Morgunblaðið - 08.04.2017, Síða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017
Íkeppni áskorendaflokks Skák-þings Íslands sem fram fer íStúkunni á Kópavogsvelli þarsem keppt er um tvö sæti í
landsliðsflokki hefur Ísfirðingurinn
Guðmundur Gíslason unnið allar
skákir sínar og er 1 ½ vinningi á und-
an Jóhanni Ingvasyni og Lenku
Ptacnikovu sem eru með 3 ½ vinning.
Með þrjá vinninga eru nokkrir,
þ. á m. Jón Kristinsson, eini kepp-
andinn sem orðið hefur Íslandsmeist-
ari en það gerðist árin 1971 og aftur
1974.
Óvænt úrslit á bandaríska
meistaramótinu
Spænski leikurinn er eins og marg-
ir vita nefndur eftir spænskum presti,
Ruy Lopez. Hann var samfara mikl-
um breytingum sem urðu á iðkun
skákar þegar styrkur drottningarinn-
ar var aukinn á skákborðinu en
breytingin er rakin til hylli Ísabellu
Spánardrottningar sem eins og sagan
greinir frá greiddi götu Kristófers
Kólumbus. Eftir níu algengustu leiki
þess spænska á svartur marga val-
kosti og einn þeirra sem virkar svolít-
ið skringilega er afbrigði Ungverjans
Breyer og byggist á því að riddara er
leikið upp í borð.
Vinur okkar Boris Spasskí, sem
varð áttræður 30. janúar sl., tefldi
Breyer-afbrigðið af slíkum þokka að
unun var á að horfa. En þar kom að
hann tapaði; í 10. einvígisskák gegn
Fischer í Laugardalshöllinni um
verslunarmannahelgina 1972 og aftur
20 árum síðar í fyrstu skák endur-
komueinvígis þeirra í Júgóslavíu.
Spasskí lagði meira til þróunar af-
brigðisins með hvítu en flesta grunar;
í áskorendaeinvígi sem hann háði við
Lajos Portisch árið 1977 vann hann
lykilskák með slíkum glæsibrag að
mótspyrna Ungverjans hrundi. Á
bandaríska meistaramótinu í St. Lou-
is kom eiginlega „systurskák“ þess-
arar viðureignar. Wesley So heldur
naumri forystu en stórskytturnar
Hikaru Nakamura og Fabiano Car-
uana hafa átt í basli og sá síðarnefndi
missti sennilega af lestinni í keppni
um efsta sætið þegar hann tapaði í 7.
umferð fyrir lítt þekktum Úkraínu-
manni sem náði við það efsta sæti
ásamt So. Staðan á toppnum:
1. – 2. So og Zherebukh 4 ½ v. (af
7) 3. – 4. Akobian og Nakamura 4 v. 5.
– 9. Robson, Caruana, Shankland,
Naroditsky og Onischuk 3 ½ v. Kepp-
endur eru 12 talsins.
Bandaríska meistaramótið 2017:
Zherebukh – Caruana
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8.
c3 O-O 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11.
Rbd2 Bb7 12. Bc2 He8 13. Rf1 Bf8
14. Rg3 g6 15. a4 c5 16. d5 c4 17. Bg5
h6 18. Be3 Rc5 19. Dd2 h5 20. Bg5
Bg7 21. Hf1 Dc7
Allt saman þekkt en drottningin
gæti verið betur geymd á e7 til að
eiga f8-reitinn.
22. Bh6 Bh8 23. Rg5 Rh7 24. Rxh7
Kxh7 25. Be3 De7 26. f4!
Þessi framrás reynir á burðarveggi
kóngsstöðunnar en riddarinn fær e5-
reitinn.
26. … exf4 27. Bxf4 Kg8 28. Hf3
Bg7 29. Haf1 Rd7 30. Bh6 Bxh6 31.
Dxh6 Df8 32. Dd2 Re5 33. Hf6 Had8
34. Dg5 Dg7 35. Bd1! Bc8 36. Dh4
Kf8 37. Df4 Dg8 38. Kh1 He7
39. Bxh5!
Þessi biskup sem stundum rekst á
eigin peð í spænska leiknum tekur nú
til óspilltra málanna. Það er ekki hollt
að taka hann: 39. … gxh5 40. Rxh5 og
„Houdini“ segir mér að svarta staðan
sé óverjandi.
39. ... bxa4 40. Bd1 Dg7 41. Bxa4
Dh7 42. Dg5 a5 43. Kg1 Dh8 44.
H1f4 Dg7 45. Hh4 Rd3 46. Hh6 Re5
47. Hf4 Bd7 48. Dh4! Kg8 49. Dxe7
He8 50. Dg5 Bxa4 51. Hf6
- og svartur gafst upp.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Fullt hús Guðmundur Gíslason að tafli í Stúkunni á Kópavogsvelli.
Guðmundur Gíslason efstur í
áskorendaflokki Íslandsmótsins
Í allri hinni oft ótrú-
legu umræðu um
áfengismál, sem nú á
sér stað á Alþingi þar
sem gæðingar gróða-
aflanna eru enn á ferð
með sinn áfengisupp-
vakning, heyrir maður
eða sér þá fullyrðingu
að engin aukning hafi
orðið á neyzlu áfengis
við tilkomu bjórsins.
Þetta hefur svo sem verið marg-
hrakið, en ég var einmitt áðan að
lesa viðtal við þann mæta yfirlækni
á Vogi, Valgerði Rúnarsdóttur, sem
engum held ég detti í hug að fari
með rangar tölur hvað þá staðlausa
stafi um þessi mál og hennar tölur
eru sláandi, aukningin er sem sagt
úr 4% fyrir bjórinnleiðinguna upp í
7% í dag og ég hvet áfengisunnend-
urna á Alþingi til að kynna sér og
jafnvel virða sem ótvíræða sönnun
um áhrifin. En viðtalið við Valgerði
er fyrir svo margra hluta sakir at-
hyglisvert enda talar þar sú sem
veit og skilur. Þar á meðal er vax-
andi neyzla aldraðra með tilheyr-
andi vandamálum, m.a. umtals-
verðri fjölgun innlagna á Vog. Þetta
er skelfileg þróun, þar sem sagt er
að fólk í einmanaleik sínum grípi
bjór eða léttvín sér til svokallaðs
lífsauka með þeim alvarlegu afleið-
ingum sem Valgerður bendir á.
Menn horfa gjarnan helzt til hinna
ungu og óreyndu og þar er vissu-
lega þörfin brýnust og skilar bezt-
um árangri ef vel tekst til. En svo
bætist þetta við í hinn
enda æviskeiðsins.
Meðal þeirra yngstu
hefur líka verið unnið
markvisst forvarnar-
starf sem hefur virki-
lega skilað sér, þó ekki
lengra en í tíunda bekk
því miður.
En framhaldsskól-
arnir þurfa ekki síður
að taka sér tak með
öllum þeim ágætu
kröftum sem einmitt
hafa verið að vinna svo
vel á grunnskólastiginu. Það má
hreinlega ekki verða það rof sem
þar er nú. Það að áfengisneyzla
snaraukist strax eftir grunnskóla-
nám er ástand sem ekki er unnt að
sætta sig við og þar þarf einnig
markvissar aðgerðir og allra sízt að
gera eitthvað sem aukið getur vand-
ann svo sem nú er róið að öllum ár-
um af ákveðnum þingmönnum sem
auðvitað eru knúðir áfram af þeim
sem þarna ætla að maka sinn ógeð-
uga krók.
Það er gjarnan fimbulfambað um
að þetta sé eitthvert framfaraspor í
átt til breytts tíðaranda, eitthvað
spánnýtt. Menn ættu þá að lesa
snjalla grein Ólafs Hauks Árnason-
ar, fyrrum áfengisvarnarráðunauts,
þar sem hann rekur söguna og
þetta frelsi kaupmanna til að selja
áfengi á fyrri tíð, (staupasöluna
margfrægu), er rakið og greint frá
til hvers ófarnaðar það leiddi á allan
veg. Þar kom að þjóðin sjálf reis
upp til varnar og það myndarlega.
Kannski það þurfi að gerast aftur.
Frábær er vönduð og óhrekjandi
Er til of mikils mælzt
að menn hlusti?
Eftir Helga
Seljan
Helgi Seljan
Jæja þingheimur,
látum nú reyna á
gegnsæið, sem þið
raupið endalaust um.
Hvað kosta hælisleit-
endur og hið svokallaða
flóttafólk okkur skatt-
greiðendur á ári? Þið
sem takið ákvarð-
anirnar um fólk og fé,
eruð að nota fjármuni
örþjóðar, þjóðar með
brotna innviði. Hver borgar silkihúf-
um Rauða krossins laun, það er
æðstu embættismönnunum og
hversu margir eru þeir orðnir? Það
mætti segja mér að þeir gæfu ekki
vinnuna sína. Því sækið þið fólk sem
þegar er í flóttamannabúðum, en
hjálpið ekki börnum sem eru ein á
ferð og þeim sem rekast undan vindi
í Evrópu jafnvel skólaus í kuldanum?
Áfram með gegnsæið, las í blöð-
unum mjög litla grein um að 123
nauðganir hafi átt sér stað í Reykja-
vík á síðasta ári. Því þegja þau hjá
Stígamótum, eða er bara hjólað í
Vestmannaeyinga á þjóðhátíð? Varla
eru þetta allt íslenskir karlmenn sem
nauðga, eða er þagað vegna þess að
hluti þeirra eru erlendir karlmenn?
Ekkert fáum við að heyra um fjölgun
líkamsárása í miðborginni um helg-
ar. Mætti segja mér að þar leiki Alb-
anar sér, og kæmi ekki á óvart. Hvað
er verið að halda uppi öllum þessum
körlum frá Albaníu, og þetta eru ekki
innfæddir Makedoníu-
menn, sem eru að
koma, heldur minni-
hlutahópur Albana í
Makedoníu. Því getur
RÚV ekki komið með
nákvæmar fréttir? Þið
skulið vita að þær þjóð-
ir og lönd, sem landa-
mæri eiga að Albaníu,
eru þéttsetin Albönum,
en þeir virða lítt aðrar
þjóðir.
Ykkur sem takið
ákvarðanir um þessi
mál leiðist ekki að vera höfð að fífl-
um. Ég mótmæli því að þurfa að
halda þessu liði uppi. Og þar sem fé
þjóðar er notað á þennan hátt, þá á
þjóðin rétt á að vita allt um þessi mál,
allar þær breytingar á þjóðfélaginu
og fjármuni sem tengjast þessum
málaflokki. Það vakna spurningar,
hvort þið eigið rétt á að fylla landið af
alls konar fólki og inn á brotna inn-
viði. Svandís Svavarsdóttir fór mik-
inn úr ræðustól Alþingis um að skila
náttúru landsins til komandi kyn-
slóða, en hún hugsar ekki fram í tím-
ann, hvernig eigi að varðveita eign-
arhald á landinu. Landi sem verið er
að selja í bútum undan okkur og svo
óábyrgur innflutningur á fólki mun
orsaka það að við missum tökin.
Auðmenn erlendir og innlendir
eru að eignast auðlindir okkar og
heilu dalina, svo hvað ætlar þú, Svan-
dís, að varðveita? Ef alþingismenn
fengjust nú til þess að hætta rifrild-
inu og veita betur athygli því sem er
að gerast í landinu okkar, þá mundi
okkur farnast betur. Á meðan herra-
þjóðin menntar hvaða kjána sem er,
þá eru grunnstörfin unnin af útlend-
ingum og íslenskan fer halloka, en
dæmið á eftir að snúast við. Það er til
nokkuð sem er andlegt fall þjóðar og
við erum einmitt á þeirri braut. Það
er ekki nóg að ala komandi kynslóðir
upp í því að vera góðu dýrin í skóg-
inum, þau eru nefnilega oftar en ekki
étin af þeim sem grimmari eru. Það
hefur aldrei gefist vel að spila sig
flottræfil, en nóg er af þeim á meðal
vor, sem gleypa við öllum og öllu í
fullvissu um að þeir hafi völdin. Farið
varlega.
Á virkilega að taka á móti Tyrkj-
um og Kúrdum, sem Norðurlönd
hafa hafnað? Vitið þið yfir höfuð hvað
þið eruð að gera, þið er hafið með
þessi mál að gera? Hvern skal kalla
til ábyrgðar? Öll þessi mál eru orðin
hömlulaus og grafalvarleg. Jú, við er-
um öll mennsk, en langt í frá bræður
og systur, það skulið þið muna.
Eftir Stefaníu
Jónasdóttur »Ef alþingismenn
fengjust nú til þess
að hætta rifrildinu og
veita betur athygli því
sem er að gerast í land-
inu okkar, þá mundi
okkur farnast betur.
Stefanía Jónasdóttir
Höfundur býr á Sauðárkróki.
Varúð
Hann var hæddur af
heiminum og yfirgefinn
af sínum eigin liðs-
mönnum. Og enn í dag
hæðast menn að honum
og yfirgefa. Samt lifir
hann, á fleiri vini og er
máttugri sem aldrei
fyrr.
Endir lífsins á kross-
inum forðum er upp-
spretta vonar og kær-
leika, mikils ávaxtar og
eilífs lífs.
Miðpunktur
sögunnar
Jesús Kristur er mið-
punktur sögunnar, út-
gangspunktur lífsins,
markmið þess og kjarni. Hann er
stjarnan sem birtir okkur kærleika
Guðs. Stjarnan sem vísar okkur veg-
inn að undrinu himneska. Veginn til
sannleika, friðar og réttlætis.
Jesús Kristur er uppspretta lífsins.
Fullkomnun kærleika Guðs. Næring í
erli dagsins. Hann er lífið sjálft. Boð-
beri friðar og fyrirgefningar. Himna-
ríkið sem við flest leitum að og mörg
þráum innst inni. Honum sé dýrð um
aldir alda og að eilífu.
Jesús Kristur er orð Guðs og and-
lit. Hinn eini sanni vegvísir heim til
lífsins. Hann er brauð lífsins. Ljós
heimsins. Og dyrnar að hinni eilífu
dýrð.
Að fylgja Kristi kostar hugrekki.
Hann er hinn eftirsóknarverði fjár-
sjóður. Hin dýrmæta perla sem vert
er að halda í. Til þess hreinlega að
komast af og lífi halda um eilífð.
Þegar mér finnst ég vera lítill og
smár, nánast einskis virði, líður illa og
er umkomulaus, þá finnst mér ekkert
betra en fá að horfa í augun á Jesú.
Eftir því sem ég horfi lengur og
dýpra finn ég að ég er elskaður af
ómótstæðilegri ást. Þá fyrst finn ég
almennilega fyrir því hversu dýr-
mætur ég raunverulega er. Elskaður
af höfundi lífsins, frels-
ara þess og fullkomnara.
Elskaður hreinlega út af
lífinu. Elskaður af hon-
um sem er lífið sjálft.
Hann lýsi okkur
leiðina heim
Njótum þess því að
fara afsíðis með honum
og koma kyrrð á hugann
til þess að fylla á tankinn
svo við getum látið um
okkur muna til góðra
verka sem hann hefur
kallað okkur til.
Leyfum honum að
tendra ljósið sitt eilífa í
hjörtum okkar svo það
fái logað þar um framtíð
bjarta og lýsi okkur veg-
inn svo við verðum til
heilla í umhverfinu á
leiðinni heim.
Leyfum kærleikans Guði að full-
komna mátt sinn í gegnum okkar
mannlega veikleika svo við verðum sá
farvegur kærleika hans sem okkur er
ætlað að vera. Óskiljanlegur hluti af
eilífri áætlun hans, markmiðum og
takmarki.
Því að Jesús Kristur er sigurvegari
dauðans og lífsins. Hann er okkar
áhrifaríkasti áheyrnarfulltrúi, tals-
maður, bróðir og sanni vinur í þeim
þrengingum sem heimurinn hefur
upp á að bjóða.
Fingrafar Guðs
Fegurðin býr þar sem fyrirgefn-
ing, réttlæti og friður faðmast. Feg-
urðin er fingrafar Guðs í þessum
heimi, og þú þar á meðal.
Varðveittu umfram allt hjarta þitt.
Því þaðan renna lækir lifandi vatns.
Andans vatn sem á uppsprettu sína í
hinni tæru og fullkomnu lind lífsins.
Með kærleiks- og friðarkveðju og í
von um góða tíð á grænum grundum.
Lifum og njótum í þakklæti.
Lifi lífið!
Uppspretta lífsins
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
» Fegurðin
býr þar sem
fyrirgefning,
réttlæti og frið-
ur faðmast.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.