Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 11

Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ekki hafa fengist fjármunir frá Reykjavíkurborg til að viðhalda tenn- isvöllum Víkings í Fossvogi og verða þeir því aflagðir í vor. Aðeins tveir tennisvellir verða þá eftir í Reykja- vík, staðsettir í Laugardalnum. Fjórir malbikaðir tennisvellir voru lagðir hjá Víkingi 1986, tíu árum síðar var lagt gervigras á tvo þeirra og síð- an þá hefur ekki verið lögð króna í viðhald vallanna fyrir utan smá pen- ing sem fékkst fyrir tveimur árum til að hreinsa vellina af mosa og þör- ungum, að sögn Raj K. Bonifacius, formanns tennisdeildar Víkings. Um 25 manns æfa tennis hjá Víkingi og fara æfingar fram í Kópavogi en líka í Víkinni á sumrin, mikið fleiri spila tennis á völlunum yfir sumartímann sér til skemmtunar auk þess sem þar eru haldin mót og sumarnámskeið. „Þetta er ekkert besta aðstaðan en sú eina sem við höfum, við getum notað vellina og það eru margir aðrir sem njóta góðs af þeim. Það skiptir máli að hafa þessa tennisvelli hér upp á framtíðina,“ segir Raj sem vill að stuðlað sé að fjölbreyttu íþróttastarfi. „Ef það verða aðeins tveir vellir eftir í Reykjavík þarf ekki að spyrja að leikslokum íþróttarinnar. Við erum Reykvíkingar og eigum að hafa að- stöðu hér. Það kostar rúmar 40 millj- ónir kr. að laga vellina sem er ekki há upphæð miðað við það sem er lagt í margar aðrar íþróttagreinar,“ segir Raj. Í slæmu ásigkomulagi Björn Einarsson, formaður Knatt- spyrnufélagsins Víkings, segir tennisvellina vera í óásættanlegu ástandi, bæði til æfinga og keppni og líka gagnvart umhverfinu. „Þeir hafa grotnað niður undanfarin ár. Við höf- um verið að vinna í því ásamt tenn- isdeildinni að borgin flytji fjármagn í vellina en það er einsýnt að það verð- ur ekki. Það kostar tugi milljóna að byggja upp vellina og borgin hefur sagt að hún muni ekki gera það. Þess vegna er það ákvörðun félagsins að þeir verði teknir í burtu samhliða framkvæmdum sem er verið að fara í á svæðinu í vor,“ segir Björn, félagið hafi ekki burði til að byggja vellina upp sjálft. „Félagið er tilbúið að styðja það ef vellirnir verða byggðir upp í gott framtíðarhorf. En við sjáum fyrir okkur að til langs tíma litið muni tennisdeildin fá sína aðstöðu í þeirri framtíðaruppbyggingu sem er í Vík- inni,“ segir Björn. Í stað tennisvall- anna sem verða fjarlægðir í vor kem- ur æfingasvæði fyrir fótbolta. Tennisvellir víkja fyrir fótboltavelli  Tennisvellir Víkings aflagðir  Ákvörðun borgarinnar Morgunblaðið/Eggert Víkingssvæðið Malbikaður og málaður tennisvöllur hjá Víkingi sem má muna fífil sinn fegri. Ekkert hefur verið gert fyrir völlinn síðan 1986 þegar hann var lagður. Tveir aðrir vellir eru með gervigrasi frá 1996. Umhverfisstofnun hefur veitt fyrstu tvö leyfi ársins fyrir ferðum út í Surtsey en sækja þarf um sérstakt leyfi til stofnunarinnar til að fá að ganga í land eða kafa við eyjuna. „Það eru veitt nokkur leyfi á hverju ári,“ segir Þórdís V. Bragadóttir, starfsmaður Umhverfisstofnunar í Vestmannaeyjum og umsjónarmaður friðlandsins í Surtsey. Eyjan var frið- lýst árið 1965 til að tryggja að þróun hennar yrði eftir lögmálum náttúr- unnar og landnám plantna og dýra, framvinda lífríkis og mótun jarð- myndana yrði með sem eðlilegustum hætti. Til að tryggja þetta er aðgang- ur manna að eyjunni takmarkaður og þeim, sem fá leyfi til að heimsækja Surtsey er gert að hreinsa allan fatn- að og farangur áður en haldið er þangað til að tryggja að engar líf- verur eða plöntuhlutar berist til eyj- arinnar. Surtey var sett á heims- minjaskrá UNESCO árið 2008. Dvelja hálfan dag Nú hefur starfsmaður Veðurstofu Íslands fengið leyfi til að fara út í Surtsey á næstu vikum vegna við- halds veðurstöðvar í eyjunni. Þá hafa evrópska sjónvarpsstöðin Arte og Les Bon Clients fengið leyfi fyrir því að hópur kvikmyndatökufólks dvelji í hálfan dag í Surtsey í júní til að taka myndefni fyrir fræðslumynd um eld- fjöll. Fram kemur í leyfisbréfinu, að markmið kvikmyndatökunnar sé að sýna hvernig eyjan myndaðist árið 1963 og fjalla um vísindarannsóknir, sem gerðar hafa verið þar frá þeim tíma. Tekið er sérstaklega fram að kvik- myndatökumennirnir megi nota dróna á þeim hluta eyjarinnar þar sem slík tæki trufla ekki fuglalíf eða annað dýralíf. Þórdís segir, að áður hafi verið notaðir drónar til að taka myndir í eyjunni. Þórdís hefur haft umsjón með Surtsey frá árinu 2011 og hefur farið að minnsta kosti einu sinni á ári út í eyjuna síðan. Hún segir að nokkrar breytingar hafi orðið á landslaginu á þessum tíma vegna sjávarrofs, eink- um á tanganum sem svo er kallaður. Fram kom í skýrslu vísindamanna eftir leiðangur í eyjuna á síðasta ári, að tanginn breytist sífellt á milli ára þar sem sjávaraldan bæði brýtur hann niður og færir honum efnivið úr hraunum og móbergi eyjarinnar. gummi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Friðlýst Surtsey séð úr lofti árið 2009. Hún hefur breyst talsvert síðan þá. Surtsey í fræðslu- mynd um eldgos Surtsey » Surtsey myndaðist í neð- ansjávareldgosi, sem hófst 14. nóvember 1963 og lauk 5. júní 1967. » Surtsey var friðlýst 1965 á meðan eldgosið var enn í gangi og friðlýsingin var endurnýjuð 1974 » Friðlandið var stækkað 2006 og nær yfir alla eldstöðina Surtsey ásamt hafsvæðið um- hverfis, samtals 65 ferkílómetra WOW air mun hefja áætlunarflug til Chicago í Bandaríkjunum 13. júlí næstkomandi og hófst sala á flug- sætum þangað í gær. Þetta verður 32. áfangastaður flugfélagsins, sá tíundi í Norður-Ameríku og flogið verður fjórum sinnum í viku til 22. október. Í tilkynningu frá WOW air segir að með þessari viðbót styrki félagið enn frekar leiðakerfi sitt með tengiflugi milli Norður-Ameríku og Evrópu með viðkomu á Íslandi. „Markmiðið er að anna mikilli eftir- spurn eftir flugi til og frá Norður- Ameríku. WOW air flýgur nú þegar til Washington D.C., Boston, New York, Los Angeles, San Francisco, Toronto og Montréal og mun hefja flug til Miami þann 5. apríl og til Pittsburgh 16. júní næstkomandi,“ segir í tilkynningunni. WOW air hefur flug til Chicago í júlí Morgunblaðið/Golli WOW air Chicago verður 32. áfangastaður flugfélagsins og sá 10. í Norður-Ameríku. SMÁRALIND www.skornirthinir.is Verð 3.995 Stærðir 23-28 3.995 Stærðir 28-35 Verð 3.995 Stærðir 25-37 Verð kr. 12.900 Str. 36-52 • 3 litir Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Gallabuxur með teygju í mittið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.