Morgunblaðið - 03.02.2017, Page 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er mjög mikilvægt að þú hagir
þér siðferðislega rétt í öllum viðskiptum við
fólk og að þú sért viss um að það komi
fram við þig af sömu virðingu. Að hika er
sama og að tapa.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér líður eins og þú hafir orðið undir
valtara en átt nú samt erfitt með að sjá
hvað olli því. Hugmyndafræði þín gerir þig
blindan gagnvart vandamálum og erf-
iðleikum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert yndislega opinn þar sem þú
hefur ekki enn ákveðið hver þú átt að vera í
nýrri stöðu. En til eru þeir dagar þar sem þú
skalt fara varlega í hlutina.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Kannski hefur fiskurinn gengið of
langt á of skömmum tíma. Gættu þess bara
að leggjast ekki á sveif með öðrum að-
ilanum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú gætir þurft að annast einhvern ann-
an eða láta þínar þarfir mæta afgangi vegna
þess að einhver þarf á hjálp þinni að halda.
Hvernig væri að byrja á nýju? Þú þrífst á
þessu hvort eð er.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er góður dagur til viðskipta en
þið ættuð þó að gæta þess að ofmeta ekki
hæfni ykkar. Treystu á ræðusnilld þína.
Vertu meistari.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þetta er hentugur tími til að ganga frá
lausum endum og ljúka hálfkláruðum vek-
um. Minntu þig á tilganginn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Náinn vinur reynist kaldrifjaðri
en þú hefur nokkurn tímann getað gert þér í
hugarlund. Truflanir og tafir á samgöngum
og í tjáskiptum hafa gert þér lífið leitt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú gerir miklar kröfur til sjálfs
þín og annarra og setur sjálfum þér oft
ströng skilyrði. Allt sem tengist peningum
og vinnu er hagstætt í dag.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er ekki góður tími til þess að
leggjast í djúpar pælingar með fjölskyldu-
meðlim, maka eða einhverjum sem verður á
vegi þínum. Veltu því fyrir þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ættir að staldra við og gefa
þér tíma til þess að vega líf þitt og meta. En
þú ert hátt yfir það hafinn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Komdu smá fjöri í félagslíf þitt. Hug-
myndirnar hreinlega flæða fram og komdu
þeim strax á framfæri.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fíaá Sandi, hefur ráð undir rifi
hverju. Hún yrkir á Boðnarmiði:
Í fyrradag ég fór að hátta
fúl yfir útlitsgöllunum.
Jólagrömmin, eitt og átta,
ennþá sitja á stöllunum.
Ákvað svo að sættast og
mér sjálfri lofa ráðum.
Ég ætla að kaupa aðra vog
og annan spegil – bráðum.
Hér leikur Hólmfríður sér að
gömlum vísum og hendingum sem
eru á allra vörum:
Allt fram streymir endalaust
elda ég ket og fiskinn.
Vetur sumar vor og haust
og vaska upp sama diskinn.
Einu sinni átti ég hest
undan honum Skjóna.
Það var sem mér þótti verst
þegar hann fór að prjóna.
Einu sinni átti ég hest
og um hann frægðardrauma.
Það var sem mér þótti verst
þegar hann fór að sauma.
Pétur Húni , – undir sínu lagi:
Einu sinni átti ég hest
en það var sem mér þótti verst
þegar afi skjóttann
og dauðinn kom og sóttann.
Jakob Ó. Pétursson og vinir hans
léku sér oft í þvílíkum vísnaleik. Því
miður man ég ekki nema eina vísu.
Það var um verslunarmannahelgi:
„Ó, Jesús bróðir besti“
sem býrð í Ferðanesti
æ láttu ljós þitt skína
á litlu dóttur mína.
Bjarni úrsmiður frá Gröf orti:
Best er að hætta hverjum leik
þá hæst ’ann stendur.
Ég held ég vildi heldur deyja
en heyra konur þetta segja.
Hér prjónar hann framan við:
Kysstu aldrei mann á munninn
marga tælir náttúran.
Það er of seint að byrgja brunninn
ef barnið er dottið oní hann.
Þessar afhendingar Jósefínu Meu-
lengracht Dietrich á Boðnarmiði
láta lítið yfir sér:
Tilskipanir Trump nú skrifar tugum saman.
Ofsalega er það gaman
Í ljúfum draumi að látast eiga lönd og álfur
algerlega einn og sjálfur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Leikið með gamlar
vísur og hendingar
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skrifa nýjan
kafla af ævisögunni
ykkar saman.
JÆJA, ELLEN, HVER ER MÖGU-
LEIKINN Á AÐ ÞÚ KÍKIR Á
STEFNUMÓT MEÐ MÉR? SKELL!
ÉG HEYRÐI
DYR SKELLAST
JÁ JÁ!
ÉG ER ENN AÐ
SKRIFA ÆVI-
SÖGUNA ÞÍNA!
„EKKERT GPS EN HANN ER MEÐ SSE-KERFI –
STOPPAÐU OG SPYRÐU EINHVERN.“
„HANN FÆR MIG TIL ÞESS AÐ
HREYFA MIG AÐEINS.“
ERTU MEÐ LISTA AF
HELSTU AFREKUM
ÞÍNUM?
ÞETTA ER
ÍTARLEGUR LISTI!
ÉG MYNDI
SEGJA AÐ ÞAÐ
HAFI VERIÐ
MÖGULEIKINN
ÞINN AÐ FARA
ÚT
EFTIRLÝSTUR
HRÓLFUR
Gaman hefur verið að fylgjast meðuppgangi Gylfa Þórs Sigurðs-
sonar með Swansea undanfarið.
Ekki þarf að fjölyrða um hæfileika
Gylfa og þar við bætist að hann er
óbilandi dugnaðarforkur. Lið hans,
Swansea, hefur verið í basli mestalla
leiktíðina og er aðeins tveimur stig-
um frá fallsæti. Gylfi hefur ekki látið
neinn bilbug á sér finna þrátt fyrir
það og liðið virðist nú vera að upp-
skera. Sigrar hafa unnist í tveimur
síðustu deildarleikjum og skoraði
Gylfi Sigurmarkið í þeim báðum.
Fyrri sigurinn var á móti Liverpool,
sem hefur verið á mikilli siglingu í
enska boltanum, en varð að lúta í
lægra haldi fyrir Gylfa og félögum.
x x x
Kunningi Víkverja fór til Englandsað sjá viðureign Liverpool og
Swansea. Hann er mikill aðdáandi
Liverpool og sagði fyrir leikinn að
ferðin yrði fullkomnuð fengi hann að
sjá Gylfa skora og Liverpool sigra.
Aðeins fyrri óskin rættist.
x x x
Frammistaða Gylfa er svo sannar-lega farin að vekja athygli á
Bretlandi. Eins og fram kom á
mbl.is í gær tilnefndi netmiðillinn
Whoscored.com Gylfa leikmann um-
ferðarinnar. Blaðamaður blaðsins
Guardian hrósaði Gylfa einnig í há-
stert, gat þess að hann hefði átt þátt
í 14 mörkum liðsins, skorað sjö og
lagt upp sjö, og bætti við „ … líf án
hans er óhugsandi fyrir Swansea“.
x x x
Fyndnasta frétt vikunnar birtist ámbl.is í fyrradag: „Helsta áskor-
un Neyðarlínunnar þegar erlendir
ferðamenn hringja í hana er að stað-
setja vettvang. Greint er frá nýlegu
atviki á Facebook-síðu Neyðarlín-
unnar þar sem umferðaróhapp varð
á Suðurlandi og erlendur ferðamað-
ur reyndi að gefa upp hvar það varð.
Starfsmaður Neyðarlínunnar spurði
manninn hvort hann vissi hvar hann
væri og stóð ekki á svari. Segir í
Facebook-færslu að ferðamaðurinn
hafi sagt sigri hrósandi að hann vissi
nákvæmlega hvar hann væri. „Ég sé
brú og ég stend við hliðina á skilti
þar sem segir G-O-D-A-F-E-R-D.““
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um
mig mun frelsast og hann mun ganga
inn og út og finna haga.
(Jóh. 10:9)
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
* Til að DHA skili jákvæðum áhrifum
þarf að neyta 250 mg á dag.
OMEGA-3
FYRIR SJÓN
OG AUGU
Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi
sem er einkumætlað að viðhalda
eðlilegri sjón.
Omega-3 augu inniheldur lútein,
zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt
omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og
ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla
að viðhaldi eðlilegrar sjónar.
Fæst í öllum helstu apótekum landsins.