Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Saarland er fá-
mennasta sam-
bandsríkið í
Þýskalandi. Engu
að síður var nokk-
uð horft til kosn-
inga þar um
helgina. Það er fyrst og fremst
vegna hugsanlegs forspár-
gildis fyrir þingkosningar í
september. Skoðanakannanir
hafa verið brokkgengar að
undanförnu. Þær skutu illa
fram hjá í forsetakosningum í
Bandaríkjunum og í þjóð-
aratkvæðinu í Bretlandi um
veru í ESB. Á hinn bóginn voru
þær nær lagi í Hollandi nýlega.
Þýskir kratar skiptu um
leiðtoga í sinni brú nýlega. Sig-
mar Gabriel hætti og við tók
Martin Schulz, sem verið hafði
forseti Evrópuþingsins. Eftir
formannsskiptin fékk flokkur-
inn vaxandi byr í könnunum.
Þegar horft var til þess og and-
byrs sem Merkel kanslari hef-
ur búið við gerðu ýmsir því
skóna að Schulz kynni að ná
kanslaraembættinu af Merkel í
september. Það kom á óvart að
Schulz hefði þetta pólitíska að-
dráttarafl. Hann hefur verið
umdeildur á vettvangi ESB og
átt sérkennilegar snerrur og
þótt stóryrtur og hrokafullur.
Þá hefur hann verið óvarkár í
sókn eftir bitlingum frá ESB.
Kosningarnar í Saarlandi
eru þær fyrstu eftir að Martin
Schulz tók við forystu jafnað-
armanna. Kannanir bentu til
að flokki hans myndi vegna vel
og flokkur Merkel væri í and-
byr. Þótti sennilegt að flokkur
Schulz í ríkinu gæti náð að
mynda stjórn til vinstri með
vinstriflokknum Linke. Þyrfti
meira til yrði flokkur græn-
ingja þriðja hjól. En úrslitin
urðu önnur. Flokkur Merkel
bætti við sig 5 prósentustigum
en flokkur jafnaðarmanna
missti 1 prósentustig. Grænir
töpuðu fylgi og fóru niður fyrir
5% lágmarkið og fengu engan
mann á fylkisþingið. Flokkur
kanslarans fékk 40,7% og 24
þingmenn af 51 á þinginu, því
að mörg atkvæði duttu dauð.
Kristilega vantaði aðeins tvo
þingmenn til að hafa hreinan
meirihluta á þinginu. Sósíal-
demókratar og Linke voru með
jafnmarga þingmenn saman og
Kristilegir, 17 og 7. Fjórði
flokkurinn sem kom þing-
mönnum að var AfD, Annar
kostur fyrir Þýskaland sem
fékk 3 þingmenn.
Kristilegir og AfD gætu
tæknilega myndað tveggja
flokka meirihluta. En stefna
stóru flokkanna hefur verið sú
að úrskurða að AfD sé „ólýð-
ræðislegur flokkur“ þar sem
hann hefur efa-
semdir um evruna
og vill nálgast inn-
flytjendamál með
öðrum hætti en
stóru flokkarnir.
Sambærileg stefna
tíðkaðist lengi í Noregi og
Danmörku, en reyndist ekki
vel. Hún er enn brúkuð í Sví-
þjóð og hefur orðið til þess
annars vegar að tryggja kröt-
um að stjórna Svíþjóð með
fremur litlum minnihluta at-
kvæða (lýðræðislegt?) og að
auka fylgi Svíþjóðardemó-
krata, SD, jafnt og þétt.
Nýr formaður Moderaterna,
sem hefur verið talinn helsti
hægri flokkurinn í Svíþjóð af
hefðbundnum flokkum, Anna
Kinberg, hefur hert nokkuð af-
stöðu flokks síns í innflytj-
endamálum síðustu misserin.
Hún lagði nýlega til að sænsk-
um lögregluþjónum yrði fjölg-
að um 5000, en það er opinbert
leyndarmál að neyðarhjálp
eins og sjúkrabílar og slökkvi-
bílar fer ekki inn í sum borg-
arhverfi í Svíþjóð nema í öfl-
ugri lögreglufylgd. Lögreglan
sjálf fer ekki nema sérstaklega
styrkt í slíka leiðangra. Anna
Kinberg neitar því að stefnu-
mörkun sín sé komin til vegna
þess að kannanir sýni að SD
mælist nú mun stærri flokkur
en Moderaterna. Samkvæmt
seinustu mælingu munar
reyndar nú sáralitlu á styrk
SD og stjórnarflokksins Jafn-
aðarmanna, sem mælist með
aðeins 25% fylgi. En árétta
verður að rétt er að taka kann-
anir með fyrirvörum.
AfD hefur nú fengið menn
kjörna á 11 fylkisþing af 16 í
Þýskalandi. Þau 6,2% sem
flokkurinn fékk í Saarland
voru þó minna fylgi en for-
ystumenn hans væntu. Sú
spurning kann því að vakna
hvort draga sé úr þeim vindi
sem verið hefur í segl þessa
flokks í Þýskalandi síðustu
misserin. Flestum ber þó enn
saman um að AfD muni koma
mönnum á sambandsþingið í
Berlín í september. AfD
mælist nú með rúm 10% í
könnunum, sem er tvöfalt það
lágmark sem þarf til. En jafn-
vel þótt þær kannanir gengju
eftir er ekki víst að sú breyting
yrði afgerandi í þýskum
stjórnmálum, að minnsta kosti
ekki í bráð. En slík úrslit
kynnu að hafa einhver áhrif á
stefnumörkun Kristilegra
demókrata og leiða til skarpari
skila í stjórnmálum en verið
hafa í Þýskalandi. Má þá horfa
til stefnubreytinganna hjá
Venstre í Danmörku og Mod-
eraterna í Svíþjóð.
Nýlegar fylkiskosn-
ingar í Þýskalandi
segja sögu, en ekki
hana alla}
Kannski verða áhrif
kosninga í ár óveruleg
H
eyrst hefur að það taki heilt þorp
að ala upp barn og er margt til í
því. Sem foreldri tveggja ung-
lingsdrengja finnst mér ábyrgðin
liggja fyrst og fremst á mér sem
foreldri. Og eins og flestir foreldrar reyni ég mitt
besta. Að sýna gott fordæmi, næra þá, hlúa að
þeim og hlusta. Ég vil ala upp duglega og heil-
brigða unga menn en það eru margar hindranir
á lífsleiðinni. Þjóðfélagið ber líka ábyrgð á upp-
eldi barnanna okkar og þarf að sýna það í verki.
Ég vil til dæmis alls ekki áfengi í allar hillur
því aukið aðgengi að víni eykur á unglinga-
drykkju, það er augljóst mál. Mín kynslóð, sem
sótti Hallærisplanið stíft, stóð gjarnan fyrir utan
Ríkið á Lindargötu. Þar sigtuðum við út góðlegt
fólk sem hugsanlega væri til í að kaupa eina
Lambrusco eða eina Blue Nun. Þetta var nánast
eina leiðin til að nálgast áfengi og fórum við oft tómhentar
heim. Hversu auðvelt verður fyrir unglinga að redda sér
áfengi ef það verður í hverri kjörbúð! Sem unglingamóðir
segi ég nei. Nógu stórt áfengisvandamál er fyrir í þessu
landi.
Svo eru það fordómarnir í þjóðfélaginu. Fræðsla er besta
leiðin til að útrýma fordómum og vissulega erum við öll full
af þeim. Það þýðir ekkert að segjast vera fordómalaus því
það er enginn. En sem betur fer er margt betra nú en í
gamla daga. Ekki allt, en sumt. Ég fór með strákana mína á
myndina Hidden Figures um helgina og mæli ég með að
fólk taki unglingana sína með á þessa mynd. Myndin, sem er
sannsöguleg, er stórgóð og fræðandi en í stuttu
máli er hún um þrjár svartar konur í Bandaríkj-
unum sem vinna hjá NASA árið 1961. Þær
þurfa að lifa við aðskilnaðarstefnu, fordóma og
fyrirlitningu. Þær máttu til að mynda hvorki
nota sama salerni og hvítir né drekka úr sömu
kaffikönnu. Strákarnir mínir, sem voru lang-
yngstir í bíóinu, voru frá sér numdir. Þetta var í
raun kennslustund í sögu í leiðinni því báðir
sögðust þeir ekki hafa trúað að þetta hefði verið
svona slæmt, og ekki lengra síðan. Gott fannst
mér þegar eldri sonurinn sagði: „Loksins sér
maður góða mynd, það er svo mikið drasl sem
maður sér venjulega“.
Útlendingahatri, kynþáttahatri og hómófóbíu
verður seint útrýmt en með fræðslu og þekk-
ingu minnkar það. Vonandi. Ef eitthvað er að
marka drengina mína erum við Íslendingar
komnir ansi langt í því síðastnefnda. Sonur minn spurði mig
eitt sinn hvort fólk hefði í alvöru verið á móti hinsegin fólki í
gamla daga. Ekki gat ég neitað því. Þeir skilja það alls ekki
og þakka ég fyrir það. Gay Pride gangan og frábærar fyr-
irmyndir í röðum hinsegin fólks hafa breytt þar miklu. Það
væri óskandi að önnur lönd væru komin svona langt. Um
daginn vorum við að keyra og þá heyrist í öðrum þeirra:
„Mamma, af hverju áttu ekki mann?“ Ég sagðist ekki hafa
tíma í það, ég myndi kannski ná mér í mann þegar þeir
væru fullorðnir. Eitthvað fannst þeim svarið mitt ófullnægj-
andi. Algjörlega fordómalaus spurning fylgdi: „Ertu
kannski lesbía?“ asdis@mbl.is
Ásdís
Ásgeirsdóttir
Pistill
Pælingar unglingamömmu
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Félagasamtök bænda eru aðfóta sig í nýju umhverfi.Þau fá ekki lengur hlut íbúnaðargjaldi sem ríkið
innheimtir. Nú þurfa þau að fá
bændur til að ganga í félögin af fús-
um og frjálsum vilja og greiða fé-
lagsgjöld til að standa undir kostn-
aði við hagsmunabaráttuna. Ekki sjá
allir bændur sér hag í því. Það hefur
komið fram í umræðum í tengslum
við aðalfund Landssambands kúa-
bænda (LK) sem fram fór á Ak-
ureyri um helgina.
Arnar Árnason, formaður LK,
segir að markmiðið sé að ná nánast
öllum kúabændum í landinu, hátt í
600 talsins, inn í félagið. Lands-
sambandið þurfi á því að halda. Mið-
að við upphæð félagsgjalda og rekst-
ur sambandsins undanfarin ár þurfi
heimtur að vera góðar.
Félagsgjaldið er veltutengt,
samkvæmt samhljóða samþykktum
aðalfundar LK fyrir ári. 30 aurar
eru greiddir af hverjum innlögðum
lítra og 500 krónur af hverjum inn-
lögðum grip. Þýðir það að félags-
gjöld af meðalbúi eru hátt í 100 þús-
und kr. á ári. Stóru búin greiða
hærra og nefnt hefur verið dæmi af
nýuppbyggðu búi sem greiða mun
300 þúsund kr.
Ekki verða allir með
Líflegar umræður hafa verið á
Facebook um fyrirkomulag inn-
heimtunnar og fleira í tengslum við
félagsaðild í kjölfar opins bréfs sem
Bóel Anna Þórisdóttir, bóndi á Mó-
eiðarhvoli og 1. varamaður í stjórn
LK á síðasta ári, skrifaði í Bænda-
blaðið. Hún lýsti því yfir að hennar
bú myndi ekki ganga í LK. Fram
kom að henni fyndist óréttlátt að
kúabændur greiddu mishátt gjald til
hagsmunagæslunnar auk þess sem
forystan hefði ekkert hlustað á
hennar sjónarmið. Ágreiningur hef-
ur verið um stefnuna í framleiðslu-
málum og ljóst er að einhverjir af
þeim sem telja forystuna vinna gegn
sínum hagsmunum verða ekki með.
Arnar segir að menn hafi mis-
munandi skoðanir á því hvernig eigi
að innheimta félagsgjaldið og hversu
hátt það eigi að vera. Hann nefnir að
veltutengt félagsgjald sé víða að
finna. Nærtækast sé að nefna fram-
leiðendafélagið Auðhumlu. Þar hafi
allir félagsmenn eitt atkvæði, sama
hvað þeir leggi mikið inn.
Segir Arnar að vel gangi að
safna nýjum félögum. Um 60% kúa-
bænda hafi nú þegar gengið til liðs
við LK. Margir hafi bæst við um
helgina. Aðildarfélögin séu að ræða
við félagsmenn sína og frekara átak
verði gert á næstu mánuðum.
Markmiðið að fá nær
alla bændur í félagið
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mjólkurkýr Kúabændur eru að safna liði, vilja fá sem flesta liðsmenn í sam-
tökin, til að geta haldið krafti í baráttunni fyrir hagsmunum stéttarinnar.
Yfirgnæfandi meirihluti kúabænda
vill hafa framleiðslustýringu áfram
en ekki endilega óbreytt kvótakerfi.
Þannig les Arnar Árnason, formaður
LK, í niðurstöðu skoðanakönnunar
sem stjórnin lét gera rétt fyrir aðal-
fundinn og kynnti þar.
Fyrri forysta LK samdi við ríkið um
afnám kvótakerfisins og þannig
hljóðar texti búvörusamninga. Eftir
kynningu meðal bænda var þó ákveð-
ið að efna til atkvæðagreiðslu um
málið á árinu 2019.
Arnar segir að aðalfundur LK hafi
ákveðið um helgina að endurskoða
stefnu sambandsins í framleiðslu-
málum, meðal annars til undirbún-
ings atkvæðagreiðslunni árið 2019,
og niðurstöður skoðana-
könnunarinnar verði notaðar við þá
vinnu.
Þegar spurt var beint um afstöðu til greiðslumarkskerfisins í ljósi
komandi atkvæðagreiðslu sögðust tæp 82% þátttakenda vilja halda í
það en aðeins 11% afnema.
Vilja framleiðslustýringu áfram
SKOÐANAKÖNNUN MEÐAL KÚABÆNDA
Viðhorf til greiðslu-
markskerfis í mjólk
Frekar jákvætt
Mjög jákvætt
Hvorki né
Frekar neikvætt
Mjög neikvætt
Veit ekki
32,9%
11,7%
7,7%
6,9% 0,3%
40,6%