Morgunblaðið - 08.04.2017, Page 37
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
BRYNJÓLFS GUNNARS
BRYNJÓLFSSONAR,
Akurgerði 21, Vogum
(áður Hellum á Vatnsleysuströnd).
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Sesselja Sigurðardóttir
Sigurður Brynjólfsson Alda Særún Guðbjörnsdóttir
Margrét Brynjólfsdóttir Steindór Guðmundsson
Sigurlaug Brynjólfsdóttir Halldór B. Sigurðsson
Brynjólfur G. Brynjólfsson
Guðmundur S. Brynjólfsson Sædís Ósk Harðardóttir
Gísli S. Brynjólfsson Sigríður Anna Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir og
fósturfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
JÓN PÁLL ÞORBERGSSON
flugvélstjóri,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
29. mars. Útför hans fer fram í Þjóðkirkjunni
í Hafnarfirði þriðjudaginn 11. apríl klukkan 13.
Blóm eru afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Hjartavernd.
Sigurbjörg Lárusdóttir og fjölskylda
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017
Kjarnakonan
Sesselja Hauksdótt-
ir hefur kvatt þetta
líf. Upp koma minn-
ingar og myndir frá löngu liðnum
árum þegar við unnum sem leik-
skólafulltrúar hvor í sínu sveitar-
félaginu. Það var gott að leita
ráða hjá Sesselju, hún nálgaðist
málin með hlýju og hjálpsemi en
gat líka verið föst fyrir ef því var
að skipta. Sesselja var vinnusöm,
eldklár og afrekaði oft svo miklu.
Ég skildi stundum ekki þennan
mikla kraft sem hún bjó yfir. Fáa
hef ég þekkt sem voru jafn
snöggir að þýða greinar og fylgj-
ast með því sem skrifað var um
leikskólamál og senda okkur leik-
skólafulltrúunum. Mikil sam-
heldni og samvinna var innan
hópsins og nokkrar eftirminni-
legar námsferðir voru farnar,
bæði innan lands sem utan.
Myndirnar sem eru til frá þess-
um ferðum sýna gleði og ham-
ingju en þær voru ekki síður fag-
legar. Leiðtoginn Sesselja sá til
þess að hópurinn kæmi saman í
lok dags til að fara yfir það sem
við heyrðum og sáum og ávallt
voru unnar gagnlegar skýrslur
sem kynntar voru pólitískum
fulltrúum sveitarfélaganna.
Þegar Sesselja tók við starfi
leikskólafulltrúa í Kópavogi hafði
verið mikill kraftur og fagleg
uppbygging í leikskólum sveitar-
félagsins. Því skipti það máli fyr-
ir þá sem þar störfuðu hver tæki
við keflinu og leiddi áfram þá
þróun sem þegar hafði verið
hrundið af stað. Sesselja tók við
því kefli og stýrði leikskólamál-
um í Kópavogi til fjölda ára af
mikilli atorku. Hún var fylgin sér
í hverju máli og hafði skýra sýn
og metnað fyrir hönd leikskól-
anna.
Hún var fagmanneskja sem
hafði sterkar skoðanir á því
hvernig hún vildi sjá leikskólana
þróast og segja má að hún hafi
verið vakin og sofin yfir velferð
og framtíð leikskólanna, leik-
skólakennara og barna.
Nú í janúar hittumst við
nokkrir fulltrúar og áttum saman
yndislega stund. Þá sá ég að mik-
ið var dregið af hetjunni sem
hafði glímt við veikindi um langa
hríð. Ég mun sakna þess að fá
ekki handunnið jólakort inn um
bréfalúguna fyrir næstu jól en
það var alltaf tilhlökkunarefni að
sjá hvernig næsta kort liti út og
finna hlýjuna í orðum hennar.
Ég minnist kærleiksríks faðm-
lags í hvert sinn sem við hittumst
og að leiðarlokum vil ég þakka
henni tryggð, greiðvikni og vin-
áttu.
Sigurlaug Einarsdóttir.
Það var ekki erfitt fyrir okkur
að samþykkja að vera með í les-
hring þegar Setta, okkar kæra
vinkona, kom með þá hugmynd
1994. Þetta átti að sjálfsögðu að
vera leikskólamiðaður leshringur
þar sem lesefnið væri ætlað til að
styrkja okkur og styðja í starfi.
Metnaðurinn var mikill, aldrei
slakað á kröfunum um fag-
mennsku þó svo að umræðurnar
ættu það til að fjalla meira um
starfið sjálft en það sem við lás-
um.
Í upphafi voru meðlimir valdir
úr hópi vinkvenna Settu sem
þekktu hana úr ýmsum áttum.
Sumar höfðu verið með henni í
grunnnáminu í Fósturskólanum,
aðrar með henni í stjórnunar-
náminu við sama skóla og enn
Sesselja
Hauksdóttir
✝ SesseljaHauksdóttir
fæddist 12. júní
1948. Hún lést 22.
mars 2017.
Útför Sesselju
fór fram 7. apríl
2017.
aðrar unnið með
henni í leikskólan-
um Hlíðaborg.
Reynt var að hafa
meðlimina ekki of
marga og vorum við
oftast í kringum 11.
Meðlimir hafa farið
og komið í gegnum
tíðina, en sami
kjarninn haldist
nánast allan tímann.
Setta var mikil
hugsjónakona og hennar ástríða
var sjálfræði barna í leikskólum.
Við lásum mikið eftir uppeldis-
fræðingana Constance Kamii og
Rehta Devries og þýddum m.a.
bók þeirra sem við nefndum
„Piaget í menntun leikskóla-
barna“. Setta var búin að vera í
sambandi við Kamii og Devries
og fékk leyfi til að þýða bókina og
þess vegna að gefa hana út.
Því miður varð ekkert úr því
að við gæfum bókina út á ís-
lensku, enda markaðurinn ekki
stór og kostnaðurinn mikill. Þessi
vinna var hins vegar mjög gef-
andi og oft tilefni til skemmti-
legra funda.
Þegar þrjár okkar hittu Settu
örfáum dögum áður en hún lést,
mætti okkur fagmaðurinn Setta.
Hún talaði um að allir sem ynnu
með börnum þyrftu að hafa hug-
sjón, sem hún kallaði að hafa „sól
í hjarta“. Hún bætti við að hver
og einn leikskólakennari þróaði
fagmennsku sína með því að
safna bitum í sitt eigið púsluspil,
sem fælist í því að að tengja sam-
an eigin reynslu og fræðilega
þekkingu og móta þannig starfs-
aðferðir sínar með börnum.
Við lessystur komum til með
að halda leshringnum gangandi
Settu til heiðurs og erum þess
vissar að þannig hefði hún viljað
hafa það. Hún hefur kennt okkur
svo ótal margt og þrátt fyrir
veikindin sem hafa staðið ótrú-
lega lengi yfir, sleppti hún helst
ekki einum einasta leshring.
Aldrei var komið að tómum kof-
unum hjá henni, var ávallt lesin
og með spurningar á reiðum
höndum fyrir okkur að reyna að
svara.
Það er skarð fyrir skildi þar
sem Setta var og munum við
minnast hennar í hvert sinn sem
leshringurinn hittist. Við munum
einnig reyna að halda áfram að
vera metnaðargjarnar og fagleg-
ar. Einkunnarorð okkar voru og
eru „fróðleiksfúsar, forvitnar og
frábærar“.
Með þessum orðum senda nú-
verandi meðlimir leshringsins
fjölskyldu og ættingjum Sesselju
Hauksdóttur sínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Edda Gunnarsdóttir, Fanný
Heimisdóttir, Hrönn Valent-
ínusdóttir, Ingibjörg Ósk
Kjartansdóttir, Kristbjörg
Lóa Árnadóttir, Kristín
Karlsdóttir, Maríanna Ein-
arsdóttir, Sigríður Jóns-
dóttir, Soffía Þorsteinsdóttir
og Svana Kristinsdóttir.
Sunnan yfir sæinn breiða
sumarylinn vindar leiða.
Draumalandið himinheiða
hlær og opnar skautið sitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar,
hjartað mitt!
(Jóhannes úr Kötlum.)
Margar og ljúfar minningar
koma upp í hugann þegar við
kveðjum leiðtogann Sesselju
Hauksdóttur fyrrverandi leik-
skólafulltrúa og samstarfskonu
okkar.
Skarpur hugur – skemmtileg –
seigla – þvílík seigla – hugsjón-
kona og mikill vinnuþjarkur var
hún Setta, eins og við kölluðum
hana.
Við sem vorum svo lánsamar
að starfa með Settu í leikskólum
Kópavogs sjáum að baki miklum
fagmanni sem hafði hag barna
alltaf í fyrirrúmi, starfið var
hennar hugsjón. Hún fylgdist vel
með öllum rannsóknum á sviði
leikskólamála og var iðin við að
deila vitneskju sinni út í leik-
skólasamfélagið.
Í öllu starfi sínu var hún
lausnamiðuð, ráðagóð og fylgin
sér. Setta var óþreytandi í bar-
áttu sinni fyrir hugmyndafræði
leikskólans, hún var ötull tals-
maður stéttarinnar og starfsins í
leikskólunum. Hún var eldhugi,
sem barðist fyrir að móta skiln-
ing samfélagsins fyrir mikilvægi
leiks barna sem námsleiðar og
hugmyndum um leikskólann sem
menntastofnun. Trú hennar á
styrkleika og getu barna var
mikil og hún lagði áherslu á að
það ætti að hlusta á raddir barna
og að réttur þeirra væri virtur.
Menntun stéttarinnar var
henni hugleikinn og ruddi hún
brautina fyrir marga sem hafa
sótt sér leikskólakennaramennt-
un. Hún hafði mikla trú á mik-
ilvægi þess að nýta mannauð
hvers og eins, hún var okkur mik-
il fyrirmynd í þessu sem og
mörgu öðru.
Einlægur og óbilandi áhugi
hennar á starfi okkar og okkur
sem samstarfsfélögum og mann-
eskjum var mikill og hún var allt-
af tilbúin að sýna stuðning og
hvatningu.
Minningar um samveru, fundi,
ferðalög og skemmtanir að
ógleymdum hlátrinum og
gleðinni mun fylgja okkur. Hún
var svo léttlynd og naut lífsins –
falleg og flott.
Minning um sterka konu mun
lifa.
Við sendum innilegar samúð-
arkveðjur til fjölskyldu og ást-
vina.
Fyrir hönd leikskólastjóra,
leikskóla Kópavogs,
Helga Elínborg Jónsdóttir.
Í dag kveðjum við konu sem
markaði spor í samfélag okkar.
Sesselja Hauksdóttir hóf störf
sem leikskólafulltrúi Kópavogs-
bæjar í apríl 1991 og starfaði þar
samfellt í 24 ár eða til 1. sept-
ember 2015. Á því tímabili voru
11 nýir leikskólar opnaðir í Kópa-
vogi. Þegar Sesselja lauk störf-
um voru alls 21 leikskóli undir
hennar stjórn í Kópavogi.
Sesselju Hauksdóttur verður
minnst sem einnar af forvígis-
konum leikskólafræða á Íslandi.
Hún vann ötullega að því að auka
virðingu og viðurkenningu á leik-
skólum og stétt leikskólakennara
í samfélaginu. Sesselja var m.a.
einarður talsmaður þess að
starfsheitið fóstra viki fyrir
starfsheitinu leikskólakennari og
þess er oft minnst með glettni
hversu sterk viðbrögð samstarfs-
fólk fékk ef það gleymdi sér í orð-
ræðunni.
Sesselju var jafnframt hug-
leikið að efla og styrkja starfs-
menn leikskóla til sí- og endur-
menntunar og að hennar
frumkvæði var komið á virku
samstarfi um símenntun leik-
skóla meðal sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu. Einnig vann
hún að fjölgun leikskólakennara
og átti m.a. mikinn þátt í að koma
á laggirnar fjarnámi í leikskóla-
kennarafræðum við Háskólann á
Akureyri. Eitt af síðustu emb-
ættisverkum Sesselju var að
veita viðtöku viðurkenningunni
Orðsporinu 2015 fyrir hönd
Kópavogsbæjar. Viðurkenningin
var veitt fyrir það framtak sveit-
arfélagsins að styrkja starfs-
menn leikskóla til leikskólakenn-
aranáms og auka þannig nýliðun
í stéttinni. Sesselja var stoltur
frumkvöðull þann dag og við
samstarfsmenn glöddumst inni-
lega með henni.
Sesselja vann stöðugt að því að
efla gæði faglegs starfs með
börnum í leikskólum bæjarins.
Hún naut þess jafnframt að fara
út í leikskólana og sitja með
börnum við leik og samræður á
jafningjagrundvelli, í þeim fé-
lagsskap naut hún sín trúlega
best.
Sesselja naut mikillar virðing-
ar og farsældar í starfi jafnt inn-
an sem utan sveitarfélagsins.
Hún var einstaklega afkastamikil
og fylgin sér. Það sem Sesselja
ætlaði sér það framkvæmdi hún.
Við sem störfuðum með Sess-
elju síðustu ár dáðumst að æðru-
leysinu, kraftinum og óbilandi
eljunni. Aldrei kvartað, ávallt
skilaði hún afburða starfi þrátt
fyrir langa baráttu við krabba-
mein. Við minnumst húmorsins,
glettninnar og hlátursins. Og
ekki síst hljómsins í lyklaborðinu
þegar langar og vel snyrtar negl-
urnar hittu takkana.
Við, samstarfsmenn Sesselju
hjá Kópavogsbæ, þökkum henni
innilega fyrir samfylgdina í starfi
og leik og vottum Steina, börnum
hennar og fjölskyldum þeirra
innilega samúð okkar.
Fyrir hönd menntasviðs Kópa-
vogsbæjar,
Anna Birna Snæbjörnsdóttir.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og stuðning við andlát
og útför ástkærs eiginmanns, föður, sonar,
bróður, mágs og tengdasonar,
KRISTINS ÓLAFSSONAR,
doktorsnema í stofnerfðafræði,
Breiðvangi 67, Hafnarfirði.
Margrét Arnheiður Jónsdóttir
Sigríður Anna Kristinsdóttir
Inga Guðrún Kristinsdóttir
Ólafur Kristinsson Inga Þórarinsdóttir
Helga Ólafsdóttir
Lilja Ólafsdóttir Gunnar Sigurðsson
Guðlaugur Ólafsson Kristín Sigurðardóttir
Hildur Ólafsdóttir Greg Dixon
Jón Þorsteinsson Sigríður Anna Þórðardóttir
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
AÐALBJARGAR JÓNU
ÁSGEIRSDÓTTUR,
Löllu,
Garðabraut 45, Akranesi.
Sérstakar þakkir til Oddfellowsystra í Ásgerði fyrir ómetanlega
aðstoð við útförina.
Gylfi Þórðarson
Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir
Sólveig Jóna Ásgeirsdóttir
Ásgeir Ásgeirsson Hege Viken
Guðmundur Ásgeirsson Margrét Ýr Einarsdóttir
Agnar Ásgeirsson Elsa Jóna Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku amma.
Minningarnar
um þig eru svo ótrú-
lega margar. Allar eiga þær það
sameiginlegt að vera góðar og
einkennast af hlýju og kærleik.
Stundirnar hjá þér og afa í
Depluhólunum voru einstakar og
ég sóttist iðulega eftir því að fá
að vera hjá ykkur. Það var alltaf
svo gott að koma til ykkar.
Að fá að sitja uppi á borði inni
í eldhúsi og fylgjast með þér
baka bestu pönnukökur sem
hægt var að fá var alltaf jafn
gaman. Ekki skemmdi fyrir að
ég mátti borða þær um leið og
þær komu af pönnunni og í hvert
sinn sem þessi stund átti sér stað
sagðir þú mér að mamma hefði
gert þetta alveg eins þegar hún
var lítil.
Ég tel mig einstaklega heppna
Kolbrún Bærings
Halldórsdóttir
✝ Kolbrún Bær-ings Halldórs-
dóttir fæddist 27.
október 1936. Hún
lést 11. mars 2017.
Útför Kolbrúnar
var gerð 29. mars
2017.
að hafa átt þig sem
ömmu, hlýjan og
ástin frá þér var
ótakmörkuð.
Ég er þakklát
fyrir allar stundirn-
ar með þér, fyrir
allt sem þú hefur
kennt mér og fyrir
alla umhyggjuna.
Það var erfitt að
kveðja þig, elsku
amma, en hvernig
þú kvaddir var svo fallegt.
Kveðjustundin var í faðmi allra
dætra þinna og fjölskyldna.
Það er þér og afa að þakka að
fjölskyldan er eins og hún er,
samheldin og góð. Þegar þú
kvaddir okkur fann ég það svo
innilega hvað það skiptir miklu
máli að eiga góða að og það eru
forréttindi að tilheyra þessari
yndislegu fjölskyldu sem þú og
afi bjugguð til.
Ég kveð þig með miklum
söknuði og mun alltaf hugsa fal-
lega til þín.
Þú varst einstök kona með
hjarta úr gulli.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Þín
Sigrún (Systa litla).