símstöðinni í Hafnarfirði en lauk störfum sem skrifstofu- maður á Pósti og síma Reykja- vík. Auk þess tók hún þátt kórastarfi, aðallega í Fílharm- óníu, og sinnti sjálfboðaliða- starfi hjá ABC-barnahjálp. Guðlaug verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 3. febrúar 2017, og hefst at- höfnin klukkan 13. írt stúlkubarn, f. 11.7. 1921, d. 11.7. 1921. Yngri systk- ini Guðlaugar eru Sigurlaug skrif- stofumaður, f. 3.7. 1930, og Sigurður óperusöngvari, f. 19.3. 1932. Fyrri eiginmað- ur Guðlaugar var Bogi Melsted læknir, f. 10.6. 1930, d. 13.5. 2008. Þau skildu. Á nýársdag 1969 giftist hún Birni Sveinbjörnssyni verk- fræðingi, f. 30.12. 1925, d. 23.7. 1985. Björn átti fimm börn með fyrri eiginkonu sinni, Jakobínu Finnboga- dóttur. Þau eru Nanna Dýr- Elsku amma Golla, um huga okkar streyma ótal yndislegar minningar nú þegar komið er að þessari hinstu kveðjustund. Við minnumst ástúðar þinnar með hlýju í hjarta og stuðnings þíns á uppvaxtarárum okkar með þökk í huga. Þær voru skemmtilegar stundirnar þegar við heimsóttum þig á Sunnuflöt, það heimili var okkur sem ævintýraveröld; læk- urinn fyrir neðan húsið og hin þægilega kyrrð sem ríkti á fal- legu heimilinu. Við dáðumst alltaf að þér, þeirri ró sem ríkti í kring- um þig og þeim vel völdu orðum sem oftar en ekki sögðu eitthvað fallegt um okkur. Við dáðumst að glæsileik þínum, grásprengda hárinu sem myndaði fullkomna umgjörð um fallega, hlýja andlit- ið þitt. Við nutum þess að heyra þig segja frá afa Birni en við nut- um ekki þeirrar gæfu að kynnast honum. Við skynjuðum hversu sárt þú saknaðir hans. Á þessari stundu sjáum við ykkur fyrir okkur sameinuð á ný og þannig munuð þið lifa í hugum okkar er við systkinin förum í gegnum þær góðu en jafnframt erfiðu stundir sem fylgja því að lifa. Þín, Bjarki, Nanna og Björn. Ég loka augunum og er komin í pössun til þín. Ég er sennilega ekki eldri en sex ára. Ég ligg á gólfinu og leik mér með rauðan bíl á munstruðu teppinu sem hentar fullkomlega sem bíla- braut. Allt er gult og hlýlegt. Það er ömmulykt í húsinu. Þegar kemur að háttatíma segir þú mér að brjóta saman fötin mín sem liggja í hrúgu á gólfinu og leggja þau fallega á stólinn. Morguninn eftir gerið þið Ellen dauðaleit að mér, finnið mig hvergi. Orðnar hræddar um mig. Finnið mig steinsofandi undir rúmi. Við fáum Lucky Charms í morgun- mat sem við fáum hvergi annars staðar. Þú færð að heyra alla Hafnarfjarðarbrandara sem ég kann. Aftur og aftur. Þú þykist fara í fýlu, enda borinn og barn- fæddur Hafnfirðingur, en fitjar svo upp á nefið og ferð að hlæja. Skammar mig í gríni. Ég eldist. Ég verð þreyttur unglingur sem þarf að slaka á eft- ir erfiðan skóladag. Ekkert er betra en þáttur af Leiðarljósi. Við gleðjumst saman yfir sigrum Revu og Josh og deilum sorgum yfir óréttlætinu sem dynur á Spaulding-fjölskyldunni. Þið mamma þreytist ekki á því að spá hvort við systur séum vet- ur, sumar, vor eða haust. Þú stíg- ur ekki feilspor í þinni litapal- lettu. Frekar myndir þú fara niður í fjöru að bíða eftir jóla- bókaflóðinu en að fara út úr húsi í brúnni kápu. Elsku fallega amma mín. Ég trúi því að þú sért komin til afa, 30 ár í ástarsorg eru langur tími. Takk fyrir allar minningarnar sem ylja. Þín rúsína, Júlía. Undanfarna daga hef ég þrammað um götur Kaupmanna- hafnar með kökk í hálsinum og tárin í augunum, og hugsað með söknuði til ömmu Gollu sem nú hefur kvatt þennan heim. Með hverju árinu undanfarin ár hefur Alzheimer stolið meira og meira af minni ömmu. Það hefur verið sárt að horfa upp á það en þrátt fyrir þessa skerðingu fann ég alltaf fyrir þeim kærleik sem hún bar í brjósti þegar við hittumst, hvort sem var í stöku orði eða lát- bragði. Amma Golla var einstak- lega kærleiksrík og falleg kona. Hún hafði sterka siðferðiskennd og tileinkaði sér kristilegt hug- arfar. Amma Golla gaf mikið af sér en hún starfaði meðal annars sem sjálfboðaliði fyrir ABC- hjálparstarf. Amma var fyrir- mynd mín í góðgerðarstarfi en hún vildi öllum vel. Afi var sér- lega heppinn að hitta hana og við barnabörnin að fá að njóta þess að eiga hana fyrir ömmu. Ástin þeirra á milli var falleg en amma syrgði afa sárt eftir að hann féll frá árið 1985 og hún minntist hans við hvert tækifæri. Amma talaði alltaf fallega um afa og dáð- ist að honum við okkur barna- börnin. Áður en amma veiktist hringdi hún reglulega í mig og stappaði í mig stálinu þegar ég þurfti á því að halda. Það hefur verið dýrmætt að eiga svo ynd- islega ömmu að í lífinu og hennar verður sárt saknað. Ég vil leyfa mér að trúa að þau afi hafi hist á ný og sú tilhugsun yljar mér. Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið því fegursta blómið er frá okkur horfið. Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafðir og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir þótt móðuna miklu þú farin sért yfir þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir) Með kærleik og söknuð í hjarta sendi ég mínar bestu kveðjur til allrar fjölskyldunnar heima. Erla Björk. Amma Golla, eins og við öll 17 barnabörnin kölluðum hana, var alltaf einstaklega ljúf. Hún var söngelsk og trúuð og alltaf svo flott og fín. Ég gisti oft hjá afa og ömmu bæði á Háteigsvegi og á Sunnu- flöt. Afi var mikill barnakarl og vildi helst hafa okkur sem flest hjá sér. Á báðum stöðum var mikið ævintýri, garðarnir báðir, tafl, Mad-blöðin, öll flottu leik- föngin frá Ameríku og „french- toast“. Amma sagði aldrei neitt nema fallega hluti við mann og ég man að ég gerði talsvert til að halda tí- unni í kristinfræði til að gera hana stolta. Við áttum löng sam- töl um mígrenið okkar og allt fram til níræðs spurði hún mig með hluttekningu hvernig haus- verkirnir mínir væru. Hún var fyrirmynd á sinn hátt því hún var amman sem var ekki að baka eða föndra, hún var ólík og sýndi mér og öðrum að ömmur voru alls ekki allar eins – þó að barnabæk- urnar segðu það. Takk, elsku amma, fyrir samveruna, ég veit þú ert hvíldinni fegin. Augun mín og augun þín ó! þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. (Vatnsenda-Rósa) Þorbjörg Helga. Guðlaug Björnsdóttir HINSTA KVEÐJA Ástarfaðir himinhæða, heyr þú barna þinna kvak, enn í dag og alla daga í þinn náðarfaðm mig tak. Náð þín sólin er mér eina, orð þín döggin himni frá, er mig hressir, elur, nærir, eins og foldarblómin smá. Einn þú hefur allt í höndum, öll þér kunn er þörfin mín, ó, svo veit í alnægð þinni einnig mér af ljósi þín. Anda þinn lát æ mér stjórna, auðsveipan gjör huga minn, og á þinnar elsku vegum inn mig leið í himin þinn. (Steingrímur Thorsteinsson) Takk fyrir allt, elsku Golla. Guðfinna Björnsdóttir og fjölskylda. ✝ Ásgerður Sig-ríður Sigurðardóttir, Sigga, fæddist 18. apríl 1929 í Reka- vík bak Höfn, Hornströndum. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Eir- arholti í Grafar- vogi 24. janúar 2017. Sigga var dóttir hjónanna Sigurðar Hjálm- arssonar, f. í Stakkadal, Hlöðu- vík, 14. september 1894, d. í nóvember 1969, og Ingibjargar Bárðlínu Ásgeirsdóttur, f. í Bolungarvík, 23. apríl 1898, d. í október 1935. Systkini henn- ar eru Guðrún Hjálmfríður, f. 1927, d. 1976, Sturla Valdimar, arson. Dætur þeirra eru: Hug- rún Sif, maki Kristján Viggó og eiga þau fjögur börn; Sig- ríður Hrund, maki Stefán og eiga þau fjögur börn. 2) Sigrún Alda, maki Björgvin Andri Guðjónsson, börn: Guðrún Stella og á hún fjögur börn; Ásgeir Freyr, maki Lára og eiga þau þrjú börn; Andrea Björg, maki Páll; 3) Ásgerður Ósk, maki Hans Wilhem Wil- kens, börn: Sævar Jökull, maki Birna Dröfn og eiga þau eitt barn; 4) Lilja Hrönn, börn: Júl- íus, maki Hildur og eiga þau fjögur börn; Erla Kristín, maki Vilhjálmur og eiga þau þrjú börn; Bergdís Brá; 5) Heiða Björk, maki Óskar Krist- jánsson, börn: Kristján Örn, maki Eva Lena og eiga þau þrjú börn; Fannar Andri, maki Lajla og eiga þau eitt barn; Júlíus Orri. Útför Sigríðar fer fram frá Bústaðakirkju í Reykjavík í dag, 3. febrúar 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. f. 1932 d. 1932, Björg Bjarndís, f. 1933. Systkini Siggu sammæðra, Högni, f. 1919, d. 2009, Guðrún Þor- katla, f. 1923, d. 2010, Sturlína f. 1924. Sigga giftist Júlíusi Óskari Halldórssyni, Júlla, 30. apríl 1954. Hann var sonur hjónanna Halldórs Jóns Guðmundssonar, f. 1900, d. 1976, og Sigrúnar Jónsdóttur, f. 1891, d. 1974, systir hans er Ingibjörg Halldórsdóttir, f. 1. september 1929. Sigga og Júlli eignuðust saman fimm dætur. Þær eru: 1) Ingibjörg Bára, maki Símon Johnsen Þórð- Þar sem íslensk náttúra er hvað fegurst nyrst við dumbshaf og veður eru oft undurblíð en breytast sem hendi sé veifað og verða að tröllauknum skrímslum. Þar er Rekavík bak Höfn og í vík- inni fögru fæddist mamma okkar. Sex ára gömul missir hún móð- ur sína úr veikindum og pabbi hennar verður að láta yngstu dótturina frá sér aðeins tveggja ára gamla. Þegar mamma var á sextánda ári bregður afi búi og fer með tvær af dætrum sínum til Ísafjarðar. Um tvítugt flytur mamma suð- ur til Reykjavíkur. Þar kynnist hún pabba og við systurnar fimm komum í heiminn. Mamma var stórbrotin per- sóna. Það tók okkur systur aldur og þroska að átta okkur á því og þá magnaðist ást okkar og virð- ing. Hún var með ólíkindum dugleg og hörð af sér. Hvað sem hún tók sér fyrir hendur var listilega gert, saumað og prjónað og fal- legt heimili skapað. Hún elskaði okkur dætur sínar skilyrðislaust og við elskuðum hana. Pabba elskaði hún í sam- tvinnaðri gleði og sorg. Hún var kærleiksrík amma og langamma. Með ljóði, söknuði og þakklæti í hjarta kveðjum við þig, elsku mamma okkar. Það voraði snemma í víkinni fögru, þar fæddist lítil snót. Lék við sinn fingur með pabba og mömmu, lífið gaf og tók. Þær undu við flest ungu Sigga og Rúna, þar fegurð landsins er mest. Er haustaði að var búist til farar, en víkin litla var alltaf til staðar. (höf. IBJ) Þínar dætur, Ingibjörg, Sigrún, Ásgerður, Lilja og Heiða. Elsku Sigga amma mín og vin- kona. Sambandi okkar er best lýst sem sálufélagar. Þó að oft hafi vegalengdin verið löng á milli okkar og langt liðið milli heimsókna var alltaf eins og við hefðum hist í gær. Allar þær stundir sem við áttum saman á mínum yngri árum eru minn fjár- sjóður í dag. Með bros í hjarta og söknuð er mér hugsað til baka, hversu „fer- legur bílstjóri“ þú varst. Ég man þegar ég ætlaði að panta pizzu fyrir okkur og fá heimsent, en þá var nýbyrjað að veita slíka þjón- ustu. Þú tókst það ekki í mál og sendir mig út að sækja pizzuna. Hjá þér var alltaf góður matur, kjötbollur í brúnni, bjúgu með uppstúf og steingrímur með rús- ínum. Ég gleymi aldrei buddunni sem þú sendir mig ávallt með til kaupmannsins, en sannleikurinn er sá að ég faldi hana í skápnum frammi á gangi og fór með aurinn í vasanum til kaupmannsins. Hjá þér fékk ég straujaðar nærbuxur og sokka, bestu skonsur í heimi, leyfi til að fara með á kvenfélags- fundi (bingó) og margt annað sem einungis við gerðum saman. Ég er þakklátur fyrir allar okkar stundir, elsku hjartans amma mín. Ég veit að þú ert komin á betri stað, þú ert komin heim. Við hitt- umst aftur þegar minn tími kem- ur og er ég þess fullviss að þú verður fremst í flokki að taka á móti mér. Bið að heilsa öllum þarna uppi. Ef ég á eitthvað önugt heima og eitthvað, sem ég þarf að gleyma, þá kem ég hingað hvert eitt sinn, að heyra fagra sönginn þinn. Og ég tek vor með ástarómi og yl úr þínum hlýja rómi, ef illur stormur úti hvín og andar köldu á blómin mín. Og þegar öllu er um mig lokað og ekkert getur hliðum þokað, þá á ég víðan unaðs heim, sem opnast fyrir rómi þeim. (Þorsteinn Erlingsson) Þinn vinur og ömmustrákur, Júlíus S. Fjeldsted. Það var fyrir rúmum fjörutíu árum að ég kom inn í líf Siggu og Júlla í Ásgarðinum. Var ég þá bú- in að kynnast næstelstu dóttur þeirra, henni Sigrúnu. Heimilið í Ásgarðinum var stórt. Fjórar stelpurnar enn heima en sú elsta flutt í næsta hús. Sigga var hús- móðirin og réði ríkjum á heim- ilinu. Mjólkurlegið hvalkjöt steikt á pönnu var herramannsmatur hjá Siggu, en það var ódýrasta kjötið í þá daga. Frá fyrsta degi var ég einn af fjölskyldunni. Stundum kom upp að Sigga fór í breytingastuð á húsgögnum, einhverra hluta lenti ég í að for- færa húsgögn ekki alveg í þökk Júlla. Þá var mín í stuði. „Dæturnar mínar“ var hún vön að segja, þær voru hennar stolt og stytta þegar árin liðu áfram. Jólaboðin hjá þeim hjónum þegar dæturnar voru allar komnar með maka og börn voru ánægjulegar stundir. Ávallt var tekið í spil eftir matinn með tilheyrandi leiðsögn frá Siggu, t.d. hvaða spil maður ætti að setja út. Hún var kannski ekki tapsár en vildi alltaf vinna. Árin fjörutíu hafa liðið hratt og margt gæti maður minnst á er til baka er hugsað. Nú er Sigga komin á æskuslóðir sínar í Reka- vík bak Höfn sem henni þótti afar kær og minntist ávallt með hlýju. Elsku Sigga, takk fyrir allt og allt. Hvíl í Guðsfriði. Þinn tengdasonur, Björgvin Andri. Látin er í Reykjavík kær frænka mín, Sigríður Ásgerður Sigurðardóttir, ættuð frá Reka- vík bak Höfn í Sléttuhreppi á átt- tugasta og áttunda aldursári. Móðursystir mín Sigríður, eða Sigga frænka eins og hún var kölluð af sínum nánustu, var ætt- uð norðan úr Sléttuhreppi þar sem brimið drynur, snjónum kyngir niður og myrkrið er svart. Ég var svo heppinn að fá að vera samferða þessari góðu konu sem barn og vera tengdur henni alla ævi. 12 ára missti Sigga móður sína og þurftu þær systur að takast á við lífið, sem ekki var alltaf blítt, ekki alltaf sól í víkinni fögru. Ungar tengdust þær sterkum systra- og vinaböndum sem alltaf héldu. Á Hábrúnartindinum heima ég hrifinn og þögull stend. Má vera að mig sé að dreyma, – en mörgu er unnt að gleyma – það fer um mig fagnaðarkennd. Sól er að síga til viðar, svalan af fjöllunum slær – Í alkyrrð hins eilífa friðar er einungis lindin sem niðar og hljómþýðu hörpurnar slær. (Sigmundur Guðnason frá Hælavík.) Sigga hélt stórt myndarheim- ili, dæturnar fimm og alltaf auka- fólk. Ég dáðist að því sem barn og alla tíð hvað allt var hreint heim- ilið, röð og regla á öllu. Starfs- vettvangur Siggu var heimilið auk þess sem hún um árabil starfaði við ræstingar af mynd- arskap. Afi minn, Sigurður Hjálmars- son, bjó í skjóli Siggu dóttur sinn- ar síðustu ár ævi sinnar í Ásgarði 32, fyrir það er ég þakklátur. Fjölskylda mín átti því láni að fagna að fara með Siggu og Júlla í Rekavík ógleymanlega ferð árið 1990, þá var Sigga komin á sjö- tugsaldur. Þegar þangað var komið var eins og Sigga svifi um á hvítu skýi, hún fékk einhvern ofur- kraft. Allir staðhættir voru á tandurhreinu, og fór útum allt, Hvannadal, Atlaskarð og klifraði á köðlum útí Höfn. Þetta var ógleymanleg ferð, en hún í raun flutti hugur hennar aldrei úr Rekavík. Við fjölskyldan áttum því láni að fagna þegar móður okkar lést, langt fyrir aldur fram, að eiga hlýtt faðmlag hjá Siggu frænku sem endranær, fyrir það er ég þakklátur. Ég kveð kæra frænku með söknuði og sendi samúðarkveðjur til dætra og fjölskyldu. Sævar Geirsson. Ásgerður Sigríður Sigurðardóttir HINSTA KVEÐJA Í dag skein sól á sundin blá og seiddi þá, er sæinn þrá og skipið lagði landi frá. Hvað mundi fremur farmann gleðja? Það syrtir að, er sumir kveðja. Með þessu ljóði eftir uppáhaldsskáldið hennar Siggu, mágkonu minnar, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, kveð ég hana með innilegu þakklæti fyrir áralanga samfylgd og vin- áttu. Sofðu rótt. Þín mágkona, Ingibjörg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.