Morgunblaðið - 08.04.2017, Síða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Kvíði er umfjöllunarefni gaman-
leikritsins Fyrirlestur um eitthvað
fallegt eftir leikhópinn SmartíLab
sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói
annað kvöld, sunnudag, klukkan
20.30. Í verkinu túlka fimm leikarar
ýmsar birtingarmyndir kvíða – þær
geta verið æði margar og eru um 12
prósent Íslend-
inga sögð þjást að
„óeðlilegum“
kvíða – og segja
leikararnir allt í
lagi að hlæja að
honum.
Sara Marti
Guðmundsdóttir
er leikstjóri
verksins en með
hlutverkin fara
Kjartan Darri
Kristjánsson, Sigrún Huld Skúla-
dóttir, Guðmundur Felixson, Agnes
Wild og Hannes Óli Ágústsson.
Brynja Björnsdóttir hannar leik-
mynd og búninga, Stefán Örn Gunn-
laugsson semur tónlist og Arnar
Ingvarsson hannar lýsingu.
Risastórt hugtak, kvíði
Þegar Sara Marti er spurð að því
hvort ekki felist ákveðin þversögn í
því að semja gamanleikrit um kvíða,
þá segir hún svo vera en einnig sé
mikilvægt að geta horft til þess góða
sem út úr því kemur.
„Að takast á við kvíðann þýðir að
fólk sé farið að hlúa að sér og það er
jákvætt,“ segir hún.
Leikhópurinn semur leikritið sam-
an en kveikjan að verkinu liggur í
kvíðakasti sem Sara Marti fékk sjálf.
„Í ágúst 2015 fékk ég mitt fyrsta
kvíðakast. Sat uppi í sófa og var að
horfa á sjónvarpið og þá dembdist
þetta yfir mig, eitthvað sem ég hafði
aldrei upplifað áður. Þessi rosalega
tilfinning, eins og ég þyrfti að taka á
sprett því ég væri í lífshættu en þó
var engin hætta – ég var bara heima
uppi í sófa að horfa á sjónvarp!
Innst inni vissi ég að ég væri að
upplifa kvíðakast en samt er þetta
svo yfirþyrmandi tilfinning að hluti
af manni efast og verður hræddur.
Þetta er lamandi tilfinning.“
Á sama tíma og Sara Marti fékk
kvíðakastið var hún að fylla út um-
sókn til leiklistarráðs og sækja um
styrki til að búa til önnur leikrit.
„Ég ákvað að sækja um leið um
styrk til að gera leikrit um kvíða, eft-
ir að hafa upplifað þetta sjálf. Ég
vissi ekkert um hvað það verk ætti að
vera – og fannst kvíðavaldandi að
skrifa umsókn um eitthvað sem ég
hefði ekkert mótað. En umsóknin
byrjaði í þessa veru: Baldur er að
halda fyrirlestur um nýjasta verkið
sitt en þar sem það er ekki fullmótað
þá veldur það honum miklum kvíða
og erfiðleikum, hann fær kvíðakast!
Svo fékk ég styrk til að gera þetta
verk. Ég fékk til liðs við mig leikara
sem bæði þekktu kvíða af eigin raun
og aðra sem þekktu það ekki neitt.
Helmingur hópsins hefur kynnst
kvíða. Við hittum svo sálfræðinga og
geðlækna, töluðum við fólk hjá Hug-
arafli og hjá öðrum frábærum sam-
tökum þar sem fólki er hjálpað að
glíma við kvíða, til að fræðast sem
best um fyrirbærið. Þetta er risa-
stórt hugtak, kvíði, og hægt að fara
með það í ýmsar áttir. Við bjuggum
til rúmlega tvö hundruð senur og at-
riði og höfum valið þær 35 sem okkur
langaði mest til að sýna og bjuggum
til úr þeim þennan gjörning sem við
köllum Fyrirlestur um eitthvað fal-
leg,“ segir hún.
Fræðast um fyrirbærið
Þegar spurt er hvort um stakar
senur sé að ræða eða heildstætt verk,
þá segir Sara Marti það byrja á
Baldri sem er að halda fyrirlestur og
það endar líka á honum.
„Allir fimm leikararnir heita Bald-
ur í sýningunni en þetta eru líka allt
mismunandi persónur. Sumar eru
með sögur sem birtast í nokkrum
senum en aðrar eru með sjálfstæðar
frásagnir. Sumar fjalla um það
hvernig tekist er á við kvíða – og þótt
við köllum þetta gamanverk þá eru
sumar senurnar sárar og erfiðar. En
okkur langaði líka að skoða hvernig
við gætum notað húmor í umfjöllun
um kvíða og það er mjög fyndið fólk í
þessum leikhópi. Við höfum til dæm-
is búið til ofurhetjukvíðamanninn en
það skiptir ekki máli hversu hræði-
legar aðstæðurnar eru sem hann
lendir í, hann hefur alltaf séð þær
fyrir sér sem miklu verri.
Birtingarmyndir kvíða eru gríðar-
lega mismunandi og við reynum að
sýna það,“ segir hún.
Sara Marti segir leikhús vera full-
kominn vettvang til að tækla allt
mögulegt og kvíðann þar með talinn.
„Eiga ekki listir að vera til þess
fallnar að takast á við allt? Það er
mjög jákvætt að kvíði sé mikið í um-
ræðunni núna enda eigum við að geta
talað frjálslega um slík vandamál. Ég
vona að þeir sem þjást af kvíða geti í
eina klukkustund í leikhúsinu sam-
samað sig með öðrum sem þekkja
hann af eigin raun og að hinir, sem
þekkja þetta ekki, fari heim aðeins
fróðari um fyrirbærið,“ segir leik-
stjórinn Sara Marti.
Beita húmor í
leikverki um kvíða
SmartíLab sýnir Fyrirlestur um eitthvað fallegt
Ljósmynd/Geiri X
Kvíðvænlegt „… þótt við köllum þetta gamanverk þá eru sumar senurnar sárar og erfiðar. En okkur langaði líka
að skoða hvernig við gætum notað húmor í umfjöllun um kvíða,“ segir Sara Marti Guðmundsdóttir.
Sara Marti
Guðmundsdóttir
Þungarokkssveitin Skálmöld gaf
síðla árs í fyrra út sína fjórðu breið-
skífu, Vögguvísur Yggdrasils, og
fagnar útgáfunni í kvöld kl. 20 með
tónleikum í Háskólabíói.
„Hefð hefur skapast fyrir því að
halda sitjandi útgáfutónleika eftir
hverja útgáfu Skálmaldar og engin
breyting skal á því gerð nú. Vöggu-
vísur Yggdrasils er metnaðarfullt
tónverk eins og Skálmeldinga er
von og vísa, myndræn saga í mörg-
um köflum og vel fallin til frásagn-
ar á stóru sviði. Fyrri sögur sveit-
arinnar hafa þannig verið sagðar í
máli og myndum, sögumenn og
leikarar hafa stigið á svið, texta-
smíðum varpað upp á tjald og allt
sett í hátíðarbúning og þá aðeins á
þessum sértilgreindu útgáfu-
tónleikum,“ segir um tónleikana á
Facebook og að þeir séu fyrir unga
sem aldna í „svolítið aðgengilegra
andrúmslofti en gengur og gerist
með slíka tónlist“. Skálmöld hefur
notið mikilla vinsælda hér á landi
hin síðustu ár, hélt m.a. þrenna tón-
leika í Eldborg árið 2013 með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands, Karlakór
Reykjavíkur, Hymnodiu og Skóla-
kór Kársnesskóla.
Í kvöld flytur hljómsveitin lög af
nýju plötunni auk úrvals laga af
eldri plötum.
Öflugur Skálmeldingurinn Björgvin
Sigurðsson í ham á tónleikum árið 2014.
Skálmöld heldur útgáfutónleika í Há-
skólabíói vegna Vögguvísna Yggdrasils
Morgunblaðið/Eggert
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 12 OG 2 TILBOÐ KL 12 OG 2
5%
TILBOÐ KL 2
SÝND KL. 2, 8, 10.35 SÝND KL. 5
SÝND KL. 8, 10.15SÝND KL. 8, 10.15
SÝND KL. 12, 2, 4, 6 SÝND KL. 12, 2, 4, 6