Morgunblaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 28. mars 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 109.52 110.04 109.78 Sterlingspund 137.9 138.58 138.24 Kanadadalur 82.02 82.5 82.26 Dönsk króna 15.988 16.082 16.035 Norsk króna 12.936 13.012 12.974 Sænsk króna 12.468 12.542 12.505 Svissn. franki 111.14 111.76 111.45 Japanskt jen 0.9919 0.9977 0.9948 SDR 149.6 150.5 150.05 Evra 118.97 119.63 119.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.4067 Hrávöruverð Gull 1256.9 ($/únsa) Ál 1917.0 ($/tonn) LME Hráolía 50.64 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Landsvirkjun og Félag íslenskra fiskmjölsframleið- enda (FÍF) hafa undirritað vilja- yfirlýsingu sem hefur það markmið að gera fiskmjöls- framleiðslu um- hverfisvænni með því ýta undir notk- un rafmagns við vinnsluna. Fiskmjölsframleiðendur hafa á undanförnum árum notast bæði við olíu og rafmagn í framleiðslu sinni, en þeir hafa keypt skerðanlegt rafmagn af raforkusölum sem Landsvirkjun hefur selt á heildsölumarkaði. Landsvirkjun hyggst á næstu árum stuðla eins og hægt er að auknu fram- boði á skerðanlegu rafmagni á heild- sölumarkaði. Á móti hyggst FÍF stuðla að því að félagsmenn noti endurnýjan- lega orkugjafa í stað annarra sem menga meira. Auka rafmagnsnotkun við mjölframleiðslu Hörður Arnarson STUTT BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Frá áramótum hefur hlutur er- lendra fjárfesta í íslenskum hluta- bréfum sem skráð eru í Kauphöll vaxið um 17 milljarða króna, sam- kvæmt gögnum sem Kauphöllin hefur tekið saman. Til samanburðar er markaðsvirði Fjarskipta, eða Vodafone, um 16 milljarðar króna. Hefur hlutfallið vaxið úr 2,5% í 4,2% af hlutabréfamarkaðnum á innan við þremur mánuðum. Í árs- lok 2015 var hlutfallið 1,3%. Litið er til umfangs erlendra fjárfesta án stórra kjölfestuhluthafa í Eimskip og Iceland Seafood og safnreikn- ings Össurar, sem skráður er í Dan- mörku. Horft er fram hjá téðum hluthöfum til að fá skýrari mynd af nýjum erlendum fjárfestingum. „Það er að komast töluverð hreyf- ing á erlenda fjárfestingu í hluta- bréfum,“ segir Páll Harðarson, for- stjóri Kauphallar Íslands. Hann rekur aukin umsvif erlendra fjár- festa hér á landi til þess að höft voru rýmkuð í tveimur skrefum um áramót og hinn 14. mars. Hann vek- ur athygli á að þær aðgerðir hafi verið á þá leið að leyfa aukið gjald- eyrisútflæði frá landinu en að fjár- festar hafi tekið því sem merki um að hér séu hlutirnir að færast í eðli- legt horf. Íslenskir bankar og fjár- málastofnanir hafa sömuleiðis kynnt Ísland sem fjárfestingarkost sem hafi skilað sér en með töf. Fjárfest fyrir 40 milljarða Fjölmiðlar hafa fjallað um það að undanförnu að erlendir fjárfestar séu að fjárfesta í ríkari mæli á ís- lenskum hlutabréfamarkaði. Ef litið er framhjá fyrrnefndum erlendu kjölfestuhluthöfum nam erlend fjár- festing samtals um 40 milljörðum króna hinn 22. mars. Til saman- burðar er markaðsvirði fasteigna- félagsins Eikar 41 milljarður króna. Í árslok 2015 nam samsvarandi fjár- hæð 12-13 milljörðum króna. Til samanburðar er Skeljungur metinn á 13 milljarða króna á markaði. Eaton kemur víða við Sá erlendi fjárfestir sem fjárfest hefur hvað víðast á markaði frá árinu 2015 er bandaríska eignastýr- ingafyrirtækið Eaton Vance Ma- nagement. Sjóðir á vegum fyrirtæk- isins eru á meðal 20 stærstu hluthafa í átta fyrirtækjum í Kaup- höllinni, auk þess sem fram hefur komið í fjölmiðlum að sjóðir á veg- um fyrirtækisins eigi umtalsverðan hlut í fleiri skráðum fyrirtækjum án þess að koma fram á opinberum hluthafalistum. Fram kom í Morgunblaðinu á sunnudaginn að sjóður á vegum breska eignastýringafyrirtækisins Miton hafi nýlega keypt í þremur ís- lenskum fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll fyrir um 1,6 millj- arða króna miðað við núverandi markaðsgengi. Um er að ræða Sím- ann og tryggingafélögin Sjóvá og VÍS. Hlutur erlendra fjárfesta vaxið um 17 milljarða Morgunblaðið/Þórður Hlutabréf Erlendir fjárfestar fjárfesta í ríkari mæli á íslenskum markaði, samkvæmt tölum Kauphallar. Erlendir fjárfestar » Sjóðir í stýringu hjá hinu bandaríska Eaton Vance eru á lista yfir 20 stærstu hluthafa í átta fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll. » Sjóður á vegum hins breska Miton keypti nýlega í þremur íslenskum fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll fyrir um 1,6 milljarða króna » Sjóður Wellington á í N1 fyrir um einn milljarð króna.  Frá áramótum hefur hlutur erlendra fjárfesta á markaði vaxið í 4,2% úr 2,5% Kjartan Bjarni Björgvinsson, for- maður rannsóknarnefndar Alþingis um þátttöku þýska bankans Hauck & Aufhäuser Privatbankiers í kaupum á eignarhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands, segir í samtali við Morgun- blaðið að sér þyki það að vissu leyti ekki heppilegt ef aðrir en nefndin hafi afhent einstökum fjölmiðlum bréf frá nefndinni, eins og raunin virðist vera. Í Fréttablaðinu í gær var vitnað í bréf sem rannsóknarnefndin sendi ein- staklingum sem höfðu aðkomu að kaupunum. Þar mun þeim vera bent á að gögn rannsóknarnefndarinnar bendi til þess að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser hafi í raun ekki borið neina áhættu af þátttöku sinni í kaup- um S-hópsins svokallaða á 45,8% hlut ríkisins í Búnaðarbankanum árið 2003. Í yfirlýsingu sem kaupandi Búnað- arbankans á sínum tíma, Egla hf., sendi frá sér vegna ummæla Vil- hjálms Bjarnasonar, þá aðjúnkts í Háskóla Íslands, í Morgunblaðinu í júní 2005 segir að „vangaveltur um að Hauck & Aufhäuser hafi ekki tekið fullan þátt í kaupunum á kjölfestuhlut í Búnaðarbanka Íslands hf., í gegnum kaup sín í Eglu hf., eiga ekki við nein rök að styðjast og sætir undrum að kennari við jafn virta stofnun og við- skipta- og hagfræðideild Háskóla Ís- lands, skuli láta hafa slíkar órök- studdar dylgjur eftir sér í fjölmiðlum.“ Þá sagði í yfirlýsingu frá Hauck & Aufhäuser af sama tilefni: „Okkur þykir miður að efasemdir skuli hafa vaknað um heilindi okkar í þessu máli og að nafn bankans skuli dragast með neikvæðum hætti inn í umræðu um einkavæðingu á Íslandi.“ Kjartan segir að rannsóknarnefnd- in muni ekki birta neinar niðurstöður fyrr en á miðvikudaginn. Morgunblaðið/Jim Smart Einkavæðing Búnaðarbanki Íslands var seldur af ríkinu árið 2003. Virðist hafa verið tryggt skaðleysi  Rannsóknar- nefnd birtir niður- stöður á miðvikudag hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177 Eigum úrval af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.