Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 38

Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Myndlistartvíæringurinn í Fen- eyjum hefst 13. maí og eins og greint hefur verið frá verða tröll fulltrúar fulltrúa Íslands að þessu sinni, Egils Sæbjörnssonar. Tröll sem borða ferðamenn og hafa lært að drekka espressó og sitja á kaffi- húsum eins og alvöru listamenn. Nú hefur Kynningarmiðstöð ís- lenskrar myndlistar, KÍM, sent frá sér tilkynningu þar sem frekara ljósi er varpað á hvað tröllin ætla að gera í Feneyjum. Tröllin heita Ûgh og Bõögâr og verkið mun bera titilinn „Out of Controll“. Eins og sjá má er orðaleikur fólginn í titl- inum þar sem „troll“ er enska orðið yfir tröll. Titillinn felur í sér ein- hvers konar stjórnleysi, eða það skyldi maður halda, og í tilkynning- unni er mörgum spurningum varp- að fram, t.d. hver sé við stjórnvöl- inn, hver stýri gjörðum okkar, hugsunum, ímyndunaraflinu og hver sé að misnota hvern eða hvað. „Titillinn er mjög opinn, hann getur þýtt allan andskotann. Ég veit ekki nákvæmlega hvað er að fara að gerast þarna því tröllin eru involveruð,“ segir Egill, spurður út í titilinn. En er pólitísk ádeila fólgin í verkinu? „Ja, sko, þegar maður fer að spá í það, hver stjórnar hug- myndum okkar og löngunum og öðru þá er það náttúrlega bara heimspekileg spurning sem má svo heimfæra upp á pólitík. Þegar við erum í skóla lærum við af skóla- félögunum hvað sé sniðugt og áhugavert og kannski af foreldrum, bíómyndum o.fl. Hugmyndir flakka á milli okkar manneskjanna og við tökum þær upp. Við tveir erum t.d. núna að tala tungumál sem við bjuggum ekki einu sinni til.“ Inni í tröllahausum Egill segir ekkert konsept á bak við verkið í Feneyjum. „Það er bara einhver vera sem síðan kastar af sér spurningum og svörin koma í samræðum milli fólks,“ segir hann. Hvað tæknilegu útfærsluna varð- ar segir Egill að hann verði með vídeóvarpanir og að tveir risastórir tröllahausar verði eins og kaffihús. Fólk muni sitja inni í þessum haus- um og hlusta á tröllin tala saman. Þrír kvikarar (e. animators) eru að vinna að verkinu, að sögn Egils, auk arkitekts, smiða o.fl. „Það er fullt af fólki sem kemur að þessu,“ segir Egill en verkið verður á eyju sem nefnist Giudecca. Þess má geta að hluti af verkinu er myndskreytt bók sem Egill er enn að vinna í. Í henni er rakin sag- an af því hvernig hann hitti tröllin og hvernig það atvikaðist að hann fól þeim að sjá um verkið í Feneyj- um. Bókin er ekki fullkláruð en þær síður sem komnar eru má finna á slóðinni icelandicartcenter.is/- wp-content/uploads/2017/01/ UghandBoogar1.pdf. helgisnaer@mbl.is Birt með leyfi listamannsins og i8 gallerís Tröllaverk Egill og tröllin sem tóku af honum völd, Ûgh og Bõögâr. Ûgh og Bõögâr fara til Feneyja  Tröllin hans Egils taka á sig mynd Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Vísindasýning Villa, ný leiksýning eftir Vilhelm Anton Jónsson/ Vísinda-Villa, Völu Kristínu Eiríks- dóttur og Vigni Rafn Valþórsson, verður frumsýnd á Litla sviði Borg- arleikhússins á morgun kl. 13. Villi og Vala leika í verkinu en Vignir leikstýrir því. Vísinda-Villi er íslenskum börnum að góðu kunnur, bæði úr sjónvarpi og af bókum sem hann hefur gefið út og fjalla um töfraheim vísindanna og spennandi tilraunir og á vef leik- hússins segir að nú stígi hann á svið Borgarleikhússins í fyrsta sinn og fari með áhorfendur í æsispennandi ferðalag um heim vísindanna, með aðstoð Völu sem hafi ráð undir rifi hverju. En hvers konar ferðalag skyldi það nú vera? „Sýningin er þannig að Villi er með vísindasýningu og svo kemur Vala Kristín leikkona, sem leikur sjálfa sig og heitir bara Vala, og fer að hjálpa Villa, gera tilraun- irnar flottari með því að nota töfra leikhússins; ljósin, hljóðin og allt sem hægt er að gera. Þetta er nefni- lega orðið alveg svakalegt „show“, miklu meira en ég hélt að það yrði,“ svarar Villi. -Þetta er þá um leið kynning á leikhúsinu og töfrum þess? „Já, í rauninni, að sjá þessar til- raunir, hvað vísindin eru ótrúlega spennandi og verða ennþá meira spennandi ef við notum töfra leik- hússins. Töfrar vísindanna mæta töfrum leikhússins og úr verður svaka kabúmm!“ Svalasta hljóðfærið -Þú ert líka þekktur sem tónlistar- maðurinn Villi naglbítur og mér skilst að þú verðir með Fender- rafmagnsgítarinn þinn í sýningunni. Er tónlist mikilvægur hluti af henni? „Já, það er mikil tónlist í sýning- unni en lítið um lifandi tónlist. Tón- listin er mikið notuð til að ýkja áhrif,“ útskýrir Villi. Sýningin byrj- ar hins vegar á því að Villi gengur inn á svið og útskýrir fyrir krökk- unum af hverju rafmagnsgítarinn er svalasta hljóðfæri í heimi. „Það er gríðarlega mikilvægt að krakkarnir fari út í lífið með þá vitneskju,“ segir Villi kíminn. Sjálfstætt verk Villi er búinn að gefa út fjórar vís- indabækur og sú fyrsta er auk þess komin út í Bandaríkjunum í enskri þýðingu og ber titilinn The Super Book of Science. Hann segir sýn- inguna þó ekki byggða á bókunum, hún sé alveg sjálfstætt verk þó í henni megi sjá tilraunir sem komi við sögu í bókunum. „Áherslan er lögð á vísindi og list- ir, hvað það er gaman að vera hissa og dýrmætt að vera forvitinn, að leyfa sér að hrífast sem er svo mik- ilvægt. Það er svo sorglegt að fara í gegnum lífið án þess að vera forvit- inn. Þá er maður að missa af svo miklu,“ segir Villi. -Varstu forvitið barn, alltaf að sprengja eitthvað í loft upp heima hjá þér? „Já, gríðarlega. Ég skrúfaði hluti í sundur og ég man sérstaklega eftir því þegar ég tengdi saman einhverja víra og stakk þeim í samband. Ég var að reyna að kveikja á ljósaperu og sló rafmagnið út í öllu raðhúsinu,“ segir Villi og hlær. Brunavarnarkerfið í gang -Talandi um það, sprengingar og læti, þurftuð þið leyfi frá bruna- varnaeftirliti eða annars konar eft- irliti fyrir einhverjum tilraunanna í sýningunni? „Nei. Við erum búin að setja brunavarnarkerfið nokkrum sinnum í gang í húsinu, það var alveg óvart. Maður veit að maður er að gera eitt- hvað gott ef það fer í gang,“ segir Villi kíminn og ítrekar að engin hætta sé á ferðum, leikhúsgestir hafi ekkert að óttast. „Við förum varlega þegar við erum að blanda saman efnum. Þetta er mjög spennandi, myndi ég segja, stærra og flottara en ég þorði nokkurn tíma að vona. Allir sem koma að sýningunni eru svo spenntir fyrir henni og það er búið að vera ótrúlega skemmtilegt að vinna með öllum í leikhúsinu.“ Forvitnin er dýrmæt  Vísinda-Villi í fyrsta sinn á sviði Borgarleikhússins  Töfrar vísindanna mæta töfrum leikhússins Ljósmynd/Grímur Bjarnason Spennandi Villi og Vala á æfingu á Vísindasýningu Villa. Hljómsveitin Sigur Rós hefur til- kynnt rúmlega mánaðarlanga Evróputónleikaferð sem hefst með tónleikum í Manchester 16. september og lýkur í Zürich 18. október. Yfirskrift ferðarinnar er „An evening with Sigur Rós“, þ.e. Kvöldstund með Sigur Rós og mun hljómsveitin leika í völdum tónleikahúsum víðs vegar um Evrópu og í fyrsta sinn í um ára- tug sem tríó, að því er fram kem- ur í tilkynningu, en sveitina skipa þeir Jón Þór Birgisson, Georg Hólm og Orri Dýrason. Þá er þetta fyrsta Evrópuferð hljóm- sveitarinnar án upphitunar- sveitar, áherslan lögð á lengri, tvískipta tónleika með hléi. Í tilkynningunni segir að hljóm- sveitin muni leika mörg af vinsæl- ustu lögum sínum sem og ný lög sem verði á væntanlegri hljóð- versplötu hennar, þeirri áttundu sem hún sendir frá sér frá því hún var stofnuð árið 1994. Kári Sturluson, talsmaður sveitarinnar hér á landi, segist ekki geta staðfest hvort hljóm- sveitin muni halda tónleika á Ís- landi að lokinni Evrópuferðinni en segir það þó ekki útilokað. Málið sé í vinnslu. Hvað tónleika Evrópuferð- arinnar varðar segir Kári að um- gjörðin verði glæsileg sem fyrr og mikið lagt í grafík og mynd- bönd að vanda, með eldra efni í bland við nýtt. helgisnaer@mbl.is Kvöldstund Sigur Rós heldur í haust í tónleikaferð um nokkur Evrópulönd og er miðasala á tónleikana hafin á vef hennar, sigur-ros.co.uk. Evróputónleikaferð og áttunda hljóðversplatan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.