Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 22

Morgunblaðið - 28.03.2017, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 ✝ Áslaug KristínPálsdóttir fæddist í Stykk- ishólmi 12. febrúar 1946. Hún lést 20. mars 2017 í Stykk- ishólmi. Foreldrar henn- ar voru Sæmunda Þorvaldsdóttir, hús- móðir og verkakona í Stykkishólmi, f. 16.7. 1926, d. 25.11. 1986, og Páll Oddsson, verka- maður í Stykkishólmi, f. 16.9. 1922, d. 9.4. 2002. Systkini Ás- laugar eru 1) Sesselja, f. 14.2. 1948, maki Þorbergur Bærings- son, f. 26.11. 1943. 2) Ásgerður Ágústa, f. 7.2. 1950. 3) Böðvar, f: 13.7. 1955, d: 10.2. 1985, maki Rósa Marinósdóttir, f. 10.12. heita 1) Áslaug Guðrún, f. 18.9. 2001, 2) Ólöf Hulda, f. 4.9. 2006, 3) Hanna Þórdís, f. 17.1. 2012, 4) Gústaf Máni, f. 6.10. 2016. Fyrir átti Ólafur Sigurð Arnar Ólafs- son, f. 20.12. 1966, maki Heiða Einarsdóttir og eiga þau þrjá stráka og tvö barnabörn. Ása vann ýmis störf í Hólm- inum. Fyrir sunnan vann hún á ýmsum stöðum þar sem Ása og Ásgerður leigðu saman. Eftir að Ása og Óli giftu sig bjuggu þau öll sín búskaparár á Hringbraut- inni í Hafnarfirði, en þar bjó Ása þar til heilsan gaf sig. Síðustu tveir vinnustaðir hennar voru Pósturinn og síðan Flataskóli í Garðabæ sem skólaliði hjá yngsta árganginum. Árið 2013 greindist Ása með alzheimer, 2015 hrakaði heilsu hennar og í mars 2015 flutti hún aftur á heimaslóðir á dval- arheimilið þar. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 28. mars 2017, og hefst athöfnin klukkan 14. 1955. Seinni maður Rósu er Kristján Andrésson. 4) Þor- valdur Ársæll, f. 12.7. 1963, d. 10.8. 2008, maki Sarah Jane Allard. Systk- inabörn Ásu eru átta og börn systk- inabarna eru átta og verða níu í maí. Áslaug giftist 17.12. 1981 Ólafi Sigurði Gústafssyni, f. 5.2. 1944, d. 6.9. 1998. Foreldrar hans voru Jóhanna Guðrún Bjarnadóttir, f. 19.9. 1920, d. 25.4. 2007, Gústaf Sigurðsson, f. 16.3. 1921, d. 23.11. 1980. Áslaug og Ólafur eignuðust eina dóttur, Ágústu Guðrúnu Ólafsdóttur, f. 20.6. 1983. Hún á fjögur börn, þau Elsku mamma mín. Stærsti og mesti stuðnings- kletturinn minn er farinn. Mér finnst eins og heimurinn hafi kippt undan mér en þótt mér finnist það veit ég innst inni að ég mun alveg spjara mig. Það er bara sárt að þú sért farin frá okkur. Sérstaklega öllum fjórum ömmubörnunum, ömmustelpurnar þínar þrjár hafa verið svo hændar að þér í gegnum árin að þetta er ekki auðvelt fyrir þær. Elsku dætur mínar eiga svo margar minningar um þig og þær ætla að vera svo duglegar að segja honum Gústafi Mána frá öllum þessum minningum svo hann fái að kynnast þér. Ég er svo þakklát fyrir allt sem þú, mamma mín, hef- ur gert fyrir mig í gegnum árin. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig og börnin mín, ég mun aldrei gleyma því. Allt sem þú hefur kennt mér mun ég nota í komandi framtíð bæði fyrir mig og börnin mín. Ég viðurkenni fúslega að mér finnst ég vera frekar mikið eigin- gjörn að hugsa að ég sé að verða 34 ára og báðir foreldrar mínir séu farnir yfir móðuna miklu. En elsku mamma mín, ég veit að þér líður miklu betur og þetta var ekki líf sem þú hefðir viljað lifað þannig að þetta er það besta sem gat gerst.. Svo veit ég að pabbi hefur sannarlega tekið vel á móti þér og ef ég man rétt hefur hann tekið dans með þér við uppáhaldslagið ykkar. Elsku mamma, ég kveð þig í dag með þakklæti í hjarta. Góða nótt, elsku mamma. Við sjáumst síðar og ég bið að heilsa öllum. Sofðu vært hinn síðsta blund, uns hinn dýri dagur ljómar, Drottins lúður þegar hljómar hina miklu morgunstund. Heim frá gröf vér göngum enn. Guð veit, hvort vér framar fáum farið héðan, að oss gáum, máske kallið komi senn. Verði, Drottinn, vilji þinn, vér oss fyrir honum hneigjum, hvort vér lifum eða deyjum, veri hann oss velkominn. (Valdimar Briem) Þín dóttir, Ágústa Guðrún. Elsku amma. Ég er heppin að eiga ömmur, ég er heppin að þú sért önnur þeirra, ég er heppin að hafa kynnst þér og þekkt. Ég er heppin að eiga marg- ar góðar minningar með þér sem ég mun aldrei gleyma eins og til dæmis að sitja með þér um sjö ára gömul inni í sjónvarpsherbergi og horfa á Bachelor eða Biggest Lo- ser. Eða þegar við fórum saman til Danmerkur og Noregs. Ég mun aldrei gleyma hvað það var gott að sofa í ömmurúmi svo lengi sem ég sofnaði á undan þér, því annars var enginn möguleiki að sofna, en þá færði maður sig bara inn í hitt herbergið því ég vissi alltaf að ég myndi hitta þig daginn á eftir. Ég elska þig og mun ávallt sakna þín. Ástarkveðja, Áslaug Guðrún. Elsku amma okkar. Takk fyrir að vera svona góð við okkur, takk fyrir öll knúsin sem þú ert búin að gefa okkur, takk fyrir alla kossana frá þér og takk fyrir allar minningarnar sem þú bjóst til með okkur. Það er sárt að kveðja þig en nú færðu að vera hjá Óla afa og við vitum að þú fylg- ist með okkur ofan af himnum. Við munum vera svo dugleg að koma upp í kirkjugarð til að setja blóm á rúmið þitt og Óla afa. Ég mun segja litla bróður frá þér og hann fær að kynnast þér í gegnum minningar og myndirnar okkar. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Góða nótt, amma. Ástarkveðjur, Hanna Þórdís og Gústaf Máni. Í dag kveðjum við Áslaugu Kristínu (Ásu) eldri systur mína, sem andaðist 20. mars á Dvalar- heimilinu í Stykkishólmi. Ása fæddist 12.2. 1946, elst í fimm systkina hópi. Í Hólminum ólst hún upp og bjó þar til 26 ára aldurs. Við systkinin nutum kær- leika í uppeldinu, svo ekki sé talað um ástríka föðurömmu okkar og afa, sem bjuggu í sama húsi. Þá má ekki gleyma móðurömmu okk- ar og Hirti afa. Það voru margar ferðir farnar yfir á Holt til þeirra. Já, húsin hér heita nöfnum, Hlíð- arendi heitir föðurgarður okkar, Hlíð, Grund og Akrar voru ná- grannahúsin. Við nutum þess sannarlega að alast upp í Hólm- inum. Þegar Ása flutti til Reykja- víkur til að vinna þar var okkar fjölskyldu ekki í kot vísað þyrfti fjölskyldan á gistingu að halda, ef hún átti leið suður. Saman bjuggu síðan þau Ása, Ásgerður og Böðvar, bróðir okk- ar, í Mávahlíðinni, þar til Böðvar fann sitt konuefni, hana Rósu, og Ása sitt mannsefni, hann Óla. Þá fluttu Ása og Óli í Hafnar- fjörð, keyptu sér þar hús og bjuggu þar síðan. Ása og Óli eignuðust eina dótt- ur, Ágústu Guðrúnu, f. 20.6. 1983. Þegar Óli andaðist 1998 eftir þung og erfið veikindi var það þeim mæðgum mikið áfall. En þær tókust saman á við sorgina, og þegar Ágústa síðar eignaðist börnin sín voru þau ömmu sinni mikið gleðiefni. Ása sló aldrei af sér við vinnu, hér heima vann hún ýmis störf, það gerði hún líka þegar suður var komið. Afgreiðslustörf voru henni hugleikin, enda vann hún lengi í verslunum. Síðast vann Ása við gangavörslu, sem henni líkaði vel, átti gott með að umgangast börn- in. En svo kom áfall sem enginn átti von á. Ása greindist árið 2013 með Alzheimer-sjúkdóminn, sem fer illa með þá sem fyrir verða, sem leiddi til þess að 2015 var ekki um að ræða að hún gæti ein haldið heimili. Ekki reyndist auðvelt fyrir hana að komast í dvöl í Hafnar- firði. Þá er mér nær að halda að örlögin hafi ákveðið að Ása hafi átt að koma heim í Hólminn og ljúka þar ævigöngu sinni. Hér heima gat hún fengið pláss á Dvalar- heimilinu þegar eftir því var leit- að. Í Hólminum bjó hún því síð- ustu tvö æviárin við gott atlæti og umönnun, sem aldrei verður full- þakkað fyrir. Reyndar áttum við von á að ævidagar hennar yrðu fleiri. En enginn ræður sínum næturstað, sérstaklega ekki þegar erfiðir sjúkdómar taka völdin. Ása var þessi ár nánast daglegur gest- ur hjá okkur Bergi mági, eins og hún sagði alltaf. Þar til heilsan leyfði ekki fleiri gönguferðir. En nú á kveðjustundu þökkum við þér, Ása mín, allan kærleika þinn við okkur og börnin okkar. Ágústu og fjölskyldu biðjum við Guð að styrkja í sorg þeirra og söknuði. Far þú í friði, kæra systir, á fund ástvina þinna sem farnir eru. Sesselja og Þorbergur. Elsku Ása okkar er fallin frá. Ég kynntist Ásu haustið 1999, í gegnum Ágústu dóttur hennar. Fljótlega kom svo í ljós að við vorum frænkur, meira að segja náskyldar, og þá varð faðmur Ásu extra stór. Hún varð mér hreinlega sem önnur móðir og seinna dóttur minni sem auka amma. Alltaf átti hún knús á lager og alltaf gat ég leitað til hennar, sama hvað var. Og hún hafði alveg einstaka nærveru. Mér er minnisstæðast þegar ég var að fara að gifta mig árið 2006. Ekki hafði hún tök á að vera viðstödd því hún var búin að panta sér utanlandsferð til Danmerkur að mig minnir. En hún gerði mér stóran greiða og nokkuð sem henni fannst svo sjálfsagt, hún lánaði bróður mínum, sem hvorug okkar hafði hitt og var að koma frá Svíþjóð, íbúðina sína í heila viku! Og að ég skyldi fá að borga fyrir að fá íbúðina lánaða? Nei, því skyldi ég bara gleyma. Sumarið 2014 var hún byrjuð að veikjast og hún kom í heimsókn til okkar til Noregs ásamt Ágústu dóttur sinni og barnabörnunum og þær voru hjá okkur í tæpar þrjár vikur. Það var yndislegur tími og ég er svo óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að hafa hana í heimsókn í þennan tíma. Ákvörðun Ágústu að koma með hana í heimsókn var hárrétt því það mátti ekki tæpara standa, því eftir þetta hrakaði heilsu hennar verulega. En nú hefur hún fengið frið. Elsku besta Ása mín, takk fyrir allar minningarnar, knúsin, góðu ráðin og hjálpina. Og takk fyrir að vera auka amma fyrir Ástrós Erlu. Við kveðjum þig með söknuði. Elsku Ágústa okkar og börn, við samhryggjumst ykkur af öllu okkar hjarta. Hulda Markhus. Okkur langar að minnast í nokkrum orðum fyrrverandi sam- starfskonu okkar, Áslaugar Krist- ínar Pálsdóttur. Hún Ása okkar vann síðustu ár starfsævinnar sem skólaliði í Flataskóla í Garða- bæ. Hún var lítil, ljúf og yndisleg kona sem lét sig varða líðan og heilsu bæði okkar og barnanna í skólanum. Öllum þótti ósköp vænt um hana. Hún var þægileg og skemmtileg í umgengni og oft með hnyttin og góð svör, þó að hún tæki lífið svolítið alvarlega stundum enda hafði hún lent í ýmsum erfiðleikum um ævina eins og að missa manninn sinn langt fyrir aldur fram. Börnunum í skól- anum þótti líka vænt um þessa litlu konu, hún var góð við þau og passaði vel upp á þau og af mikilli ábyrgð. Þeim þótti svo ótrúlega gaman að fá að mæla hæð sína við hana því það var markmiðið að verða stærri en Ása. Það var yndislegt að sjá hvað hún ljómaði upp þegar hún talaði um barnabörnin sín og greinilegt að þau voru sólargeislarnir henn- ar. Ása var kona sem var vinur vina sinna og lét sér annt um fólk- ið í kringum sig og þá ekki síst börnin. Oft hringdi hún til að spjalla eftir að hún hætti að vinna eða kíkti í heimsókn á gamla vinnustaðinn. En svo fluttist hún í sinn gamla heimabæ Stykkishólm og þá misstum við nú svolítið sam- bandið þó að einhverjar okkar hafi heimsótt hana þangað. Við mun- um alla tíð minnast hennar Ásu okkar með mikilli hlýju og vænt- umþykju – þannig var hún, hlý og elskuleg. Elsku Ása, hvíl í friði, friður Guðs þig blessi og hafðu þökk fyrir allt og allt. Við vottum Ágústu, barnabörnunum og öðr- um aðstandendum okkar dýpstu samúð. Kveðja frá vinkonum úr Flata- skóla, Linda, Sigrún, Dóra, Sigurlaug, Sigfríður, Helena, Sólveig og Stefania. Í rökkurró hún sefur með rós að hjartastað. Sjá haustið andað hefur í hljóði á liljublað. Við bólið blómum þakið er blækyrr helgiró. Og lágstillt lóukvakið er liðið burt úr mó. Í haustblæ lengi, lengi um lyngmó titrar kvein. Við sólhvörf silfrin strengi þar sorgin bærir ein. (Guðmundur Guðmundsson) Hvíl í friði og takk fyrir allt. Hugur minn er hjá dóttur og barnabörnum, megi minningin vera ljós í lífi ykkar allra. Kveðja, Kristín J. Þorbergsdóttir. Áslaug Kristín Pálsdóttir HINSTA KVEÐJA Bestu minningarnar mínar eru þegar ég gisti hjá ömmu Ásu og við fórum saman með bænir. Hún sagði mér líka sögur frá því að hún var lítil fyrir svefn- inn. En besta minningin mín var þegar við forum í göngutúra og gáfum önd- unum brauð og þegar við spiluðum Ólsen Ólsen. Ég elska þig amma og mun ávallt sakna þin og ég verð dugleg að koma og heimsækja þig í kirkju- garðinn eftir skóla. Ástarkveðja. Þín, Ólöf Hulda. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, GRÉTAR HARALDSSON hæstaréttarlögmaður, lést þriðjudaginn 14. mars. Útförin verður frá Fossvogskirkju föstudaginn 31. mars klukkan 13. Gréta Hrund Grétarsdóttir Gunnar B. Finnbogason Halldóra Grétarsdóttir Haraldur Grétarsson Harpa Ágústsdóttir Heiðrún Grétarsdóttir Kristján Hrafn Guðmundsson Jakobína Marta Grétarsdóttir Benny Lindgren Sigurður Júlíus Grétarsson Bergþóra S. Þorbjarnardóttir Þóra Steinunn Pétursdóttir Jón Óttar Ólafsson Þórunn Grétarsdóttir Björn Sighvatsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, SVERRIR PÁLSSON, fv. skólastjóri, Mosateigi 7, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 24. mars. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 6. apríl klukkan 10.30. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. Ellen Lísbet Pálsson Sigríður Sverrisdóttir Brandur Búi Hermannsson Lárus Sverrisson Inga Björg Sverrisdóttir Torfi Ólafur Sverrisson Páll Sverrisson Guðbjörg Ingimundardóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGMUNDUR GRÉTAR MAGNÚSSON, fyrrverandi yfirlæknir, áður að Steinavör 4, Seltjarnarnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Grund 26. mars. Útförin verður auglýst síðar. Guðlaug Sigurgeirsdóttir Sigurgeir Sigmundsson Hildur Ásta Viggósdóttir Sigríður Sigmundsdóttir Hermann Ársælsson Guðrún Sigmundsdóttir Gylfi Óskarsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku konan mín, dóttir mín, mamma okkar, tengdamamma og amma, SESSELJA HAUKSDÓTTIR, fyrrverandi leikskólafulltrúi, lést 22. mars. Útförin verður auglýst síðar. Þorsteinn G. Benjamínsson Júlía Guðmundsdóttir Freyja Hlíðkvist Ómars- og Sesseljudóttir Haukur Hlíðkvist Ómarsson Helga P. Finnsdóttir Hrafn Hlíðkvist Hauksson Salka Hlíðkvist Einarsdóttir Hekla Hlíðkvist Hauksdóttir Hugrún Hlíðkvist Hauksdóttir Guðmundur Valgeir Þorsteinsson Inga Dögg Þorsteinsdóttir Kjartan Ásþórsson Arnar Þór Þorsteinsson Aron Smári Kjartansson Karen Dís Kjartansdóttir Thelma Sól Kjartansdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.