Morgunblaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 Músíktilraunir 2017 Undankeppni Músíktilrauna lýkur í kvöld en þá stíga síðustu átta hljómsveitirnar á svið og keppa um sæti í úr- slitum. Áheyrendur hafa þegar valið þrjár hljómsvetir áfram og dómnefnd þrjár. Hljóðfærasláttur hefst kl. 19.30 í kvöld. Úrslit tilraunanna verða haldin laugardag- inn 1. apríl. Hljómsveitirnar sem hreppa efstu sæti keppninnar hljóta ýmis verðlaun og hljóðfæraleikarar verða verð- launaðir. Viðurkenning er líka veitt fyrir textagerð og eins verður valin blúsaðasta hljómsveitin og rafheili keppninnar og áheyrendur velja Hljómsveit fólksins. Í kvöld koma fram SæKó, Bjartr, Omotrack, Meist- arar dauðans, John Doe, Ctrl Alt Délítan, The Urban Crickets og Sólbjört. Allar hljómsveitir eru kynntar á mbl.is. arnim@mbl.is The Urban Crickets Reykvískur kvintett stofnaður haustið 2015 og er nú skipaður þeim Fannari Pálssyni gítarleikara, Magnúsi Adda Ólafssyni bassaleikara, Guðmundi Kristni Haraldssyni trommuleik- ara, Hektor Ingólfi Hallgrímssyni gítarleikara og söngkonunni Alexöndru Ýrr Ford. Þau eru á aldrinum 21 til 29 ára. Bjartr Dagbjartur Daði Jónsson notar lista- mannsnafnið Bjartr sem rappari. Hann er nítján ára gamall og hefur fengis við músík í tvö ár, fyrst sem taktsmiður, en síðan líka sem söngvari og rappari. Lokakvöld undanúrslita Meistarar dauðans Meistarar dauðans eru Ásþór Loki Rúnarsson gítarleikari og söngvari, Þórarinn Þeyr Rún- arsson trommuleikari, Albert Elías Arason bassaleikari, Svavar Hrafn Ágústsson saxófónleikari og hljómborðs- leikararnir Kári og Freyr Hlynssynir. Þeir spila þunga- rokk og eru á aldrinum 13 til 18 ára. Omotrack Bræðurnir Markús og Birkir Bjarnasynir, Gríma Katrín Ólafsdóttir, Gunnar Kristinn Óskarsson, Steinn Völundur Halldórsson og Svavar Hrafn Ágústsson. Markús spilar á gítar og syngur, Birkir á hljómborð og syngur, Gríma og Gunnar á trompeta, Steinn á básúnu og Svavar á saxófón. Þau eru 18 til 22 ára og lýsa músíkinni sem electro-indie-funk-blöndu. SæKó Sólóverkefni Sævars Helga Jóhannsson- ar sem hann kynnir með hjálp góðra vina. Sæv- ar syngur og leikur á hljómborð, trommuheila og hljóðgervil, Herdís Mjöll Guðmundsdóttirog Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir á fiðlur, Sigrún Mary McCormick á lágfiðlu og Arnar Ingólfsson á hljóðgervil. Sævar er 23 ára, Herdís 19 ára, Sólrún og Sigrún 20 ára og Arnar 24 ára. Kvartett bassaleikarans Birgis Steins Theodórssonar kemur fram á Jazzkvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30. Auk Birgis skipa kvartettinn Tómas Jónsson á píanó, Sölvi Kol- beinsson á saxafón og Lukas Ak- intaya á trommur. Á tónleikunum verður flutt frumsamið efni eftir meðlimi hljómsveitarinnar ásamt nokkrum af uppáhaldsdjass- standördum þeirra. Birgir, Sölvi og Lukas stunda framhaldsnám við djassdeild Universität der Künste – JiB, í Berlín. Djassari Birgir Steinn Theodórsson. Kvartett Birgis djassar á Kex Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Fulltrúar sjö safna tóku í gær á móti á annað þúsund listaverkum og öðr- um gögnum eftir Valtý Pétursson, myndlistarmann og gagnrýnanda (1919-1988), sem Listaverkasafn Valtýs Péturssonar færði þeim að gjöf. Í erfðaskrá Herdísar Vigfús- dóttur, ekkju Valtýs, óskaði hún þess að þau listaverk sem Valtýr lét eftir sig yrðu gefin til safna. Lista- verkin sem söfnunum voru gefin eru frá öllum tímabilum listferils Valtýs, en undanfarið hefur mátt sjá úrval þeirra á yfirgripsmikilli yfirlitssýn- ingu á verkum hans í Listasafni Ís- lands. Fulltrúar safnanna sex tóku við gjafabréfum úr hendi Höllu Hauksdóttur, formanns stjórnar Listaverkasafns Valtýs Péturs- sonar, við sýningarsalina í Lista- safninu í gær. Gefin að ósk ekkjunnar Söfnin sem taka við listaverka- gjöfinni eru Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Gerðarsafn, Listasafn Árnesinga, Hafnarborg, Listasafn Háskóla Íslands og Lista- safn Akureyrar. Einnig voru verk gefin til Grenivíkur, sem er fæð- ingarstaður Valtýs. Í máli Höllu kom fram að Lista- verkasafn Valtýs Péturssonar hefði verið stofnað til að halda utan um verkin og uppfylla þá ósk Herdísar að þau yrðu færð söfnunum, og væri það þeim í stjórninni mikið fagnaðarefni að komið væri að fulln- ustu óska Herdísar. „Listasafn Íslands þáði að taka við verkum Valtýs, auk verka samtíma- manna sem voru í eigu þeirra hjóna og ýmissa gagna, úrklippubóka, ljós- mynda og fleira,“ sagði Halla og bætti við að eins og gæfi að skilja væri fjöldi verka sem fleiri en eitt safn valdi þegar það stóð til boða. „Við höfum reynt eftir bestu getu að skipta á sanngjarnan hátt og vonum að hvert safn verði ánægt með sinn hlut.“ Eftir Herdísi og Valtý liggur fjöldi alls kyns handrita, ferðasögur, bréf til þeirra beggja, bréf til for- eldra Herdísar og fleira. Valtýr hafði löngun til að verða rithöf- undur,“ sagði hún og að hluta þess- ara gagna hefði verið komið til hand- ritadeildar Landsbókasafns Íslands í handritasafn þeirra hjóna. Gerir stjórnin sér vonir um að gögn Valtýs muni nýtast við rannsóknir um list og samtíma hans. Valtýr Pétursson setti sterkan svip á listalíf eftirstríðsáranna á Ís- landi. Hann var meðal brautryðj- enda abstraktlistar hér og afkasta- mikill listmálari, virkur þátttakandi í félagslífi listamanna og afar afkasta- mikill gagnrýnandi Morgunblaðsins í 36 ár. Skrifaði hann um níu hundr- uð blaðagreinar og hafði mikil áhrif á alla umræðu um listir á tímabilinu. Gáfu myndverk eftir Valtý  Söfn þáðu á annað þúsund verk eftir Valtý Pétursson Einnig til Grenivíkur Morgunblaðið/Einar Falur Listaverkagjöf Fulltrúar listasafnanna og Landsbókasafns með stjórnarmönnum í Listaverkasafni Valtýs Péturs- sonar við ljósmynd af listmálaranum í Listasafni Íslands. Gefin voru málverk, teikningar og ýmiskonar gögn. Fern Nevjinsky leikur á bæði orgel Hafnarfjarðarkirkju á tónleikum í dag sem hefjast kl. 12.15 og verða um 30 mínútur að lengd. Aðgangur er ókeypis og á efnisskránni verða verk eftir Johann Michael Bach, Abraham van den Kerckhoven, Johann Ulrich Steigleder og Samu- el Scheidt. Að loknum tónleikum verður boðið upp á kaffisopa. Leikur á bæði orgel kirkjunnar Íslensk hönnun og framleiðsla Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Retro borð Hringlaga eldhúsborð með ryðfríum stálkanti og harðplastlagðri plötu. Stærð og litur að eigin vali. Verð frá kr. 104.000 E60 orginal, verð frá 30.600 Lífstíðaráb yrgð á grind og tréverki ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL *Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf. Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is geoSilica kísilvatnið fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica. • Styrkir bandvefinn* • Stuðlar að þéttleika í beinum* • Styrkir hár og neglur* • Stuðlar að betri myndun kollagens fyrir sléttari og fallegri húð* EMILÍA KARLSDÓTTIR Ég hef tekið kísilinn í um það bil eitt ár. Ég fann fljótt að hann hafði góð áhrif á mig. Ég er betur vakandi og hef betra úthald. Hef verið með vefjagigt og veit hvernig orkuleysið fer með mann. Svo er það annar litli puttinn minn, sem ég klemmdi þegar ég var barn. Hann er bæklaður eftir það, og ég var með mjög mikla verki í honum. Svo tók ég allt í einu eftir því að verkirnir voru horfnir. Ég sleppti svo að taka inn kísilinn í einhvern tíma, og þá fór ég að finna fyrir verkjum aftur. Ég finn líka mun á hvað mér líður allri betur, er hressari. Það er eitthvað sem ekki er gott að útskýra. Takk fyrir mig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.