Morgunblaðið - 08.04.2017, Page 2

Morgunblaðið - 08.04.2017, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017 Grand Indókína Víetnam, Laos og Kambódía | 14.- 31. okt. Verð frá:655.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar. Á mann m.v. 2 í herbergi. Verð án Vildarpunkta: 665.900 kr. Fararstjóri er Héðinn Svarfdal Björnsson. VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Ingveldur Geirsdóttir Auður Albertsdóttir Drungalega rólegt var yfir miðborg Stokkhólms í gærkvöldi, að sögn Estridar Brekkan, sendiherra Ís- lands í Svíþjóð. Greinilegt væri að fólk væri slegið yfir árásinni sem átti sér stað í miðborginni um miðjan dag í gær. Estrid býr í miðbænum og sagði í samtali við Morgunblaðið seint í gærkvöldi að mun færra fólk væri á ferli í bænum en á venjulegu föstudagskvöldi. „Ég fór aðeins út í kvöld og mér fannst vera drungalega rólegt yfir borginni og á sumum göt- um var ekki einn einasti maður á ferli.“ Estrid sagði að enn væru í gildi tilmæli frá lögreglunni um að fólk ætti að halda sig í burtu frá árás- arsvæðinu, það væri enn lögreglu- vettvangur. Þrátt fyrir ringulreið í borginni í gær reyndi lítið á aðstoð sendiráðs- ins. „Það voru örfáir sem hringdu og það var ekkert alvarlegt. Það var ein ung kona með dóttur sína sem beið hjá okkur fram á kvöld eftir að vera sótt,“ sagði Estrid. Annars hefði helsta vinnan verið að miðla upplýs- ingum á netið. Almenningssamgöngur fóru úr skorðum í Stokkhólmi í kjölfar árásarinnar þegar aðallestarstöðin var rýmd. Estrid sagði það hafa ver- ið það helsta sem fólk lenti í vand- ræðum með en allt hefði verið að komast aftur í samt lag í gærkvöldi. Grátur og öskur Fjöldi Íslendinga var í miðborg- inni þegar árásin átti sér stað. Birna Hrönn Gunnlaugsdóttir og Helena Reynisdóttir urðu vitni að árásinni, en þær voru á leið í Åhléns City- verslunarmiðstöðina þegar flutn- ingabíl var ekið inn í húsið. Þær voru að ganga út úr búð þegar þær heyrðu mikil læti og flutningabíllinn brunaði framhjá þeim. Birna sagði í samtali við mbl.is í gær að þær hefðu þá tekist í hendur og hlaupið aftur inn í búðina. „Það hlaupa allir í end- ann á búðinni og þá kemur annar hvellur. Allir tryllast og við hlaupum ennþá lengra, á bak við í búðinni. Þar er hurð og það fyrsta sem við gerðum var að hlaupa út og eins langt og við gátum,“ útskýrði Birna. Allir hefðu ver- ið grátandi í búðinni og sumir öskrandi. Sama sagði Helga Margrét Marzellíusar- dóttir, sem var með 10 ára dóttur sína í kjallara versl- unar á Drottningar- götu þegar árásin átti sér stað. Þeim hefði verið fylgt út bakdyramegin og þar hefði algjör ringulreið blasað við þeim og lögreglubílar og sjúkrabílar verið úti um allt. „Þá varð svolítið panik“ Fjórtán ára sonur Jónu Bríetar Guðjónsdóttur var staddur í miðbæ Stokkhólms þegar árásin átti sér stað. Hann var á leiðinni með lest á handboltamót ásamt fleirum. „Hann hringir í mig um 20 mínútum eftir að þetta gerist og sendir mér svo nokk- ur skilaboð en svo er ekkert hægt að ná í hann því allt símasamband dett- ur út, þá varð svolítið panik,“ sagði Jóna Bríet, sem hefur búið ásamt eiginmanni sínum og þremur börn- um í úthverfi Stokkhólms í sex ár. Sonur hennar var rétt hjá árásar- staðnum, en móðir eins vinar hans var líka þar rétt hjá og kom þeim í öruggt skjól. Maður Jónu Bríetar vinnur hjá orkufyrirtækinu Vattenfall og þar læstist húsið í nokkurn tíma af ör- yggisástæðum eftir árásina, auk stórrar verslunarmiðstöðvar sem er þar við hliðina. Þá tók hann um þrjá klukkutíma að komast heim úr vinnunni, lestarferð sem tekur vana- lega um klukkustund. Jóna Bríet segir að allir leikskólar og skólar hafi verið með opið lengur ef fólk lenti í vandræðum með að ná í börnin sín. Drungalegt yfir borginni  Mjög fáir á ferli í miðborg Stokkhólms í gærkvöldi  Fáir höfðu samband við sendiráð Íslands í Svíþjóð  Algjör ringulreið  Náði ekki í 14 ára son sinn AFP Sorgardagur Árásin átti sér stað kl. 14.53 að staðartíma, á horni Åhléns-verslunarmiðstöðvarinnar við Drottningargötu sem er stærsta göngugata borgar- innar, og rétt fyrir ofan aðalneðanjarðarlestarstöðina. Flutningabíl var stolið og hann notaður sem vopn. Fjórir eru látnir og 12 hið minnsta slasaðir. Guðni Th. Jó- hannesson, for- seti Íslands, sendi Karli XVI. Gústaf Svíakon- ungi samúðar- kveðju fyrir hönd íslensku þjóðarinnar vegna hryðju- verksins í mið- borg Stokk- hólms. Í kveðjunni segir forsetinn að hugur Íslendinga sé hjá þeim sem nú eigi um sárt að binda. Með árásinni sé vegið að grunngildum samfélagsins. „Við sem viljum verja lýðræði, frelsi og mannréttindi verðum að standa saman gegn öfl- um öfga og ógnar.“ Vegið að grunn- gildum samfélagsins Guðni Th. Jóhannesson „Hugur okkar er hjá frændum okkar og vinum, Svíum. Þetta er mjög nálægt okkur og þetta er ekki bara árás á Svíþjóð, þetta er árás á okkur öll,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra. „Þetta minnir okk- ur á að þessi ógn er raunveruleg og það er gott til þess að vita að ríkislögreglustjóri er mjög vel vakandi, en ég er sammála for- sætisráðherra um að við þurfum að líta á þessi mál. Við erum með þjóðaröryggisáætlun og með stofnanir sem eiga að gæta örygg- is okkar. En það breytir því ekki að það er eilífðarmál að gæta ör- yggis okkar fólks.“ Minnir okkur á að ógnin er raunveruleg Guðlaugur Þór Þórðarson Sigríður Á. Andersen dóms- málaráðherra segir árásina í Svíþjóð, eins og allar aðrar árásir á saklausa borg- ara, viður- styggilega. Reglulega sé í skoðun hvort til- efni sé til að vera með varanlegan viðbúnað hér vegna mögulegra árása. „Við reynum að vera eins vel búin og við getum með þann mann- afla og það tilefni sem við höfum fyrir okkur á hverjum tíma. Góð al- menn löggæsla er besti undirbún- ingurinn fyrir þetta,“ segir hún. Varanlegur viðbún- aður til skoðunar Sigríður Andersen Ekki er til skrá yfir þann fjölda Íslendinga sem býr í Stokkhólmi en á Facebook- síðu sem heitir Íslendingar í Stokkhólmi eru rúmlega 2.000 manns skráðir. Segir Estrid það vera helstu heim- ildina um fjöldann. Ekki var búið að gefa út upplýsingar um fórnarlömb árásarinnar í gærkvöldi en ekki lítur út fyrir að Íslend- ingar séu meðal þeirra, að sögn Estridar. „Við vorum í sambandi við lögregluna í dag [gær] og fengum þær upplýs- ingar að ef það kæmi í ljós að útlendingar væru meðal lát- inna eða slasaðra tilkynnti lögreglan það strax til sænska utanríkisráðuneytisins, sem hefði þá samband við við- komandi sendiráð. Við höf- um ekki heyrt neitt það- an og við vonum að við fáum ekki neitt slíkt símtal.“ Sendiráðið ekkert heyrt ÍSLENDINGAR Í BORGINNI Estrid Brekkan Nýjum ísfisktogara HB Granda, Engey RE 91, var formlega gefið nafn í gær í móttökuathöfn við Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn. Rúmir tveir mánuðir eru síðan skipið, sem var smíðað í Tyrklandi, kom til landsins. Síðustu vikur hefur verið unnið að því að koma fyrir bún- aði í skipinu, sem verður eitt það tæknivæddasta í íslenska flotanum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra gaf Engey nafn með formlegum hætti og Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur blessaði skipið, sem fer til veiða í lok apríl. Á næstu mánuðum koma tvö ný skip inn í flota HB Granda; Akur- ey og Viðey. sbs@mbl.is Engey fær formlega nafn  Verður eitt tæknivæddasta skip flotans Morgunblaðið/Eggert Nafn Engey skal hún heita og sjávarútvegráðherra sá um nafngiftina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.