Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Einbeitingin skein úr rauðum augum toppand-
arkollunnar sem veiddi sér smáfisk til matar rétt
utan Grafarvogs. Það krefst bæði æfingar og út-
sjónarsemi að hemja fiskinn sem reynir að
sleppa úr löngum og mjóum goggnum. Hann er
búinn þyrnitönnum sem auðvelda toppöndinni að
ná taki á bráðinni sem getur verið mjög hál við-
komu.
Toppöndin er talin afburðagóður kafari. Sést
hún stundum veiða í hópum og á það til að
hrekja bráð sína á undan sér og inn á grynn-
ingar.
Kærkomin máltíð sem þó þarf að hafa töluvert fyrir að hemja
Morgunblaðið/Bogi Þór Arason
Toppandarkolla seður sárasta hungrið
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Það kemur til greina að félagið segi
sig úr ASÍ í kjölfar þessa máls. Við úti-
lokum ekkert að svo stöddu,“ segir
Einar Hannes Harðarson, formaður
Sjómanna- og vél-
stjórafélags
Grindavíkur
(SVG), en á mið-
stjórnarfundi ASÍ
þann 15. mars sl.
hafnaði miðstjórn
því einróma að
veita SVG styrk
upp á ríflega 62,1
milljón úr Vinnu-
deilusjóði ASÍ.
„Eins og gefur að skilja gekk hratt á
fjármuni verkfallssjóðs SVG í þessu
lengsta sjómannaverkfalli Íslandssög-
unnar sem lauk þann 19. febrúar. Þar
sem verkfallið dróst á langinn varð
verkfallssjóður okkur á endanum upp-
urinn og við þurftum að leita á náðir
ASÍ með formlegri umsókn um
greiðslu úr Vinnudeilusjóði ASÍ,“ seg-
ir Einar og bendir á að ASÍ hafi hvorki
verið tilbúið að greiða úr sjóðnum þá
fjárhæð sem SVG óskaði eftir né veita
sjómönnum minni styrk úr sjóðnum.
„Afstaða ASÍ byggist alfarið á
reglum um sjóðinn sem settar voru
eftir að umsókn SVG var lögð fram.
Það er ótækt að beita slíkum reglum
afturvirkt.“
Upphæðin er heldur ekki slík að
sjóður ASÍ ráði ekki við hana en að
sögn Einars eru um 360 milljónir í
Vinnudeilusjóði ASÍ.
Ekki sameiginlegir hagsmunir
Í rökstuðningi miðstjórnar ASÍ seg-
ir að við skoðun á því hvort umsókn
SVG falli að reglum sem um Vinnu-
deilusjóð ASÍ gilda beri að hafa í huga
megintilgang sjóðsins, þ.e. að styrkja
stöðu hreyfingarinnar í átökum við at-
vinnurekendur vegna stórra sameig-
inlegra hagsmuna allra aðildarsam-
takanna. Deila SVG við útgerðarmenn
var ekki af þessum toga að mati mið-
stjórnar sambandsins.
Valmundur Valmundsson, formað-
ur Sjómannasambands Íslands, segir
meira hafa komið til, höfnun ASÍ hafi
einnig grundvallast á því að SVG hafi
ekki nýtt eigin tekjustofna til fulls.
Valmundur situr í miðstjórn ASÍ fyrir
hönd Sjómannasambandsins.
„Í þessu máli þurfti ég að sitja hjá
en auk þess skiptir Sjómannasam-
bandið sér ekki af fjármálum ein-
stakra aðildarfélaga,“ segir Valmund-
ur og vísar til afgreiðslu miðstjórnar
til frekari skýringar á niðurstöðu ASÍ
en þar segir að SVG hafi ekki sinnt
þeirri skyldu sinni að efla fjárhagsleg-
an styrk sinn til þess að geta staðið að
baki sínum félagsmönnum í erfiðri
deilu, sem þó mátti gera ráð fyrir að
myndi bresta á í ljósi djúpstæðs
ágreinings við SFS. Það geti ekki ver-
ið hlutverk sameiginlegra sjóða aðild-
arsamtaka ASÍ að taka þetta grund-
vallarhlutverk aðildarfélaganna að sér
á sama tíma og viðkomandi félag nýti
ekki eigin tekjustofna til þess verkefn-
is.
SVG íhugar úrsögn úr ASÍ
ASÍ synjar Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur um rúmlega 62 milljóna
styrk úr Vinnudeilusjóði Beita nýjum reglum afturvirkt segir formaður SVG
Einar Hannes
Harðarson
Morgunblaðið/Þórður
Peningar ASÍ segir SVG ekki hafa
nýtt eigin tekjustofna nægilega vel.
Þorsteinn Már Baldvinsson og
Kristján V. Vilhelmsson hjá Sam-
herja sendu frá sér harðorða yf-
irlýsingu í gær vegna viðtals í þætt-
inum Eyjan á ÍNN við Má
Guðmundsson seðlabankastjóra.
Þar segir að Már hafi ítrekað borið
á borð fyrir fjölmiðla og dómstóla
rangar upplýsingar til að breiða yf-
ir eigin gjörðir og hafi enn og aftur
sagt ósatt og varpað eigin ábyrgð á
aðra í viðtali þáttarins sl. fimmtu-
dag.
„Þrátt fyrir að bankaráð Seðla-
bankans hafi með alvarlegum hætti
sett sérstaklega ofan í við seðla-
bankastjóra fyrir að tjá sig opin-
berlega um einstaka mál og aðila
heldur hann uppteknum hætti,“
segir í yfirlýsingunni.
Spurður um mál Samherja segist
Már í viðtalinu ekki geta talað um
einstök mál en segir síðan að það
sé fullt af svona málum og svo fari
þau ekki alla leið. Það sé annarra
að taka ákvörðun um það.
Í yfirlýsingu Þorsteins og Krist-
jáns segir að hvað sem líði orðum
Más hafi það verið hans ákvörðun
að fara í húsleit, halda blaðamanna-
fund og kæra málið til lögreglu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Viðtal Samherjamenn senda frá sér
yfirlýsingu vegna viðtals við Má.
Hörð
gagnrýni
Samherja
Saka seðlabanka-
stjóra um ósannindi
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Við erum að undirbúa ársfundinn og
ekki hefur gefist tími til að skoða
þetta mál, það er bara svo margt ann-
að að gera,“ segir Stefán Jóhann Stef-
ánsson, ritstjóri á skrifstofu banka-
stjóra Seðlabanka Íslands, spurður
um viðbrögð við frétt Morgunblaðsins
síðan á föstudag um áhyggjur banka-
ráðs Seðlabanka Íslands af þátttöku
Más Guðmundssonar seðlabanka-
stjóra í opinberri umræðu um einstök
mál sem bankinn er með í vinnslu.
Bankaráð krafðist
þess með bókun í
fyrra að seðla-
bankastjóri léti af
slíkri umræðu.
Bókun bankaráðs-
ins var gerð þrem-
ur dögum eftir að
seðlabankastjór-
inn mætti í ítar-
legt viðtal á Eyj-
unni þar sem hann
ræddi m.a. gjaldeyriseftirlit Seðla-
bankans og rannsóknir tengdar því,
m.a. gegn Samherja en aðalmeðferð í
ógildingarmáli Samherja gegn Seðla-
bankanum fór fram sl. fimmtudag. Að
kvöldi sama dags og aðalmeðferðin
fór fram mætti Már Guðmundsson í
viðtal í sama þætti, Eyjunni á ÍNN,
og ræddi málefni sem tengjast bank-
anum.
Ekki hefur náðst í Má sjálfan vegna
málsins og þá vill formaður bankaráðs
SÍ, Þórunn Guðmundsdóttir hæsta-
réttarlögmaður, ekki tjá sig um málið.
„Ég get lítið annað sagt en hið
klassíska „no comment“. Þetta er mál
sem ég mun ekki tjá mig um,“ sagði
Þórunn, spurð um málið.
Seðlabankinn þögull
Seðlabankastjóri fer gegn bókun bankaráðs Formaður
bankaráðs tjáir sig ekki og ekki næst í seðlabankastjóra
Már
Guðmundsson
Frá hádegi í gær voru bókuð um 50
mál hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu. Var m.a. tilkynnt um ölv-
aðan mann á Austurvelli. Hafði hann
verið að angra gesti og gangandi
með ölvunarlátum og ofbeldisfullum
tilburðum og meðal annars slegið til
aldraðs manns en árásarþoli var far-
inn af vettvangi þegar lögreglu bar
að. Jafnframt hafði hinn tilkynnti
maður hrifsað póstsendingu úr
höndum annars vegfaranda, sem
hafði nýverið sótt pakka á pósthús,
og opnað póstsendinguna og stungið
innihaldi hennar í úlpuvasa sinn.
Hafði réttmætur eigandi póstsend-
ingarinnar þó náð að endurheimta
hana úr vörslu hins tilkynnta áður
en lögreglu bar að. Var maðurinn í
kjölfarið handtekinn og vistaður í
fangageymslu þar til hann verður
viðræðuhæfur.
Ölvun og óspektir
á Austurvelli
Í gær voru afhjúpuð sjö söguskilti
sem sett hafa verið upp við merkar
herminjar í Öskjuhlíð og Nauthóls-
vík. Skiltin eru samstarfsverkefni
Isavia og Reykjavíkurborgar en
Friðþór Eydal, starfsmaður Isavia,
vann texta og safnaði efni. Friðþór
hefur ritað fjölda bóka um hersetu á
Íslandi og er einn af helstu sérfræð-
ingum landsins um þau umsvif. Ljós-
myndir á skiltunum sýna hvernig um-
horfs var á svæðinu í seinni
heimsstyrjöldinni og skýringartextar
lýsa hlutverki mannvirkja sem eftir
standa, svo sem Reykjavíkur-
flugvallar og tengdra minja í Öskju-
hlíð og Nauthólsvík. Skiltin eru mörg
hver steinsnar frá fjölförnum göngu-
stígum í Öskjuhlíð og nýtast því vel
því fólki sem nýtur útivistar í Öskju-
hlíð á degi hverjum. Sighvatur Hall-
dórsson, grafískur hönnuður hjá aug-
lýsingastofunni Hvíta húsinu,
annaðist grafíska uppsetningu á skilt-
unum en undirstöðurnar eru hann-
aðar af Árna Tryggvasyni.
Ný söguskilti
um herminjar
Minjar Enn standa mannvirki frá
tímum hersetunnar í Reykjavík.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi