Morgunblaðið - 08.04.2017, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 08.04.2017, Qupperneq 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017 Öræfajökull Ísjakar úr jöklinum vekja athygli ferðamanna. Þegar ísinn bráðnar koma í ljós síbreytileg myndverk náttúrunnar sem eru líkust því að draugslegar ásjónur glotti framan í heiminn. RAX Alltaf fylgist maður af athygli með hverri nýrri ríkisstjórn, áformum hennar og hvernig ráðherrar fara af stað í sínum mála- flokkum. Við fengum nýjan fjármálaráð- herra sem þekkir vel farvegi fjármagnsins og skilur lögmál at- vinnulífsins og á að baki mikla reynslu á sviði fyrirtækjareksturs. Benedikt Jó- hannesson hefur séð margt í gegn- um sín gleraugu og ætla verður að reynsla hans sé honum og þjóðinni dýrmæt í nýju starfi. Nú stofnaði nýja ríkisstjórnin embætti ferðamálaráðherra, sem var tímabært. Svo mikill hefur vöxt- urinn verið í atvinnugreininni að hún er að verða jafnoki sjávar- útvegsins í öflun gjaldeyris og fjár- festing ferðaþjónustunnar til að taka á móti langeygum ferðamönn- um sem streyma hingað sem aldrei fyrr er gríðarleg og vaxandi. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra er kornungur stjórnmálamaður með mikla reynslu að baki og kemur mjög vel fyrir, einbeitt og skýr í öllum til- svörum. Því kemur það á óvart mið- að við þekkingu Bene- dikts og Þórdísar, sem að auki er ung kona í Sjálfstæðisflokknum, að þau leggi til að VSK verði hækkaður í efra skattþrep og þau reikni út að 20 millj- arða viðbótarskatt- lagning á þennan bernskuatvinnuveg landsmanna muni skila sér og greinin muni standa undir honum. Fyrir utan hitt að unga fólkið í Valhöll hlýtur að fordæma þessa skattahækkun og slá á fingur Benedikts og Þórdísar Gylfadóttur. Þegar Bjarni Benediktsson, þá fjármálaráðherra, nú forsætisráð- herra, lagði fyrir Alþingi frumvarp til fjárlaga í haust, var tónninn m.a. þessi í frumvarpinu: Ferðaþjón- ustan er stærsta gjaldeyrisskapandi atvinnugrein þjóðarinnar, árið 2015 skilaði hún 364 ma. kr. Það ár komu 1,3 milljón ferðamanna hingað (en í ár milljón fleiri.) Síðan voru mark- miðin talin upp sem gera þyrfti. Ráðuneytið lofaði síðan og setti fram þessi markmið í frumvarpi sem samþykkt var með nánast öll- um atkvæðum alþingismanna: „Í fyrsta lagi bættri greiningu og öflun upplýsinga um stöðu og þróun ferðaþjónustu. Í öðru lagi að mótun markmiða og áherslna um þróun greinarinnar, skipulag og áhrif verði sett í forgang og í þriðja lagi að átak verði í uppbyggingu innviða ferðaþjónustu til að vernda við- kvæma náttúru, auka öryggi ferða- manna og tryggja jákvæða upplifun þeirra.“ Allt er þetta eins og blómstrið eina, en svo kemur hel- köld loppa skattpíningarinnar og ætlar að hremma 20 milljarða við- bótarskatt og áformin góðu virðast fokin út í veður og vind. Litli unginn kafnaði í kúadellunni Hinsvegar er það eins og vant er að umbúðirnar utan um þessi áform eru úr pappír blekkinganna og skreyttum með þyrnirósum. Þessi áform, ef af verður, munu snúast upp í andhverfu sína, þ.e. skattsvik, gjaldþrot og vonda umræðu um greinina. Litlu og meðalstóru ferða- mannafyrirtækin, sem verið er að byggja upp til að taka á móti ferða- mönnunum, fara verst út úr aðgerð- inni, ekki síst á landsbyggðinni. Svo vitum við af langri reynslu að inni í fjármálaráðuneytinu liggja gulnaðar skýrslur sérfræðinganna sem alltaf hafa viljað matinn í hærra skatt- þrep, þær deilur eru 25 ára gamlar, enda er sagt að nú verði stigið skref til að koma öllum VSK í hæsta þrep, þar liggur nefnilega hund- urinn grafinn. Svo loka þeir aug- unum fyrir þeirri staðreynd að VSK á ferðaþjónustuna er í lægra þrepi um alla Evrópu og honum verður ekki hér hent út í verðlagið öðru vísi en með ringulreið og afleið- ingum í komu ferðamanna til lands- ins. Enginn einn atvinnuvegur eftir hrun hefur verið þessari þjóð jafn dýrmætur og ferðaþjónustan með sína innkomu í gjaldeyri, en samt liggur fyrir að ný stefnumörkun í samráði við hana ætti að vera fólgin í samráði ríkisins (ferðamálaráð- herrans) við ferðaþjónustuna og sveitarfélögin. Allir eru sammála um þörfina að byggja upp innviði og þörfina að mæta auknu þjónustu- stigi við erlenda ferðamenn, gesti okkar Íslendinga. Vegir, göngustíg- ar, öryggismál vernd náttúrunnar, dreifing ferðamannanna um landið, allt var þetta efst á blaði, að maður hélt. Því skora ég á Þórdísi Kol- brúnu að láta ekki plata sig í upp- hafi starfs síns sem ráðherra heldur setja upp starfshóp, hlusta fyrst, ákveða svo, enga vitleysu. Svo spyr ég enn hvað um komugjöld til landsins? Tvö til þrjú þúsund krón- ur á ferðamann, gjald til náttúrunn- ar, veganna og öryggisins. Slíkt gjald væri sanngjarnt yrði það bundið atvinnugreininni og innviða- uppbyggingu. Komugjöldin leggjast jafnt á alla ferðamenn en ekki bara hluta af starfseminni. Komugjöldin ná til skemmtiferðaskipanna, en þau hafa eitt markmið: að hámarka hagnað sinn um borð og skilja sára- lítið eftir í landinu en troðfylla svæðin við Gullfoss og Geysi á há- annatímum. Skemmtiferðaskipin sigla þangað sem þau fá allt fyrir ekkert. Áformin eru hinsvegar aug- ljós frá fjármálaráðuneytinu, mat- arskatturinn skal upp, þessi eilífa umræða og blinda um eitt skattþrep gengur nú svo langt að ekki er hik- að við þau áform sem geta dauðrot- að ferðaþjónustuna í fæðingu. Svo liggur hitt fyrir að styrking krón- unnar hefur þegar rýrt afkomu og tekjur ferðaþjónustunnar og fært Ísland á það stig að vera eitt dýr- asta ferðamannaland Evrópu. Litli lóuunginn sem kýrin drullaði yfir forðum beið þess aldrei bætur og komst aldrei upp úr kúadellunni, hann kafnaði. Hver er kýrin og hver er í hlutverki litla ungans, það sjá allir? Eftir Guðna Ágústsson » Þessi eilífa umræða og blinda um eitt skattþrep gengur nú svo langt að ekki er hikað við þau áform sem geta dauðrotað ferðaþjón- ustuna í fæðingu. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. ráðherra. Ætlar ríkisstjórnin að dauðrota ferðaþjónustuna?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.