Morgunblaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2017 ✝ Grethe AarisHjaltested fæddist í Viborg í Danmörku 11. nóv- ember 1916. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Sóltúni 10. mars 2017. Foreldrar Grethe voru Jens Jensen Aaris múr- arameistari, fædd- ur 18. ágúst 1889 í Viborg, dáinn 6. júní 1979, og Emilía Kristine Aaris, fædd í Álaborg 20. september 1890, dáin 25. júní 1976. Bróðir Grethe var Jens Ib Aaris, f. 1922, d. 1964. Grethe giftist 27. apríl 1940 Birni Hjaltested framkvæmdastjóra í Reykja- vík, f. 9. desember 1905, d. 20. apríl 1980. Foreldrar Björns voru Georg Pétur Hjaltested stjórnarráðsfulltrúi, f. 12. maí 1865, d. 15. júlí 1937, og kona hans Soffía Dorothea Finsen, f. 23. maí 1876, d. 30. júní 1952. Fyrri kona Björns var Margrét Einarsdóttir, f. 1906, d. 1938, og sonur þeirra Walter, f. 14. mars 1934, d. 10. febrúar 2010. Grethe og Björn eignuðust þrjú börn: 1) Jytte, frv. flug- freyja, f. 5. maí 1941. Eigin- fræðingur, f. 22. febrúar 1949, eiginkona hans var Maríanna Haraldsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, f. 3. febrúar 1950, d. 12. mars 2002. Dóttir þeirra er Lísa Björk, kjóla- og klæð- skerameistari, f. 15. apríl 1981, í sambúð með Kára Guðmunds- syni rafeindavirkja, f. 10. jan- úar 1982. Börn þeirra eru Maríanna, f. 2009, Theodór Emil, f. 2012, og Jón Stirnir, f. 2010. Grethe ólst upp í Viborg á Jótlandi. 18 ára flutti hún til Kaupmannahafnar og hóf nám í sjúkraþjálfun. Að námi loknu starfaði hún á endurhæfingar- heimilinu Hald í Kaupmanna- höfn í tvö ár þar til hún fluttist til Íslands árið 1939 til að starfa við og kenna sjúkra- þjálfun. Í byrjun starfaði hún við sjúkraþjálfarastörf á læknastofu Björgvins Finns- sonar og síðan á læknastofu Kristjáns Hannessonar gigt- arlæknis. Grethe og Björn hófu búskap árið 1940 og bjuggu öll búskaparár sín á Ásvallagötu 73 í Reykjavík. Grethe var meðlimur í Dansk kvindeklub í Reykjavík allt frá stofnun fé- lagsins til dauðadags. Gegndi hún þar ýmsum trúnaðarstörf- um og var sæmd Dannebrog- orðunni fyrir störf sín í þágu félagsins árið 1986. Einnig var hún virkur meðlimur í Thor- valdsensfélaginu. Útför Grethe fer fram frá Neskirkju í dag, 28. mars 2017, og hefst athöfnin klukkan 15. maður hennar Gunnar Geirsson tæknifræðingur, f. 18. desember 1934, d. 14. maí 2010. Sonur þeirra er Björn viðskipta- fræðingur, f. 1. desember 1971, kvæntur Hildi S. Aðalsteinsdóttur stjórnmálafræð- ingi, f. 10. mars 1977. Börn þeirra eru Grethe María, f. 2000, Aðalsteinn Karl, f. 2006, og dóttir, f. 2017. 2) Edda Kristín hjúkrunarfræð- ingur, f. 11. ágúst 1945, d. 4. október 2009. Edda giftist 1968 Jóni Friðrikssyni lækni, f. 12. desember 1944, þau skildu. Synir þeirra eru: a) Friðrík Örn ljósmyndari, f. 18. febrúar 1970. Börn hans eru Úlfhildur Lokbrá, f. 2007, og Ísleifur Skorri, f. 2011. b) Óli Rafn deildarstjóri, f. 17. ágúst 1974. Eiginkona hans er Valgerður Magnúsdóttir, f. 26. maí 1976. Börn þeirra eru Atli Þór, f. 2008, og Edda Sól, f. 2009. Síð- ari eiginmaður Eddu er Pétur Sveinbjarnarson, fv. fram- kvæmdastjóri, f. 23. ágúst 1945. 3) Jens Pétur viðskipta- Fyrir nokkrum mánuðum blés amma mín á kertin í 100 ára af- mælisveislu sinni. Minnug og skýr í kollinum þrátt fyrir háan aldur en orðin þreytt á hreyfingar- leysinu sem lærbrot á heimili hennar fyrir sex árum hafði í för með sér. Hjá ömmu var best að vera. Ás- vallagatan var rót æsku minnar þar sem ég fann öryggi heimilis- ins. Hvern krók, kima og fer- metra þekkti ég sem handarbakið mitt en skipulagið var alla tíð eins, hver hlutur átti sinn stað. Tertur og smákökur voru ávallt á boð- stólum og sykursnúðurinn ég átti til að týnast inni í kökuskápnum og sofna með súkkulaði út á kinn- ar. Nóg var um verkefni hjá ömmu Grethe og lærðist mér vandvirkni við eldhússtörf, og að pressa dúka, bóna silfur, baka tertur, mála grindverkið, slá blettinn, þvo bílinn, hreinsa arfa, saga tré í kamínuna og muna að trekkja upp stofuklukkuna. Danski hreimurinn var alltaf til staðar eftir 80 ár á Íslandi enda flestar vinkonur hennar af sama uppruna og gjarnan töluð danska á heimilinu. Níræð hætti hún að keyra eins og herforingi um götur borgarinnar en alla tíð var hún ið- in að kíkja í heimsóknir og út- rétta. Margar ferðirnar áttum við saman, allt frá því að þvera Ísland og að fara endilanga Kyrrahafs- strönd Kaliforníu. Stuðning átti ég ávallt vísan þótt gjarnan væri hún ekki sammála mörgum æv- intýrunum. Yfirvegun og ró ein- kenndi Grethe en hún var einstak- lega hógvær og nægjusöm. Börnin mín komu mikið í heim- sókn til langömmu og ærsl þeirra glöddu hana. Baksturshefð henn- ar hafa þau tekið upp og eftirlæti hennar „Konungsætt“ er að lær- ast hjá yngstu kynslóðinni. Þegar ég spurði ömmu á 95 ára afmæl- inu hvort hún hefði viljað gera eitthvað öðru vísi á ævinni svaraði hún „Ferðast, nú hef ég nægan tíma en enga heilsu“. Mikið er ég þakklátur fyrir for- réttindin að hafa deilt lífinu með yndislegu ömmu Grethe og að við fengum tækifæri til að kveðjast sátt og glöð. Friðrik Örn Hjaltested. Thorvaldsenskonur kveðja í dag aldursforseta sinn Grethe Hjaltested. Hún gekk í félagið árið 1975 og var virk í starfi þess hátt í hálfa öld. Grethe sinnti lengst af sjálf- boðastörfum við afgreiðslu á Thorvaldsensbazar, Austurstræti 4, ásamt ýmsum trúnaðarstörf- um. Stórglæsileg og vel tilhöfð sótti hún félagsfundi og var fyrirmynd annarra með prúðmennsku sinni. Grethe fylgdist vel með fram- vindu mála hjá Thorvaldsens- félaginu þó aldurinn færðist yfir og bað fyrir kveðju á fundi þegar hún átti ekki lengur heimangengt. Hún studdi ávallt góðgerðar- verkefnin með kaupum á jólakort- um og jólamerkjum félagsins. Þegar Thorvaldsenskonur færðu henni blómvönd í tilefni af 100 ára afmæli hennar varð henni að orði: „Já, ég náði því.“ Með virðingu og þökk kveðja Thor- valdsenskonur góða félagskonu og ljúfa samfylgd og votta fjöl- skyldu og vinum samúð. Anna Birna Jensdóttir, formaður Thorvaldsens- félagsins. „Gullfoss – mødet mellem dansk og islandsk kultur i 1900- tallet“ er titill á áhugaverðri bók sem gefin var út ekki alls fyrir löngu. Þar er meðal annars fjallað um þátttöku Dana í íslensku atvinnu- lífi á liðinni öld. Margt er þar for- vitnilegt og lesandinn verður fljót- lega þess áskynja hversu stórt framlag Dana var hér á Íslandi á ýmsum sviðum þjóðfélagsins og þá ekki síður í íslensku menning- arlífi. Grethe Aaris Hjaltested sem við kveðjum hér í dag var ein þeirra kvenna, sem þar komu við sögu. Hún var menntaður nuddari en starfaði við sitt fag aðeins fyrst framan af eftir komuna til Ís- lands. Síðan í upphafi seinni heims- styrjaldarinnar átti hún ekki aft- urkvæmt til Danmerkur, þá gift kona með fjölskyldu, eiginmann og börn. Grethe átti síðar þátt í að stofna félag danskra kvenna á Ís- landi, Dansk Kvindeklub, og gegndi þar formennsku til margra ára. Það var einmitt á þeim vett- vangi sem móðir mín, Katrín Vig- fússon, og Grethe kynntust. Vinátta þeirra styrktist eftir því sem árin urðu fleiri. Það var svo ótal margt sem var þeim sam- eiginlegt, og þá helst það hversu auðvelt þeim reyndist að tileinka sér íslenska siði og hætti um leið og þær héldu tryggð við uppruna sinn og þjóðerni. Þær tóku ást- fóstri við Ísland og Íslendinga og þeirra góði danski húmor hefur eflaust oft létt þeim lífið í útlegð- inni. Grethe var afar glæsileg kona, falleg og yfirveguð, en hún var ekki allra og einmitt þess vegna skipti tryggð hennar og góðvild í minn garð mig máli. Hugsunin var skýr til hinsta dags og um- hyggja hennar fyrir okkur systr- um og fjölskyldum okkar entist þar til yfir lauk. Og þá er komið að kveðju- stundu. Minninguna um Grethe Aaris Hjaltested mun ég geyma vel og lengi. Megi hún hvíla í friði. Aðstandendum sendi ég ein- lægar samúðarkveðjur. Guðbjörg Tómasdóttir. Grethe Aaris Hjaltested ✝ Margrét G.Ingólfsdóttir fæddist 1. júní 1939 á Húsavík. Hún lést 14. mars 2017. Hún var dóttir hjónanna Pálínu S. Þórðardóttur hús- móður, f. 23. apríl 1917, d. 1. mars 1972, og Ingólfs Sigurðssonar, f. 20. ágúst 1914, d. 14. október 1999, skrifstofumanns hjá Eim- skipafélagi Íslands. Hún var elst þriggja systkina, en hin tvö eru: Elín Lára Ingólfsdóttir, f. 3. mars 1943, og Sigurður Ing- ólfsson, f. 25. nóvember 1948. Margrét ólst upp í Reykjavík. forvörður í nokkur ár. Margrét starfaði einnig á Heilsugæslu- stöð Miðbæjar frá 1991-1994. Síðustu árin dvaldi hún á hjúkrunarheimilinu Mörk við Suðurlandsbraut. Margrét gift- ist Knúti Bruun árið 1961. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Elín Björk, f. 8. desember 1959, dætur hennar og Garðars Ólafssonar eru: a) Hildur Snjó- laug, f. 2. september 1994, og b) Margrét Agla, f. 25. febrúar 1999. 2) Ingólfur, f. 5. maí 1963, maki Margrét Helga Hjartardóttir, synir þeirra eru: a) Hjörtur, f. 14. nóvember 1996, b) Njörður, f. 31. ágúst 2001, og c) Börkur, f. 9. maí 2009. 3) Hildur Snjólaug, f. 24. maí 1964, maki Björn Hróars- son. Sonur Hildar og Garðars Sigurðssonar er Knútur, f. 17. mars 1994, sonur Hildar og Jóns Hinriks Garðarssonar er Steinn, f. 28. maí 2000. Útför Margrétar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hún lauk grunn- skólaprófi frá Laugarnesskóla. Vann hjá Ríkisféh- irði og síðar launa- deild fjármálaráðu- neytisins frá árinu 1954 til 1980. Út- skrifaðist frá Öld- ungadeild Mennta- skólans við Hamra- hlíð vorið 1981. Haustið 1981 hóf hún nám í forvörslu við Kons- ervatorskolen, Det kongelige kunstakademi. Hún útskrifaðist þaðan sem forvörður árið 1985. Áður en námi lauk stofnaði Margrét Morkinskinnu ásamt Hilmari Einarssyni og Ríkharði Hördal. Hún starfaði þar sem „Kallarðu heimilið mitt að- stöðu?!“ sagði Gréta með sínum hárbeitta húmor á góðri stundu. Tilefnið var ummæli kunningja Ingólfs, sonar Grétu, sem kom í heimsókn á Hverfis- götuna og gat ekki annað en dáðst að því sem fyrir augu bar, stórum stofum, listaverk- um og heimsbókmenntum uppi um alla veggi, að ógleymdu ein- staklega vel úthugsuðu eldhúsi. Hann missti út úr sér: „Asskoti mikil aðstaða!“ Þessi setning og ekki síður hið snaggaralega til- svar Grétu hafa oft verið rifjuð upp í fjölskyldunni og vinahópi okkar Ingólfs öllum til skemmt- unar. Það var einmitt í „aðstöð- unni“ sem leiðir okkar Grétu tengdamömmu lágu saman þeg- ar ég fór að gera mig heima- komna þar á bæ fyrir tæplega 30 árum. Ég varð fyrir svip- uðum áhrifum og fyrrnefndur kunningi, hreifst strax af þessu fallega heimili sem bar þess vott að hér höfðu miklir fag- urkerar og listunnendur hreiðr- að um sig. Við nöfnurnar vor- um báðar svolítið vand- ræðalegar og feimnar í fyrstu, en fljótlega hristum við það af okkur og lærðum að meta hvor aðra. Þegar fólk talar um sí- gagnrýnandi tengdamæður skil ég ekki hvað það á við. Gréta sýndi mér aldrei annað en vin- semd og hjálpsemi, tók mig al- gjörlega inn í fjölskylduna og studdi mig og hvatti á allan hátt. Hún gaf mér rausnarlegar gjafir við hin ýmsu tækifæri, svo stundum þótti mér nóg um, en þar var Grétu rétt lýst, gjaf- mild og höfðingleg, gerði allt með stæl. Eitt af því sem við tengda- mæðgurnar áttum sameiginlegt var áhugi á fallegri tónlist. Stundum fórum við saman á tónleika, stundum í óperubíó þegar það kom til. Alltaf var gaman að rabba við Grétu eftir slíkar ferðir um það sem við höfðum fengið að sjá og heyra. Þegar hún var sérstaklega hrif- in eða heyrði af góðum lista- mönnum dreif hún í að kaupa geisla- og mynddiska og kynna sér viðkomandi betur. Svona var Gréta þegar vel lá á henni, hrifnæm með eindæmum og ekkert að tvínóna við hlutina. Grétu var svo ótal margt til lista lagt. Allt lék í höndunum á henni og nýttist það henni vel í starfi sínu sem forvörður. En hæfileikar hennar fengu ekki síst útrás í eldhúsinu, þar sem Gréta var engri lík. Hún dreif upp ótrúlegar veislur sem margir minnast þar sem hver rétturinn af öðrum lék við bragðlaukana. Ég þarf ekki nema rétt að loka augunum til að sjá Grétu fyrir mér við elda- vélina á Hverfisgötunni með sleifina í annarri hönd og sígar- ettuna í hinni, þrjá potta á vél- inni og steik í ofninum. Þá var hún aldeilis í essinu sínu. En Grétu leið ekki alltaf vel á síðustu árum. Veikindi og langvinn barátta við Bakkus settu mark sitt á líf hennar og ollu hennar nánustu hugar- angri. Það var erfitt að upplifa vanlíðan Grétu, hvernig hún einangraði sig í auknum mæli og var sjálfri sér verst eftir því sem tíminn leið. En hún átti þó sem betur fer sínar góðu stund- ir, einkum með barnabörnunum sem hún elskaði svo heitt. Hún var boðin og búin að hjálpa til við uppeldið meðan hún hafði heilsu til, prjóna peysur og sokka, skutla í íþróttir og tón- listarskóla, gefa gott að borða og baka fyrir afmæli og ferm- ingar. Gréta var svo sannarlega til staðar fyrir sína nánustu á sinn hljóðláta hátt. Að leiðarlokum kveð ég Grétu með þakklæti í hjarta, minnist dillandi hláturs og góðra stunda. Ég vona að okk- ur Ingólfi auðnist að heiðra og halda minningu nöfnu minnar á lofti, ekki síst í hjörtum son- arsona hennar sem allir sakna nú góðrar ömmu. Margrét Helga Hjartardóttir. Meira: mbl.is/minningar. Margrét G. Ingólfsdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BIRNA SUMARRÓS HELGADÓTTIR sjúkraliði, Gvendargeisla 136, Reykjavík, andaðist föstudaginn 24. mars á líknardeild Landspítalans í Kópavogi Útför hennar verður auglýst síðar. Bogi B. Ingimarsson Hanna Berglind Gísladóttir Ragnar Guðmannsson Ingimar Þór Bogason Fanný Kolbrún Bogadóttir Styrmir Þór Davíðsson og barnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar föðursystur okkar, GYÐU ÞÓRÐARDÓTTUR, Vesturvegi 3, Þórshöfn. Sérstakar þakkir til starfsfólks á sjúkradeild Sjúkrahússins á Húsavík fyrir einstaka umönnun og alúð. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Helena Þórðardóttir Þórður Þórðarson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÞÓRÐUR B. BACHMANN rafvirki, Berugötu 30, Borgarnesi, andaðist í Brákarhlíð, Borgarnesi, laugardaginn 25. mars. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 4. apríl klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningasjóð Brákarhlíðar, sjá heimasíðu: www.brakarhlid.is Björg H. Kristófersdóttir Anna Þ. Bachmann Ólafur Ágúst Pálsson Kristófer Þórðarson Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVEINGERÐUR BENEDIKTSDÓTTIR, áður til heimilis að Egilsstöðum 1, Villingaholtshreppi, verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju föstudaginn 31. mars klukkan 14. Helgi Kristmundsson Sigríður F. Þórhallsdóttir Einar Sigurþórsson Georgía M. Kristmundsdóttir Kristín R. Sigurþórsdóttir Snorri Baldursson Jónas B. Sigurþórsson Margrét Þorvaldsdóttir Þórdís Sigurþórsdóttir Jón Ólafur Óskarsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.