Morgunblaðið - 03.02.2017, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 03.02.2017, Qupperneq 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 ✝ Anna MargrétKolbeinsdóttir fæddist 10. ágúst 1920 í Eyvík, Grímsnesi. Hún lést 23. janúar 2017 á Landspít- alanum í Fossvogi. Foreldrar henn- ar voru hjónin Kol- beinn Jóhannesson, f. 20. júní 1894 í Eyvík, Grímsnesi, d. 24. september 1952, og Steinunn Magnúsdóttir, f. 15. febrúar 1885 í Haga, Gríms- nesi, d. 8. ágúst 1981. Anna Margrét átti þrjú 1947, Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur, f. 26. ágúst 1950, Páll Sigurðsson sjómaður, f. 12. október 1953, Guðrún Sig- urðardóttir þýðandi, f. 26. desember 1956. Anna Margrét gekk í Hér- aðsskólann á Laugarvatni og síðan Hjúrunarkvennaskóla Íslands. Hún starfaði við hjúkrunarstörf alla sína starfsævi, fyrst á Borgarspít- alanum í Fossvogi og síðan á öldrunardeild í Hafnarbúðum og Landakoti. Anna Margrét bjó sín fyrstu búskaparár að Lang- holtsvegi 22 og síðan í Gnoð- arvogi 86 þar til hún flutti á Hrafnistu í Laugarási síðla árs 2015. Útför Önnu Margrétar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 3. febrúar 2017, klukkan 11. systkini, Jóhannes Guðmann, f. 3. júlí 1917, d. 20. janúar 2012, Sól- veigu, f. 3. mars 1922, d. 10. febr- úar 2016, og Emmu, f. 11. mars 1923. Anna Margrét giftist 1. júní 1946 Sigurði Páls- syni vörubifreiða- rstjóra frá Seljalandi, Fljóts- hverfi, f. 25. febrúar 1915, d. 14. júní 2001, og eignuðust þau fjögur börn. Þau eru Kol- beinn verktaki, f. 21. apríl Það er forskot í lífinu að eiga mömmu sem er sérstök gæða- manneskja, lifandi í þankanum og frumleg. Mér er ofarlega í huga nú að leiðarlokum endalaus góðvilji hennar, í garð fólksins síns, jafnt sem vandalausra, og þá ekki síst sjúklinganna sem hún annaðist af lífi og sál. Þess- um góðvilja fylgdi lifandi áhugi á annarra högum og uppbyggilegt samtal, þar sem hún hafði einatt lag á að nefna eitthvað sem við- mælandanum taldist til tekna, stórt eða smátt. Ýmislegt var frá mömmu tekið í hennar háu elli, sjónin og skammtímaminnið, en þessi sérstaki eiginleiki hélst alltaf. Valgerður deildarstjóri á Hrafnistu í Reykjavík sagði mér að mamma hefði nýverið sagt við sitt góða umönnunarfólk: „Þið kunnið þetta allt.“ Vinkonur mínar töluðu um skemmtilegu mömmu mína og uppörvunina sem frá henni kom. Hún las fólk eins og opna bók, enda eins víst að góðu orðin hennar hefðu ann- ars misst marks. Mamma er óeigingjarnasta manneskja sem ég hef þekkt. Alltaf tilbúin að þjóna og gefa, en hún bað ekki um neitt fyrir sjálfa sig. Hún var dul um sína hagi og líðan. Það sem henni féll þungt bar hún ein. Það er í rauninni alveg merki- legt að kona eins og hún, sem átti erfitt með að standa á sínum rétti, skyldi drífa sig í Hjúkr- unarkvennaskólann í Reykjavík um hábjargræðistímann í sveit- inni, við mótbyr frekar en hitt. Hjúkrunarstörfin áttu hug henn- ar, en hún gaf þau upp á bátinn þegar hún gifti sig, eins og kon- ur þess tíma gerðu. Fjórum börnum síðar, og þrjátíu árum, eða svo, dreif hún sig á end- urhæfingarnámskeið og fór að vinna á erfiðri skurðdeild, A 5, á Borgarspítala. Erfitt er að ímynda sér það átak, því ým- islegt hafði nú breyst á sjúkra- húsunum á þessum áratugum. Þar fyrir utan var skilningur okkar heimilisfólksins á þessu tiltæki takmarkaður, a.m.k. í verki, þannig að hún bætti hjúkruninni ofan á heimilisstörf- in. Það var helst að pabbi sýndi lit. Svo mikið er víst að hann til- einkaði sér þá list að sjóða kjöt- súpu, og braut þar með upp fasta verkaskiptingu, sem var ástunduð í beinu framhaldi af daglegu lífi í sveitinni. Mamma vann síðast við að hjúkra gamla fólkinu í Hafnar- búðum og á Landakoti og tók vaktir fram yfir sjötugt. Það var unun að koma í vinnuna til henn- ar og sjá hana með skjólstæð- ingum sínum. Mér líður til dæm- is ekki úr minni að sjá hana taka utanum axlirnar á eldgamalli silfurhærðri konu, með þessum orðum: „Hún er algjör stjarna.“ Og það var hún líka, sú sem mælti þau orð. Steinunn Sigurðardóttir. Ég var heppinn að búa í sama húsi og amma Anna og afi Siggi. Afi var reglumaður og gerði hlutina eftir klukkunni. Það var því fastur liður að þegar ég var búinn í skólanum einu sinni í viku 12:05 voru afi og amma að borða hádegismatinn. Það voru yndislegar stundir. Afi kvaddi 2001 og kynntist ég honum ekkert að ráði. Ömmu kynntist ég aftur á móti vel og vorum við bestu vinir. Amma vildi allt fyrir mann gera og tók upp á því að gera það að föstum lið að útbúa fyrir mann mat þeg- ar maður kom heim úr skólan- um. Amma hafði stundatöfluna mína og bróður míns uppi á vegg í eldhúsinu og var búin að elda fyrir mig og bróður minn þegar við komum heim úr skólunum. Þegar heilsan fór að versna og sjónin með hætti hún amma að elda fyrir mann þar sem hún hafði ekki lengur getu til þess. Ég var þá orðinn svo stór að ég gat farið að elda fyrir hana í staðinn. Amma var af þeirri kyn- slóð sem þekkti ekki annað en að hafa kartöflur með flestöllum mat og þegar það gleymdist að elda kartöflur fyrir hana varð hún fúl og lét í sér heyra. Amma hafði gaman af landa- fræði og á meðan hún hafði sjón til þess að sjá á landakortið var kortabókin ekki langt undan. Amma var fróð um Ísland og sennilega fáir sem vissu jafn mikið og hún. Amma gerði sér enga grein fyrir því hversu fróð hún var og þegar maður sagði henni frá því hvað hún vissi mik- ið sagðist hún ekki vita neitt, al- veg steinhissa. Það var ótrúlegt að sitja með ömmu í bíl og ferðast um því hún vissi svo margt og gat sagt manni frá nánast öllu sem maður sá með nafni. Tíminn leið og amma fékk pláss á Hrafnistu í Laugarási. Það var erfitt að horfa upp á ömmu fara inn á elliheimili þeg- ar maður var vanur að geta farið inn til hennar, hoppað upp á skrifborðið hennar, spjallað við hana og hlustað með henni á út- varpið. Amma hlustaði mikið á útvarpið og nánast eingöngu á gömlu góðu gufuna. Hún hafði meira að segja á orði að gamla gufan væri miklu betri en sjón- varpið, það væri svo margt gott og vandað efni í útvarpinu. Mér og ömmu fannst synd að gamla gufan var ekki lengur með út- varpssögu á daginn klukkan 15:00. Amma bað mig um að hafa samband við RÚV og reyna fá þann dagskrárlið aftur en ég kom því ekki í verk, fyrirgefðu amma. Á Hrafnistu fór vel um ömmu og átti maður góðar stundir með henni sem gleymast seint. Meðal þeirra stunda var um síðastliðin jól. Ég og mamma komum til hennar á aðfangadag og hjálp- uðum henni ömmu að opna jóla- gjafirnar sem hún hafði fengið. Svipurinn á ömmu var einstak- lega eftirminnilegur þegar hún sá koma upp úr pakkanum frá mér sturtusápu sem ég gaf henni. Amma ljómaði öll, henni fannst þetta svo sniðug gjöf og spurði mig eins og hún var vön: hvernig datt þér þetta í hug? Eitt af því sem amma talaði mikið fyrir var að maður vandaði sig við allt sem maður gerði. Amma sagði ekki með berum orðum að maður ætti að vanda sig. Amma orðaði það alltaf þannig, það á gera þetta fallega en ekki illa. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér og ég kenndi þér, amma. Sigurður Einar Traustason. Þegar ég kom í heiminn var amma viðstödd fæðinguna. Og þannig var það allar götur síðan, amma var kletturinn og aldrei langt undan. Þar til ég var 16 ára bjuggum við í miklu nábýli í Gnoðarvog- inum og naut ég góðs atlætis hjá ömmu og afa. Það var ótrúleg gæfa og hafði eflaust mótandi áhrif á stelpuskottið. Litla barn- ið var baðað í bala á eldhúsborð- inu. Og ég var ekki há í loftinu þegar amma skreið með mér um öll gólf í löggu- og bófaleik. Ann- ars var amma eiginlega alltaf í eldhúsinu og á meðan aðrir borðuðu var hún á þönum að stjana við liðið. Lambalæri var í hádeginu alla sunnudaga og reyndar á jólum, páskum og af- mælum líka. Það var ekkert ver- ið að breyta út af vananum. Ný- bökuðu pönnukökurnar hennar ömmu runnu ljúflega niður með glasi af kaldri mjólk. Í uppáhaldi var þó þegar kleinur voru steikt- ar, svo maður tali ekki um súkkulaðisnúðana. Þá var hátíð í bæ. Ég fékk oft að sofa uppí og var útbúin brík svo ég myndi ekki detta framúr. Svo sagði afi mér sögur og fór með kvæði en amma fór með bænirnar. Amma hjálpaði mér líka þegar ég fékk áhuga á saumaskap og aðstoðaði mig við að sauma buxur með tígrísdýramynstri og skærgræn- ar flauelsbuxur. Amma var gædd miklum mannkostum. Ég man ekki eftir að hún hafi talað illa um nokk- urn mann og laus var hún við alla fordóma. Hún sýndi öllum áhuga og kærleik og fylgdist alltaf ótrúlega vel með öllu sem við vinkonurnar tókum okkur fyrir hendur. Ég man sem það hefði verið í gær þegar hún skellti sér á jóganámskeið og kenndi okkur vinkonunum að leika ljón, slöngu og fleiri fram- andi dýr. Hún hafði líka mikinn áhuga á hollustu og matargerð. Um margra ára skeið bjugg- um við fjölskyldan í Bandaríkj- unum. Það kom þó ekki í veg fyrir að sambandið við ömmu væri gott. Við spjölluðum saman í síma og til hennar leitaði ég til að fá ráð ef einhver í fjölskyld- unni var lasinn. Þegar við vorum í stoppi á Íslandi var fyrsti við- komustaðurinn yfirleitt hjá ömmu. Hún var þá búin að útbúa dýrindis kræsingar svo borðin svignuðu. Samverustundirnar með ömmu urðu fleiri eftir að við fluttum aftur til landsins. Fjöl- skyldan hafði stækkað og heitir dóttir mín Edda Margrét í höf- uðið á Önnu Margréti langömmu sinni. Aldursmunurinn á þeim var 94 ár en það kom ekki í veg fyrir að þær gætu skemmt sér saman. Amma hafði mikið gam- an af að fylgjast með uppátækj- unum hjá þeirri stuttu og kallaði hana „fjörmyllu“. Þær eru dýr- mætar samverustundirnar þar sem við sungum saman, lásum eða ræddum málefni líðandi stundar. Amma hafði svo góð áhrif á mann að heimsóknin jafn- aðist á við jógatíma. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Ég mun ætíð minnast ykk- ar afa með mikilli hlýju og sökn- uði í hjarta. Þú varst vön að kveðja mig með orðunum: „Guð geymi þig, elsku barn“ og að endingu bið ég góðan Guð að geyma hana ömmu mína. Hvíl í friði og knúsaðu afa frá mér. Tinna, Ólafur, Brimar og Edda Margrét. Anna Margrét Kolbeinsdóttir ✝ Ragnar Egils-son fæddist 11. apríl 1983 á Akra- nesi. Hann lést á heimili sínu 27. jan- úar 2017. Foreldrar Ragn- ars eru Anna Arn- ardóttir, f. 22. ág- úst 1959, og Egill Guðnason, f. 14. desember 1957. Systkini Ragnars eru Örn Egilsson, f. 2. mars 1980, unnusta hans er Sif Agnars- dóttir, f. 3. ágúst 1984. Börn Arn- ar frá fyrra hjónabandi eru Haf- þór Örn, Heiður Sara og Aldís Ósk. Börn Arnar og Sifjar eru Agnar Ingi og Alexandra Mjöll. Margrét Egilsdóttir, f. 23. maí 1986, maki hennar er Guðjón Birgir Tómasson, f. 11. ágúst 1982. Börn þeirra eru Vignir Gauti, Dagný Bára, Erlingur Orri, Fann- ey Alda og Jóhannes Egill. Útför Ragnars fer fram frá Akraneskirkju í dag, 3. febrúar 2017, klukkan 13. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður. Elsku Ragnar. Takk fyrir þær stundir sem við áttum saman. Takk fyrir að vera til staðar þegar á þurfti að halda. Takk fyrir að gleðja og elska börnin mín. Takk fyrir húmorinn þinn. Takk fyrir að vera þú. Ég gleðst og brosi yfir þeim minningum sem við höfum skapað í sameiningu og sem ég rifja nú upp bæði einn og með öðrum. Þegar ég hugsa um það hvað ein- kenndi þig þá er það fyrsta sem kemur í hugann gleði, hlátur, bros og sótsvarti húmorinn þinn að ógleymdri þrjóskunni sem fleytti þér svo langt og ekki síst endalaus væntumþykja þín til allra barnanna minna. Hjálpsemi og velvilji í garð annarra, alltaf varstu tilbúinn til að hjálpa öðrum og gerðir ávallt þitt allra besta til þess. Sem dæmi um einfaldleikann í þínum huga til þess að hjálpa til þá þótti þér nú ekki tiltökumál þegar ég stóð í byggingafram- kvæmdum að mæta með 150 tonna krana til þess að hjálpa að- eins til, þetta var í þínum huga jafn sjálfsagt mál og að rétta ein- hverjum vatnsglas. Húmorinn þinn sem ekki var allra og jafnvel ekki prenthæfur. Ég minnist þess að þú hikaðir ekki við að stríða lamaðri frænku þinni sem tók því vel og lét þig síð- ar heyra það eftir að þú lamaðist sjálfur eftir slysið. Þrátt fyrir áföll og vandræðagang í lífinu tókst þér ávallt að halda þínu striki og strik- ið var á hraðferð, þú lifðir hratt og prófaðir og upplifðir æði margt enda lá þér á, líf þitt var jú stutt þó þú vissir ekki neitt um það. Þú skilur eftir stórt og djúpt skarð í hjarta mínu og okkar allra, ekki síst barna minna, en þau hlökkuðu alltaf til að hitta þig því þú varst ávallt tilbúinn til að leggj- ast í gólfið með þeim hoppa, hlaupa og djöflast með þeim. Þau litu upp til þín þú varst þeim góð fyrirmynd og þau sakna þín gíf- urlega. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að verja með þér síð- asta degi þínum á lífi, það var af- skaplega góður dagur, mér kom ekki til hugar á þeim tímapunkti að hann væri þinn síðasti, þar sem við ráðgerðum m.a. reglulega fjöl- skyldumálsverði. Það verður mat- ur á sunnudaginn ef þú vilt koma, mamma verður með eitthvað gott. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Ég gleymi aldrei deginum þeg- ar við gáfum Alexöndru Mjöll nafnið sitt, þar sem hún lá í faðmi þínum við athöfnina og allan dag- inn og svaf svo vært. Þið tengdust á sérstakan hátt sem enginn ann- ar fær að gera. Þetta var fallegur dagur og mér og Sif mjög dýr- mætur. Ég kvaddi þig þennan síðasta dag með orðunum: við sjáumst, þú svaraðir að vanda: já, gerum það. Ég vildi heyra það því ég vildi vera viss um að við myndum örugglega hittast aftur. Ég kveð þig nú í hinsta sinn og með ögn virðulegri hætti. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar. Ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Ég elska þig alltaf, þinn Örn (Öddi). Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. (Bragi Valdimar Skúlason) Elsku Ragnar minn, sársauk- inn er svo mikill að orð fá því ekki lýst. Ég er samt svo þakklát fyrir að hafa fengið þessi tvö og hálfa ár aukalega með þér. Ég er þakklát fyrir að við höfum alltaf verið miklir vinir í gegnum barnæskuna og fram eftir aldri. Stundum komu stirðar stundir en þeim mátti svo gleyma. Við eigum minningar úr barnæsku sem ég reyni að ylja mér við og fram til síðasta dags. Þið bræðurnir gátuð nú stundum verið svolítið erfiðir við einu skottuna á heimilinu. En þú kenndir mér svo margt í lífinu sem erfitt er að telja upp því það er af svo mörgu að taka. Minning- arnar sem við eigum mun ég halda í og þú munt eiga stóran stað í hjarta mínu, en skarðið þar er svo stórt og djúpt. En tíminn er sagð- ur lækna öll sár. En síðustu tvö og hálft ár hafa sýnt okkur að tíminn læknar ekki öll sár en maður verður að sætta sig við það sem komið er. En ekk- ert er gefins í þessu lífi og allt er fengið að láni og við verðum að nýta það vel. Vildi bara ég gæti faðmað þig einu sinni enn. Mig, Guðjón og krakkana langaði bara að þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Takk fyrir að elska börnin okk- ar eins og þau væru þín, takk fyrir að dekstra þau, takk fyrir allt. Við vitum að þú munt passa upp á okkur. Við pössum líka að börnin muni eftir Ragga frænda. Kveðjustund- ir eru alltaf erfiðar og mig langar ekki að kveðja en ég verð. Ég kveð þig því með ekka og tárum en samt sem áður með þakklæti. Veit þú tekur á móti mér þegar minn tími kemur. Elska þig. Þín litla systir, Margrét. Er það ekki undri líkt yndi mitt er fullt af þökk. Lífið er af litum ríkt lítil sál á jörðu klökk. Mesta sköpun meistarans í morgun hafði í fangi mér. Vær og lítil vera manns veldur svona gleði hér. Skapaður í mannsins mynd mikið er hann fagur. Guð gefi að hans gæfulind verði gullinn dagur. (Brynja Einarsdóttir) Þetta fallega ljóð samdi Brynja þegar hún upplifði fæðingu Ragn- ars í gegnum ömmu hans og afa og þykir mér við hæfi að kveðja Ragnar með þessum ljúfu orðum. Ragnar hefur yfirgefið sviðið, dregið fyrir og slökkt á eftir sér. Hann skilur eftir sig mikið af fal- legum minningum sem verður gott að gleyma sér í þegar hug- urinn fer að róast. Núna er ég bara döpur yfir örlögum Ragnars og ætla að leyfa mér að sakna og syrgja. En á morgun kemur nýr dagur með ný tækifæri og áskor- anir og ég mun verða tilbúin til að takast á við þær með æðruleysi sem hann Ragnar sýndi mér. Takk fyrir allar stundirnar, elsku hjartans vinurinn minn, takk fyrir að kenna okkur að halda áfram og styðja hvert annað og elska betur. Takk fyrir nýja sýn á lífið. Og þú manst, ég elska þig. Helga frænka. Ragnar Egilsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNNAR DÓRÓTHEU HARALDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunar- heimilisins Ísafoldar fyrir frábæra umönnun og hlýju. Dúfa Sylvía Einarsdóttir Guðmundur Ragnarsson Anna Sigríður Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.