Morgunblaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 Er bíllinn tilbúinn fyrir páskafríið TUDOR TUDOR TUDOR er hannaður til þess að þola það álag sem kaldar nætur skapa. Forðastu óvæntar uppákomur. Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu öruggt start me ð TUDOR skoðanir mínar sem áttu síðar eftir að hafa áhrif á starfsvettvanginn.“ Mummi gekk í skóla að Varma- landi í Borgarfirði og var á heima- vist frá sex ára aldri. Sextán ára hóf hann nám við Menntaskólann á Akureyri og lauk þaðan stúdents- prófi árið 1997. Mummi lauk prófi frá Hússtjórnarskólanum í Reykjavík árið 1997. „Ég var mat- vinnungur í klaustri í Þýskalandi árið 1998 og kynntist þar trúar- starfi og íhugun sem alla tíð hefur haft jákvæð áhrif á mig. Ekki gerðist ég þó munkur og er ekki sérlega trúaður!“ Mummi lauk bachelorgráðu í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2002. Þá lauk hann mastersgráðu í umhverf- isstjórnun frá Yale háskóla í Bandaríkjunum árið 2006. Ávallt verið í græna geiranum Mummi hefur starfað í græna geiranum allan sinn starfsferill. Hann vann á Veiðimálastofnun, Landgræðslu ríkisins, við Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbærni- rannsóknir við Háskóla Íslands og hefur kennt umhverfisfræði við sama skóla, og einnig við Land- búnaðarháskóla Íslands og Há- skólasetrið á Ísafirði. Mummi tók við starfi framkvæmdastjóra Landverndar í september 2011. Mummi tók þátt í að stofna Fé- lag umhverfisfræðinga á Íslandi, og var fyrsti formaður félagsins 2007-2010. Mummi hefur setið í stjórn Félags Fulbright styrkþega á Íslandi í fjögur ár og er núver- andi formaður félagsins, en hann hlaut Fulbright styrk til náms við Yale háskóla árið 2002. „Helstu áhugamál mín eru úti- vist og náttúruvernd og ég veit ekkert betra en að hreinsa hugann og hlaða batteríin úti í íslenskri náttúru, helst uppi á hálendinu eða heima á Mýrunum.“ Mummi les talsvert mikið, helst glæpasögur, spennandi unglingadrama og sögu- legar skáldsögur um evrópskan aðal. Mummi er mikill leikhúsunn- andi og reyndi fyrir sér á því sviði með Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri og lék m.a. Dýrið í Fríðu og Dýrinu og Feilan Ó. Feilan í Silfurtunglinu. „Stærsta áhuga- málið er samt vinir og fjölskylda, og ég fagna ætíð góðum matar- boðum í góðra vina hópi, en ég held einmitt lítið matarboð í kvöld fyrir nánustu vini og fjölskyldu.“ Fjölskylda Mummi er ógiftur og barnlaus. „Ég á stóran frændgarð, þó að nánasta fjölskylda sé lítil. Bróð- urdóttir mín, Dóra Karólína, er eina barnið í fjölskyldunni, skírð í höfuðið á langömmu sinni, Hall- dóru á Brúarlandi, og kjörömmu okkar bræðra, Steinunni Karólínu Ingimundardóttur, skólastjóra Hússtjórnarskólans á Varmalandi, en Steinunn var okkur bræðrum sem önnur amma og kölluðum við hana aldrei annað en Steinunni ömmu. Ég á afar nána og góða vini sem slá út alla maka og kalla ég þau iðulega platónska eiginmenn og eiginkonur til skiptis.“ Bróðir Mumma er Brynjúlfur Steinar Guðbrandsson, 27.2. 1973, bóndi á Brúarlandi. Kona hans er Therese Vilstrup Olesen, ljós- myndari. Dóttir þeirra er Dóra Karólína Brynjúlfsdóttir. Foreldrar Mumma eru hjónin Snjólaug Guðmundsdóttir, f. 14.11. 1945, vefnaðarkennari við Hús- stjórnarskólann á Varmalandi 1966-1975 og síðar handverkskona á Brúarlandi, og Guðbrandur Brynjúlfsson, f. 30.4. 1948, bóndi á Brúarlandi alla tíð, formaður Landgræðslusjóðs og fv. oddviti Hraunhrepps. Úr frændgarði Guðmundar Inga Guðbrandssonar Guðmundur Ingi Guðbrandsson (Mummi) Guðbrandur Sigurðsson bóndi og oddviti á Hrafnkelsstöðum Ólöf Gilsdóttir húsfr. á Hrafnkelsstöðum áMýrum Halldóra Guðbrandsdóttir bóndi og húsfreyja á Brúarlandi á Mýrum Brynjúlfur Eiríksson bóndi og bifreiðar- stjóri á Brúarlandi Guðbrandur Brynjúlfsson búfræðikandídat og bóndi á Brúarlandi Eiríkur Ágúst Jóhannesson bóndi á Hamraendum Helga Þórðardóttir húsfr. á Hamraendum á Mýrum Sigurður Guðbrandsson mjólkurbússtjóri í Borgarnesi Eiríkur Ágúst Brynjúlfsson bóndi á Brúarlandi á Mýrum Hólmfríður Guðmundsdóttir kennari og skólastjóri í Mývatnssveit og á Akureyri Hólmfríður Emilía Guðmundsdóttir húsfreyja á Ísafirði Bárður Guðmundsson bókbindari á Ísafirði, Bárður og Guðmundur G. Bárðarson, jarðfr. og útgefandi Náttúru- fræðingsins, voru systkinabörn Guðmundur Bárðarson vélstjóri á Ísafirði Margrét Ingibjörg Bjarnadóttir vefnaðarkennari á Ísafirði Snjólaug Guðmundsdóttir vefnaðarkennari á Brúar- landi á Mýrum Snjólaug Eyjólfsdóttir húsfreyja á Leifsstöðum Bjarni Benediktsson bóndi og sýsluskrifari á Leifsstöðum í Eyjafirði 95 ára Jón Rafnar Hjálmarsson 90 ára Helga Jónsdóttir Sverrir Gunnarsson 85 ára Kristinn Eyjólfsson Kristjana Björg Þorsteinsdóttir Nina Chernysheva Sylvia Sveinsdóttir 80 ára Ásta Helgadóttir Gísli Þorsteinsson Hildur Björk Sigurðardóttir Sigríður Jónsdóttir Sigurður Ármannsson 75 ára Anna Matthildur Axelsdóttir Hörður Gunnarsson Kristín Gunnarsdóttir Magnús Steingrímsson Ragnheiður Björgvinsdóttir Þorsteinn Guðbjartsson 70 ára Elínborg Alda Baldvinsdóttir Guðmundur Hermannsson Magnús Jónsson Stefán Jón Skarphéðinsson Vigfús Andrésson 60 ára Björgúlfur Egilsson Guðni Þórðarson Kristín Þóra Kristjánsdóttir Kristján Friðrik Nielsen Kristján Rafn Heiðarsson Sigríður Birna Gunnarsdóttir Skeggi G. Þormar Þórunn Sigurlaug Jóhannsdóttir 50 ára Bich Thi Le Elfar Eiðsson Hafsteinn Gunnar Jónsson Lísa Björk Gunnarsdóttir Marek Tomasz Danilczyk Málfríður Ólöf Haraldsdóttir Sigurjón Kristensen Sólveig Pálína Stefánsdóttir Valgerður Bjarnadóttir Þorsteinn Þorsteinsson 40 ára Arnar Svansson Eyjólfur Þór Guðmundsson Guðbjartur Flosason Guðmundur Ingi Guðbrandsson Guðni Ingimundarson Heiðrún Björk Sigmarsdóttir Marcin Slodkowski Petra Eiríksdóttir Rasid Ramljak Telma Lind Stefánsdóttir 30 ára Aija Teraude Anna Rósa Guðmundsdóttir Íris Tara Ágústsdóttir Jeroen Antoon E. Van Nieuwenhove Magnea Arnardóttir Oddný Alda Bjarnadóttir Sigurgeir Sveinn Gíslason Sveinn Þórhallsson Thelma Guðjónsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Oddný er frá Hval- nesi á Skaga en býr á Reyðarfirði. Hún vinnur á smíðaverkstæðinu Tré- vangi. Maki: Magnús Ingi Svav- arsson, f. 1987, vinnur hjá Alcoa. Foreldrar: Bjarni Egils- son, f. 1955, vinnur hjá Al- coa, og Elín Petra Guð- brandsdóttir, f. 1955, vinnur á dvalarheimilinu á Fáskrúðsfirði. Þau eru bús. á Reyðarfirði. Oddný Alda Bjarnadóttir 30 ára Magnea er Hafn- firðingur en býr í Reykja- vík. Hún er þroskaþjálfi og vinnur hjá Reykjavíkur- borg. Maki: Arnar Freyr Björns- son, f. 1977, tölvunarfr. hjá Íslandsbanka. Börn: Hrefna, f .2011, og Kári, f. 2012. Foreldrar: Örn Ólafsson, f. 1958, stoðtækjafræð- ingur, og Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 1960, vinnur á leikskóla. Magnea Arnardóttir 30 ára Sveinn er Keflvík- ingur en býr í Reykjavík. Hann er tölvunarfræð- ingur að mennt og er hugbúnaðarsérfræðingur hjá Advania. Maki: Gunnhildur Gunn- arsdóttir, f. 1990, sálfr. hjá Reykjavíkurborg. Foreldrar: Þórhallur Ágúst Ívarsson, f. 1953, vinnur hjá Det Norske Veritas, og Vilborg Norð- dahl, f. 1958, vinnur í fjár- málaráðuneytinu. Sveinn Þórhallsson  Nicolas Larranaga hefur varið dokt- orsritgerð sína í líffræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Ís- lands. Heiti verkefnisins er: Dægur- sveiflur í virkni bleikju, Salvelinus alp- inus: Tengsl við vistfræðilega þætti (Ecological correlates of diel activity in Arctic charr Salvelinus alpinus). Leiðbeinandi var dr. Stefán Ó. Stein- grímsson, dósent við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum. Dægursveiflur í virkni lýsa því hvernig dýr deila sólarhringnum á milli virkni og hvíldar og hvernig þau keppa um auðlindir í tíma. Sumar tegundir sýna sveigjanleika í því hversu virk þau eru og hvenær og eru hentug til rannsókna á áhrifum vistfræðilegra þátta á virkni. Fiskar í ám, þá sér- staklega laxfiskar, eru skólabókar- dæmi um dýr sem sýna breytileika í virkni. Í doktorsverkefninu voru rann- sakaðar dægursveiflur í virkni ein- staklingsmerktra bleikjuseiða í til- raunum og rannsóknum við náttúrulegar aðstæður, þar sem at- huguð voru áhrif þátta sem hafa mikil- væg áhrif á vistfræði laxfiska. Bleikjur voru virkari (i) við hærra hitastig, (ii) þar sem felustaðir voru takmarkaðir, (iii) við meiri straumhraða, (iv) þar sem vatnsrennsli var stöðugt, og (v) við meiri þéttleika. Í öllum rannsókn- unum höfðu vist- fræðilegir þættir líka áhrif á það hvernig virkni dreifðist í tíma. Sveigjanleiki í virkni tengdist líka breytileika í öðru atferli (t.d. árásarhneigð, fæðuháttum og búsvæðavali). Rannsóknirnar sýndu líka að stundum viðheldur bleikja vexti við óhagstæðar aðstæður (fáir felustaðir, mikill þéttleiki) með því að breyta virkni sinni en stundum eru þær virkastar við aðstæður hag- stæðar fyrir vöxt (meiri straumhraði). Í öllum tilraununum nema einni uxu virkari einstaklingar hraðar en þeir sem voru minna virkir. Þetta samband var þó háð aðstæðum og var t.d. greinilegra við meiri straumhraða og jafnara vatnsrennsli. Niðurstöður þessa verkefnis eru mikilvægar fyrir t.d. (i) atferlisvistfræði (sveigjanleiki í atferli), (ii) vistfræði laxfiska, vegna áhrifa virkni á fæðunám og vöxt við ólíkar aðstæður, og (iii) verndun, vegna þess innsæis sem atferli veitir um áhrif væntanlegra breytinga á búsvæðum fiska. Nicolas Larranaga Nicolas Larranga er með diplómu og BSc-gráðu í líffræði frá Háskólanum í Pau í Frakklandi og meistaragráðu frá Háskólanum í Toulouse. Nicolas mun hefja störf sem nýdoktor við Háskólann í Gautaborg núna í apríl. Þar mun hann halda áfram rannsóknum á atferli og vistfræði laxfiska. Nicolas er giftur Soizic Le Deuff og eiga þau einn son, Lucas. Doktor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.