Morgunblaðið - 08.04.2017, Síða 22

Morgunblaðið - 08.04.2017, Síða 22
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Níutíu og eitt prósent þeirra sem fara með fé á Íslandi eru karlar, að því er fram kom í máli Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur á morgun- fundi Samtaka atvinnulífsins og Ís- landsbanka um jafnréttismál sem haldinn var á Hilton Nordica í vik- unni, undir yfirskriftinni „Erum við forystuþjóð“. Fundurinn hófst með því að Ragn- hildur Steinunn fór yfir helstu við- fangsefni bókarinnar Forystuþjóð, sem hún skrifaði ásamt Eddu Her- mannsdóttur, sem stjórnaði pall- borði ráðstefnunnar. Meðal þess sem fram kom í yf- irferð Ragnhildar var að hér á Ís- landi væri lagalegt jafnrétti mikið, en pottur væri þó enn víða brotinn í jafnréttismálum. Nefndi hún að tvær konur stjórnuðu íslenskum bönkum og aldrei hafi verið fleiri konur á Alþingi en nú er. Þrír æðstu stjórnendur Seðlabanka Íslands væru hinsvegar karlar, auk fjár- málaráðherra sem væri karl, nær allir stjórnendur lífeyrissjóða væru karlar, og aðeins 9% framkvæmda- stjóra stórra fyrirtækja á Íslandi væru konur. Ragnhildur greip niður í bókina Forystuþjóð og vitnaði í Sigríði Mar- gréti Oddsdóttur, forstjóra Já, sem segir þar að samkvæmt samskipta- áætlun fyrirtækisins ætti hún að vera minna í fjölmiðlum, þar sem rótgróin staðalímynd kvenna segi að konur eigi erfiðara en karlar með að verja erfiðar ákvarðanir fyrirtækis í fjölmiðlum. Ragnhildur vitnaði ennfremur í orð Kára Stefánssonar, forstjóra Ís- lenskrar erfðagreiningar, í bókinni þar sem hann segir að heili karla og kvenna virki mismunandi, og það skýri af hverju kynin veljist í mis- munandi störf. Hvað sjávarútveg varðar þá segir Þorsteinn Már Baldvinsson í bókinni að sjávarútvegurinn sé á skjön við flestar greinar hvað kynjamál varð- ar, konur sæki síður á sjó og sæki síður í sjávarútvegsfræði. Ragnhildur lauk máli sínu með því að segja að jafnrétti kynjanna væri ekki kvennamál, þó svo að nánast all- ir fundargestir væru konur, og ein- hver hafði á orði að þarna á morgun- fundinum töluðu „konur við konur“. Karlar taki meiri ábyrgð Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sagði í pall- borðsumræðum að verkefni væri framundan í jafnlaunavottun í fyrir- tækjum, en fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um slíka vottun. Brynja Baldursdóttir, forstjóri Creditinfo, sagði að mikilvægt væri að karlarnir tækju meiri ábyrgð á fjölskyldu og börnum svo annar aðilinn endaði ekki með að þurfa að „fórna ein- hverju“. Róbert Wessman, forstjóri Alvo- gen, sagði að starfið þyrfti að hefjast strax í leikskóla. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sagðist ekki hafa fundið fyrir ójafn- rétti fyrr en hún kom á vinnumark- aðinn. Hún sagði einnig að mögulega skiluðu umræðurnar um kynjakvóta og jafnlaunavottun meiru en regl- urnar sjálfar. Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka, sagði að bankinn hefði lagfært laun 10-20 kvenna í kjölfar jafnlaunavottunar fyrir einu og hálfu ári, það hefði opn- að augu hennar og verið góð æfing. .Morgunblaðið/Eggert Kynjamál Jafnrétti kynjanna ekki kvennamál. Frumvarp um jafnlaunavottun gæti orðið að lögum á vorþinginu Karlar eru 91% þeirra sem fara með fé hér á landi  9% framkvæmdastjóra stórra fyrirtækja konur  Konur sækja síður á sjóinn 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017 8. apríl 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 112.2 112.74 112.47 Sterlingspund 139.76 140.44 140.1 Kanadadalur 83.53 84.01 83.77 Dönsk króna 16.085 16.179 16.132 Norsk króna 13.04 13.116 13.078 Sænsk króna 12.463 12.537 12.5 Svissn. franki 111.78 112.4 112.09 Japanskt jen 1.0124 1.0184 1.0154 SDR 152.16 153.06 152.61 Evra 119.62 120.28 119.95 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.8487 Hrávöruverð Gull 1264.3 ($/únsa) Ál 1955.5 ($/tonn) LME Hráolía 54.13 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Áætlað er að kostnaður ríkis- sjóðs við uppkaup skuldabréfa að nafnvirði 877 millj- ónir bandaríkja- dala, sem tilkynnt var um í vikunni, nemi um 15,3 millj- örðum króna. Skuldabréfin, sem bera 5,875% fasta vexti til árins 2022, voru keypt til baka á genginu 115,349. Það yfirverð og sá kostnaður sem fylgir uppkaupunum færist sem fjár- magnskostnaður á yfirstandandi ári og er í raun að hluta fyrirframgreiddur fjármagnskostnaður næstu ára, að því er segir í frétt sem birt var á vef fjár- málaráðuneytisins í gær. Samtals hækkar fjármagnskostnaður ríkissjóðs því um 10,9 milljarða króna á þessu ári. Á móti vegur lækkun vaxtakostnaðar um 4,4 milljarða króna á árinu 2017 og um 5,9 milljarða króna árlega á árunum 2018-2022. Núvirtur ábati ríkissjóðs af þessari ráðstöfun er metinn á liðlega 11 milljarða króna yfir tímabilið þar til skuldabréfin hefðu fallið á gjalddaga. Kostnaður vegna upp- kaupa um 15 milljarðar Ríkið Uppkaupum fylgir kostnaður. STUTT Í síðastliðnum mánuði flugu tæplega 252 þúsund farþegar með vélum Icelandair en þeir voru ríflega 220 þúsund í sama mánuði í fyrra. Fjölg- aði þeim því milli tímabilanna um 14%. Í Mola sem Íslandsbanki sendi viðskiptavinum sínum er bent á að nokkuð bjartara sé yfir tölunum sem félagið birtir nú en í febrúar, þegar sætanýting reyndist mun dræmari en í sama mánuði 2016. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 19% og veldur það því að sætanýting félagsins fellur úr 84,1% í 82,4%, eins og fram koma í flutn- ingatölum sem Icelandair Group sendi til Kauphallar í fyrradag. Bendir Íslandsbanki á að nýting- arhlutfallið hjá félaginu í mars síðastliðnum sé svipað og í sama mánuði fyrir tveimur árum en taka verður tillit til að framboðið nú er miklu meira en þá. Framboðnar gistinætur á hótelum Icelandair voru tæplega 28 þúsund talsins í mars og fjölgaði þeim um 14% frá árinu á undan. Þá fjölgaði seldum gistinóttum mikið eða um 21% og reyndust þær ríflega 23.900. Þrátt fyrir stóraukið framboð fór nýting- arhlutfallið úr 81,2% í mars í fyrra í 86% nú. Sætanýting hjá Flugfélagi Íslands lækkaði frá fyrra ári og reynist 62,8%, en hún var 69,3% í mars í fyrra. Segir Íslandsbanki að það kunni helst að skýrast af því að páska bar upp í mars í fyrra en þeir eru í apríl í ár. Ferðaglaðir Íslend- ingar sem hugsa sér til hreyfings innanlands yfir hátíðina eru því lík- legir til að hækka nýtingarhlutfallið í þessum mánuði. Einnig virðist töluverð aukning í fraktflutningum hjá samstæðunni. Þannig fjölgaði seldum tonnkíló- metrum um 9% frá fyrra ári. Telja bjartara yfir tölum Icelandair Morgunblaðið/Júlíus Flutningatölur Páskar hafa áhrif á fjöldann hjá Flugfélagi Íslands.  14% fjölgun farþega í millilandaflugi Hagnaður bifreiðaumboðsins Brim- borgar nam 718 milljónum króna á síðasta ári en hann var 327 milljónir króna árið á undan. Tekjur félagsins námu 18,1 milljarði króna á síðasta ári sem er tæplega 39% aukning á milli ára. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 1.222 milljónum króna en EBITDA árið 2015 var 714 milljónir. Eignir félagsins námu 9,0 millj- örðum króna í lok síðasta árs og hækkuðu um 2,2 milljarða miðað við áramótin þar á undan. Skýrst það m.a. af því að bókfært verð fasteigna var hækkað og fært til samræmis við áætlað markaðsverð. Eigið fé nam 2,0 milljörðum króna í árslok og var eiginfjárhlutfall félagsins 22,4%. Stjórn Brimborgar leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð tæplega 180 milljónir til hluthafa á þessu ári en ekki var greiddur út arður á árinu 2016. Hluthafar í félag- inu eru Jóhann J. Jóhannsson með 33,1%, Egill Jóhannsson með 26,8%, Arnór Jósefsson með 16,0%, Mar- grét Egilsdóttir með 13,2%, Margrét Rut Jóhannsdóttir með 8,2% og Aníta Ósk Jóhannsdóttir með 1,9%. Morgunblaðið/Styrmir Kári Hagnaður Brim- borgar tvöfaldast  Tekjur aukast um tæp 40% milli ára Bílar Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, sem m.a. er umboðsaðili Volvo. ● Fjarskiptafélagið Nova hagnaðist um ríflega 1,2 milljarða í fyrra og jókst hann um tæpar 50 milljónir frá fyrra ári. Tekjur félagsins námu ríflega 8,5 millj- örðum og jukust um ríflega 940 millj- ónir milli ára eða um 12%. Rekstrar- kostnaður nam ríflega 6,2 milljörðum og jókst um tæpar 700 milljónir milli ára. Þar af jókst launakostnaður um tæpar 200 milljónir en stöðugildi voru 137 að meðaltali á árinu samanborið við 134 árið áður. Eiginfjárhlutfall Nova nam tæpum 69% um áramót. Þannig voru eignir fé- lagsins tæpir 5,7 milljarðar króna og höfðu aukist um tæpar 600 milljónir frá fyrra ári. Skuldir jukust hins vegar úr rúmum 1,4 milljörðum í ríflega 1,7 millj- arða. Því nam eigið fé félagsins í árslok tæpum 3,9 milljörðum króna og hafði aukist úr tæpum 3,7 milljörðum. Morgunblaðið/Golli Liv Bergþórsdóttir er forstjóri Nova. Hagnaður Nova 1,2 milljarðar á síðasta ári

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.